Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
Reuter
Fitzwater verður talsmaður Bush
George Bush, hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna, skýrði frá því
á mánudag- að Marlin Fitzwater kæmi til með að halda stöðu sinni
sem talsmaður forsetans er Bush tekur við forsetaembættinu í
janúar á næsta ári. Var myndin tekin er Bush skýrði blaðamöhn-
um frá þessari ákvörðun en við hlið hans stendur Fitzwater, sem
verið hefúr helsti talsmaður Ronalds Reagans undanfarin ár.
Frakkland:
Þjóðernisátökin í Sovétríkjunum:
Hemum skipað í störf
verkfellsmanna í París
París. Reuter.
FRANSKA stjórnin sendi í gær
um eitt þúsund hermenn til
Parísar til að gegna störfum
starfsmanna í almannaflutning-
um en margir þeirra hafa verið
í verkfalli í tvo mánuði. Verk-
fallið breiddist út á mánudag
og stöðvaði nær alveg lestar-
ferðir í úthverfúnum og helm-
ingur strætisvagna var kyrr.
Formaður verkalýðssambands
starfsmannanna, CGT, er
kommúnistar stjórna, sakar
stjórnina um ofstopa.
Hermennimir komu frá herb-
ækistöð Frakka í Karlsruhe í Vest-
ur-Þýskalandi og ýmsum her-
stöðvum í Norður-Frakklandi.
Borgarbúar í París geta nú tekið
sér far með grænmáluðum her-
vögnum í stað hinna venjulegu
Þúsundir manna hafa flú-
ið Armeníu og Azerbajdzhan
Moskvu, New York. Reuter.
ARMENSKUR embættismaður sakaði yfirvöld f Sovét-lýðveldinu Az-
erbajdzhan í gær um að hafa staðið að skipulegum nauðungarflutning-
um á Armenum frá lýðveldinu. Sagði hann þúsundir manna hafa flúið
bæði Azerbajdzhan og Armeníu en svo sem kunnugt er af fréttum
hafa átök brotist út á ný milli þjóðarbrotanna vegna deilunnar um
yfirráð yfir héraðinu Nagomo- Karabakh í Azerbajdzhan.
aldrei aftur treysta Azerum," sagði
Manoögian og kvaðst hafa heimildir
fyrir því að Azerar, sem játa múha-
meðstrú, hefðu ráðist á kirkjur Arm-
ena í borginni Kírovobad.
grænu og hvítu strætisvögnum.
Henry Krasucki, formaður CGT,
var harðorður í garð sósíalista-
stjómar Michels Rocards: „Þeir
eru orðnir alveg ærir... Það er
ekki hægt að leysa svona vanda-
mál með lögreglu, hermönnum eða
herbílum," sagði hann í viðtali í
franska útvarpinu. Síðast munu
herbílar hafa verið notaðir til að
flytja Parísarbúa í byijun sjötta
áratugarins.
Gífurlegar umferðartruflanir
urðu í París á mánudag og í gær
er fólk reyndi að komast til vinnu
á einkabílum. Sum verkalýðsfélög
hafa sakað CGT um að reyna að
veikja stöðu ríkisstjórnarinnar en
sveitarstjómakosningar verða í
landinu í mars næstkomandi.
Mikið hefur verið um verkföll í
haust, m.a. hjá hjúkrunarfólki,
kennurum og námamönnum fyrir
utan starfsmenn almannaflutn-
inga. Þeir síðastnefndu kreijast
kauphækkana og bættra öryggis-
ráðstafana. Francois Mitterrand,
forseti landsins, sagði í gær að
lítill hópur flutningaverkamanna
hefði haldið milljónum Parísarbúa
í heljargreipum. Þess vegna hefði
stjóminni borið skylda til að grípa
ínn.
Gífurleg
menguní
Dyflinni
Dyflinni. Reuter.
MENGUNARSKÝ sem grúfði
yfir Dyflinni á írlandi í
síðustu viku mældist sjö stig
yfir mengunarstaðli Evrópu-
bandalagsins, að því er segir
í veðurskýrslum sem birtar
voru í gær. Loftmengunin i
borginni var sú mesta frá því
árið 1982 þegar 56 manns lét-
ust af völdum mengunar.
