Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 Holræsakerfíð í Reykjavík: Verður fyrirmynd slíkra fram- kvæmda á hinum Norðurlöndunum - segir Sveinn Torfi Þórólfsson, aðstoðarprófessor við Tækniháskól- ann í Þrándheimi „HOLRÆSAKERFIÐ við Skúlagötu og Sætún sýnir stórhug og fram- sýni forráðamanna borgarinnar í baráttunni fyrir hreinna um- hverfi, og mannvirki þau sem byggð hafa verið eru borginni til sóma. Ég met kerfið sem byggt hefúr verið af slíkum gæðum, að það er notað sem dæmi um velheppnuð mannvirki í kennslu í frá- veitufræði við Tækniháskólann í Þrándheimi," segir Sveinn Torfi Þórólfsson, aðstoðarprófessor við Tækniháskólann i Þrándheimi. Hann var faglegur ráðgjafi við hönnun nýs holræsakerfis fyrir mið- bæ, Þingholt og austurbæ, en nýlega var gangsett dælustöð við Skúlagötu, sem er hluti holræsakerfisins. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sveinn Torfi Þórólfsson t.v. ásamt Sigurði Skarphéðinssyni, aðstoðar- gatnamálastjóra, við líkan af holræsakerfínu sem verið er að byggja upp í Reykjavík. Sveinn Torfi Þórólfsson lauk prófi í byggingaverkfræði frá Tækniháskólanum í Þrándheimi árið 1970, með vatnsveitu- og frá- veitufræði sem aðalgrein. Hann hefur síðán starfað við vatnsveitu- og fráveitufræði og umhverfismál í Noregi. Fimm fyrstu árin að loknu námi vann hann hjá ráðgefandi verkfræðistofu Arne Reinertsen í Þrándheimi við skipulagningu hol- ræsamannvirkja, og að loknu fram- haldsnámi í fráveitufræði hjá Norsk Institut for Vannforskning árið 1976 var hann fenginn til að byggja upp námsbraut með vatnsveitu- og fráveitukerfi sem aðalfag við Tækniháskólann í Þrándheimi. Sveinn Torfi varð lektor við Tækni- háskólann árið 1978, og aðstoðar- prófessor 1987. „Það er að mínu mati alveg ein- stakt að bæjarfélag af þessari stærð leggi að eigin frumkvæði svo mikla áherslu á umhverfismál af þessu tagi, og leggi út í jafn miklar fram- kvæmdir í einu og gert hefur verið í Reykjavík. Það sem hér hefur verið gert síðastliðin ár er að magni til langtum meira en ég hef séð gert nokkurs staðar á hinum Norð- urlöndunum á svo skömmum tíma. Hér hefur á fáum árum verið gert það sem til dæmis í Þrándheimi hefur tekið 15-20 ár að gera. Mér hefur skilist að það sé pólitískur vilji fyrir þessu, og ekki hafi þurft þann utanaðkomandi þrýsting sem víða annars staðar verður að beita heilbrigðis- og umhverfísmálayfir- völd til að ráðast í slíkar fram- kvæmdir. Það er reyndar ekki fyrr en í seinni tíð sem þrýstingur frá almenningi ýtir á að lagt er í svona framkvæmdir víða á Norðurlönd- um,“ segir Sveinn Torfí. „Staða mín í Noregi býður upp á að ég hef mjög gott yfirlit yfir það sem gert er á þessu sviði á Norðurlöndunum, og þá sérstaklega í Noregi. Þetta vérk sem verið er að vinna hér í Reykjavík hefur ver- ið skipulagt og unnið alveg frá grunni, og ég met mikils að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í undirbúningi að byggingu þessara veglegu mannvirkja, og þannig láta í té sérþekkingu mína innan frá- veitufræðinnar. Ég vil sérstaklega minnast á gæði verksins og þær miklu kröfur sem gerðar hafa verið í því sam- bandi. Oftast hefur verið litið á mannvirki af þessu tagi sem annars flokks mannvirki, og varla að tímt hefur verið að eyða á þau máln- ingu, hvað þá að fengnir væru arki- tektar til að teikna þau. Þetta hefur að vísu verið að breytast í Noregi í seinni tíð, en Reykvíkingar standa miklu framar. Allt sem viðkemur aðbúnaði fyrir starfsmenn, frágangi umhverfis og öryggismálum er langtum betur unnið hér en ég þekki til á öðrum stöðum. Þá er alveg sérstakt hversu opn- ir tæknimenn hjá gatnamálastjóra hafa verið fyrir öllum nýjungum og óhræddir við að fara ótroðnar slóð- ir. Hér hefur til dæmis verið leyst vandamál varðandi dælingu á yfír- borðsvatni, sem hingað til hefur verið talið allt of dýrt í fram- kvæmd, og satt að segja sé ég nú fyrir mér hvernig hægt er að leysa sambærilegt vandamál í miðbæ Þrándheims. Þar hefur þessu verið slegið á frest hingað til af því það hefur hreinlega þótt vera óyfirstíg- anlegt tæknilegt vandamál. Hér er einnig að finna lausnir á ýmsum öðrum tæknilegum vandamálum sem ég hef ekki séð