Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988 I Akstur iyrir stjórnarráðið: Of mikill afsláttur hjá BSR segja forstjórar hinna stöðvanna VIÐ HÉRNA á stöðinni, sem er stofiiuð 1921, höfum haft nærri því allan akstur hjá ráðuneytunum síðan, svo að skiljanlega er maður ekki að kasta frá sér vinnu sem maður er búinn að stunda í ára- tugi,“ sagði Eggert Thorarensen framkvæmdastjóri BSR. „í þessu tilfelli bauð bílstjóri á Hreyfli 30%, svo að ekki mátti ég vera mikið lægri.“ Morgunblaðið ræddi við framkvæmdastjóra þriggja leigubila- stöðva í Reykjavík, BSR, Hreyfils og Bæjarleiða og spurði þá hvort þeir teldu þróunina vera i þá átt, að fyrirtæki og stofnanir muni bjóða út allan leiguakstur sem þau nota. Tilefhið er, að BSR bauð 33% afelátt á allan akstur fyrir stjórnarráðið nýlega, eins og fram kom i frétt Morgunblaðsins á sunnudag. Bílstjórar stöðvarinnar hafa mótmælt þessu og telja sig hlunnfaraa, enda hafi ekkert sam- ráð verið við þá haft. „Þetta býður kannski upp á það að bflstjórafélagið geri eitthvað í mál- unum og fái bflstjórana og stöðv- amar til að standa saman um að vera ekki að taka þessu. Auðvitað er þetta ekkert annað en að verið er að plokka verkamenn, þó að þeir séu á bflum. Það er einstakur dónaskapur af stjómvöldum að vera að rífa í peninga hjá mönnum sem vinna fyrir þau og hafa unnið í alla þessa áratugi. Innkaupastofnun ríkisins byrjaði á því fyrir sex árum að bjóða út akstur fyrir ríkisspítalana. Þá var reynt allt sem hægt var á milli stöðvanna að gera þetta ekki og enginn ætlaði það. En, Bæjarleiðir buðu þá að ég held 22% afslátt og þeir hafa haldið þessum viðskiptum síðan," sagði Eggert Thorarensen. Hann sagði þijá bflstjóra hafa yfir- gefið stöðina, líklega vegna þessa máls, en bjóst ekki við að fleiri færu. Einar Geir Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Hreyfils kvaðst ekki hafa orðið var við að fyrirtæki knýi í auknum mæli á um afslátt. „Eg hef ekki trú á að þetta hafí áhrif á slíkt. Hitt er annað mál að þegar svona útboð eru gerð og tilboð eru af þessu tagi, taxtar boðnir niður um 33%, þá er ekkert óeðlilegt að stærri fyrirtæki fari að hugsa sitt ráð og láti bjóða í sína vinnu. í þessu sambandi nefni ég Morgun- blaðið og Reykjavíkurborg. Það er ekkert óeðlilegt þegar svona niður- boð koma að fyrirtæki hugsi sér að bjóða út.“ Hann sagði þetta hafa verið í fyrsta sinn sem Hreyf- ill hefur boðið í akstur samkvæmt útboði. „Annars hefur það verið stefna okkar að bjóða ekki í akst- ur. Þegar þessi útboð koma, eins og þetta nú, þá fer maður að spyija sjálfan sig, á að láta eina stöð hirða af sér alla vinnuna? Hitt er annað mál að ég viðurkenni að það er allt of mikið að bjóða þetta niður um 33% og það er of mikið líka að bjóða þetta niður um 25%,“ sagði Einar. Hallkell Þorkelsson fram- kvæmdastjóri Bæjarleiða sagði reynsluna verða að leiða í ljós, hvort aksturinn verði í ríkari mæli sam- kvæmt útboðum. „Þetta er ekkert nýtt. Það hafa verið gerð svona stór útboð áður,“ sagði hann. Tilboð BSR um 33% afslátt sagði hann þó vera meiri afslátt en tíðkast hefur. Bæjarleiðir buðu Borg- arspítalanum fyrir skömmu 15% afslátt frá taxta. Hallkell sagði þann afslátt allan vera tekinn af hlut bflstjóranna í ökugjaldinu. Allir töldu framkvæmdastjórarn- ir að erfitt væri að segja til um hvemig þessi mál þróuðust og vildu ekki segja fyrir um viðbrögð við .frekari útboðum. Þeir sögðu að það verði að meta hveiju sinni. NÁMSMENN ATHUGIÐ! Ný hraðvirlc, létt og handhæg TA Triumph-Adler skrif- stofuritvél á verði skólaritvélar. UmboBsmenn um land allt; Bókabúð Keflavíkur, Keflavík, Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði, Bókabúðjn Grima, Garðabæ, Grifill, Reykjavik, Hans Árnason, Reykjavík, Jón Bjarnason, Akureyri, Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kaupf. A-Skaftf., Hornafirði, M:M. búðin, Selfossi, PC tölvan, Akranesi Penninn, Reykjavík, Rás s.f., Þorlákshöfn, Stuðull s.f., Sauðárkróki, Sameind, Reykjavík, Skrifvélin, Reykjavik, Tölvuvörur hf., Reykjavík, Traust, Egilsstöðum. Sendum í póstkröfu • Prenthraði 13 slög/sek • ”Lift off” leiðréttingar- búnaður fyrir hvern staf eða orð. • 120 stafa leiðréttingarminni • Sjáifvirk: miðjustilling undirstrikun feitletrun • Handfang og lok. auk ýmissa annarra kosta sem prýða eiga ritvél morgun- dagsins. Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari uppiýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 Morgunblaðið/SigurðurH. Þorsteinsson Sigurður R. Guðmundsson flytur mál sitt. Nemendur og kennar- ar frá skólunum á Hólmavík, Broddanesi, Drangsnesi og Klúku sjást á myndinni. Hólmavík: Námskeið í félags- starfi í skólum Laugarhóli, Bjamarfirði. NÁMSKEH) fyrir kennara og nemendur úr skólum í Strandasýslu var nýlega haldið á Hólmavik. Var þetta námskeið í félagsstarfi i skóltim. Sóttu námskeiðið nemendur og kennarar úr öllum nema tveim skólum sýslunnar. Námskeiðið var haldið af Sigurði R. Guð- mundssyni hjá skólamálaskrifstofu menntamálaráðuneytisins, og sóttu það yfir 20 manns. Þótti það i alla staði vel heppnað og var námskeiðshaldara þakkað í lokin, bæði af nemendum og kennurum. Sigurður R. Guðmundsson boð- aði í ágúst sl. til námskeiðshalds á Hólmavík fyrir nemendur og kenn- ara í skólunum í Strandasýslu, haustið 1988. Var til þess boðað með ítarlegri dagskrá. Gefin var út mappa í níu köflum er nefnist „Félagsmál í skólum" með miklu innihaldi til stuðnings fyrir þá er að félagsmálum vinna. Er þetta bæði þægileg handbók og hug- myndabanki fyrir félagsmálastarf- ið. Meðal þess efnis er tekið var fyrir var að finna þætti um hlut- verk nemdendaráða, kennslu í framkvæmd hinna ýmsu félagslegu þátta, svo sem bekkjarkvöld, kvöld- vökur, samkomur, dansleiki, dans- kennslu, söng, leiklist og klúbba- starf, svo nokkuð sé nefnt. Þá var farið í saumana á hvemig gera skal áætlanir um félagsstarf, und- irbúa þætti þá sem taldir hafa ver- ið hér að ofan og framkvæma. Rætt var fyrst við nemendur og svo við kennara, meðan nemendur unnu, um almenna félagsmála- fræðslu, þar sem námsefni var kynnt. Almennt var rætt um fé- lagsstörf í skólum, fundi og skipu- lag, fjármál, aðstoð og aðstöðu, nýtingu húsnæðis í og utan skóla og það sem kannski mestu máli skiptir, góð samskipti. Ræddu kennarar með sér á eftir að hér væri gamla ungmennafé- lagsstefnan í framkvæmd, aðlöguð breyttum aðstæðum. Loks var svo farið yfir áætlanir þær sem nemendur höfðu gert og nemandi frá hveijum skóla látinn gera grein fyrir því sem nemendur skólans höfðu unnið með. Þá var rætt um leikvelli og skólabúðir. Að síðustu var svo Sigurði R. Guðmundssyni þökkuð heimsóknin. - SHÞ Honda 89 Civic Shuttle 4WD 116 hestöfl AUMA Verð frá 919 þúsund, miðað við staðgreiðslu á gengi 1. nóv. 1988 NÝ AFBORGUNARKJÖR ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA. ÍHONDA VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SlMI 689900 Vogar: Seljajarðir til að bæta fjárhaginn Vatnsleysustrandarhreppur hef- ur auglýst fimm jarðir og jarð- hluta til sölu. Vilhjálmur Grímsson sveitarstjóri segir að með þessu sé ætlunin að reyna að bæta lausafjárstöðu hrepps- ins. Nú skortir um 5-10 milljónir króna til að hún sé viðunandi. Að sögn Vilhjálms er hér um að ræða jarðir sem ekki hafa nýst hreppnum á neinn hátt hingað til og fyrirsjáanlega munu þær ekki gera slíkt í náinni framtíð. „Þessar jarðir má nýta til dæmis undir sumarhús, eða sem bæki- stöðvar fyrir laxeldi. Svo má nefna að ein jörðin liggur fyrir ofan Keflavíkurveginn og þar má koma upp ýmiskonar starfsemi sem hægt er að reka í tengslum við stórborg- arsvæðið. Þaðan er aðeins um 20 mínútna akstur í miðbæ Reykjavík- ur,“ segir Vilhjálmur. Jarðir þær sem hér um ræðir eru Hlöðunes, Halldórsstaðir, Breiða- gerði, Grund og Brekka. Þær eru allar án húsa og hafa ekki verið f ábúð undanfama áratugi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.