Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988 Jabbar að hælta Félagar hans hjá Lakers ætla að leggja allt í sölurnar til að vinna titilinn íyrir hann Vesturdeildin var lengi í skugga Austurdeiidarinn- ar en árangur Los Angeles Lakers síðustu ár hef- ur sýnt að liðin í Vesturdeildinni eru ekki siður sterk. Flestir búast við að Dallas og Lakers berj- ist um sigurinn í deildinni í vetur. Víst er þó að Portland, Denver, Utah eða Houston blanda sér í baráttuna í vor. I dag kynnum við liðin í Vestur- deildinni. Vesturdeild Líkt og í Austurdeildinni eru riðl- amir nokkuð ólíkir. Los Angeles Lakers er með langbesta liðið í Kyrrahafsriðlinum, en í Miðvestur- riðlinum eru fjögur jöfn og sterk lið. Dallas er þó sigur- stranglest af þeim liðum að vinna riðil- inn. Þá hafa nýlið- amir Miami heat verið settir í Miðvesturriðilinn (en eins og flestir vita er Miami á aust- urströnd Bandaríkjanná á Flórída- skaganum). Það gæti þó verið flutt austur næsta vetur þegar tvö ný lið koma inn í deildina. KARFA Gunnar Valgeirsson skrifar Kyrrahafsriðill Verði ekki jarðskjálfti f Los Angeles í vetur má bóka sigur meistaranna í þessum riðli! Eitt nýtt lið er komið í riðilinn frá í fyrra, en Sacramento var fært úr Miðvesturriðlinum fyrir Miami. Fróðlegt verður að sjá hvort liðið verður slakara í vetur. Los Angeles Lakers Spumingin sem margir velta fyr- ir sér er: Eiga Lakers enn nægilega orku til að vinna deildina þriðja árið í röð? Svarið: Sennilega ekki. Ekki það að liðið sé slakara en í fyrra, en e.t.v. eru hin liðin í deild- inni enn hungraðri í titilinn. Lakers Þjálfaranámskeið haustið 1988 Eftirtalin námskeið verða í Þjálf- araskóla KSÍ í haust: 1. Almennt stig 11 .-13. nóv. í Reykjavík. 2. B stig 25.-27. nóv. í Reykjavík. Þátttaka tilkynnist skrifstofu KSÍ, sími 84444, í síðasta lagi 4 dögum fyrir hvert námskeið. Knattspyrnusamband íslands. % Landsliðsþjálfarar Knattspyrnusamband íslands auglýsir eft- irtaldar stöður landsliðsþjálfara fyrir árið 1989 lausar til umsóknar: 1. Unglingalandslið U-18 ára. 2. Drengjalandslið U-16 ára. 3. Kvennalandslið og stúlknalandslið U-16 ára. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember nk. Umsóknir skulu sendar framkvæmdastjóra KSÍ, pósthólf 8511, 128 Reykjavík. Knattspyrnusamband íslands. Knattspyrnuþjálfari óskasttil Færeyja keppnistímabilið 1989 Knattspyrnufélagið Royn í Hvalba óskar eftir þjálf- ara sem einnig gæti leikið með liðinu á keppn- istímabilinu. Royn hefur í mörg ár verið ofarlega í 2. deild, en spilar á komandi keppnistímabili í 3. deild. Royn hefur á að skipa nokkrum ungum liðs- mönnum. Upplýsingar gefur Arnar Guðmundsson í síma 94-4808. vann mikið afrek á síðasta keppn- istímabili þegar liðið vann titilinn annað árið í röð. Það sýndi sig þó í úrslitakeppninni að sum lið eru farin að ná Lakers að styrkleika. Liðið spilaði 115 leiki á sl. keppn- .istímabili og undir lokin máttu leik- menn hafa sig allan við í keppnun- um við Utah, Dallas og Detroit. Kareem Abdul-Jabbar er nú að hefla sitt tuttugasta og síðasta keppnistímabil, og kappinn er nú 41 árs. Hann er þó enn betri en flestir aðrir miðverðir í deildinni og víst er að félögum hans langar mikið að vinna titilinn með honum í síðasta skiptið. Kannski slappa félagar hans bara af í vetur og hafa gaman af öllu saman með gamla manninum. Ef svo verður ættu hin liðin að vara sig, því þeg- ar stórstjömur Lakers eru afslapp- aðir eru þeir hættulegast.ir. Allar stjömumar frá sl. keppnistímabili verða með í vetur og þar verða erfið- ir andstæðinga á ferð fyrir hvaða lið sem er. Orlando Woolridge kom frá New Jersey og hefur hann kom- ið vel út í leikjum liðsins undanfar- ið. Ef hann nær sér á strik í vetur styrkir hann liðið mikið. Seattle Supersonlcs Liðinu gekk ekki sem best á sl. keppnistímabili_ eftir frábært tíma- bil árið áður. í sumar létu Sonics stjömuna og stigaskorarann Tom Chambers fara til Phoenix fyrir ekki neitt. í staðinn tókst þeim að næla í Michael Cage frá Los Ange- les Clippers í flóknum skiptúm. Cage vann frákastatitilinn (þ.e. flest fráköst að meðaltali í leik) og mun bæta vöm Sonics mikið, en margir telja að þjálfari liðsins hafi verið orðinn þreyttur á því að Chambers nennti ekki að spila al- mennilega vörn. Auk Cage eru tveir aðrir stórgóðir leikmenn í liðinu, þeir Dale Ellis og Xavier McDaniel. Ekki kæmi á óvart að Seattle kæmi