Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MOULiL
Þessir hringdu . .
K
Meðalmennskan lofsungin
Á.Á. hringdi:
„Kristinn skrifar bréf í Velvak-
anda sl. sunnudag þar sem hann
lýsir undrun sinni yfír að Ingólfur
Guðbrandsson sé ekki velkominn
í stjórn Listahátíðar. Ingólfur er
afburðamaður á sínu sviði og þess
vegna ofsóttur hér í landi þar sem
meðalmennskan er lofsungin. Mér
fannst ósmekklegt af Mórgun-
blaðinu að birta klausu í sama
blaði úr viðtali sem tekið var við
Ingólf fyrir löngu og þar sem
hann segist ætla að hætta sem
söngstjóri. I hvaða tilgangi var
þetta birt? Við getum öll verið
ánægð með að Ingólfur hætti við
að hætta. Megi hann starfa sem
lengst að músíkmálum hér á
landi.“
Ekki aðalbraut
Okumaður hringdi:
„Ætli ökumenn geri sér al-
lleggju-
lomar
ÍPressunnarl
mennt ljóst að þjóðvegur eitt er
ekki aðalbraut í kringum landið.
Vestur í Kjós er síðasta biðskyldu-
merkið en eftir það gildir varúð
til hægri. Eg held að ökumenn
viti þetta ekki nærri allir og aki
veginn eins og hann væri aðal-
braut. Þetta veldur víða slysa-
hættu og vildi ég því vekja um-
ræðu um þetta mál.“
Ósmekkleg ofbeldismynd
Kona hringdi:
Mér ofbauð laugardagsmynd
sjónvapsins, Gleðileg jól,
Lawrence. Ég veit ekki til hvers
er verið að sýna svona ofbeldis-
myndir. Kvikmyndirnar sem sjón-
varpið sýnir eru ákaflega illa vald-
ar því það er nóg til af góðum
kvikmyndum. Það er alltaf verið
að hækka afnotagjöldin, sjón-
varpið verður að fara að taka sig
á sýna betri kvikmyndir áður en
allir gefast upp á því.“
Kerrusvunta
Ljósgræn kerrusvunta tapaðist
í Hólahverfi sl. föstudag. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 43167 eða síma 73361.
Jakki
Fóðraður, grænn sumarjakki tap-
aðist á tjaldstæðunum við íþrótta-
völl Stykkishólms í sumar.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma'93-81470.
Filma
Átekin fílma fannst að Hlíða-
renda í Fljótshlíð. Upplýsingar í
síma 74581.
Sólgleraugu - lyklar
Vönduð blá sólgleraugu í brúnu
hulstri ásamt bíl- og húslyklum
gleymdust á læknastofu fyrir
nokkru. Sækist að Bræðraborg-
arstíg 26, Holtsgötu megin, milli
kl. 13 og 16.
AlúÖarþakkir til ykkar allra, vina og vanda-
manna, sem glödduö mig meÖ heimsóknum,
gjöfum og skeytum á 90 ára afmceli mínu 3.
nóvember sl. og gerÖuÖ mér þessi timamót
ánœgjuleg.
BiÖ guö aÖ launa ykkur alla velvild í minn garÖ.
Krístbjörg Guðmundsdóttir frá Bakka,
Droplaugarstöðum, Reykjavik.
OVIÐEIGANDIHATTALAG
Ágæti Velvakandi.
Það læra bömin sem fyrir þeim
er haft, segir einhvers staðar og
þá sérstaklega þegar þau eru hvött
með sýnikennslu. Eg var úti í Foss-
vogskirkjugarði að vitja leiðis for-
eldra minna, þegar ég veitti at-
hygli konu með þijú böm á aldrin-
um 6 til 10 ára. Hún var að safna
saman einhverjum gróðri, blómum
og laufi og óð með bömin beint af
augum upp á leiðin til að slíta það
sem hún hafði áhuga á. Þetta var
í elsta hluta garðsins þar sem leiðin
eru uppsteypt og afmörkuð. Mér
leist nú ekkert á aðfarirnar og gat
ekki orða bundist svo ég nefndi við
konuna að þetta þætti mér ein-
kennilegt háttalag af fullorðinni
manneskju og fullkomið virðingar-
leysi fyrir hinum látnu. En hún
brást hin versta við og sagði að það
væri ekkert sem jafnaðist á við að
ganga í garðinum á góðviðrisdög-
um. Ég var svo sem sammála að
allt væri í fínu lagi að ganga um
garðinn en að vaða um í hópi upp
á leiðin væri allt annar handleggur.
Hún lét sem hún heyrði þetta ekki
og hélt bara áfram að teyma böm-
in með sér upp á leiðin í leit að því
sem hana vantaði.
Ég trúi því varla að ástvinir hinna
látnu hefðu látið þetta óátalið. Við
.vitum öll að oft er hinu og þessu
stolið af leiðum og ef til vill hefur
þetta fólk alist upp með svona fýrir-
mynd, hver veit. Sem betur fer
bera flestir virðingu fyrir dauðanum
og hinum látnu skal sýnd virðing.
Ein hneyksluð.
Pantið jólagjafirnar núna
Þú þarft ekki að fara til London.
Verslið fyrir farseðilinn (sambærilegt verð).
Full búð af vörum
Opið frá kl. 9-6, laugardag kl. 10-12.
Síðasti móttökudagur jólapantana er 21. nóvember.
W pöntunarlistinn,
Hólshrauni 2, Hafnarfirði.
Sími52866.
, HEILRÆÐI
Hjólreiða- o g bif-
hjólamenn
Hafíð öryggisbúnað hjólanna í fullkomnu lagi. Munið ljósabúnaðinn
og endurskinsmerkin. Klæðist ávallt yfirhöfnum í áberandi lit með
endurskinsmerkjum.
SVISSNESKU
GÆÐAÞVOTTAVÉLINA
OKKAR KÖLLUM VIÐ
BARU
- STÁLBELGUR
- ÖFLUG OG STILLANLEG VINDING
- 16 ÞVOTTAKERFI
- SÉR HITASTILLING
- EINFÖLD í NOTKUN
- TÖLVUPRÓFUÐ FYRIR AFHENDINGU
(Computer approved)
- STERK - SVISSNESK - ÓDÝR
VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA ER VERÐIÐ AÐEINS
38.211.
SAMAVERÐ UM
stgr. ALLT LAND
(Sendum án aukakoslnaðar)
’SEs
KRINGLUNNIS. 685440