Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER
27
Ogríkið
til andskotans
Sauðfjárbændur á aðal fundi
sínum á Flúðum nú í haust voru
ekki allskostar ánægðir með
landsfeðurna og embættismenn
sína.
Þórólfúr Sveinsson mætti á
fúndinn í forfölium formanns
Stéttarsambands bænda. Hann
sagði meðal annars í ávarpi að
fækkun sauðfjárbænda væri óum-
flýjanleg. „Hins vegar mega
bændur ekki missa vonina, þá er
andskoti lítið eftir,“ sagði Þórólf-
ur.
Bragi Gunnlaugsson frá Setbergi
sagði vonina heldur létta í maga
og varla nokkur bóndi á hana setj-
andi. Hann beindi nokkrum spurn-
ingum til Þórólfs varðandi sauðfjár-
búskapinn og sláturhúsamál. Taldi
hann að allt varðandi sauðfjárbú-
skap væri á niðurleið þannig að eft-
ir úreldingu bændanna væri ekki
þörf á að úrelda neitt þeim tengt. í
lokin sagði Bragi: „í dreifbýlinu eru
allir að fara á hreppinn, hreppurinn
á sýsluna, sýslan á ríkið og ríkið til
andskotans."
Það var föstudaginn 26. ágúst að
Landssamtök sauðfjárbænda héldu
aðalfund sinn á Flúðum í Hruna-
mannahreppi. Þar fluttu menn tillög-
ur og fjölluðu um vanda búgreinar-
innar sem allir voru sammála um
að væri ærinn. Voru margir nokkuð
svartsýnir á að framtíðin bæri gott
í skauti sér. Meðal fundarmanna
voru þingmenn úr kjördæminu. Ein-
um þeirra, Guðna Agústssyni, þótti
undrun sæta hversu svartnættið
væri mikið í málflutningi manna á
fundinum: I fundargerð aðalfundar-
ins er þessa getið svo og viðbragða
fundarmanna: „Lambakjöt er alltaf
best, veislur með kjúklinga eru liðin
tíð,“ sagði Guðni með sínum alkunna
áhersluþunga í röddinni. „Það þarf
að ræða framtíðina því allt er að
vinna.“ Taldi hann algengast að fólk
borðaði í eldhúsunum heima hjá sér
ekki á veitingahúsum. Hann átaldi
menn fyrir að kenna SÍS um ófarir
sínar og bað fundarmenn að fara
ekki með barlóm af fundinum.
Ekki voru fundarmenn ánægðir
með ádrepu Guðna, fannst full mik-
il bjartsýni koma fram í máli hans.
Eysteinn Sigurðsson Amarvatni
sagði bjartsýni góða en raunsæi
þyrfti að ráða ríkjum. Hjörleifur Sig-
urðarson Grænavatni lét í ljós trú-
leysi sitt, meðfætt, en sagðist hafa
gaman af prestum. Guðni Agústss-
son hefði talað eins og vakninga-
prestur um vonina og trúna. Sagði
hann forkastanlegt að Guðni hefði
svo gjörsamlega tapað áttum eftir
aðeins eitt ár á þingi.
Sigurður Jónsson S-Fjarðarnesi
sagði að ekki væri von að vel gengi
í landbúnaðarmálum þegar alþingis-
menn væru svo jarðsambandslausir
sem raun bæri vitni.
Einn maður tók upp hanskann
fyrir Guðna og bjartsýnina. Það var
Páll Siguijónsson Galtalæk sem taldi
að menn hefðu gott af að vera bjart-
sýnir eins og Guðni.
Þórólfur Sveinsson ráðlagði
Guðna að skreppa norður á Strandir'
og ræða þar við fólkið sem unnið
hefur í smáu sláturhúsunum og
segja því að sleppa allri smámuna-
semi.
Seinni fundardaginn héldu sauð-
fjárbændur áfram að reka hornin í
Guðna alþingismann. Þá tók til máls
í umræðunni um nefndarálit, Bragi
Gunnlaugsson Setbergi sem kvaðst
hafa hlaupið undan nefndarstörfum
þá um morguninn til að fara í ferð
um sunnlenskt sældarhérað, svokall-
að Guðnaríki, og þætti engum mikið
þó þingmaðurinn hefði í ræðu sinni
lofað og prísað allt og alla: „En
hann hefur sennilega aldrei komið
út af Suðurlandi," sagði Bragi.
I lok fundarins var enn hnykkt á
samlíkingu ákveðinna ræðumanna
við vakningapresta. A fundinum var
einn prestur en þeir sem fengu
líkinguna voru Guðni alþingismaður
og Þórólfur Sveinsson. Fundargerð
aðalfundarins lýkur með þessari
vísu:
Hópinn prýða prestar þrír,
prútt er liðið talið.
Meðhjálpari skratti skýr,
skoðið mannavalið.
Ofriður um Heiðu
IiEIÐA er eitt helsta stolt Svisslendinga en nú eru Austurríkismenn
að næla sér í hana. Douglas-bræðurnir, Michael og Joel, synir Kirks,
eru að framleiða nýja kvikmynd um söguhetjuna Heiðu sem svissneska
skáldkonan Jóhanna Spyri skapaði fyrir 108 árum. Þeir ákváðu að
taka útisenur myndarinnar í Schladming í Steiermark í Austurriki
frekar en í Sviss til að halda kostnaði í lágmarki og af því að Aust-
urrikismenn voru svo klókir að hafa samband við þá að fyrra bragði.
