Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 51

Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 51
88ei aaaMavöM us auoAauTMMia .aiaAjaMuoaoM O^, MORGUNBLAf)g>rFIMMTPDAGUR-247l^ÓVEMBER-1988 ..--- --.......... .................... 5r. Tekið í nikkuna á loftinu á Hlíðarenda. að bíllinn væri klár og að ég mætti sækja hann. Ég fór til Reykjavíkur eh þegar ég ætlaði að fara að fá bflinn afhentan þá var mér tilkynnt að ég fengi hann ekki. Allir jeppar áttu að fara á öskufallssvæðið við Heklu, en Heklugos stóð þama sem hæst. Ég var nú ekki ánægður með það að búið væri að kalla mig alla leið til Reykjavíkur og svo ætti ég ekki að fá bflinn. Ég fór því á fund Jóhanns Josepssonar, sem var formaður nýbyggingarráðs, og sagði honum sögu mína. Jóhann hlustaði á mig. Tók síðan upp símann og hringdi eitt símtal. Þeg- ar hann hafði lokið símtalinu sneri hann sér að mér og sagði, þú getur farið og náð í bflinn. Það gekk eft- ir og ég flutti hann heim til Eyja með fyrsta skipi," sagði Júlli og sigurbros færðist yfír andlit hans. Júlli opnaði vélarhlífína og fór eitthvað að sýsla með skiptilykli í vélarrúminu. „Ég er að tengja geyminn, því ég verð alltaf að taka annan pólinn af svo að hann verði ekki rafmagnslaus, þegar hann stendur svona. Það leiðir líklega eitthvað út í honum,“ sagði Júlli þegar hann dró höfuðið undan vél- arhlífínni. Hann sveiflaði sér síðan inn í jeppann og gerði sig líklegan til að gangsetja hann. Bensíninu var pumpað duglega og síðan start- aði Júlli. Vélin rauk í gang og eftir smá skrölt malaði hún með ótrúlega þíðu hljóði. Ég settist upp í jeppann og Júlli ók stuttan hring um ná- grennið. Allt var í stakasta lagi, enda bfllinn með fulla skoðun og ekki annað að merkja en að tals- vert væri eftir af þreki í bílnum ennþá. Júlli sagði að hann hafí oft farið á bflnum til Reykjavíkur og eitt sinn ók hann á honum til Akur- eyrar til þess að taka þátt í golfmóti. Við renndum aftur í hlað og Júlli ók bílnum inn í bflskúr. Drap á honum og togaði hressilega í hand- bremsuna. Síðan vatt hann sér að nýju undir vélarhlífína og tók geymasambandið af. Virðulegi hringlaga kílómetrateljarinn í fá- brotnu mælaborði bílsins sýndi 62.136,8 km eftir bflferð okkar Júlla. Júlli sagði að hann notaði bílinn ekki mikið nú orðið en þó renndi hann sér í bæjartúr við og við. „Ég set hann þó alltaf reglulega í gang einu sinni í viku, þó að ég fari ekk- ert á honum," bætti hann síðan við. Hann sagði að varla væri hægt að segja að bíllinn hafí bilað. „Það hefur verið svo lítið að það er varla orð á því gerandi og ef eitthvað hefur komið uppá þá hafa þeir Tommi Sæsi og Sigutjón verið fljót- ir að kippa því í liðinn,“ sagði Júlli. Hann sagði að mest hafí hann sjálf- ur ekið bílnum, en þó hafi Hafsteinn bróðir hans stundum fengið að taka í. I Vestmannaeyjagosinu 1973 óku þó fleiri bflnum því að Hjálparsveit skáta fékk þá bílinn lánaðan og notuðu þeir hann allan gostímann. „Þeir hafa farið vel með hann strák- amir því að 'hann lét ekkert á sjá við þetta," sagði Júlli. Við höfðum nú svalað forvitni okkar varðandi þennan merkilega bíl og héldum því til dyra. „Hann lifir mig er ég nú hræddur um,“ sagði Júlli allt í einu upp úr eins manns hljóði og varð hugsi, er hann leit stoltur til bílsins um leið og við gengum út úr bílskúrnum hjá hon- um. Sjómaður í 40 ár Við gengum fram fyrir húsið hjá Júlla og þegar við stöldruðum við á lóðinni fórum við að ræða um uppruna hans. Hann sagðist vera fæddur 1903. Pabbi hans kom úr Landeyjunum eri mamma hans úr Mýrdalnum. „Ég var fæddur á Hrauni en flutti hingað að Hlíðar- enda 1903. Pabbi byggði þetta hús. Hann réri með Þorsteini í Laufási og þeir fiskuðu svo mikla löngu á vertíðinni að hann gat byggt húsið fyrir vertíðarhýruna," sagði Júlli. Stóran part ævi sinnar, eða 40 ár, var Júlli til sjós. Lengst af var hann vélstjóri