Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MEMKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
ípRÚmR
FOLX
■ FRÉTTIR er blað sem kemur
út tvisvar í viku í Vestmannaeyjum
og í því eru oft margar áhugaverð-
ar fréttir. Ein þeirra fjallar um
stofnun Stuðningsmannafélags
ÍBV á íslandi! Þá er ekki átt við
landið allt heldur Reykjavík! Það
væri gaman að vita hvaða landi
Vestmannaeyjar tilheyra.
■ SIGURÐUR Gunnarsson
mun þjálfa lið ÍBV í 1. deild í hand-
knattleik og liðið hefur þegar sigrað
í sínum fyrsta leik gegn Gróttu.
En samkvæmt Fréttum hefur Sig-
urður ekki enn fengið vinnu. „Nú
er svo komið að ef ekki rætist úr
verða þau hjónin að fara héðan...
„Ef Sigurður verður að fara héðan
spilar hann eingöngu með liðinu og
fjarstýrir æfingum úr Reykjavík
og allir sjá að slíkt gengur ekki,“
sagði Friðrik Már Sigurðsson,
formaður handknattleiksráðs ÍBV
í samtali við Fréttir.
’■ SÆVAR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspymu, hefur verið
dæmdur í eins leiks bann í HM fyr-
ir að hafa verið rekinn af leikvelli
í leik gegn A-Þýskalandi.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
FH-ingar mæta
IHF-meisturunum
frá Rúmeníu
Valsmenn leika gegn Amicitia frá Zúrich í Sviss
FH-ingar fengu erfiða mótherja
í annari umverð IHF-bikar-
keppninni í handknattleik. Þeir
mæta IHF-meisturum frá Rúm-
eníu Baia Mare, sem lögðu
sovéska liðið Krasnodar í úr-
slitum sl. vetur, 21:20 og 23:20.
Einn mesti handknattleikssnill-
ingur heims, hinn fölhæfi
Voinaea, leikur aðalhlutverkið hjá
Baia Mare og á hann örugglega
eftir að verða FH-ingum erfíður.
FH-ingar leika fyrri leik sinn í
Rúmeníu á tímabilinu 5-11. desem-
ber, en seinni leikurinn fer fram á
tímabilinu 12-18. desember.
Valsmenn drógust einnig gegn
sterku liði í Evrópukeppni meistara-
liða. Þeir mæta svissneska meist-
araliðinu Amicitia frá Zúrich. Eins
Evrópukeppni
meistaraliða
Steaua (Rúmeníu) — Kolding (Dan.)
Ortigia (Ítalíu) — íMlippos (Grikkl.)
Amicitia (Sviss) — Valur Reykjavík
Magdeburg — Nimes (Frakkl.)
Gummersbach — Barcelona (Spáni)
Drott (Svíþjóð) — Vadas (Ungveijal.)
Dukla (Tékkósl.) — Wybrzeze (Pól.)
Minsk (Sovétr.) — Metaloplastica
og hjá Val, þá leika Qölmargir
landsliðsmenn með svissneska lið-
inu, eða alls fímm leikmenn.
Valsmenn leika fyrri leik sinn í
Zúrich.
Evrópukeppni
bikarhafa
Opmolps (Grikkl.) — Stavanger
Helsingör (Dan.) — Essen (V-Þýskal.)
Emmen (Holl.) — Elgorriaga (Spáni)
Dinamo (Rúmeníu) — ZSKA (Sovétr.)
Redbergslid — Empor (A-Þýskal.)
Veszprem (Ungveijal.) — Pfadi (Sviss)
Crvenka (Júgósl.) — Tatran (Tékkósl.)
Vogel (Austurr.) — Creteil (Frakkl.)
íslandsmótið í handknattleik 1988
Heimaleikurá Hlíðarenda
í kvöld kl. 18.15 leika Valsmenn sinn annan leik í íslandsmótinu í handknattleik
gegn frísku liði Fram. Það verður um hörkuleik að ræða þar sem hraði og kraftur
ráða ríkjum. Fjölmennum á leikinn og hvetjum okkar menn.
P.s. Eftir leikinn leika „grænmetisbumburnar“ ífyrsta flokki Vals gegn K.R. í
3. deild.
STOD7VO
SKOSALAN
LAUGAVEGI1
acohf
»hummeP3?
SPORTBÚÐIN
EGILLÁRNASONHF.
PARKETVAL
SKEIFUNNI 3. SÍMI 91-82111
■l steinprýði
Verslun veiðimannsins
KJÖLUR SF.
AIIK1.IG4RDUR
MARKAÐUR VID SUND
Volnea, einn flölhæfasti leikmaður
heims.
Evrópukeppni
félagsliða
Ystads (Svíþ.) — Vorwárts (A-Þýskal.)
Politehnica (Rúmen.) — Otmar (Sviss)
Deportivo (Spáni) — Initia (Belgíu)
Pelister (Júgósl.) — Nanik (Tékkósl.)
Gagny (FYakkl.) — Hellerup (Dan.)
Minaur Baia Mare (Rúmen.) — FH
Dússeldorf — Benfica (Portúgal)
Krasnodar (Sovétr.) — Vín (Austurr.)
HANDBOLTI
1. deild
kvenna
hefsl
íkvöld
Fjórirleikirverða
í 1. deild karla
Fyrstu leikir vetrarins í 1. deild
kvenna verða í kvöld. FH og
Víkingur ríða á vaðið er þau
mætast í Hafnarfirði kl. 19.00
og Fram mætir Stjörnunni í
Laugardalshöll kl. 21.15.
II. deild karla verða fjórir leikir
í kvöld. Víkingar fá Eyjamenn í
heimsókn í Laugardalshöll kl.
20.00. Þar mætir Sigurður Gunn-
arsson, núverandi þjálfari ÍBV,
sínum gömlu félögum. FH og KA
leika í Hafnarfirði kl. 20.15, Valur
og Fram leika að Hlíðarenda kl.
18.15 og Breiðablik og Grótta
mætast í Digranesi kl. 20.00.
Einn leikur verður í 2. deild.
Selfoss og UMFA mætast á Sel-
fossi kl. 20.00.
FRJALSAR
Aðalfundur
frjálsíþrótta-
deildar ÍR
Fijálsíþróttadeild ÍR heldur aðal-
fund sinn miðvikudaginn 16. nóv-
ember kl. 20.00 í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal. Venjuleg aðalfundar-
störf.