Morgunblaðið - 09.11.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
Sjóvá og Almenn-
ar í viðræðum
um sameiningu
VIÐRÆÐUR fara nú fram milli forsvarsmanna Sjóvátryggingafé-
lags íslands og Almennra trygginga um samstarf eða sameiningu
félaganna. Niðurstaða er ekki fengin i þessum viðræðum en fullur
vilji er fyrir þvi af hálfii beggja félaganna að freista þess að ná
samkomulagi í þessu efhi.
„Ég get staðfest að stjómir bæði
Sjóvátryggingafélagsins og Al-
mennra trygginga hafa veitt for-
ráðamönnum þeirra fullt umboð til
viðræðna um hugsanlegt samstarf
eða sameiningu þessara tveggja
félaga," sagði Einar Sveinsson,
framkvæmdastjóri Sjóvá í viðtali
við Morgunblaðið. „Það er hins veg-
ar talsvert óunnið í þessum málum
og það skýrist tæpast fyrr en eftir
nokkrar vikur hvort grundvöllur
reynist fyrir því að fara þessa leið.
Engar ákvarðanir verða hins vegar
teknar í þessu efni nema með sam-
þykki hiuthafa beggja félaganna
og þeir munu því eiga síðasta orðið
um málið."
Einar kvaðst vilja taka fram, að
þessar viðræður væru ekki til komn-
ar vegna þess að félögin ættu í
erfiðleikum heldur væri margvisleg
hagkvæmni í því fólgin að steypa
félögum tveimur saman. Ekki væri
heldur um það að ræða að annað
félagið ætlaði sér að gleypa hitt,
því að viðræðumar fæm fram á
fullum jafnréttisgrundvelli. „Það
má segja að það er jákvæður andi
ríkjandi í þessum viðræðum, að
hugur beggja standi til að reyna til
þrautar að ná samkomulagi."
„Menn sjá ýmsa möguleika í
þessu ef af getur orðið," sagði Ólaf-
ur B. Thors forstjóri Almennra
trygginga. „Það þarf auðvitað að
fara í gegnum ótal tæknileg atriði
og leysa ýmis innbyrðis mál. Að
því gefnu að það takist sjá menn
þetta sem fýsilegan kost í hagræð-
ingu og sem skref í þá átt að stækka
einingamar héma á þessu góða
landi.“
Ólafur sagðist ekki geta sagt hve
stór hlutur Almennra yrði í hinu
sameinaða fyrirtæki ef af verður.
Hann kvað koma til greina að Al-
mennar ykju við hlutafé sitt i því
skyni að stækka sinn hluta. Ólafur
sagði niðurstaðna vart að vænta
fyrr en í desember. „Og síðan er
hugsanlegt að halda hluthafafund
fljótlega upp úr áramótum þar sem
málið yrði lagt fyrir."
Ólafiir var spurður hver væri
helsti hagurinn af sameiningunni.
„Ég held að einingamar í íslensku
viðskiptalífi séu of litlar, það sé
verulegt hagræði í því að stækka
þær. Og það er mjög ríkt í mínum
huga að menn þurfa að styrkja sínar
einingar til þess að standa vel að
vígi hér innanlands með augun á
því hvað er að gerast úti í hinum
stóra heimi. 1992 nálgast og við
skulum ekkert halda að við verðum
einhveijir eyjabúar til eilífðar fyrir
utan allt og alla. Útlendingar munu
örugglega horfa hingað og hugsan-
lega leita eftir áhrifum í íslensku
viðskiptalífí og þá er eins gott að
íslensku féiögin sem starfandi em
séu nægilega stór til að mæta
slíku,“ sagði Ólafur B. Thors.
• ............................-• . .....................................
' .
Morgunblaðið/Sverrir
Kolbeinn Gunnarsson, Brandur Guðmundsson og Þorgeir Pálsson með sjálfvirkt tilkynningatæki
fyrir skip.
SjálfVirkt tílkynningakerfi
„TILRAUNIR með sjálfvirkt
tilkynningakerfi fyrir íslensk
skip eru komnar á lokastig,"
sagði Þorgeir Pálsson, verk-
fræðingur hjá Verkfræðistofn-
un Háskólans, i samtali við
Morgunblaðið. Hann og Brand-
ur Guðmundsson, sem einnig
er verkfræðingur hjá stofiiun-
inni, hafa unnið að þessu kerfi
síðan árið 1983.
„Við settum nýlega tæki í
Akraborg, Heijólf og Aðalbjörgu
RE sem gefa upplýsingar um
stöðu, stefnu og hraða þeirra.