hjá Gísla á Amarhóli á Víkingi, sem var 15 tonna bátur, og var hann eigandi að honum með Gísla. Eftir að hann hætti sjó- mennsku þá hóf hann störf í Lifrar- samlagi Vestmannaeyja, þar sem hann starfaði meðan starfsþrek entist, eða í 20 ár. Tonn af kartöflum Stórir og miklir kartöflugarðar eru í lóðinni á Hlíðarenda. Julli set- ur niður í þá á hvetju ári og fær yfírleitt góða upþskeru. Hann sagði að það væri búið að setja niður í þessa sömu garða í yfir 80 ár og það hafí aldrei komið nein ónáttúra í þá. Aðspurður sagði hann að upp- skeran í ár hafí verið frekar léleg. „Það kom tonn upp úr þessu hjá mér í fyrra en ég hugsa að það hafí ekki verið nema helmingur á við það nú,“ sagði hann. Hann sagð- ist gefa vinum og kunningjum mest af uppskerunni því hann stæði í þessu ánægjunnar vegna. Eftir að hafa gengið um lóðina hjá Júlla og spjallað um garðrækt- ina og mannlífíð fómm við upp á loft á Hlíðarenda með honum. íþróttamaður í fremstu röð Það leyndi sér ekki á mununum sem í herbergi Júlla eru að hann hefur verið íþróttamaður í fremstu röð. Verðlaunapeningar hanga á veggjum og alls kyns gripir standa í hillunum hjá honum. A vegg hang- ir skjal sem lýsir Júlla heiðursfélaga í Knattspymufélaginu Tý. Á komm- óðunni liggur gljáfægð kringla ásamt styttu af kringlukastara. Aðal íþróttagrein Júlla var kringlu- kast og var hann íslandsmeistari í þeirri grein á árunum 1933-1935, en auk kringlunnar þá keppti hann eitthvað í sleggjukasti. Júlli hefur verið golfáhugamaður um árabil og ekki er langt síðan hann sást síðast munda kylfurnar á golfvellinum í Eyjum. Harmonikkan þanin Við settumst niður í herberginu hjá Júlla og hann dró upp gömlu, tvöföldu Hohner-harmonikkuna sína. Þegar hann hafði gefíð nokkra tóna með henni, sagði hann að hann væri nú farinn að stirðna í spila- mennskunni. Á árum áður lék hann fyrir dansi á þjóðhátíðum og öðrum skemmtunum auk þess sem hann tók lagið í góðra vina hópi. Þrátt fyrir að Júlla fyndist hann vera farinn að stirðna þá gat ég ekki greint það, þegar hann þandi hvert lagið á fætur öðru á nikkuna. Það hýmaði yfír karli og eflaust hefur honum verið hugsað til einhverra skemmtilegra stunda, þegar dans- inn dunaði við undirspil hans og söng bjargfuglsins í Heijólfsdal. Merkilegnr karl Við Sigurgeir kvöddum Júlla og þökkuðum honum fyrir þessa skemmtilegu stund sem við vorum búnir að eiga með honum. Þegar við læddumst niður brakandi stig- ann á Hlíðarenda þá dunuðu í eyr- um okkar Ijúfir nikkutónar úr gömlu nikkunni hans Júlla, sem er líklega ennþá eldri en bfllinn hans og er hann nú ekkert unglamb. Við Sigurgeir héldum út í haustblíðuna og eftir að við höfðum gengjð þöglir og hugsi um stund sagði Sigurgeir: „Mikið skrambi er hann nú merkilegur karl hann Júlli." Ég samsinnti því og varð um leið hugsað til þess hvflík rós það væri í hnappagat hvers bæjarfélags að eiga kvisti sem hann í lífstré sínu. TEXTI: Grímur Gíslason MYNDIR: Sigurgeir Jónasson þá í Hafnarfjörð. Þar hafa þau búið síðan, og síðast að Lækjarkinn 24. Árið 1953 ræður Svenni sig hjá Hval hf., sem skipstjóri á einum af hvalbátunum. Þá var oft keyrt í Hvalfjörðinn með bömin, til að heimsækja pabba. Þetta starf stundaði hann til ársins 1973, eða í 20 ár. Björg og Svenni eignuðust fjögur böm. Þau em Sæunn Sveinbjörg fædd 2. júní 1943, búsett í Hafnar- fírði, gift Vigfúsi Ármannssyni stýrimanni og eiga þau 3 böm. Matthiidur Vigdís fædd 20. maí 1945, búsett á Neskaupstað, gift Haraldi Jörgensen verkstjóra og eiga þau 4 böm. Þórður Yngvi fæddur 4. júní 1948, búsettur í Vestmannaeyjum giftur Guðmundu Hjörleifsdóttur og eiga þau 4 böm. Bjami Ólafur fæddur 9. október 1961, búsettur í Hafnarfírði. Hann á einn son. Fyrstu kynni mín af þeim hjónum voru fyrir rúmum 20 árum. Tauga- óstyrk, ung stúlka er boðin í mat á gamlárskvöld. Þetta var óþarfa hræðsla, því þau tóku mér eins og