Morgunblaðið - 20.11.1988, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
ÓLYMPIA OG HOFFMANN íburðarmiklir búningar söngfólksins í Ævintýrum Hoffmanns gefa þessari uppfærslu vissulega þann ævintýralega Ijóma, sem til
er ætlast. Brúðan Ólympia (Sigrún Hjálmtýsdóttir) baðar sig í aðdáun Hoffmanns (Garðars Cortes).
MILUÓNAÆVINTÝRI
eftir Agnesi Bragodóttur
BRÚÐAN OLYMPIA, vélknúin uppfinning
furðufuglsins Spalanzanis, í Ævintýrum Hoff-
manns, átti að verða hönnuði sínum mikil tekju-
lind, en vonir Spalanzanis verða að engu í lok
1. þáttar, þegar Coppélius
nær henni og eyðileggur.
Óskandi er að Þjóðleik-
húsið verði ekki jafnsvikið
af uppfærslu sinni á Hoff-
mann og Spalanzani varð
af uppfinningu sinni. Um
fátt hefur verið meira rætt
í leikhúsheiminum undan-
farnar vikur, en þessa upp-
færslu Þjóðleikhúsins og
íslensku óperunnar á Æv-
intýrum Hoffmanns, eftir
Jacques Offenbach. Nú liggur fyrir að
Þjóðleikhúsið og íslenska óperan hafa
unnið listrænan sigur: aðsókn að Hoff-
mann hefur verið geysilega góð og undir-
tektir eftir því, jafnframt því sem
PARRUKIN
Þjóðleikhússtjóri
segir að hárkoll-
urnar fínu sem
keyptar voru fyrir
sýninguna muni
nýtast Þjóðleik-
húsinu í áratugi.
uppfærslan hefur yflrleitt hlotið jákvæða dóma.
Flest bendir hins vegar til þess að stofnkostnað-
ur við þessa uppfærslu sé slíkur, að tekjur þær
sem Þjóðleikhúsið fær inn hvert sýningarkvöld,
geri ekki meira en standa
undir kvöldinu, ef þær þá
ná því, en ekki greiða nið-
ur stofnkostnaðinn. Sam-
kvæmt upplýsingum
mínum innan úr Þjóðleik-
húsi og íslensku óperunni
er stofnkostnaðurinn kom-
inn yfir 30 milljónir króna.
Gísli Alfreðsson þjóðleik-
hússtjóri segir stofnkostn-
aðinn ekki vera svo háan,
en kveðst á þessu stigi ekki
geta upplýst hver hann er. Hér á eftir
verður reynt að skyggnast að tjaldabaki
í uppfærslu Þjóðleikhússins á Ævintýrum
Hoffmanns í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu.
Morgunblaðið/Rax