Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 15
SiMOIS(>t#ý«lAqiÐ,- 24i ;NÓVKMBEK 1988
er sannkallaður þúsundþjalasmið-
ur og verður spennandi að fylgjast
með störfum hans í framtíðinni.
Þáttur Péturs Hjaltested í útsetn-
ingum og upptökum er góður. Hið
eina, sem ég get fundið að, er of
hávær tónlist í seinni hlutanum.
Bestur þótti mér ástarsöngur
þeirra Irenu HF og ungfrú Lóu.
Höfundur sögunnar um Fróða, og
fleiri skemmtilegra og vinsælla
bama- og unglingabóka, Ole Lund
Kirkegaard, virðist hafa haft gott
auga fyrir hinu spaugilega í sam-
skiptum barna og fullorðinna.
Hann dregur upp að sumu leyti
ýkta mynd af kennara, einsetu-
manni og piparmeyjum, en engu
að síður virðast þessar persónur
sæmilega trúverðugar.
í þessari leikgerð Anne og Ame
Aabenhus em léttir orðaleikir og
hefur þýðandanum, Aðalsteini
Asberg Sigurðssyni, tekist vel að
koma þeim til skila. I þessu verki
er komið inn á m.a. ólík sjónarmið
fólks, fordóma, bölv, og þjófnað,
en allt virðist það saklaust og end-
ar vel.
Leikskráin er vel úr garði gerð
með söngtextum, teikningum og
myndum. Von er á hljóðsnældu
og plötu með söngvunum og verð-
ur þá hægt að upplifa þetta
skemmtilega leikrit aftur og aftur.
Höfundur er bókavörður i Kópa
vogi.
Iðunn Steinsdóttir
Unglingabók
eftir Iðunni
Steinsdóttur
BÓKIN Víst er ég fullorðin eft-
ir Iðunni Steinsdóttur er komin
út hjá Almenna bókafélaginu.
í kynningu AB segir m.a. að
bókin gerist í smábæ úti á landi
upp úr 1950. „Á þeim tíma sátu
stúlkur og vermdu bekki heilu
böllin, allir bílstjórar með ábyrgð-
artilfinningu flautuðu fyrir hom
og hver einasti kennari hljóp yfir
„dónalega kaflann" í heilsufræð-
inni þó að það væri eini kaflinn
sem nemendur töldu sig einhveiju
varða.“
Og einnig segir: „Þegar Soffía
fermist hefur hún að eigin dómi
náð því langþráða marki að verða
fullorðin. En fullorðna fólkið er á
öðm máli, að minnsta kosti þegar
það hentar 'því. Það er ýmislegt í
lífi hinna fullorðnu sem Soffía
skilur ekki og getur ekki sætt sig
við. Eru allir fullorðnir eitthvað
skrítnir eða er hún sjálf öðm vísi
en hún á að vera? Er það svona
skrítið að vera fullorðinn?
M5
Næstkomandi sunnudagur er fyrsti sunnudagur
í aðventu. Nú lún seinni ár hafa margir tekið
upp fallegan og alþjóðlegan sið, — að halda
aðventuna hátíðlega með aðventukransi og
aðventuljósum. Hjá Heimihsverslun Húsa-
smiðjunnar fæst allt það, sem heimilið þarf til
aðventunnar. Aðventuljósin gefa lieimilinu
fallega hirtujmn hátíðarnar.
Toppur á *****
jólatré,
handunnið gler
Jólakúlur
gler, 9 í pakka
Jólakúlur
gler, 5 í pakka
Tina
aðventuljós
Ture
aðventuljós
Markus
aðventuljós,
rauð eða viðarlituð
Ljosasenur
jólastjarna
JLjosaseriur,
ýmsar stærðir
mmsenur
útiseríur
Lotta
aðventuljós,
hvít eða rauð
Jólatré
með skrauti
SKÚTUVOG116 SÍMI 687700
MYNDAMÓT HF
vispnso