Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
7
Mynstruð
bómullarpeysa,
rauð eða blá í
grunninn.
Stærð 70-90 cm,
verð 1.490.- kr.
og buxur í sama
mynstri og
peysan.
Stærð 70-90 cm,
verð 1.190.- kr.
Hér situr verðandi heimsborgari á hjólabretti og er
skelfilegur óviti — að minnsta kosti enn sem komið
er. Litla daman veit ekki að mjúka bómullartreyjan hennar er
árangur áratuga reynslu í framleiðslu vandaðra barnafata.
Hana grunar ekki hvað fötin hennar eiga að þola mikinn
þvott og standast stöðugt slit.
Hún ber ekki minnstu virðingu fyrir vandaðri framleiðslu
og finnst ekkert til þess koma að fötin hennar eru saumuð
í Svíþjóð, kannski af einhverjum færustu fatahönnuðum
í Evrópu. Líklega hefur hún meiri áhuga á að toga í skeggið
á pabba sínum en að íhuga þau góðu kjör sem bjóðast hjá
Polarn & Pyret: Ef fötin passa ekki, er annað hvort hægt að
skipta þeim eða skila gegn endurgreiðslu innan þriggja
vikna, en þá verður kvittunin að fylgja.
Sú stutta sér þó áreiðanlega hvað bangsamyndirnar á
treyjunni eru fallegar — en það sér líka hvert mannsbarn.
Polarn&Pyret*
KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 681822, OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00 OG LAUGARD. KL. 10:00-16:00