Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
43
Árstíð eldflugnanna
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn: Fljót eldflugn-
anna — Hotarugawa
Leikstjóri Sugawa Eizo. Hand-
rit Eizo og Nakaoka Kyohei.
Kvikmyndatökusljóri Himeda
Shinsaku. Aðalleikendur
Sakazuma Takayuki, Sawada
Tamae, Mikuni Rentaro, Toake
Yuldyo, Naraoka Tomoko. Jap-
önsk. Kinema Tokyo/Nichiei
Films 1987.
í þessari fallegn, epísku mynd,
fylgjumst við með viðburðaríku
tímabili í ævi 14 ára unglingsins
Tatsuo. Meðbyr og mótlæti þar
sem fyrsta ástin verður sterkasta
aflið er yfir lýkur.
Sú þjóðsögn lifir á eyjunni
Hokkaido, nyrsta hluta Japans,
að ef mikið snjóar í apríl verði
geysimikið um eldflugur í júní og
hver sá maður og kona sem upp-
lifí að líta sverminn augum, muni
að endingu bindast. Og vindamir
gnauða um Tatsuo og fjölskyldu
hans síðla vetrar 1962. Ekki nóg
með að snjónum kyngi niður held-
ur er atvinnurekstur heimilsföður-
ins í kaldakoli, í ofanálag veikist
hann lífshættulega. Einkabamið
Tatsuo stundar gagnfræðaskól-
ann og er ástfanginn upp fyrir
haus af bekkjarsystur sinni, Eiko.
Líkt og jafnaldrar hans um víða
veröld er hann ákaflega hræddur
við þessar nýju, sterku tilfinning-
ar — og Eiko. En myndinni lýkur
þó á þann veg að þau verða vitni
að hinum fáséða, ægifagra dansi
eldflugnanna.
Það er mikill fengur í Fljóti
eldflugnanna svo ágæta mynd
sem hún gefur af hversdagsiífi
japanskrar fjölskyldu og innsýn í
tilfinningalíf þarlendra unglinga.
Hún er líka fallega tekin, vel skrif-
uð og leikin. Mikuni Rentaro fer
einkar vel með hlutverk heimilis-
föðurins sem má muna tímana
tvenna, það er brostinn mikilleiki
í fari hans. í austri, engu siður en
. í vestri, virðast menn gleyma
gömlum greiðum. Á meðan Rent-
aro sigldi fyrir fullum seglum var
hann örlátur á fé sitt, en í fátækt-
inni flestum gleymdur. Móðurí-
myndin er sterk og falleg, hún
reynir að fegra hlutina, stappa
stálinu í eiginmann og son, þó
tæpast sé til fyrir flösku af saké.
Unglingamir em þekkilegir, upp-
eldið gjörólíkt því sem við þekkj-
um, en feimnin og hrifningin
koma ekki ókunnuglega fyrir
sjónir. Margar aukapersónur fylla
útí heildarmyndina; smiðurinn,
fyrri konan og ekki síst Keita,
besti vinur Tatsuos, sem fyrirfer
sér er faðir hans ákveður að binda
enda á námsferil hans. Allt vel
skrifaðar og leiknar persónur.
Einstök náttúrufegurðin er listi-
lega fönguð, ekki síst orðlögð feg-
urð blómstrandi kirsubeijatránna
og tákn vonarinnar, hátíðahöld
eldflugnanna.
Vestrænar myndir eru ekki ja&i óalgengar í Japan og þær jap-
önsku hérlendis. Hér má sjá biðröð fyrir utan japanskt kvikmynda-
hús sem er að sýna Á hverfanda hveli.
Unglingaástir á japanska vísu
Katzuko Katu fer með hlutverk
i Ungum ástum.
Koisuru Onnatachi
Leikstjóri og handritshöfúndur
Omori Kazuki. Kvikmynda-
tökustjóri Takarada Takehisa.
Aðalleikendur Saito Yuki,
Takai Maiko, Sagara Haruko,
Kobayashi Satomi, Harada
Kiwako. Japönsk. Toho 1986.
Ungar ástir er sögð frá sjónar-
hóli menntaskólastúlkunnar Tak-
ako og fjallar um fyrstu og ólík
kynni sem hún og bestu vinkonur
hennar og skólasystur hafa af
ástinni. Takako, sem er lokuðust
þeirra þriggja, er ástfangin af
Masaru, en er jafnframt farin að
gefa Kanzaki gaum. Þegar hún
kemst svo að ótryggð Masarus
gefur hún tilfinningum sínum til
Kanzakis lausan tauminn. Það er
fyrsta ástin. Svipaða reynslu
ganga vinkonur hennar þijár í
gegnum og lýkur myndinni á
hefðbundnu teboði þar sem stúlk-
urnar ræða reynslu sína.
