Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
UNGUR píltur, ökumaður bifhjóls, slasaðist í
umferðarslysi síðdegis í gær.
Pilturinn lenti í hörðum árekstri við Lada-bifreið
á mótum Furumels og Hagamels. Hann slasaðist
meðal annars á fæti og var fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild. Slæmt skyggni var þegar slysið varð.
Vélhjólið er mikið skemmt en lítið sá á bílnum.
Ekki fengust upplýsingar um aðdraganda óhappsins
í gær.
Ríki og sveitarfélög:
Samið um verkaskiptingu
NÁÐST hefur samkomulag um
verkaskiptingu milli ríkis og
sveitarfélaga, og að sögn Sigur-
geirs Sigurðssonar, formanns
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, eru líkur á að gengið verði
frá samkomulagi um tekjuskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga í
INNLENT
næstu viku. Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðheiTa,
sagði á ráðstefnu um fjármál
sveitarfélaga að stefnt væri að
því að leggja fram frumvarp um
breytingu á verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga mjög Qjótlega
ásamt frumvarpi um tekju-
stofha sveitarfélaga.
Sigurgeir Sigurðsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að milli
sveitarfélaganna hefði tekist gott
samkomulag um þessi mál, en helst
hefði þurft að vinna að samræm-
ingu í sambandi við tekjustofnana.
„Þama er verið að flytja tii fjár-
magn á milli sveitarfélaga og í
framtíðinni verður jöfnunarsjóður-
inn notaður svo til alfarið til jöfn-
unar, og þá til þeirra sveitarfélaga
sem eru það óheppilegar rekstrar-
einingar að þau standa ekki undir
þeirri lágmarksþjónustu sem hægt
er að gera kröfur til, og eins þeirra
sem eru með lélegri tekjur en
meðaltalið sýnir. Um leið og geng-
ið hefur verið frá samkomulagi um
ijármálahlutann í þessu verður
þetta lagt fram á Alþingi til um-
fjöllunar, en varðandi ijármálahlið-
ina hefur náðst samkomulag um
öll aðalatriðin, en einungis á eftir
að gera tillögur um formsatriði,"
sagði Sigurgeir.
Fjármálaráðherra:
Fellur frá áfrýj-
un í máli Sturlu
ÓLAFUR Ragnar Grímsson Qár-
málaráðherra hefur ákveðið að
falla frá áfrýjun til Hæstaréttar
i máli Sturlu Kristjánssonar fyrr-
um fræðslustjóra Norðurkinds
eystra. Sturla höfðaði mál gegn
menntamálaráðherra vegna brott-
rekstrar úr starfi og i undirrétti
voru honum dæmdar bætur, en
Jón Baldvin Hannibalsson, þáver-
andi Qármálaráðherra, áfrýjaði til
Hæstaréttar.
„Þetta mál var sérkennilegt og
um það spunnust mjög miklar póli-
tískar og persónulegar deilur. Það
33% hækkun
á miðaverði
hjá HHÍ
MIÐAVERÐ í Happdrætti Há-
skóla íslands hækkar úr 300
krónum í 400 á næsta ári. Það
jafngildir 33% hækktin. Hækkun-
in hafði verið samþykkt fyrir
verðstöðvun. „Hæstu vinningam-
ir verða þeir sömu á næsta ári
og í ár,“ sagði Jón Bergsteinsson
skrifstofustjóri happdrættisins í
samtali við Morgunblaðið.
„Hæsti vinningur á trompmiða í
desember verður 25 milljónir króna
en aðra mánuði 5 milljónir króna,“
sagði Jón. „Lægsti vinningur hækk-
ar hins vegar á næsta ári úr 7.500
krónum í 10 þúsund krónur. 70%
af innkomunni fer í vinninga eins
og á þessu ári,“ sagði Jón Berg-
steinsson.
getur þurft að fara í prófmál til að
fá úr því skorið hvar takmörkin á
valdi embættismanna eru og hveijar
hlýðniskyldur þeirra eru gagnvart
ráðherrum og ráðuneytum. Eg tel
hins vegar mjög mikilvægt að ef í
slík prófmál sé farið þá eigi þau sér
eðlilegan aðdraganda og þau séu
ekki flækt í mjög viðkvæmar pólitísk-
ar deilur," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra.
