Morgunblaðið - 20.11.1988, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.11.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 11 .......rií .... ... Samdráttur en alls ekkí ördeyða Fyrirtæki í innfluningi og sölu ýmissa neysluvara verða greinilega vör við ýmis einkenni samdráttar. Þó er allur samanburður við árið I fyrra erfiður, þar sem það var einstakt fyrir margra hluta sakir. Árið var skattlaust og breytingar gerðar á innflutningsgjöldum, þannig að verð á innflutningi sveiflaðist í mörgum tilfellum mikið til, auk þess sem tekjur almennings hækkuðu mjög mikið. Þannig væri samanburður við árið 1986 eðlilegri. Sumir töldu að nú væri að komast á jafnvægi, en aðrir töldu að frekar ætti eftir að kreppa að í byijun næsta árs. Ferðalög Ferðaskrifstofur hafa orið minna varar við samdrátt en aðrir aðilar sem Morgunblaðið ræddi við. Þó er eftirspurn greinilega heldur minni og fólk velur frekar styttri ferðir og spyrst fyrir um ódýari kosti, til dæmis hvað varðar hótel. Sala nýrra bíla Mikill samdráttur er í bíla- sölu frá því sem var fyrr á árinu, svo ekki sé talað um síðasta ár og árið 1986, sem bæði voru einstök hvaða mikla sölu snerti, einkum þó það síðara. Þannig seldust í síðasta mánuði á landinu öllu 584 bílar, samanborið við 1.700 bíla á mánuði í vor. Heimilistæki Talsverður samdráttur er í sölu heimilistækja miðað við síðasta ár. Hann má einkum merkja í sölu dýrari tækja, en minna í þeim tækjum sem kosta fáeinar þúsundir króna. Heimilistæki mörg hver svei- fluðust mikið í verði á síðasta ári þegar lögum um tolla og vörugjald var breytt. Heimskreppan á tjórða áratugnum ári, en það er langt í frá að ytri kjör séu slæm. Þvert á móti eru þau með því besta sem við höfum kynnst,“ segir Sigurður. Þorvaldur Gylfason, prófessor í þjóðhagfræði við Háskóla íslands, tekur í sama streng; uppgangurinn í efnahagslíf- inu hefði verið svo mikill að það væri með ólíkindum ef það kæmi kreppa nú og Tryggvi Pálsson, bankasijóri Verzlunarbankans sagði að við værum þrátt fyrir allt á tekjustigi sem engin ástæða er til þess að gráta yfír. Heimatilbúinn vandi Aðrir viðmælendur Morgunblaðs- ins tóku í sama streng. Ytri skil- yrði eru áfram góð, þó þau versni frá því besta sem við höfum þekkt. „Þetta er að öllu leyti heimatilbúinn vandi,“ segir Sigurður. Færri voru á því að kreppa væri í uppsiglingu, en mjög erfitt að spá um fram- vinduna, enda háð mörgum atriðum sem enn væru óráðin. Framundan væri samdráttur, en menn greindi nokkuð á um hversu mikill hann yrði, færi enda eftir viðbrögðum stjórnmálamanna þegar á reyndi. eftir Pól Lúðvík Einarsson Aðdragandi „Kreppan", hin eina og sanna kreppa, hófst með verðbréfa- hruninu í Wall Street í október 1929. Þetta var heimskreppa og flest lönd gripu til innflutnings- hafta. Kreppunnar tók að gæta á íslandi 1930-31 þegar helstu útflutningsvörur stórféllu í verði og nam verðhrunið allt að 50% miðað við 1929. Einkenni Á íslandi varð heiftarlegur samdráttur og atvinnuleysi. Um vetrartímann voru að jafiiaði um 500-700 manns skráðir atvinnu- lausir í Reylqavík. Marktæk skráning atvinnulausra þessi ár- in nær aðeins til Reykjavíkur, ekki er kunnugt um heildar- mannafla á vinnumarkaði. Töl- fi'óðir menn hafa áætlað atvinnu- leysið yfir vetrarmánuðina á bil- inu 10 til 20% útfrá mismunandi forsendum. Margir þeir sem muna þessa tima hafa gjaraan orð á atvinnuleysinu þessi árin og áhrifum þess; slævandi deyfð, biturð og vonleysi. Reynt var að bæta úr brýnustu neyðinni t.d. með atvinnubótavinnu. En tvímælalaust skerpti kreppan stéttaátök og viðsjár í stjóm- málum. Á fyrri hluta krepputímabils- ins var engin vyrðbólga heldur verðhjöðnun. Ársmeðaltal vísi- tölu vöra og þjónustu lækkaði um 13,6% 1929-35.1935-39 hækk- aði vísitalan aftur á móti um 10%. Kreppan varð langvinnari á íslandi heldur en víðast hvar annars staðar m.a. vegna borg- arastyijaldarinnar á Spáni sem braust út 1936. En þá lokaðist mikilvægur saltfiskmarkaður. Framsóknarmenn, alþýðu- flokksmenn og sjálfstæðismenn voru allir einhvera tímann í stjóra á