Smíðuð hafa verið 5 tilraunatæki
og við ætlum að fá rafeindafyrir-
tæki hérlendis til að smíða fyrir
okkur 20 tæki í endanlegri mynd
á næstunni. Við höfum sett upp
landstöð í Háskólanum og Blá-
fjöllum og á næstunni setjum við
upp landstöðvar í Vestmannaeyj-
um og á Snæfellsnesi,“ sagði Þor-
geir Pálsson.
„í sjálfvirka tilkynningakerfinu
er hægt að notast við fjarskipta-
stöðvar Pósts og síma en setja
þarf upp sérstakt tæki í hverri
stöð,“ sagði Þorgeir. „Fjarskipti í
tilraunakerfinu fara fram á
metrabylgjunni. í þessu kerfi er
notast við Loran-C-kerfið. Strand-
stöðvamar kalla upp skipin hvert
af öðru með mest 15 mínútna
millibili samkvæmt sjálfvirkri
skipun frá tölvumiðstöð. Örtölva
í viðkomandi skipi tekur við Lor-
an-C-mælingum og setur þær,
ásamt skipaskrámúmeri skipsins,
í svarskeyti sem sent er um fyl-
stöð til strandstöðvar sem sendir
skeytið áfram til eftirlitsstöðvar.
Aðaltölvan í eftirlitsstöðinni vinn-
ur síðan úr skeytinu og setur nið-
urstöðumar fram á skjá. Þannig
má fá fram myndræna framsetn-
ingu líkt og á ratsjárslqá," sagði
Þorgeir Pálsson.
Stíórn Byggðastofiiunar:
Samþykkt að lána Fiskiðju
Sauðárkróks 35 milljónir
Beiðni forsætísráðherra og allra þingmanna
Reykjaneskjördæmis um frestum málsins var hafiiað
ö
STJÓRN Byggðastofhunar samþykkti á fimdi sínum í gær heimild
til forstjóra stofnunarinnar til að lána Fiskiðju Sauðárkróks allt að
35 milljónum króna. Lánveiting þessi er ætluð til gera möguleg
skipti á tveimur togurum Hraðfrystihúss Keflavíkur og frystitogara
Útgerðarfélags Skagfirðinga. Ákvörðun stjómar var tekin þrátt
fyrir beiðni frá forsætisráðherra og öllum þingmönnum Reykjanes-
kjördæmis um að afgreiðslu málsins yrði frestað meðan unnið væri
að því að þessi viðskipti færu ekki fram.
í stjóm Byggðastofnunar eiga Norðurlandskjördæmis vestra.
INNLENT
sæti sjö þinglqömir fulltrúar. Fjórir
greiddu fyrst atkvæði gegn því að
afgreiðslu málsins yrði frestað og
síðan með því að lánsheimild yrði
veitt, Ragnar Arnalds, þingmaður
Davíð Aðalsteinsson, fyrrverandi
þingmaður í Vesturlandskjördæmi,
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
Vestfírðinga, og Stefán Valgeirs-
son, þingmaður Norðurlandi eystra.
Eimskipafélagið tekur
við tveimur nýjum skipum
Gengistap fyrirtækisins 230 milljónir á árinu
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefiir veitt viðtöku tveimur nýjum skip-
um, sem leysa munu af hólmi Qögur af skipum félagsins. I gær var
Brúarfoss afhentur í Rotterdam, en í síðustu viku var Laxfoss af-
hentur í Riijeka í Júgóslaviu. Skipin eru svokölluð 700 gáma skip,
en þau voru smiðuð í Vestur-Þýskalandi fyrir tíu árum. Skipin eru
nú á leið til Danmerkur þar sem gerðar verða á þeim breytingar.
Fyrstu tíu mánuði ársins hefur Eimskipafélagið orðið fyrir gengis-
tapi sem nemur 230 milljónum króna, að sögn Harðar Sigurgestsson-
ar forstjóra. Aðspurður sagði Hörður að enn sem komið er væri
staðan á árinu þó jákvæð þegar á heildina væri Iitið.
Nýju skipin koma í stað fjögurra unni. I Brúarfoss verður sett nýtt
skipa sem nú eru í siglingum til
Stóra-Bretlands og meginlands
Evrópu, en það eru Alafoss, Eyrar-
foss, Dorato og Tinto. Dorato og
Tinto eru þýsk leiguskip sem verður
skilað þegar nýju skipin koma til
landsins, en stefnt er að því að selja
Álafoss og Eyrarfoss.
