Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
Morgunblaðið/Árni Sæberg
íslenska Ólympíuliðið í skák ásamt fararstjóra og liðsstjóra. Frá vinstri: Þráinn Guðmundsson,
forseti Skáksambands íslands, sem verður fararstjóri, Margeir Pétursson, Helgi Óia&son, Karl
Þorsteins, Þröstur Þórhallsson, Jón L. Árnason, Jóhann Hjartarson og Kristján Guðmundsson, liðs-
stjóri.
Ólympíuskákmótið:
*
Sterk skáksveit Islands
TUTTUGASTA og áttunda Ólympíuskákmótið verður haldið i Þes-
saióniku í Grikklandi dagana 12. til 30. nóvember næstkomandi, og
er þetta i annað sinn sem Ólympíumótið er haldið þar. íslenska
Ólympiuliðið heldur utan á morgun, fimmtudag, en það er skipað
sömu keppendum og á siðustu tveimur Ólympiumótum, að þvi undan-
skildu að Guðmundur Siguijónsson verður ekki þeirra á meðal, þar
sem hann hefur dregið sig út úr keppnisskák um sinn.
Þeir keppendur sem skipa
íslenska Ólympfuliðið að þessu sinni
eru: Jóhann Hjartarson, Jón L.
Ámason, Margeir Pétursson og
Heigi ólafsson, en varamenn eru
þeir Karl Þorsteins og Þröstur Þór-
hallsson, sem nú tekur í fyrsta sihn
þátt í Ólympíumóti. Er þetta sterk-
asta lið sem til þessa hefur tekið
þátt f Ólympíuskákmóti fyrir ís-
íands hönd. Liðsstjóri verður Dr.
Kristján Guðmundsson, en hann
hefur stjómað liðinu á tveim
sfðustu Ólympíumótum með góðum
árangri. Liðið er nú betur undir-
búið en oftast áður, en það dvald-
ist nýlega í æfíngabúðum með
Boris Spassky, sem miðlaði
fslensku keppendunum af reynslu
sinni af Ólympíuskákmótum. ís-
lensku keppendumir munu hafa
meðferðis tölvuforrit sem hefur
meðal annars að geyma gagna-
grunn með öllum skákum sem
helstu skákmenn heims hafa teflt.
Með aðstoð þess tekur aðeins örfá-
ar mfnútur að kalla fram um 24
þúsund skákir, og hægt er að fara
mjög hratt yfír skákir þekktra and-
stæðinga. Auðveldar þetta allar
skákrannsóknir verulega og sparar
mikinn tíma.
íslensku keppendumir telja
raunhæft að stefna að því að lenda
í einu af tíu efstu sætunum á
Ólympíumótinu, en sem kunnugt
er lenti liðið í fímmta sæti á sfðasta
móti, sem haldið var í Dubai. Erfið-
istu andstæðingamir verði að sjálf-
sögðu Sovétmenn og Bretar, en
Ungverjar, Júgóslavar, Banda-
rfkjamenn, Búlgarar, V-Þjóðverjar,
Hollendingar, Kúbumenn, Svíar,
Tékkar og Spánverjar verði einnig
erfíðir viðureignar.
Búist er við að rúmlega 100 þjóð-
ir sendi keppendur á Ólympíumótið
að þessu sinni, en á síðasta móti
mættu keppendur frá 108 þjóðum
og var það metþátttaka. Nú mæta
sterkar þjóðir til leiks, sem ekki
tóku þátt í mótinu sem haldið var
í Dubai 1986 af pólitfskum ástæð-
um, og má þar nefna Hollendinga,
Svía, Dani og Norðmenn.
Aðstaða á mótstað er öll hin
besta, og eru íslensku keppendum-
ir vel kunnugir henni fi-á því þeir
tefldu þar á Ólympíumótinu árið
1984. Teflt verður í miklum ráð-
stefnu- og sýningarhöllum, og hefj-
ast skákimar kl. 13 að íslenskum
tfma og lýkur kl. 19, en biðskákir
verða tefldar daglega kl. 8—10.
Teflt verður eftir Monrad-kerfi.
Seinni hluta nóvember verður
þing FIDE haldið og er búist við
að það komi til með að einkennast
af deilum foiystu FIDE og Stór-
meistarasambandsins. Forseti
Skáksambands íslands, Þráinn
Guðmundsson, verður fararstjóri
ólympíuliðsins og fulltrúi Skák-
sambandsins á þinginu, en einnig
mun Jón Rögnvaldsson, varaforseti
Sí sitja þingið.
Rykgrímur fyrir allar
aðstæöur
ÁRVÍK
AHMÚLP 1 -HÉYKJAVÍK - SlMI 067222 -TELEFAX 6872Í5
Skreiðarsala til Nígeríu:
Þurfum 50% hærra
verð en þeir greiða
TIL ÞESS að það borgi sig fyrir okkur að selja skreið til Nígeríu
þurfiim við að fá 50% hærra verð fyrir hana en Nfgeriumenn vilja
greiða,“ sagði Ólafur Björnsson, stjórnarformaður Samlags skreiðar-
framleiðenda. í fyrra seldum við Nígeríumönnum skreið frá 1983
og ’84. Birgðir frá þessum árum eru hins vegar búnar og það hefiir
lítið sem ekkert venð selt af ski
Nígeríumenn hafa greitt okkur
smám saman f nairum það sem
þeir skulda okkur fyrir skreið og
það tekur ugglaust nokkum tíma
að fá þessum peningum skipt í al-
vöru gjaldeyri," sagði Ólafur
Bjömsson.
„Þó em aðstæður þannig núna
að menn gera ekki annað með keilu
og lakari ufsa en hengja þann físk
upp og selja til Nígeríu," sagði Ólaf-
ur. „Það er búið að selja alla skreið
sem framleidd var í ár. Við seljum
skreið aðallega til ítalfu og smáveg-
is til Júgóslavíu, Frakklands og
Bandaríkjanna. Það hefur gengið
vel að selja skreið til Ítalíu undan-
uð til Nígeríu á þessu ári.
farin ár og íslendingar hafa selt
þangað svipað magn á þessu ári og
í fyrra, eða 800 til 1.000 tonn.
Verð á skreið til ítalfu er mjög
hátt miðað við verð á öðmm físki.
ítalir greiða 600 til 700 krónur fyr-
ir kílógrammið af besta físki.
Nú getur hver sem er selt skreið
og hausa og það þarf að vera stjóm-
un á þessum útflutningi. íslending-
ar em búnir að tapa óhemju fjár-
hæðum á innbyrðis samkeppni
íslenskra skreiðarframleiðenda og
vegna hennar em þeir búnir að
gefa Nígeríumönnum skreið fyrir
hundmð milljóna króna," sagði
Ólafur Bjömsson.
Davíð Scheving sýkn-
aður vegna millj-
ónustu dósarinnar
KVEÐINN hefiir verið upp dómur í máli sem ákæruvaldið höfðaði
á hendur Davíð Scheving Thorsteinssyni, framkvæmdastjóra Solar
hf. Davið var gefið áð sök að hafa brotið gegn lögum um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, með því að hafa
staðið fyrir auglýsingum þar sem heitið var 100 þúsund króna fimd-
arlaunum þeim sem fyndi milljónustu dósina af Sólgosi. Dómari
sýknaði Davíð hins vegar af ákærunni.
I 31. grein laga um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta við-
skiptahætti er lagt bann við því að
bjóða neytendum kaupbæti eða eitt-
hvað það, sem jafna má til kaup-
bætis og enn fremur að auglýsa
slfkan kaupbæti. í niðurstöðu dóm-
ara er bent á, að í auglýsingum
Davíðs var aðeins einum neytanda,
þeim sem hreppti milljónustu dós-
ina, boðin rífleg fjárhæð í „fundar-
laun“ og tilviljun réði því hver
hreppti hana. Því sé tæpast hægt
að líta svo á að um kaupbæti hafí
verið að ræða í almennum skilningi
þess orðs. Þá sé að auki á það að
líta að í 33. grein laganna sé lagt
bann við því að úthluta vinningum
til þess að örva sölu á vöru, þjón-
ustu eða öðru, með hlutkesti, í formi
verðlaunasamkeppni eða á annan
hátt, þar sem tilviljun ræður að öllu
leyti eða að hluta, hver niðurstaðan
verður. Því þyki mega gagnálykta
út frá þessu ákvæði og telja, að
„fundarlaunin" umræddu séu ekki
kaupbætir í skilningi 31. greinar,
en allan vafa í því efni yrði auk
þess að skýra ákærða í hag. Því
yrði að sýkna hann af broti gegn
31. grein.
Varðandi meint brot gegn 33.
grein laganna benti dómarinn á, að
„fundarlaununum" var ekki úthlut-
að, þar sem dósin fannst ekki, og
var heldur ekki ákært fyrir það.
Ekkert bann væri að fínna í grein-
inni við þvf að auglýsa slíka vinn-
inga og eins og málinu væri háttað
kæmi ekki til álita hvort ákærði
hefði gerst sekur um tilraun til
þess að úthluta vinningi til að örva
sölu á vamingi Sólar hf. Því bæri
að sýkna hann af broti á 33. grein.
Loks kom til álita hvort Davíð
hefði gerst sekur um brot á al-
mennu ákvæði 26. greinar laganna,
þar sem lagt er bann við því að
aðhafast nokkuð það í atvinnustarf-
semi, sem bijóti í bága við góða
viðskiptahætti, sem tíðkaðir eru í
slíkri starfsemi eða sé óhæfilegt
gagnvart neytendum. Dómarinn
komst að þeirri niðurstöðu að laga-
grein þessi væri svo almennt og
óljóst orðuð, að hún geti ekki talist
viðhlítandi refsiheimild í málinu.
Davíð Scheving Thorsteinsson
var því sýknaður af ákæru og sak-
arkostnaður allur lagður á ríkissjóð.
Pétur Guðgeirsson, sakadómari,
kvað upp dóminn.
íþróttahús fatlaðra:
Rúmlega 2,7
milljónir
komnar inn
SÖFNUNIN fyrir íþróttahúsi
fatlaðra gengur vel. Þegar eru
komnar inn 2,7 miHjónir en búið
er að senda út giróseðla upp á
4,4 milljónir.
Að sögn Geirs Björgvinssonar hjá
íþróttafélagi fatlaðra hafa borist
loforð fyrir framlögum upp á 6,2
milljónir en hann átti ekki von á
að það skilaði sér fyrr en eftir miðj-
an mánuðinn.
Morgunblaðið/G.T.K.
Brandt og Jón Baldvin
Wiliy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra á Ieiðtogafiindi evrópskra sósía-
lista og sósíaidemókrata, sem lauk á mánudag. Með þeim á mynd-
inni er Howald konsúll íslands í Vestur-Berlín.
mamjmnmuu2jm
Innifalið: Flug Kefiavík—Edinborg — Kefiavík, matur og drykkir um borð,
akstur milli flugvallar og hótels, kanna af
góðu skosku öli á hótelinu.
Gisting á Holiday Inn **** £ 22.00 pr. nótt.
Næstu brottfarir sunnud. 13., 20., 27. nóv. og 4. des.
SKOTFERÐIR
SUÐURLANDSBRAUT 4 • 108 RVK
• SlMI 686680 • TELEFAX 687535 •