ég væri þeirra eigin dóttir. Hefur sú umhyggja og ástúð í minn erarð ekkert breyst. Oft var Björg búin að stríða mér í sambandi við okkar fyrsta búskaparár. Ég flyt inn á heimili þeirra í október 1968, þá langt gengin með okkar fyrsta bam. Þar átti Inga Björg eftir að eyða sínu fyrsta ári. Þegar hún er 3 mánaða vildi ég flytja í leiguíbúð, því mér fannst ómögulegt að vera svona inn á heimili hjá öðmm. Jæja, við flytjum, — en viti menn, eftir aðeins 3 mánuði, fömm við aftur inn á þeirra heimili og sagði Björg oft við mig að svona hefði verið gott að vera hjá tengdamömmu. Fyrstu búskaparár okkar bjugg- um við í Hafnarfirði og var gott að geta leitað til tengdamömmu ef eitthvað bjátaði á. Það var sama hvort það var matargerð, eða vandamál gærdagsins. Ég kom aldrei að tómum kofanum hjá henni. Eftir að við flytjum til Vestmanna- eyja komu þau í heimsókn á hveiju sumri meðan heilsa hennar leyfði. Við vomm líka oft á ferðinni og þá var alltaf gist í Lækjarkinninni. Þegar við hringdum til að boða komu okkar var það alltaf hennar fyrsta verk að spyija hvort börnin kæmu líka. Ef svo var dreif hún í að hafa heitar skonsur handa Hjölla, því það kunni sko enginn að baka skonsur nema Björg amma. Oft þurfti ég að fara til Reykjavík- ur út af innkaupum í verslun sem ég var með, ásamt annarri. Var þá hringt til að athuga með gistingu. Það var sama hvort Mattý eða Rósa vom með, alltaf var velkomið að fá að vera. Heitur matur tilbúinn þegar heim var komið að kveldi, og stjanað við okkur á allan hátt. Höfðu þær báðar á orði að þau hjón væm alveg einstök, og sérstaklega hlýlegt að koma til þeirra. Fyrir rúmu ári síðan fékk Björg þann sjúkdóm, sem að lokum sigraði. Þurfti hún því oft að dvelja á sjúkra- húsum langtímum saman. En hún var aldrei ein. Svenni var alltaf til staðar. Börnin hennar reyndu að létta undir með henni eins og hægt var. Ég held að það sé á engan hallað þó ég nefni sérstaklega elstu dótturina Sæunni og hennar fjöl- skyldu. Hún var alltaf tilbúin að gera allt sem í hennar valdi stóð fyrir mömmu sína. Bömin hennar vom óþreytandi að heimsækja hana og nafna hennar, Björg, hefur verið afa sínum innan handar, og ömmu sinni kær vinur. Var samband þeirra mjög sérstakt og náið. Við sem ijær vomm sendum Sæunni og hennar fjölskyldu bestar þakkir. Góðan vin eignaðist Björg í sínum veikindum. Það var Sigurður Áma- son læknir á Landspítalanum. Gaf Sigurður sér alltaf tíma til þess að tala við Björgu. Hann heimsótti hana einnig eftir að hún vár lögð inn á St. Jósefsspítala í Hafnar- fírði. Era honum' færðar bestu þakkir frá fjölskyldu Bjargar. Læknum og starfsfólki öllu á St. Jósefl82sspítala em einnig færðar bestu þakkir fyrir þeirra umönnun og hlýju. Undir það síðasta átti Björg þá ósk heitasta að fá að sjá fyrsta langömmubamið sitt, sem fæddist í Vestmannaeyjum 21. október 1988. Heimsótti hún langömmu sína aðeins 3 vikna göm- ul. Þó mjög hafí verið af henni dreg- ið gat hún haft hana í örmum sér og talað til hennar. Ég veit að þetta veitti henni mikla gleði. Élsku Svenni minn. Ég veit að þetta er erfíður tími fyrir þig. Aðeins vant- aði 3 daga upp á að árin ykkar saman yrðu 47. Minningamar áttu um yndislega eiginkonu, bömin minnast ástríkrar og góðrar móður, bamabörn bestu ömmu sem hugs- ast getur. Ég veit að minningamar eigum við, þær getur enginn frá okkur tekið, minningar sem ylja okkur á köldum vetrarkvöldum. Eg bið Guð að styrkja og styðja þig, elsku Svenni minn. Við vitum að hún er komin í betri heim, þar sem hvorki er kvöl né sorg. Tengdamóð- ur minni vil ég þakka fyrir árin okkar'saman. Blessuð sé minning Bjargar Bjömsdóttur. Margs er að minnast margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Maigs er að minnast, margs er að sakna. Guð þverri tregatárin strið. (Vald. Briem) Guðmunda Hjörleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.