Morgunblaðið

Date
  • previous monthNovember 1988next month
    MoTuWeThFrSaSu
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 10

Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 1 FRÉTTASKÝRING Fyrstaskipti sem samdráttur í efnahagslífínu á sér stað við raunávöxtun á lánsfé Kaupmáttur 50% meiri en hann var 1985 og raungengi 15% hærra Hættan fólgin í of miklum og snöggum sam- drætti Ytri aðstæður með besta móti þó þær hafí versnað eftir Hjólmar Jónsson Steingfrímur Hermannsson, forsætisráðherra: Erum nær þjóðargjaldþroti en nokkru sinni. Þykkvibær: Fimmta hver jörð á nauðungaruppboði. Þorlákhöfh: Glettingur segir 75 manns upp. Lögbirtingarblaðið: 73 gjaldþrot auglýst í einu tölublaði. Ríkissjóðshallinn nær fjórum milljörðum. Söluskattsskuldir þrír milljarðar. Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Til verulegs atvinnuleysis getur komið. Allt eru þetta dæmi um fyrirsagnir í Morgunblaðinu að undanförnu. Það hefiir dregið bliku á loft í e&iahagslífinu eftir uppgangs- og blómatíma síðustu tveggja ára. Daglega má sjá fréttir af gjaldþrotum í blöðum og sjónvarpi, atvinnuleysi vex frá mánuði til mánaðar og samdráttar verður víða vart í efnahags- og atvinnulífinu. Umskiptin er mikil og skyndileg. Það er svartsýnishljóð í fólki og það heldur að sér höndum varðandi útgjöld. Sumir tala opinskátt um kreppu. Aðrir brosa út í annað af slíku tali og riifja upp fyrri samdráttarskeið. Það er í eðli þjóðfélags, sem byggir tilveru sína á veiðum, að efiiahagslífið verður sveiflukennt, enda það haft fyrir satt að síldin sé óútreiknanleg. Hversu alvarlegt skyldi ástandið vera í raun og veru? Það er nokkrum erfiðleikum bundið að afla sér upplýsinga um heildar- Qölda gjald- þrota í ár, sam- anborið við síðasta ár, en vísbendingu gefur að vegna ríkisábyrgðar á launum við gjaldþrot hafa verið greiddar út um 70 milljónir það sem af er þessu ári, en var 23 milljónir allt árið í fyrra. Gjaldþrot eru orðin hátt á fimmta hundrað í Reykjavík það sem af er þessu ári, en urðu í fyrra alls 351. Samkvæmt upplýsingum skiptaráðanda í Reykjavík hefur gjaldþrotum jafnt og þétt fjölgað allt frá árinu 1980. A Akureyri er hins vegar um fækkun gjaldþrota- beiðna að ræða. Þær urðu alls 63 í fýrra, en það sem af er þessu ári eru þær 45. Hjá sýslumannsem- bættinu á Seyðisfirði fengust þær upplýsingar að gjaldþrot í fyrra hefðu verið þijú, en væru orðin sex í ár. Þá hefur vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins fengið til- kynningar um 1.200 uppsagnir á síðustu þremur mánuðum, sem jafngildir um 1% af mannafla á vinnumarkaði. Skylt er að tilkynna uppsagnir ef um ijóra eða fleiri er að ræða. Mikill samdráttur 1983 Síðasta samdráttarskeið árin 1983-84 var djúpt en styttra en fyrirfram hafði verið búist við. Loðnuvertíðin brást og nauðsynlegt þótti að minnka þorskveiðar. Lands- framleiðsla og þjóðartekjur drógust saman í fyrsta skipti frá árunum 1967-68 þegar síldin hvarf. Sam- dráttur landsframleiðslunnar 1983 var um 4%, en hún jókst strax aft- ur árið eftir. Atvinnuleysi jókst og var 1,3% að meðaltali árið 1984, mest í janúar, 3,4%. Árstíðabundið atvinnuleysi yfir jól og í byijun árs er ekki óvanalegt. T.a.m. var það 3,3% í janúar árið 1982. Ástandið breyttist nánast eins og hendi væri veifað og í kjölfarið fylgdi meiri blómatími en þjóðin hefur þekkt fyrr og síðar. Þorskafli jókst skyndi- lega og samfara auknum afla urðu verðhækkanir á afurðum okkar á mörkuðum erlendis, bæði á frystum fiski í Bandaríkjunum og á ísfiski í Bretlandi og Þýskalandi, enda jókst útflutningur á ísfiski í gámum gífurlega. Olíuverð lækkaði mjög mikið og samningar á vinnumark- aði í ársbyijun 1986 tóku mið af þessum efnahagshorfum. Sam- komulag tókst um hófsama kjara- samninga, þar sem öll áhersla var lögð á að lækka verðbólgu, enda lækkaði verðbólga úr því að vera rúm 30% í upphafi árs í það að vera rúm 10% í lok ársins. Þessi að mörgu leyti óvænti bati getur verið til marks um það hversu erfitt er að spá fyrir af nokkru ör- yggi um efnahagsframvindu á ís- landi. Nú stöndum við aftur frammi fyrir samdrætti. Gert er ráð fyrir að þjóðartekjur á þessu ári verði 2% minni en á síðasta ári og lands- framleiðsla 1,5% minni, samanborið við 6% vöxt þjóðartekna að meðal- tali á ári síðastliðin þijú ár. Á næsta ári reiknar Þjóðhagsstofnun með að landsframleiðsla dragist enn saman um 1,5% og þjóðartekjur um 3%, einkum vegna minnkandi afla. Samkvæmt þjóðhagsáætlun yrði samdráttur beggja áranna saman- lagður meiri en orðið hefur frá ár- inu 1968, ef spáin fyrir næsta ár gengur eftir. Óvissan mjög mikil Hagfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við voru alls ekki á eitt sátt- ir um hvers væri að vænta á næsta ári, þegar þeir voru spurðir um hvort kreppa væri í uppsiglingu hér á landi. Eitt voru þeir þó sammála um. Óvissan hefur ekki áður verið jafn mikil, þar sem við erum nú í fyrsta skipti að fara inn í samdrátt- arskeið við raunávöxtun á lánsfé. Til þessa hefur atvinnureksturinn haft aðgang að gjafafé þegar þurft hefur að herða sultarólina. Auk þessa benti Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verðbréfamark- aðs Iðnaðarbankans, á að frá 1985 hefur kaupmáttur launa hækkað ' um 50% og raungengið er 15% ■ hærra en það var þá. Þetta þrennt gerir fyrirtækjunum miklu erfiðara í fyrir en annars. Björn Bjömsson, í bankastjóri Alþýðubankans, varaði' og við krepputali og benti á að það eitt út af fyrir sig gæti orðið til þess að auka á þann samdrátt sem orðinn væri og fyrirsjáanlegur væri vegna aflasamdráttar. Aðalatriðið er, og á það lögðu flestir viðmælendur Morgunblaðs- ins ríka áherslu, að þrátt fyrir allt tal um samdrátt búum við áfram við afar hátt tekjustig og góð við- skiptakjör. Þó árið 1988 sé ekki alveg eins gott og árið 1987 er það samt miklu betra en árið 1986, sem var mjög gott ár. Og þó spáð sé versnandi afkomu þjóðarbúsins á næsta ári verður árið samt ekki verra en 1986. „Ytri skilyrði hafa aðeins slaknað á síðustu misserum eða frá því um þetta leyti á síðasta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 267. tölublað (20.11.1988)
https://timarit.is/issue/122176

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

267. tölublað (20.11.1988)

Actions: