Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
58
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNliDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Upplýst umferðarmerki
Okumaður hringdi:
„I fyrravetur mátti sjá upplýst
umferðarmerki á nokkrum stöð-
um hér í borginni og stuðluðu
þau tímælalaust að auknu öryggi
í umferðinni. Nú er dimmasti
tími ársins og væri þörf á að
setja upp upplýst umferðarmerki
sem víðast.“
Drasl
Þórður hringdi:
„Ég hef tekið eftir því að víða
er mikið drasl í stæðum leigubíla
þar sem þeir bíða eftir viðskipta-
vinum. Umgengninni er víða
ábótavant og ættu leigubílstjórar
að athuga þetta."
Passið hundana ykkar
G.J.Ó hringdi:
„Að gefnu tilefni vil ég beina
þeim tilmælum til eigenda Schef-
ferhunda að passa hunda sína
og fá sér múl á þá. Þessir hund-
ar eru svo árásargjamir þeir ráð-
ist gjaman á þá hunda sem minni
eru. Nú virðist vera tíska að eiga
þessa stóm hunda sem þurfa
mjög mikla hreyfingu og em þá
látnir hlaupa lausir með bílunum
nokkra hringi um Geirsnefin.
Eigendur þeirra virðast kæra sig
kollótta þótt þeir ráðist á minni
hunda. Það réðst Schefferhundur
af tilefnislausu á hundinn minn,
7 mánaða gamlan "Terrier hund
og beit hann til blóðs. Ég stóð
hjá og gat ekkert gert vegna
hættu á að vera sjálf bitin. En
Scheffereigandinn sat í bíl sínum
og hafðist ekkert að, því síður
að hann veitti hundi sínum ráðn-
ingu á eftir. Þetta ástand verður
að bæta svo allir hundaeigendur
geti verið með hunda sína á
Geirsnefí án þess að eiga á hættu
að ráðist sé á þá. Hundaeigendur
látið meira til ykkar heyra um
þetta mál.“
Sjónarspil
Konráð Friðfinnsson hringdi:
„Mig langar að fjalla í örfáum
orðum um leikþátt einn sem
hæstvirtur forsætisráðherra og
hæstvirtur utanríkisráðherra
efndu til í fréttatíma sjónvarps
nýverið. Þetta atvik átti sér stað
um sama leyti og kratar og fram-
sóknarmenn héldu flokksráðs-
þing sín á dögunum. Sem sagt,
nefndir tvímenningar komu fram
fyrir alþjóð og hófu þar að syngja
hjartnæma lofsöngva hver um
annan. Ameríski sjónvarpsstíll-
inn er greinilega mjög hátt skrif-
aður á þeim bæjum. Þjóðin er
engu að síður farin að þreytast
á einkasýningum dúetsins á
skjánum, enda leiðigjarnir til
lengdar. Halda mætti að for-
menn Framsókanarflokks og Al-
þýðuflokks stýrðu skútunni einir.
Sem betur fer er eigi svo. Ekki
skána hlutimir þegar formaður
Sjálfstæðisflokks þenur radd-
bönd sín opinberlega, því hann
hefur fundið óvini. Hveijir eru
þessir íjandmenn íhaldsins, jú
framsóknarfólk. Sumir kjósa
greinilega og sanka óvildar-
mönnum að sér. Væri ekki skyn-
samlegra og heilladrýgra að
slíðra sverðin, reyna þess í stað
að vingast við þegnana ellegar
flokka. Með öðrum orðum að
ræða málin málefnalega og
hætta þessum heimskulegu og
tilgangslausu yfirlýsingum í
garð fyrrverandi samstarfs-
flokka.“
BMXhjól
Móðir hringdi:
„Lítill strákur hefur nú gefið
upp alla von um að finna hjólið
sitt, sem tekið var úr hjólastatífi
við húsdymar heima hjá honum
í austurbæ Kópavogs fyrir fáum
vikum. Foreldrar og aðrar góð-
viljaðar manneskjur, vinsamleg-
ast lítið í kingum ykkur því vera
má að hjólið liggi einhvers stað-
ar. Það er svart af tegundinni
BMX með gyltum rákum og ann-
að dekkið er blátt. Símin er
41039.“
Úr
Karlmannsúr fannst við
Laugaveg fyrir nokkm. Upplýs-
ingar í sima 13645.
Týndur hvolpur
Svartur og hvítur hvolpur fór
að heiman frá sér að Langhols-
veg 71 föstudaginn 18. þ.m.
Þeir sem hafa orðið varir við
hann em vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 36690.
Veski
Kvenveski tapaðist á Hótel
Islandi sl. laugardagskvöld en í
því vom m.a. skilríki og persónu-
legir munir. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að koma því til
lögreglunnar eða hringja í Guð-
rúnu í síma 689977.
mita CC-20 Snyrtivörukynning á morgun frá kl. 13-18 SANDRAf Hafnarfirði.
MITA CC-20: Einföld en fjölhæf. Lita- möguleikar og 8 eintök á mínútu. Ódýr og
handhæg vél sem hentar allstaðar. w BOSCH
FJÖLVAL HF. Ármúla 23 Sími 688650 STARTARAR—RAFALAR viðgerðarþjónusta
BRÆÐURNIR
flföfjpitstMftfrifr Gódandagirm! QRMSSON HF Lágmúla 9, sími: 38820
pTÍCÖ, F. BALL, BONDAX:'"BROCKWAN
TAs/AUER, COLOROLL, CROSSLEY, GEOH
^IAN GOODACRE, GRADUS, GUTHRIE, HEF
ORDER, HOST HUNTER DOUGLAS, ll\
LOOR, INTERFACE, JAMES HALSTEAC
ANO, LUXALON , MONDO, NEW FRANCC
\EIGE, SANDERSON, SCHAEFFLER, SEBC
ARAFLEX, ULSTER, UNILOCK...
M ^nls
.innist þér öll þessi
vörumerki fyrir ullarteppi, teppaflísar
og teppahreinsunartœki rugla þig í
ríminu, skaltu ekki hafa neinar
öhyggjur.
Þú þarft ekkert aö lœra þau öll
utanbókar. Þaö nœgir alveg aö þú
lítir inn hjö okkur að Höföabakka 3 og
föir lönuö sýnishorn þegar þig vantar
gœðavöru á heimiliö eöa skrifstof-
una.
Barr, aö Höföabakka 3. Enginn
vandi aö muna þaö, ekki satt?
Ullargólfteppi fyrir vandláta
HÖFÐABAKKA 3, REYKJAVÍK. SÍMI: 685290
SPORUMVIÐ
PENINGA
og smíöum sjálf!
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hjá okkur.
0g nú erum við í Borgartúni 28