Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988 Guðlaug Sigmunds dóttir - Kveðjuorð Látin er hún amma mín, Guðlaug Sigmundsdóttir. Margar ólíkar tilfínningar bærast í sál minni við fráfall hennar og svo er eflaust um fleiri. Ég á margar ljúfar minningar um ömmu, bæði úr bemsku og einnig frá þeim tíma er brotakennd unglings- og fullorð- insár tóku við. Ekki ætla ég að tíunda þær minningar hér og læt öðrum eftir að rekja lífssögu ömmu. Þó langar mig að geta þess sem ég tók hvað best eftir í hennar fari; hún átti til að bera þann innri styrk sem fáum er gefinn. Svo sterk var hún og virtist aldrei láta að sér hvarfla að bugast, hvað sem brim- rót lífsins færði henni af erfiðleikum og sorg. Skömmu áður en hún lést heim- sótti ég hana þar sem hún hvíldi á hvítum beð. Er ég hafði setið nokkra stund hjá henni greip hún þéttingsfast um hönd mína og mælti þau orð sem ég á aldrei eftir að gleyma: „Steinunn, vertu sterk fyrir mig, fyrir þig og okkur báð- ar.“ Mér þótti sem hún vildi láta + Maðurinn minn, BJARNI MARKÚSSON matsveinn frá Rofabœ, Meðallandi, Laugarnesvegi 76, lést í Landspítalanum 5. nóvember. Lilja Sigurðardóttir og dætur. allan sinn styrk streyma til mín. Ef til vill hef ég aldrei fyrr en nú gert mér grein fyrir hversu dýrmæt þessi kona var. mér, þolgæði henn- ar, seigla og áhrifamáttur. Orð hennar munu fylgja mér allt mitt líf og vonandi einnig sá styrkur sem hún vildi miðla til mín. Guð blessi elsku ömmu mína. Líkaminn var hennar hús en eftir þessi vistaskipti er hún okkur hulin en þó nálæg. Blessuð sé minning hennar um alla tfð. Steinunn Ásmundsdóttir t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS NORÐFJÖRÐ KARDAL, Rauðagerði 12, fer fram frá Bústaöakirkju föstudaginn 11. nóvember kl. 15.00. Helga Stefánsdóttlr Kárdal, Jónina Ó. Kárdal, Anna Marfa Kárdal, Sylvia May Peiluck, Anthony Peiluck og barnabörn. Leiðrétting í grein um íslenskar nunnur, sem birtist í C-hluta sunnudags- blaðs, misritaðist nafn einnar þeirra. Var Steinunn Bjarnar- dóttir, ranglega sögð Bjarnadótt- ir. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum. Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins á Norðurlandi vestra: Þorgrímur Daníels- son kjörinn formaður Skoðanakönnun um frambjóðendur fer fram fyrir næstu þingkosningar ÞORGRÍMUR Danielsson var kjörinn formaður kjördæmisráðs Sjál&tæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra á aðalfimdi þess, sem haldinn var á Siglufirði 29.-30. október. Þorgrimur er frá Tannastöðum i Hrútafirði. Hann er aðeins 24 ára gamall; einhver yngsti maður, sem gegnt hefur embætti formanns kjördæmisráðs í Sjálfstæðisflokknum og þar með einn yngsti miðstjórnarmaður flokksins einnig. Á aðalfundinum var samþykkt álit frá undirbúningsnefnd vegna al- þingiskosninga, þar sem lagt er til að ekki verði efnt til prófkjörs er ' sjálfstæðismenn í kjördæminu velji frambóðendur sína fyrir næstu kosn- ingar, heldur verði skoðanakönnun meðal flokksmanna, þar sem leitað verði eftir frambjóðendum. Tvöfalt iqórdæmisráð (aðalmenn og vara- menn) geri síðan tillögu um skipan framboðslista. Þorgrímur Daníelsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann legði höfuðáherslu á þrjú atriði í starfi lqórdæmisráðsins. I fyrsta lagi vinn- una við val á framboðslista, í öðru lagi málefnavinnu fyrir landsfund flokksins á næsta ári, og loks eflt flokksstarf í kjördæminu. Þorgrímur sagði að hann teldi æskilegt að und- irbúa landsfund betur heima í kjör- dæmi, til dæmis með stefnuskrárráð- stefnu á borð við þá sem sjálfstæðis- menn í Reykjavík héldu fyrir skömmu. „Það er mjög heilbrigt og Morgunblaðið/Þorkell Þorgrímur Daníelsson gott að koma saman og ræða um afstöðuna til ýmissa mála fyrir lands- fund; menn koma þá betur undirbún- ir til landsfundar og stefnan verður væntanlega markvissari," sagði hann. Þorgrímur gat þess að starf ungra sjálfstæðismanna í kjördæminu hefði verið mjög öflugt að undanfömu. í fyrrasumar stofnuðu þeir eigin kjör- dæmissamtök, sem mikil gróska er í að sögn Þorgríms. Þá hafa ungir sjálfstæðismenn hafið útgáfu blaðs, Fálkans, sem áætlað er að komi út einu sinni I mánuði. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Hverfafélagið í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi Félagar vinsamlega greiðið heimsenda gíróseðla fyrir árgjaldið 1988 sem fyrst. Stjórnin. Mosfellsbær Viðtalstími bæjarstjórnarmanna Sjálfstæðisflokksins Helga Richter og Hilmar Sigurðsson bæjarstjórnarmenn verða til viðtals í fundarsal Hlégarðs (uppi) frá kl. 17.00- 19.00 fimmtudaginn 10. nóv nk. Allir velkomnir með fyrirspurnir um bæj- arstjórnarmál Sjálfstæðisfólag Mosfellinga. Sjálfstæðiskvennafélag Borgarfjarðar heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 15. nóv- ember kl. 9.00 i Sjálfstæðishúsinu i Borgar- nesi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Gestur fundarins verður Sturla Böðvars- son, bæjarstjóri í Stykkishólmi. 3. Vetrarstarfið rætt. Kaffiveitingar. Félagskonur mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Pípulagningarvinna s: 675421. □ Helgafell 59889117 VI -2 I.O.O.F. 7 = 1711198V2 S MK I.O.O.F. 9 = 17011098A = S'h Menning.kv. Fl. K. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindialns. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. □ GLITNIR 598811097 - 1 I.O.G.T. stúkan Einingin nr. 14 Fundur i kvöld kl. 20.30 i Templ- arahöllinni við Eiríksgötu. Mál- efnanefnd sér um dagskrána. ÆT. Framhaldsaðalfundur Skíðafélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 14. nóv- ember nk. kl. 21.00 á skrifstofu félagsins á Amtmannsstíg 2. Fundarefni: Kosningar og önnur mál. Stjórn Skíðafélags Reykjavikur. Freeportklúbburinn Fundur verður haldinn i félags- heimili Bústaðakirkju fimmtu- daginn 10. nóvember kl. 20.00. Kalt borð. Skemmtiatriði. Bingó. Þátttaka tilkynnist Baldri Ágústssyni í símum 31615 og 31815 fyrir miðvikudagskvöld. Stjórnin. Útivist, 0,0.. Fimmtudagur 10. nóvember kl. 20.30 Hornstrandamyndakvöld Myndakvöld verður í Fóst- bræöraheimilinu Langholtsvegi 109 og hefst kl. 20.30. Mætiö stundvíslega. Myndefni: Sýnt verður frá Hornstrandaferðum i sumar. 1. Hornstrandlr - Hornvík 7.6„2. og 15. júlf. Lov- ísa Christiansen og Þráinn Þór- isson skýra myndirnar og segja frá ferðunum. Gott tækifæri til að kynnast ferðum Útivistar á Hornstrandir. Frábærar kaffi- veitingar kvennanefndar í hléi. Allir velkomnir meðan húsrými leyfir. Munið aðventuferð Úti- vistar í Þórsmörk 25.-27. nóv- ember. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Almennur biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Garðar Rangarsson. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Myndakvöld Næsta myndakvöld F.l. verður miðvikudaginn 9. nóv. og hefst stundvíslega kl. 20.30. Gérard R. Delavault sýnir og segir frá litadýrð og jarðfræðiundrum þjóögaröanna ( suðvestur- og vestur-hluta Bandaríkjanna m.a. í Yellowstone, Bryce Canyon, Zion, Canyonland, Crater Lake og Steinbogaþjóðgörðum. Enn- fremur sýnir hann myndir frá Indíánalandi í Arizona, Yosem- ite-dalnum í Californíu og fjall- göngum í Washington- og Oreg- on-fylkjum. Einstakt tækifæri að sjá með augum ferðamannsins nátt- úrufegurð í Bandarfkjunum. Myndakvöldið verður í Sóknar- salnum, Skipholti 50a. Aðgangur kr. 150.00. Veitingar í hléi. Ferðafélag Islands. Sálarrannsóknarfélagið í Hafnarfirði heldur skyggnilýslngarfund með Þórhalli Guðmundssyni, miðli nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Góötemplarahúsinu. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.