kreppuárunum en segja má að framsóknarmenn hafi ver- ið leiðandi sljóramálaafl og sljórnað með vinsamlegu hlut- leysi Alþýðuflokksins eða stuðn- ingi. Athyglisvert er að hinum,,- hefðbundnu íhaldsúrræðum" s.s. gengisfellingum var ekki beitt í sama mæli og seinna tíðkaðist. Kaupgjald samkvæmt launatöxt- um hélt sér nokkuð vel. 1931 hækkaði bandaríkjadollar um 24%, 1939 var gengið fellt um 18%, um leið var grunnkaup launþega og einnig grunnverð landbúnaðarafúrða fastákveðið. Kreppan hafði áhrif á hag ríkissjóð, veralegur halli var 1932 en þar á eftir má segja að ríkisbúskapurinn í jafiivægi. Á heildina litið má e.t.v. segja að viðbrögð íslenskra stjóravalda hafi verið ýmiss konar höft og hömlur, sér í Iagi á verslun gjald- eyris og eftirlit með innflutn- ingi. Leitast var við að stýra at- vinnuvegunum t.d. stofiiun „Skipulagsnefiidar atvinnu- mála“, „kreppulánasjóðs" til að aðstoða bændur og varna því að þeir flosnuðu upp. Einnig var komið skipulagi á útflutninginn t.d. með stofhun Sambands íslenskra fiskframleiðenda. Reynt var að efla íslenskan iðnað m.a. með hækkun tolla á erlend- um varningi og lækkun tolla á vélum og hráefiium, landsmenn voru hvattir til að kaupa íslenskt. Vænkast hagur Heimsstyijöldin síðari sem hófst í september 1939 og heraám Islands í maí 1940 bundu enda á kreppuna. E.t.v. má segja að megineinkenni kreppunnar hafi verið hvað hún var heiftar- leg, langvarandi og eiiínig að verðlag var stöðugt. Nokkrar breytingar og „aðlögun að að- stæðum“ urðu á atvinnulífi lands- manna en þó má segja að það hafi verið „breyttar ytri aðstæð- ur“ sem leystu efiiahagsvanda- málið í það sinnið. Kreppan 1967-69 Adragandi Á árunum 1967-69 varð verð- fall á íslenskum sjávarafúrðum og um sama leyti dró úr síldveið- um sem brugðust algjörlega eftir 1968. Samdráttur varð í útflutn- ingi og í kjölfarið fylgdi atvinnu- leysi. 1966 var hlutfall atvinnu- leysisdaga sem hlutfall af unnum dögum 0,4%, 1968 var það 2,2% en 1969 var það 5%. Töluvert var um að menn flyttu úr landi, eink- um iðnaðarmenn til Svíþjóðar. Árið 1966 voru aðfluttir umfram brottflutta 32 en 1969 vora brott- fluttir umfram aðflutta 1.315 og 1.564 árið þar á eftir. Afleiðingar efiiahagsörðug- leikanna hefðu trúlega orðið enn harkalegri ef ekki hefðu komið til framkvæmdir við byggingu álversins í Straumsvík og Búr- fellsvirkjunar. Reyndar höfðu þær framkvæmdir verið ákveðn- ar áður en erfíðleikamir dundu yfir. Einkenni Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- flokkur héldu um stjórnvölinn í Viðreisnarsfjóminni sem svo I hefúr verið nefiid. Líkasttil er óhætt að segja að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar hafi verið gengislækkanir og takmarkanir á launavísitölu. Gengið var fellt um 26,4% haustið 1967 og 35,2% í nóvember 1968. Vísutölukerfið | var afiiumið 1967. Kaupmáttur greidds tíma- kaups verkamanna lækkaði um 10% á árunum 1966-69. Viðsjár urðu á vinnumarkaðinum, víðtæk verkföll urðu í mars 1968. Þá var samþykkt kauphækkun, mest á lægstu laun en verðbætur á laun að nokkru leyti takmarkaðar t.d. miðaðar við laun innan ákveðins hámarks og fasta krónutölu. At- vinnuleysisbætur vora hækkað- ar. í upphafi árs 1969 varð sam- komulag milli ríkisstjóraar og „aðila vinnumarkaðarins“ um stofúun „Atvinnumálanefiidar ríkisins“ og atvinnumálanefiida í kjördæmunum. 300 milljónum var varið til „eflingar atvinn- ulífsins". Rofartil 1969-70 fór að rofa til í efúa- hagsmálunum, verð á útflutningi landsmanna fór hækkandi og dró úr atvinnuleysi. E.t.v. má segja að „hagstæðari ytri skilyrði" hafi leyst vandann að nokkru eða veralegu leyti. Efúahagsörð- ugleikarair 1967-69 voru annað og meira heldur en veiyuleg „nið ursveifla" í hagkerfinu en þessi kreppa var ekki jafú langvinn og sú á Qórða áratugnum. Menn greinir ekki á um, að við veruleg- an vanda var að etja og við hon- um var brugðist, en aftur á móti voru og eru efúahagsráðstafanir Viðreisnarstjóraarinnar nijög umdeildar í pólitískri umræðu enn þann dag í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.