Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 35

Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FíMMTUPAGUR’ 24. (NÓVEMBER 1988 £o35 Tveir slösuðust í hörðum árekstri HARÐUR árekstur tveggja fólksbifreiða varð á mótum Elliðavogs og Kleppsmýrarvegs um kl. 13 í gær. Ökumenn beggja bifreiðanna slösuðust, en ekki alvarlega. Annarri bifreiðinni var ekið norður Elliðavog, en hinni í suður. Ökumaðurinn, sem fór í suðurátt, ætlaði sér inn á Kleppsmýrarveg, beygði til vinstri og í veg fyrir hinn. Áreksturinn var harður og skemmdust báðar bifreiðirnar mik- ið. Ökumenn, sem voru einir í bif- reiðum sínum, slösuðust báðir, en ekki alvarlega þó. Tunglið; Bubbi Morthens BUBBI Morthens heldur trúba- dor-tónleika í Tunglinu við Lækj- argötu í kvöld, fímmtudags- kvöld. Tónleikarnir verða siðustu sóló-tónleikar Bubba um hrið, þvi í næstu viku kemur út hljómplata hans og Megasar, „Bláir draum- ar“, og verður henni fylgt eftir með annars konar uppákomum. Bubbi hefur að undanfömu hald- ið tónleika í skólum á höfuðborgar- svæðinu, en annars spilað fremur lítið hérlendis á síðustu mánuðum. Ástæða þess hefur einkum verið annir vegna útkomu hljómplötunnar „Serbian flower" á Norðurlöndun- um. Upptökum skífunnar lauk í vor, en nokkru síðar, eða í kjölfar útgáfu smáskífunnar „Moon in the gutter", hófst hljómleikaferð Bubba um Norðurlönd. Bubbi Morthens FiskverA á uppboðsmörkuðum 23. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 44,00 30,00 41,29 105,285 4.347.870 Þorskur(ósL) 35,00 30,00 33,56 1,409 47.287 Smáþorskur 14,50 14,50 14,50 0,900 13.050 Ýsa 71,00 35,00 61,61 12,688 781.742 Ýsa(ósL) 50,00 35,00 42,69 1,756 74.960 Smáýsa 15,00 15,00 15,00 0,118 1,778 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,291 4.372 Ufsi 15,00 13,00 14,89 11,118 165.497 Steinbítur 20,00 20,00 20,00 0,214 4.290 Langa 20,00 20,00 20,00 1,841 36.835 Keila 10,00 10,00 10,00 0,691 6.914 Samtals 41,25 137,569 5.675.743 Selt var aöallega úr Viði HF, Óskari Halldórssyni RE, Ljósfara HF, Björgu ÞH, frá Sæfangi hf. ó Grundarfiröi, Hraöfrystihúsi Hellissands og Nesveri hf. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 43,00 43,00 43,00 0,356 15.308 Þorskur(ósL) 43,00 43,00 43,00 2,670 114.810 Undirmál 12,00 12,00 12,00 1,852 22.225 Ýsa 41,00 35,00 37,93 4,060 154.018 Ýsa(ósl.) 50,00 34,00 48,54 1,182 57.372 Ýsa(umálósL) 10,00 10,00 10,00 0,111 1.110 Ufsi 12,00 12,00 12,00 4,995 59.937 Lúða 150,00 150,00 150,00 0,023 3.450 Hlýri+steinb. 15i00 11,00 12,46 0,294 3.662 Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,483 7.245 Blandað 25,00 25,00 25,00 0,021 525 Samtals 27,40 16,047 439.662 Selt var úr Höfðavik AK og ýmsum bátum. ( dag veröur selt úr Hjörleifi RE og bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 44,50 41,50 43,50 2,800 121.800 Ýsa 55,00 15,00 38,66 4,041 156.245 Karfi 20,50 20,50 20,50 2,880 59.040 Ufsi 18,00 15,00 16,19 0,829 13.422 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,184 2.760 Lúða 189,00 159,00 172,98 0,086 14.790 Langa 20,50 20,50 20,50 0,050 1.025 Blál.+langa 18,00 18,00 18,00 0,220 3.960 Keila 8,00 8,00 8,00 0,300 2.400 Síld 8,07 8,00 8,06 164,800 1.327.786 öfugkjafta 5,00 5,00 5,00 0,153 765 Skata 60,00 60,00 60,00 0,180 10.800 Skötuselur 325,00 325,00 325,00 0,033 10.725 Samtals 9,77 176,556 1.725.518 Selt var meðal annars úr Þorbirni II GK, Geirfugli GK, Baröanum GK og Sigurði Þorleifssyni GK. ( dag verður aö öllum likindum selt úr dagróöra- og síldarbátum. Grœnmetisverð á uppboðsmörkuðum 23. nóvember. SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Tómatar 104,00 1,032 107.070 Sveppir 450,00 0,543 244.350 Paprika(græn) 100,00 0,220 22.000 Gulrætur(pk.) 127,00 5,540 702.660 Gulræturfópk.) 117,00 2,030 238.160 Rófur 48,00 6,725 319.800 Steinselja 31,00 1,331 41.261 Grænkál 27,00 0,080 2.160 Kínakál 133,00 6,786 904.560 Rauðkál 86,00 0,210 18.060 Hvítkál 75,00 15,380 1.168.660 Samtals 3.760.601 Moigunblaðið/Sverrir Frá heimsókn lögreglumanna í Gerðuberg. Umferðarfræðsla lögreglunnar; Nýfimdin kvikmynd Oskars Gíslasonar sýnd öldruðum Endurskinsmerkjum dreift og góð ráð gefin LOGREGLAN í Reykjavík heimsækir um þessar mundir félag- smiðstöðvar eldri borgara i Reykjavík og ræðir þar um umferðar- mál við viðstadda. í farteskinu hafa lögreglumennirnir meðal annars eintak af fyrstu og einu kvikmyndinni sem gerð hefúr verið um umferðarfræðslu hérlendis. Hana gerði Óskar Gíslason fyrir Slysavarnafélag íslandi í Reykjavík og Hafnarfirði árið 1951. Þorgrímur Guðmundsson lög- regluvarðstjóri fann frumeintak myndarinnar í geymslu hjá Slysa- varnafélaginu. Það var þá ekki sýningarhæft og lá undir skemmdum en með aðstoð Erlend- ar Sveinssonar hjá Kvikmynda- safni íslands var myndin send til Bretlands þar sem hún var lag- færð og hreinsuð á kostnað lög- reglustjórans í Reykjavík og Um- ferðarráðs. Að sögn Þorgríms og Ómars Smára Ármannssonar að- stoðaryfirlögregluþjóns hafa und- irtektir við myndinni verið góðar enda gamlar myndir úr bæjarlíf- inu ávallt vinsælt myndefni. Auk myndasýningarinnar ræða lögreglumennirnir í heimsóknum sínum um umferðarmál almennt, veita ráðleggingar og gefa hvetj- um viðstaddra tvö endurskins- merki. Einnig er lögð sérstök áhersla á mikilvægi vandaðs skó- fatnaðar og mannbrodda í vetrar- færðinni en að vetrarlagi verður jafnan nokkur fjöldi roskins fólks fyrir meiðslum vegna hálku á gangstéttum. Að sögn Ómars Smára og Þorgríms verður eldri borgurum boðið í bæjarferð í rútu í desemb- ermánuði. Þar verður vakin at- hygli á helstu hættum í umferð- inni og boðið upp á kaffiveitingar á lögreglustöðinni. Eftir áramót munu lögreglumenn svo gera víðreist meðal eldri borgara í safn- aðarheimilum í borginni. Strax á ferð um landið Frá hádegistónleikum Strax £ Verslunarskólanum. HLJÓMSVEITIN Strax er að leggja upp í tónleikaferðalag um landið með nýja meðlimi inn- anborðs. Fyrstu tónleikarnir verða á afmælishátíð Félagsmið- stöðvarinnar í Bústöðum á morgun, föstudagskvöld, en á laugardagskvöldið leikur hljóm- sveitin á Hótel Selfossi. Eftir það heldur Strax á Blöndu- ós, Sauðárkrók, Akureyri, Húsavík, Egilsstaði, Neskaupstað og víðar. í frétt frá hljómsveitinni segir að tónleikar, dansleikir og aðrar uppákomur verði nú á ólíkle- gustu tímum sólarhrings, en kostir morgun- og hádegistónleika hafí runnið upp fyrir meðlimum Strax er þeir voru á ferð í Kína.- Áfram verður þó leikið á hinum hefð- bundnu miðnæturtónleikum milli 12 og þrjú á nóttunni, einkum um helgar. Auk Ragnhildar Gísladóttur og Jakobs Magnússonar eru nú í hljómsveitinni gítarleikarinn Sig- urður Gröndal úr Rikshaw, auk eyfirsku tónlistarmannanna Sigf- úsar Óttarssonar, trommuleikara og Baldvins Sigurðssonar, sem léku með Bara-flokknum og síðar með Grafík og Rikshaw. Fyrirlestur um lagasmíð um Q ár magnsmarkað Lögfræðingafélag íslands heldur almennan félagsfúnd í stofú 101 í Lögbergi, Háskóla Islands, fimmtudaginn 24. þ.m. kl. 20.30. Fundarefhið er Laga- smíð um flármagnsmarkað. Frummælandi verður Bjöm Líndal, ráðunautur bankastjórnar Landsbanka íslands, og mun hann í erindi sínu fjalla um þtjú stjórnar- frumvörp, sem nú liggja fyrir Al- þingi og varða innlendan fjár- magnsmarkað. í erindinu verður leitað svara við þeirri spurningu \ hvort lögfesting þessara fmm- varpa muni stuðla að auknu öryggi í verðbréfaviðskiptum og eignarlei- gustarfsemi eins og að er stefnt. Að loknu erindi frummælanda verða almennar umræður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.