Brúarfossi og Laxfossi verður
breytt í skipasmíðastöðinni Fred-
rikshavn Værft á Jótlandi á næst-
millidekk svo skipið verði betur fall-
ið til bílaflutninga, en auk þess
verður legu gáma á veðurdekki
breytt þannig að þeir verða fram-
vegis langsum en ekki þversum eins
og nú er. Jafnframt er verið að
gera ýmsar aðrar breytingar og
Iagfæringar á skipunum og ganga
frá farþegarými í þeim, en í hvoru
skipi verða sex tveggja manna klef-
ar.
Að sögn Harðar Sigurgestssonar
forstjóra hafa samtals verið flutt
836 þús. tonn á vegum Eimskipafé-
lagsins á fyrstu tíu mánuðum þessa
árs. Flutningar á fyrri hluta ársins
voru meiri en á sama tíma í fyrra,
en síðan á miðju sumri hafa flutn-
ingamir farið minnkandi, og eru
þá minni en á sama tíma í fyrra.
Flutningamir á fyrstu tíu mánuðum
ársins em þó meiri en á sama tíma
á árinu 1986. Hörður sagði að flutn-
ingar á árinu 1987 hefðu á vissan
hátt verið óeðlilega miklir, en þá
var sérstaklega mikið um flutning
á bflum til landsins.
Hörður sagði að afkoma Eim-
skipafélágsins hefði verið viðunandi
á fyrri hluta þessa árs, en á síðari
hluta þess hefur afkoman versnað
mjög verulega vegna aukins kostn-
aðar innanlands og minni flutninga.
Á móti voru Halldór Blöndal, þing-
maður Norðurlandi eystra, Matt-
hías Bjamason, þingmaður Vest-
firðinga og Elín Alma Arthursdótt-
ir, Vestmannaeyjum. í bókun þeirra
þriggja segjast þau hafa talið rétt
að verða við beiðni um frestum
málsins, afstöðu þeirra megi því
ekki endilega skilja sem svo að þau
séu á móti lánveitingunni.
Starfsfólk Hraðfrystihúss
Keflavíkur hefur áður sent frá sér
mótmæli vegna skipaskiptanna,
sem felast í því að frystitogarinn
Drangey fari frá Sauðárkróki í
skiptum fyrir togarana Aðalvík og
Bergvík. Útgerðarfélag Skagfírð-
inga á nú auk Drangeyjar togarana
Hegranes og Skafta. I greinagerð
frá starfsmönnum Byggðastofnun-
ar um málið kemur eftirfarandi
meðal annars fram:
„Neikvæð áhrif í Keflavík eru
að það fólk sem unnið hefur í fisk-
vinnslu í Hraðfrystihúsi Keflavíkur
missir vinnuna. Fram hefur komið
að erfítt hefur verið að manna
vinnsluna. Einungis 8 Suðumesja-
menn hafa verið á skipunum tveim-
ur, en flestir sjómennimir em af
höfuðborgarsvaeðinu. Miðað við
reynslu af frystiskipum ættu Suður-
nesjamenn í áhöfn frystiskips að
geta verið fleiri en nú eru á togurun-
um tveimur og þeir verða tekju-
hærri en þeir sem fyrir eru. Eigend-
ur frystihússins munu eiga það nær
skuldlaust og telja mikla hagræð-
ingu af þessari ráðstöfun.
Neikvæð áhrif fyrir Sauðárkrók
og Hofsós eru að þaðan ér selt
burt skip af þeirri tegund, sem hag-
kvæmast hefur verið að reka á
undanfömum misserum.
Jákvæð áhrif fyrir staðina er að
hráefnisframboð verður meira og
jafnara (ef öllum fjórum skipunum
verður stjómað af einni hendi). Eins
og er er það of lítið til að geta
haldið uppi vinnu í húsunum þrem-
ur. Útgerðarfélag Skagfirðinga
léttir á skuldum sinum um rúmlega
100 milljónir án þess að um tekju-
tap verði að ræða.
Jákvæð áhrif fyrir þjóðfélagið er
að ísfiskskip eru flutt á svæði þar
sem hægara er að reka þau og vinna
úr afla þeirra. Neikvæð áhrif fyrir
þjóðfélagið eru að samkvæmt þeim,
reglum sem gilda um skipasölur
milli landshluta eykst veiðikvóti
samtals án þess að forsendur séu.
til þess."
Enní
ferjuflugi
CHASE S. Osborne, ferju-
flugmaður, lenti flugvél sinni
„Moony" i Reykjavík. í gœr-
kvöldi. Þetta er fyrsta feiju-
flug Osboraes eftir slysið i
sumar er tvær vélar r&kust
saman. Þá laskaðist vél Os-
boraes, en hann lenti eigi að
siður heilu og höldnu. Hin
vélin fórst og flugmaður
hennar. Myndin er tekin við
tollafgreiðslu í gær.