vel út á þessu keppnistímabili. Portland Trailblazers Blazers eru einkennilegt lið. Standa sig alltaf vel í riðkeppninni, en þegar í úrslitakeppnina er komið er eins og allur vindur sé úr liðinu. Liðið er með góðan þjálfara og mannskap. Þrír ^oðir miðverðir eru í liðinu, en gallinn bara sá að í fyrra vom þeir allir meira og minna meiddir. Portland bíður nú leyfis að fá Sovétmanninn Arvydas Sa- bonis til liðs við sig, en hann stóð sig vel á Ólympíuleikunum með sovéska landsliðinu. Ef hann, Steve Johnson og Kiki Wandeweghe verða allir með liðinu í vetur gæti liðið komið vemlega á óvart. Kannski verður læknir liðsins mikilvægasti maðurinn í liðinu í vetur! Phoenlx Suns Mikil uppstokkun hefur orðið á leikmönnum í kjölfar eiturlyfja- vandamála og ýrrlissa annarra vandræða þeirra. Þá var skipt á eigendum, auk þess sem fjórir þjálf- arar hafa verið hjá liðinu á tveimur ámm. En er nú loks von á að Suns snúi blaðinu við og eigi tækifæri á að komast í úrslitakeppnina. Það hefur liðinu ekki tekist undanfarin flögur ár, enda vandamál liðsins átt rætur sínar ð rekja utan leikvallar- ins til eiturlyfja, dauða upprennandi stjömu og fjármálabrasks. Tom Chambers er kominn frá Seattle, en óvíst að það dugi til að koma liðinu inn í úrslitakeppnina, en liðið er ungt og loks virðist vera hægt Kareem Abdul-Jabbar hefur nú sltt 20. og sfðasta keppnlstíma- bll. Hér sést hann I bar&ttunnl. að einbeita sér að körfuknattleikn- um sjálfum í Phoenix. Golden State Warriors Eftir að spila um NBA-titilinn árið 1987, hrundi lið Warriors sam- an í fyrra og náði aðeins að vinna 20 leiki. Liðið átti í miklum vand- ræðum með meiðsli í fyrra og í vor var þjálfarinn rekinn. Við tók Don Nelson, sem áður var hjá Mil- waukee, en hann er talinn einn besti þjálfarinn í deildinni. Liðið fékk í fyrra Ralph Sampson frá Houston, en hann meiddist í mars og spilaði ekki meira eftir það. Gengi Golden State veltur mikið á því hvemig að Sampson stendur sig í vetur, en það er hlutur sem hefur reynst ómögulegt að reikna út hjá Sampson þau fimm ár sem hann hefur verið í deildinni. Los Angeles Clippers Undanfarin 12 ár hafa liðin í deildinni notað heimavöll Clippers (en liðið lék áður í San Diego) sem áningastað og afslöppun í erfiðum ferðum á útivelli. Clippers hafa sett met með því að komast ekki í úrsli- takeppnina í 12 ár í röð, sem er einstakt afrek þegar flest liðin kom- asts þangað hvort sem er! Breyting kann þó að vera á því í vetur. Síðustu tvö árin hefur félagið feng- ið fimm sterka leikmenn úr há- skólavalinu og ber flestum saman um liðið eigi mjög bjarta framtíð fyrir höndum. Eitt skyggir þó á bjartsýnina í herbúðum liðsins. Danny Manning, stórstjarnan frá Kansas-háskóla, neita að spila með liðinu fyrr en hann hefur náð að semja um kaup. Er jafnvel talað um að liðið muni reyna að selja hann ef samningamál dragast eitt- hvað á langinn. Fróðlegt verður að sjá hvort Clippers bijóti ísinn í vet- ur eða bæta við sitt eigið met. Sacramento Klngs Kings voru fluttir frá Miðvestur- riðli í Kyrrahafsriðilinn sem er ekki eins sterkur. Þrátt fyrir það er mjög sennilegt að liðið hafni enn á botnin- um í riðlinum. Otis Thorpe er eini almennilegi leikmaðurinn, ef frá er talinn Kenny Smith og eflaust mega áhangendur Kings þola enn einn langan vetur í Sacramento. Miðvesturriöill Mun jafnari og sterkari riðill en Kyrrahafsriðilinn. Dallas verður að teljast sigurstranglegast, en Den- ver, Utah og e.t.v. Houston munu veita þeim mikla keppni. Hvað Miami er að gera í þessum riðli, veit ég ekki! Oruggt er þó að þeir munu verma botnsætið allan vetur- mn. Dallas Maverics Það má segja að Dallas sé í sömu stöðu og Detroit var fyrir ári síðan. Liðið veitti Los Angeles harða keppni og margir halda því fram að nú sé tíminn kominn til að vinna Vesturdeildina. Forráðamönnum liðsins fannst engin ástæða að breyta mannskapnum og seldu því alla dragrétti sína. Maverics eru með geysiöflugt lið. Rolando Black- man og Derek Harper stjóma spil- inu, James Donaldson er sterkur miðvörður, og þeir Mark Aguirre og Sam Perkins eru geysisterkir undir körfunni. Þá hefur liðið besta varamanninn frá í fyrra, Roy Tarp- ley, sem nú er orðinn einn af bestu framvörðum í deildinni. Ef liðið getur hrist af sér minnimáttar- kenndina gagnvart Lakers, er liðið til alls líklegt í úrslitakeppninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.