Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
15
Ókei! Bæ!
eftir Hjörleif
Guttormsson
Fyrir einni öld lá stríður straum-
ur Islendinga vestur um haf til
nýrra heimkynna. Þetta fólk var
að flýja óblíð kjör og landþrengsli
heima fyrir í von um betra líf á
sléttum Norður-Ameríku. Það fór
með fátæklegar pjönkur sínar og
hímdi ofan þilja í velkingi yfir haf-
ið. Einar Kvaran dró upp mynd af
þessum flóttamönnum í sögu sinni
Vonir. Halldór Laxness móðgaði
næstu kynslóð Vestur-íslendinga
með því að riija upp veruleika
þessara allslausu landnema í sög-
unni Nýja ísland.
Einn fjársjóð höfðu þó þessir
dúðadurtar úr norðri, karlar og
kerlingar, með sér vestur: íslenska
tungu. A vörum þeirra lá alþýðu-
mál, í huga þeirra bjó hrafl af sög-
pm, rímum og ljóðum, sem enginn
gat frá þeim tekið. Fyrsta kynslóð
þessara útlaga lagði mikla rækt
við þennan fjársjóð, sem birtist
okkur í ljóðum Stefáns G.: Fjærst
í eilífðar útsæ vakir eylendan
þín ... Síðan fór að halla undan,
eins og hjá öðrum þjóðarbrotum.
Ruben Nilson og Magnús Asgeirs-
son minna okkur á það í Ameríku-
bréfi, sem hinn síðamefndi þýddi:
Já, nú vil jeg rita heim to you eitt
lítið letters bréf, því mig langar
til að segja eitt við þig...
Vertu sæl. Ég bið að heilsa
Aðeins hundrað ár eru liðin frá
því afabræður okkar og ömmu-
systur stóðu við landganginn og
kvöddu tárvot þá sem fylgt höfðu
þeim til skips. Vertu sæl! Ég bið
að heilsa heim! Þessar kveðjur og
heitstrengingar um að varðveita
tengslin runnu saman við fjöllin
sem sigu í sæ þegar skútan fjar-
lægðist.
Nú' eru íslendingar velmegandi
og telja sig gjaldgenga meðal
þjóða. Velklæddar kynslóðir
streyma til útlanda tugþúsundum
saman á hverju ári, ékki til að
nema nýtt land heldur sér til
skemmtunar og heilsubótar eða til
að sækja þekkingu til að flytja
heim á ný. Leiðin liggur um glæsta
flugstöð sem Bandaríkjamenn
tryggðu sér aðgang að þá henta
þykir, þar sem kóka-kóla auglýs-
ing heilsar mönnum við heim-
komu.
Finnist fólki taka því nú til dags
að fýlgja kunningjum úr hlaði suð-
ur á völl hjómar að skilnaði annað-
hvort bless, bless! eða líklega oftar
bæ, bæ!, og það er sosum engin
ástæða til að tárast: See you soon,
darling!
Ókei ma!
Það vakti nokkra athygli fyrir
einum tveimur áratugum, þegar
þjónustuliði á skrifstofum og í
verslunum höfuðborgarinnar var
kennt á örskömmum tíma að svara
þakkarorðum viðskiptavina (t.d.
„þakka þér fyrir!“) með: Gjörðu
svo vel! Sveitamenn eins og undir-
ritaður hrukku við við slíka kveðju,
höfðu vanist því í fásinninu að
svarað væri: Ekkert að þakka! eða
jafnvel fyrirgefðu! Það síðara e.t.v.
Hjörleifur Guttormsson
„Það vakti nokkra at-
hygli fyrir einum
tveimur áratugum, þeg-
ar þjónustuliði á skrif-
stofum og í verslunum
höfðuðborgarinnar var
kennt á örskömmum
tíma að svara þakkar-
orðum viðskiptavina
(t.d. „þakka þér fyrir!“)
með: Gjörðu svo vel!
Sveitamenn eins og
undirritaður hrukku
við við slíka kveðju,
höfðu vanist því í fá-
sinninu að svarað væri:
Ekkert að þakka! eða
jafiivel fyrirgefðu! Það
síðara e.t.v. frá áhrif-
um úr dönsku.“
frá áhrifum úr dönsku. Hér hafði
viðskiptaheimurinn hins vegar
þvegið af sér afdalamennskuna og
fundið splunkunýja íslenskun á
enska frasanurri You are welcome!