Nokkuð langdregin og orðmörg
mynd en einkar forvitnileg til
samanburðar þeim ógrynnum
vestrænna unglingamynda sem
ekkert lát var á um langt skeið.
Af henni má draga þann fróðleik
helstan að Japönsk æska sé mun
platónskari en sú sem við þekkjum
af eigin raun og samtímamynd-
um. En hjörtun slá ekkert öðruv-
ísi hinumegin á hnettinum.
Frásagnarmáti Japana er ærið
ólikur þeim sem við eigum að
venjast. Unglingavandamálin eru
krufin og þau fílósóferuð fram og
til baka af austurlenskri rósemi.
Hætt er við að hún fari fyrir
bijóstið á mörgum Vestur-
landabúanum, alvönum hraðsoðn-
um patentlausnum á rannsóknar-
efnum tilverunnar. En hvað sem
öðru líður er Ungar ástir forvitni-
leg mynd um framandi mannlíf í
menningarlegu umhverfi svo gjör-
ólíku því sem við búum við. Ágæt-
ur þáttur í markvissri viðleitni'
Regnbogans að bjóða uppá mynd-
ir víðar að en frá Vesturheimi,
og er það einkar lofsvert.
GEGN STREITU
Vitundartækni Maharishi, INNHVERF
ÍHUGUN, er einföld, huglæg aðferð sem
vinnur gegn streitu og spennu. Almenn
kynning verður haldin í kvöld fimmtudag
kl. 20.30. I Garðastræti 17.
Aðgangur ókeypis.
íslenska íhugunarfélagið, s. 16662.
r
Top Class 10 ára
Við höldum upp á afmælið og gefum 10% afslátt
af öllum vörum fram að helgi. Gaman væri að fá
sem flesta í afmælisheimsókn.
Hjá okkur verður sannkölluð hátíðarstemming, því
jólavörurnar eru komnar.
Snyrtivörubúðin Top Class
Laugavegi51.
S. 12128 og 22128.
V.
Almennir stjórnmálafundir
Sjálfstæðisflokksins
í kjölfar f lokksráðsfundar
ATHAFN AFRELSI í STAÐ SKÖMMTUNARSTJÓRNAR
STYKKISHÓLMUR:
Sunnudaginn 27. nóvember -
Hótel Stykkishólmur, kl. 16.00
Málshefjendur: Pálmi Jónsson, Friðrik
Sophusson og Sigríður Þórðardóttir.
EGILSSTAÐIR:
Fimmtudaginn 24. nóvember -
Hótel Valaskjálf kl. 20.30
Málshefjendur: Ragnhildur Helgadóttir,
Friðrik Sophusson og Kristinn Péturs-
son.
í kvöld
KEFLAVÍK:
Fimmtudaginn 24. nóvember -
Flughótelinu, Hafnargötu, kl. 20.30
Málshefjendur: Matthías Bjarnason,
Guðmundur H. Garðarsson og Salome
Þorkelsdóttir.
í kvöld
DALVÍK:
Laugardaginn 26. nóvember -
Bergþórshvoli, kl. 16.00
Málshefjendur: Ólafur G. Einarsson,
Halldór Blöndal og Friðjón Þórðarson.
ÓLAFSFIRÐI:
Sunnudaginn 27. nóvember -
Tjarnarborg, kl. 16.00
Málshefjendur: Ólafur G. Einarsson,
Friðjón Þórðarson og Tómas Ingi Olrich.
AKRANES:
Mánudaginn 28. nóvember -
Sjálfstæðishúsinu, Heiðagerði 20,
kl. 20.30
Málshefjendur: Guðmundur H. Garð-
arsson, Friðrik Sophusson og Sturla
Böðvarsson.
MOSFELLSBÆ:
Mánudaginn 28. nóvember - Hlégarði,
kl. 21.00
Málshefjendur: Pálmi Jónsson, Guð-
mundur H. Garðarsson og Salome Þor-
kelsdóttir.
Brjótum á bak aftur
skattaáform vinstri
flokkanna!
Sjá nánar auglýsingar um féiagsstarf
Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu.
Hljóðkútar— púströr — pústklemmur
Allt í pústkerfið
BORGARTUNI 26,
SÍMI 62 22 62