notaðar annars staðar, og ég er sannfærður um að þessar framkvæmdir hér í Reykjavík eiga eftir að verða fyrir- mynd sambærilegra framkvæmda á hinum Norðurlöndunum." Holræsið við Sætún tekið í notkun; Skólpið hreinsað og dælt hundruð metra á haf ut Dælustöðin við Sætúnið er gróin inn í umhverfi sitt. Morgunblaðið/Rax Morgunblaðið/Rax Á ströndinni frá Ingólfsstræti og út á Laugarnes hafa verið gerðar tváer dælustöðvar, sem leysa af hólmi um tuttugu minni ræsi. BORGARSJÓÐUR hefur undan- farin flögur ár veitt tugum millj- óna króna til holræsagerðar meðfram Sætúni. Dælustöð fyrir þessa nýju skolpveitu var tekin í nokun sl. vor og nú í haust var samskonar stöð á uppfyllingu við hús Fiskifélagsins tekin í notkun. Dælustöðvarnar munu framvegis veita skolpi úr miðbæ, Þingholt- unum og austurbænum hundruð metra á haf út. Smiðshöggið verður rekið á kerfið með hreinsistöð í Laugarnesi, sem skilur föst efhi úr skolpinu og er því síðan veitt 3-400 metra út frá ströndinni á u.þ.b. 15 metra dýpi. En óhreinar fjörur heyra þó ekki sögunni til, því meðfram Eiðsgranda, Ægissíðu og í Naut- hólsvík þarf að gera samskonar ráðstafanir. í borgarkerfínu var um árabil rætt um lausn vandans í holræsa- málum Reykvíkinga, en á ótal stöð- um lágu ræsin út í sjó, nánast í fjörukambinum. Með tilkomu dælu- og hreinsi- stöðvanna við Sætún ætti þetta vandamál að heyra fortíðinni til við norðurströndina, en vandamálið er enn óleyst sunnanmegin, þar sem skólp úr stærstu borgarhverfunum rennur til sjávar. Ákvörðun um gerð holræsis með- fram Sætúni og Skúlatúni, frá Ing- ólfsstræti út á Laugarnes, var tekin í borgarstjóm fyrir fjórum árum. Tvær dælustöðvar eru hluti af kerf- inu, önnur fyrir framan sjávarút- vegsráðuneytið, hin skammt norðan við gamla frystihúsið á Kirkju- sandi. Áður rann skólpið óheft um tuttugu minni rásir meðfram endi- langri Qörunni. Vandinn er fullt eins alvarlegur við Skeijafjörðinn. Holræsi vestur- bæjarins liggja út í fjöruna við Eiðs- granda og Ægissíðu, en skólpi úr Breiðholti og Árbæ er veitt út rétt fyrir utan olíubryggjuna hjá Shell. Að sögn Sigurðar I. Skarphéðins- sonar aðstoðargatnamálastjóra er þegar byijað að huga að dælustöðv- um og nýjum holræsum fyrir þessa borgarhluta. Eins og málin standa nú er talið brýnna að hefja fram- kvæmdir við holræsi meðfram Ægissíðu en ljúka gerð Sætúnsræs- isins, enda hefur ástand við Skúla- götu batnað mjög vemlega. Með Laugamesstöðinni yrði loka- hnúturinn rekinn á holræsakerfið meðfram Sætúni.. Án hennar er kerfíð starfhæft en nær ekki því markmiði að skilja föst efni frá skólpinu og veita því nægilega langt frá ströndinni. Þegar kerfið er full- búið munu dælustöðvamar tvær sjá til þess að skólpið renni inn í Laug- amesstöðina, þar sem sjálfvirkur búnaður skilur föst efni frá skólp- inu. Þau þarf að urða, en eftir verð- ur vökvi sem dæla á 3-400 metra á haf út. Áður en hreinsistöðin tekur til starfa verður skólpinu dælt í sjóinn við Laugalæk, en dælustöðin við Ingólfsstræti veitir skólpi úr mið- bænum eftir Sætúnsræsinu inn að dælustöðinni við Laugalæk. Þegar úrkoma verður meiri en svo að skolpdælur hafi undan fer það magn sem umfram er út um útrás- arstokk við dælustöðvamar. Við háa sjávarstöðu er því dælt með öflugum yfírfallsdælum, en við lága sjávarstöðu opnast lokar, þannig að það skilar sér frá dælustöðinni án dælingar. Þá verða varavélar í dælustöðvunum til taks, ef háflæði helst í hendur við mikla úrkomu. Sætúnsræsið er engin smásmíði og hafa framkvæmdimar vart farið framhjá vegfarendum á Skúlagötu undanfarin misseri. Inn í kerfíð koma tæplega 100.000 rúmmetrar á sólarhring. Framreiknaður heild- arkostnaður við kerfíð er áætlaður 375 milljónir króna. Kerfið var hannað af starfsmönnum gatna- málastjóra, útreikningar unnir í samvinnu við norska fyrirtækið A.R. Reinertsen og Svein Torfa Þórhallsson, prófessor í Þránd- heimi. Aðalverktakar voru Miðfell h.f., Sveinn Runólfsson s.f., Gunnar og Guðmundur h.f. og Hagvirki h.f. Meðal undirverktaka vom kaf- arar sem fengu það hlutverk að leggja stokka frá dælustöðvunum út í sjó, við heldur óþrifalegar að- stæður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.