„Allur aðdragandi verður að vera
með þeim hætti að enginn geti dreg-
ið í efa að prófmálið sé byggt á eðli-
Iegum siðferðilegum grunni. Þess
vegna vildi 'ég sem ráðherra ekki
taka við agavaldi sem jafnvel Hæsti-
réttur úrskurðaði mér á grundvelli
forsögu þessa máls. Það þyrfti að
eiga sér annars konar aðdraganda.
Jón Baldvin Hannibalsson áfrýjaði
þessu máli þegar hann var fjármála-
ráðherra og það hefur verið hans
persónulega mat að vilja taka við
agavaldinu með þessum hætti ef
Hæstiréttur úrskurðaði á þann veg
að hann fengi það. Ég taldi að vand-
lega athuguðu máli að það væri ekki
rétt að gera það, og tel betra að
byggja upp eðlileg samskipti milli
embættismanna annars vegar og
ráðuneyta og ráðherra hins vegar
með öðrum hætti en með hatrömm-
um deilum og illvígum persónulegum
átökum. Þetta mál er ekki komið til
meðferðar í Hæstarétti og kannski
hefði gegnt öðru máli ef Hæstiréttur
hefði verið búinn að ijalla um málið,
og ég væri beinlínis að grípa inn í
störf réttarins," segir Ólafur Ragnar
Grímsson.
Þess má geta að í gær létu tveir
skólastjórar flagga við skóla sína á
Akureyri, þeir Sverrir Pálsson, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, og Benedikt
Sigurðsson, Bamaskóía Akureyrar.
Tilefnið var að sögn endir svokallaðs
Sturlumáls.
Tap gegn Frökkum
ÍSLENSKA sveitin tapaði fyrir
hinni frönsku, IV2-2V2, í tíundu
umferð Ólympiumótsins í gær-
kvöldi.
Jóhann Hjartarson tapaði fyrir
Spasskíj á 1. borði en öðrum skák-
um lauk með jafntefli. íslenska
sveitin hefur nú 23 vinninga. Sovét-
menn hafa örugga forystu en stað-
an á mótinu er um margt óljós
vegna biðskáka.
Islensku skákmennimir eiga frí
í dag.
Sjúkraflutningamenn færa piltinn í sjúkrahílinn.
Bifhjól í árekstri
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðstefiia um nýtt álver:
Tími ákvarðanatöku er núna
- sagði dr. Jóhannes Nordal formaður sljórnar Landsvirkjunar
DR. JÓHANNES Nordal sagði á ráðstefiiu um nýtt álver í gær-
kvöldi að tími ákvarðanatöku um byggingu nýs álvers á íslandi
væri núna. Ráðstefiian var haldin á vegum Sjálfstæðisfélaganna í
Hafiiarfirði og orkunefiidar Sjálfstæðisflokksins. Dr. Jóhannes Nor-
dal var fyrstur frummælenda. Hann rakti fyrst í ítarlegu máli þróun-
ina á álmörkuðum frá árinu 1957 til dagsins í dag. Síðan vék hann
að stöðunni nú og því sem er framundan.
„Umframeftirspum fer nú vax-
andi á áli og útlit er fyrir að skort-
ur verði á áli um nokkum tíma í
náinni framtíð," sagði dr. Jóhannes
Nordal. „Verðið er hátt og mun
haldast svo. Tímabil sem þessi koma
ekki nema á einu ári af sjö, og á
þeim taka álfyrirtæki ákvarðanir
um fjárfestingar í nýjum álverum.
íslendingar verða að huga að því
nú að innan eins til tveggja ára
breytist þessi markaður að nýju,
þannig að ef til vill verður búið að
taka það miklar ákvarðanir um
nýjar álbræðslur að fyrirtækin leggi
ekki í meira."
Evrópubandalagið sýnir
málinu áhuga
Garðar Ingvarsson fram-
kvæmdastjóri Markaðsskrifstofu
iðnaðarráðuneytisins og Lands-
virkjunar ræddi um Atlantal-verk-
efnið. í máli hans kom fram að er
frumhagkvæmniathugunin fyrir
verkefnið lá fyrir í byijun ársins
hafi framkvæmdanefnd Evrópu-
bandalagsins fengið eintak í hend-
ur. „Evrópubandalagið hafði sýnt
þessari vinnu mikinn áhuga og
keypt sér aðgang að frumhag-
kvæmniathuguninni. Þessi áhugi
Evrópubandalagsins er vel skiljan-
legur og stuðningur þess við aukna
áliðju á íslandi getur haft mikla
þýðingu síðar fyrir íslendinga,“
sagði Garðar Ingvarsson.
Garðar kynnti álfyrirtækin fjögur
sem standa að Atlantal verkefninu,
en þau eru auk Alusuisse: Granges
Aluminium í Svíþjóð, Alumined BV
í Hollandi og Austria Metal í Aust-
urríki. Síðan ræddi Garðar stöðu
málsins nú, en hún er sú að ráðgjaf-
arfyrirtækin Bechtel Inc. í San
Francisco og Lavalin í Montreal
vinna nú að gerð fullkominnar hag-
kvæmniathugunar. Þessir aðilar
hafa síðan ráðið Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen sem undir-
verktaka varðandi íslenskar að-
stæður.
„Þess má geta hér að verkefnis-
stjóri Bechtel lét þau orð falla við
mig fyrir tæpum mánuði, að hann
væri mjög ánægður með sína
ísiensku samstarfsaðila. Hefði
reyndar aldrei átt jafn gott sam-
starf við nokkum undirverktaka í
sambandi við svona áætlunargerð,"
sagði Garðar.
Gjaldeyristekjur að einum
þriðja af orkusölu
Jóhann Már Maríusson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Landsvirkjunar
ræddi um orkujöfnuð og virkjunar-
áform með og án stóriðju. Hjá hon-
um kom fram að ef ekki kemur til
ný stóriðja mun núverandi orkuöfl-
unarkerfi, ásamt Blönduvirkjun,
fullnægja orkuþörf okkar fram yfir
næstu aldamót. Ef hinsvegar til
nýrrar stóriðju kæmi yrði þess
gætt að raforkuverð það sem um
semst leiði ekki til hærra raforku-
verðs til almenningsveitna en ella.
Jóhann Már ræddi nokkuð um
þýðingu stóriðjufyrirtækja fyrir
íslenskan efnahag. í máli hans kom
fram að gjaldeyristekjur þær sem
við höfum af stóriðju á íslandi eru
ekki nema að einum þriðja fengnar
frá orkusölunni. Laun, skattar og
aðkeypt innlend þjónusta af ýmsu
tagi vega tvöfalt á við orkusöluna
í gjaldeyristekjum. Síðan sagði Jó-
hann Már: „Það hefur verið áætlað
að tvöföldun- þeirrar stóriðju sem
við höfum nú komið upp muni geta
skilað álíka upphæð af hreinum
gjaldeyristekjum og fást af bestu
loðnuvertíð. Munurinn á þessum
tveimur greinum er hinsvegar sá
að hægt er að gera mun áreiðan-
legri áætlanir um uppbyggingu og
rekstur stóriðju heldur en loðnu-
göngur. Því ætti aukning í orku-
frekum iðnaði að leiða ti! aukins
stöðugleika í þjóðarbúskapnum."
Jóhann Már sagði einnig að þótt
Atlantal-verkefnið gæti orðið-fysi-
legur kostur til aukinnar hagsældar
væri of snemmt að fullyrða um slíkt
fyrr en að lokinni rækilegri þjóð-
hagslegri úttekt sem unnið væri að.
Veldur ekki þenslu
Guðmundur Ámi Stefánsson
bæjarstjóri í Hafnarfirði sagði í er-
indj sínu að miðað við reynsluna
af ISAL myndi nýtt álver kalla eft-
ir 150 starfsmönnum frá Hafnar-
firði. Óhætt væri að fullyrða að slíkt
myndi ekki hafa veruleg þenslu-
áhrif eða rugla þá atvinnustarfsemi
sem fyrir er í bænum.
Guðmundur rakti ýmis mál varð-
andi hið fyrirhugaða álver og tengsl
þess við Hafnarfjörð, m.a. umhverf-
ismál, hafnarmál og samgöngumál.
Hvað umhverfismálin varðar sagði
hann sjálfgefið í hugum Hafnfírð-
inga að fyllstu umhverfisvemdar
og mengunarvama yrði gætt í hinu
nýja álveri. Sagði hann ljóst að
strangt yrði eftir þessu gengið.
Hvað hafnarmálin varðar sagði
Guðmundur að um það hefði verið
rætt að þörf væri á 100 metra við-
legukanti í Straumsvík. Hafa hafn-
aiyfirvöld í Hafnarfirði lýst sig
reiðubúin að standa að gerð hans
enda slíkt eðlilegt. Út frá því væri
gengið að eðlileg gjöld yrðu greidd
af þeim flutningi sem um höfnina
mun fara og þau mál þyrfti að
ræða ítarlega.