Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 49
88CX H33M3VÖK .XS flUOAQUTMMrX ,ÖIÖAJHMUDHOM
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
Sb
forystuna líka litlausa og niðurnjör-
vaða embættismenn og hafa komið
á flokkinn ímynd kerfisflokks. Guð-
mundur Árni kallaði eftir meiri bar-
áttuanda og þar tóku margir undir.
Ymsir eldri menn, margir úr verka-
lýðshreyfingunni, söknuðu anda
verkalýðsbaráttu og töldu að bar-
áttan fyrir bættum kjörum laun-
þega hefði gleymst. Sérstaklega
voru margir bitrir yfir því að flokk-
urinn hefði tekið þátt í því að svipta
verkalýðshreyfinguna samnings-
réttinum er hann tók þátt í fyrstu
aðgerðum núverandi ríkisstjórnar.
Margir spurðu hvort uppruni
flokksins væri gleymdur. „Höfum
við gengið til góðs?“ var viðkvæðið
hjá mörgum ræðumönnum.
Öndvert sjónarmið er að finna
hjá ýmsum gömlum „viðreisnar-
krötum" - og einnig yngri mönnum,
sem eru lítt hrifnir af sameiningar-
tali forystunnar og telja að samein-
ing við Alþýðubandalagið komi
aldrei til greina. Margir eru þeir
líka óhressir með núverandi stjórn-
arsamstarf. Þeir styðja hins vegar
heils hugar utanríkisstefnu for-
mannsins. „Þama liggur gamall
fjandskapur við Alþýðubandalagið
og oft persónulegur að baki,“ sagði
einn úr þessum hópi. „Þessar sam-
einingatyfirlýsingar á þinginu vom
einkaframtak Jóns Baldvins og ekk-
ert ræddar í stofnunum flokksins.
Þessu var haldið á loft núna en
sameining mun aldrei nokkurn
tímann ná fram að ganga, til þess
er alltof stór hópur innan flokksins
á móti henni.“
Greinilegt var að hrifning Al-
þýðuflokksmanna af komu
Steingríms Hermannssonar á þing-
ið var takmörkuð. Ræðumenn ýms-
ir kölluðu komu Steingríms íjöl-
miðlasýningu og greinilegt er að
ekki er gróið um heilt milli
Steingríms og almennra flokks-
manna í Alþýðuflokknum, þótt
sættir hafi tekist með flokksfor-
mönnunum. „Hvað á að kalla okkur
núna; alþýðuframsóknarballa?"
spurði einn ræðumaður að lokinni
heimsókn Steingríms á þingið.
Hvert á að setja kúrsinn?
Það lítur því út fyrir að þótt Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi verið kvaddur
og draumurinn um stóran jafnaðar-
mannaflokk endurvakinn sé eins og
Alþýðuflokkurinn hafi það ekki al-
veg á hreinu hvaða stefnu skuli
taka. Þetta kom fram í stemmning-
unni á þinginu, sem var lítil nema
ef til vill á þingsetningunni. Bar-
áttuandanum, sem Guðmundur
Ámi Stefánsson kallaði eftir, var
heldur ekki fyrir að fara. Sumir
kenndu því um að Hótel ísland
væri of stórt fyrir þingið. Það var
athyglisvert að fýlgjast með lokaat-
höfn þingsins, er „Intemasjóna-
linn“, alþjóðabaráttusöngur jafnað-
armanna, var sunginn. Unga fólkið
kunni hann ekki og margir af hinum
eldri vom ekki meira en svo vissir
á textanum, svo ekki var mikill
kraftur í söngnum. Það vom elstu
þingfulltrúarnir, sem sungu af inn-
lifun og reiddu hnefann á loft und-
ir síðustu hendingunum.
Jóni Baldvin tókst ekki í loka-
ræðu sinni að draga fram skýra
pólitíska niðurstöðu af þinginu.
Hann tíndi til að hljóðlát kvenna-
bylting hefði orðið í forystusveitinni
og að skipst hefði verið á heimsókn-
um við Framsóknarmenn, sem
mörgum hefði þótt merkilegt.
Formanninum varð tíðrætt um
tæknileg atriði, en minntist reyndar
á að forystumenn flokksins hefðu
vegna anna á sviði framkvæmda-
valdsins ekki getað sinnt flokks-
starfinu sem skyldi. Um pólitíska
hvatningu til flokksmanna var hins
vegar ekki að ræða, enda kannski
ekki ljóst fyrir formanninn hvert á
að setja kúrsinn, þegar ekki er ein-
ing meðal flokksmanna um loka-
höfnina.
Vertu óvenju stundvís
með Sérþjónustu stafrœna símakerfisins
s
f símanúmerið
þitt er tengt
stafræna síma-
kerfinu og þú
ert með tónvalssíma með
tökkunum □ H og □
getur þú nýtt þér fjölbreytta
og hagnýta SÉRÞJÓNUSTU í
STAFRÆNA SÍMAKERFINU.
Vahning/Áminning
Dæmi um einn þjónustu-
þátt af mörgum innan
Sérþjónustunnar er
VAKNING/ÁMINNING.
Ef þú þarft nauðsynlega
að vakna á ákveðnum
tíma eða láta minna þig
á áríðandi stefnumót er
hér einföld og örugg leið
Þú stimplar inn ákveðinn
tíma í símann þinn og í
fýllingu tímans hringir
*|Ö|R
SERÞJONUSTA
Í STAFRÆNA
SÍMAKERFINU
síminn og minnir
þig á að beðið
hafi verið um
upphringingu.
Óbrigðult.
VAKNING/ÁMINNING er nú
þe'gar tengd öllum símum í
stafræna símakerfinu. Þú getur
því notfært þér þessa þjónustu
strax án þess að gerast
áskrifandi að henni.
Kynntu þér SÉRÞJÓN-
USTU STAFRÆNA
SÍMAKERFISINS
nánar í söludeildum
Pósts og síma eða á póst-
og símstöðvum.
POSTUR OG SÍMI
Áskriftarsíminn er 83033
Aðventan hefst á sunnudaginn og jólaundirbúningurinn byrjar
byrjar fyrir alvöru. í Blómavali velurðu úr i
hundruðum aðventukransa. A
Margir halda í þann skemmtilega sið að búa sjálf-
ir til aðventukransinn. í Blómavali færðu allt
skreytingarefni í aðventu- og jólaskreytingar.
Hjá okkur kosta bestu
jólastjörnurnar Æfoáj
adeins kr. i \ d
Opið frá kl. 9-22 til jóla
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
85.40