Svisslendingar eru svekktir en hugga sig við að myndin fjallar alls
ekki um gömlu góðu Heiðu, eins og við þekkjum hana, heldur ein-
hveija unga stúlku sem fer meðal annars á heimavistarskóla í Italíu!
*
Ifyrstu setningu bókarinnar um
Heiðu kemur fram að hún er á
leið upp fjöllin fyrir ofan Mayen-
feld. Þorpið er í kantónunni Grau-
biinden í austurhluta Sviss, skammt
fyrir sunnan Liechtenstein. Litla
furstadæmið leyfír Svisslendingum
svo sum ekki heldur að eiga Heiðu
í friði. Það hreykir sér af „Heiðu-
landslagi" í kynningarbæklingum
svo að sumir ruglast og halda að
Heiða sé þaðan. En það er hún
sannarlega ekki. Hún er sko svissn-
esk í húð og hár.
Spyri ólst upp í smábænum Hirz-
el skammt fyrir utan Ziirich. Hún
sótti menntun til borgarinnar og
settist þar að þegar húrí gifti sig.
Skáldkönan var komin yfír fimm-
tugt þegar hún skrifaði bókina um
Heiðu. Hún valdi henni stað á svæði
sem hún þekkti vel í heimalandi
sínu.
Sagan um litla munaðarleysingj-
ann sem fer til einsetumannsins í
flöllunum og kynnist Pétri og geit-
unum hans náði hylli strax og hún
kom út. Bókin hefur verið þýdd á
14 tungumál. Kvikmyndin í Aust-
urríki er áttunda myndin sem er
gerð um söguhetjuna. Japanir
gerðu teiknimynd 1977 og þýsku-
mælandi sjónvarpsstöðvar gerðu 26
þátta sjónvarpsröð um hana 1979.
Þeir voru teknir í St. Moritz í aust-
urhluta Sviss. Shirley Temple lék
Heiðu 1937 í fyrstu kvikmyndinni
um hana. Sú var tekin í upptökusal
í Hollywood og ber það með sér.
Svisslendingar gerðu tvær myndir
um hana á sjötta áratugnum.
Landsniönnum þykir sú frá 1952,
sem var tekin fyrir ofan Mayenfeld,
hin eina sanna rétta. Þjóðveijar
gerðu tvær á sjöunda áratugnum,
eina í samstarfi við Austurríkis-
menn og aðra við Bandaríkjamenn,
en hér fer ekki hátt um þær.
Hin 14 ára, breska leikkona Juli-
et Caton fer með hlutverk Heiðu í
Schladming. Hún lék engil í mynd
Scorceses „The Last Temptation
Of Jesus Christ". Jan Rubes leikur
afa en Charlie Sheen, sem er 23ja
ára, fer með hlutverk Geita-Péturs.
Sheen hafði hetjuhlutverk í mynd-
inni „Platoon" og lék á móti Mich-
ael Douglas í „Wall Street". Hann
segist vera eins og stóri bróðir
Heiðu í myndinni. „Þegar hún lend-
ir í vandræðum birtist ég og bjarga
henni - Rambó kynnist Heiðu.“
Hin nýja Heiðumynd hljómar eins
og sönn amerísk ævintýra- og has-
armynd. Hana á að frumsýna í
Cannes næsta vor. Austurríkismenn
hugsa sér gott til glóðarinnar. Þeir
Ijárfestu smávegis í henni og segja
að auglýsingagildi hennar verði
ómetanlegt. Þeir ætla að bjóða upp
á „Heiðu-ferðir“ frá Sviss, af öllum
stöðum, til Steiermark í sumar!
Afborgunar verð:
áður kr. 30.550.-
nú kr. 27.300.-
Stgr. kr.
25»
FR240:
240 litra kæliskápur
16 lítra einnar stjömu frystir.
Frystigeta —12° C.
• Hitastigsstillir. • Afþýðing með einum
hnappi. • Grænmetís- og ávaxtaskúffur.
• Hægt að velja um vinstri eða hægrihandar
opnun á hurö. • Mál: breidd x hæð x dýpt:
55x120x61
iS>
Heimilistæki hf
Opið, laugardag:
Kringlan
Sætún
kl. 10-16
kl 10-13
Sætúni 8
SÍMI: 69 15 15
Hafnarstræti 3
SÍMI: 69 15 25
Kringlunni
SÍMI. 6915 20
í SQMUKgUÍK,
PHILCO
kæliskápar
VERÐSTðÐVUN
Afborgunar verð:
áðurkr. 42.705.-
nú kr. 37.850.-
Stgr. kr.
35*5°
FR320
Kæli- og frystiskápur
330 litra. 55 litra 3ja stjömu frystir.
Frystigeta -24° C (3,5 kg. á 24 klst)
• Hitastigsstillir. • Sjátfvirk afþýðing. • Færan-
legur eggjabakki. • Tvær grænmetis- og
ávaxtaskúffur. • Hægt að velja á milli vinstri
eða hægri handar opnunar á hurð. • Mál:
breidd x hæð x dýpt 60 x 157 x61