Enn í dag fínnst mér eins og blaut-
ur klútur sé settur fýrir vit mér,
þegar þessi uppfínning berst mér
í eyru.
Allt er þetta þó vesöl byijun
miðað við það hagræði sem nýjast
er af nálinni og leyst hefur mikinn
vanda óþjállar íslensku, en það er
ókei! Á örfáum árum hefur þetta
stutta, þjála og meiningarlausa
orðskrípi lagst í munn íslendinga,
bama og fullorðinna, sem nota það
af mikilli leikni og hugkvæmni.
Það leysir af hólmi durgsleg og
klúr orðatiltæki eins og t.d.: Allt
í lagi! Ágætt! Fínt! Gott er nú
það! Það er vel! að ógleymdu alls
konar hiksti og stami til uppfyll-
ingar: „Héma! Hvað vildi ég sagt
hafa! Hm! Jamm! Hvarvetna getur
þetta fjögurra stafa orð passað inn
í mál vort: í upphafi máls, inni í
miðri setningu og svo í lokin, jafn-
vel sem kveðja: Ókei!
Bamfóstmr segja mér að litlu
krílin komi með þetta af heimilun-
um áður en þau losna við bleyjum-
ar og foreldramir mæla þetta fyrst
orða, þegar þau vitja afkvæma
sinna. Er allt ókei? Já, ókei ma!
Þú mikli eilífi andi_____
Það er dálítið broslegt, að á
sama tíma og lærðir menn og leik-
ir hamast við að íslenska erlend
heiti á tækninýjungum og fræði-
orðum af öllu hugsanlegu tagi
skuli þjóðin gera sér lítið fyrir og
losa sig við á einu bretti við marg-
háttuð óþægindi og ambögur, sem
liðnar kynslóðir og við, þessi mið-
aldra, höfum verið að dragast
með, — og setja í staðinn þjált og
nútímalegt orð: Ókei.
Ég minnist þess hvað mér þótti
ungum gaman að fara með kvæði
Steins Steinars Hudson Bay, þar
sem síðasta erindið er svona:
I nótt mun ég krókna úr kulda
í kofa við Hudson Bay.
Þú mikli eilífi andi.
Ó Key.
Það skyldi þó ekki vera að
íslensk tunga eigi á hættu að
krókna og það við sjálfan Faxa
flóa.
Þannig renna Nýja ísland og
Gamla ísland óðfluga saman í eitt.
Ókei?
Á allraheilagramessu 1988.
Bæ! Bæ!
Höfundur er einn afalþingis-
mönnum Alþýðubandalags.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Liggja peningamir þínir undir shemmdum?
SKAMM
TÍMABRÉF
Þú ert ef til vill meðal þeirra,
sem bónar bílinn þinn
reglulega og heldur húsnæðinu þínu vel við.
Á það sama við um þeningana þína'? Kannski
tilheyrir þú þeim hópi sem er í biðstöðu á
fasteignamarkaðnum og hefuryfir fjármagni að'
ráða eða átt von á greiðslu. Heldur því að þér
höndum, vilt ekki bindaféð en geymir það ofan í
skúffu eða bara á tékkhefíinu. Á þennan liátt er
því eldii vel við haldið.
Skammtímabréf Kauþþings er bœði hagkvœm og
örugg ávöxtunarleið sem á sérlega vel við í
lilfellum sem þessum. Þau fást í einingum sem
henta jafnt einstaklingum sem fyrirlœkjum með
mismunandi fjárráð; frá 10.000 til 500.000
króna. Þau má innleysa svo til fyrirvaralaust og
án alls innlausnarkostnaðar. Bréfin eru
fullkomlega örugg. Fé sem lagt er í
Skammtímabréf Kaupþings er eingöngu ávaxtað í
bönkum, sparisjóðum og hjá opinberum aðilum.
Ávöxtun Skammtímabréfa er ácetluð 8-9%
umfram verðbólgu, eða alll að fjórfalt hcerri
raunvextir en fengjust á venjulegum
bankareikningi. Haltu peningunum þínum vel
við, með Skammtímabréfum.
KAUPÞING HF
Húsi verstunarinnar, sími 91-686988
Kaupþing Norður/ands, Ráðhústorgi 5, Ahureyri, simi 96-24700