Þykkur kolamökkur grúfði
yfir höfuðborginni í frosti og
stillum í síðustu viku en ástand-
ið skánaði í þessari viku þegar
veður breyttist. Mengun í Dyfl-
inni fór yfir mörk Evrópubanda-
lagsins en þau miða við að loftm-
engun fari ekki yfir 250
míkrógrömm af reyk í hvetjum
fermetra af lofti fjóra daga í
röð. Á föstudag mældist 1.750
mg í hverjum fermetra.
Ríkisstjóm landsins hefur
lækkað verð á kolum sem valda
minni mengun en stjómarand-
staðan segir að grípa verði til
víðtækari aðgerða til að koma í
veg fyrir mannskaða.
Utanríkisráðherra Eistlands
væntir frekari skoðanaskipta
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara Morgunblaðsins.
ARNOLD Green, utanríkisráðherra Eistlands, sem er i opinberri
heimsókn í Finnlandi, segist ekki hafa áhyggjur af deilum um stjórn-
arskrárbreytingar milli Eistlendinga og Æðsta ráðs Sovétríkjanna.
Hann segist þeirrar skoðunar að Eistlendingar og sovéskir ráða-
menn eigi eftir að eiga skoðanaskipti um þessi vandamál í framtí-
„Armenar eru nú fluttir nauðugir
á brott frá Azerbajdzhan," sagði tals-
maður armensku fréttastofunnar
Armenpress í viðtali við fréttamann
Reuters. „Azerar hafa tekið upp nýja
stefnu. Þeir hyggjast flæma Armen-
ana á brott í stað þess að myrða
þá,“ bætti hann við. Kvað hann
12.483 Armena hafa flúið yfír landa-
mærin frá Azerbajdzhan og að yfir-
völd teldu von á allt að 200.000 til
viðbótar. Hefðu yfírvöld í Moskvu
verið beðin um að senda matvæli til
lýðveldisins. Rúmlega 1.000 manns
hefðu safnast saman í Jerevan, höf-
uðborg Armeníu á mánudag, þrátt
fyrir útgöngubann sem komið hefur
verið á í borginni.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Azerbajdzhans sagði tugþúsundir
Azera hafa flúið Armeníu að undanf-
ömu og bætti við að stöðug mót-
mæli færu fram í borginni Bakú.
Hefðu um 100.000 manns haldið til
á Lenín-torgi í borginni undanfama
daga og spenna færi vaxandi á ný.
Azerinform, hin opinbera fréttastofa
Azerbajdzhans-lýðveldisins, skýrði
frá því að allt að hálf milljón manna
hefði safnast saman á torginu á
mánudag. Líkt og í Jerevan er út-
göngubann í gildi í Bakú.
Leiðtogi þjóðkirkju Armena í
Bandaríkjunum skýrði frá því í gær
að hann hygðist leita eftir fíindi með
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga
er hann kemur til Bandaríkjanna í
næstu viku. Sagði kirkjuleiðtoginn
Torkim Manoogian erkibiskup, að
svo virtist sem um skipulegar ofsókn-
ir væri að ræða á hendur Armenum
og gagnrýndi ráðamenn í Sovétríkj-
unum fyrir að skýra ekki frá stað-
reyndum málsins. „Armenar munu
ðinni.
Varðandi gagnrýni Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga á forystu-
menn eistneska kommúnistaflokks-
ins í sjónvarpsávarpi á sunnudag
og ógildingu Æðsta ráðs Sovétríkj-
anna á fullveldisyfirlýsingu Eist-
lendinga á laugardag sagði Green:
„Þegar við lýstum yfir fullveldi
landsins tókum við afar mikilvæga
afstöðu til lýðræðisþróunar í Sov-
étríkjunum." Green sagði í samtali
við finnsku fréttastofuna FNB á
mánudag að Gorbatsjov Sovétleið-
togi hefði sagt að lýðveldisþróun í
Sovétríkjunum myndi halda áfram.
Utanríkisráðherrann sagði að
Eistlendingar hefðu ekki tekið
ákvörðun um hvort þeir opnuðu
ræðismannsskrifstofu í Finnlandi.
Hann sagði að í það minnsta yrði
að auðvelda samgöngur milli land-
anna og að Eistlendingar og sov-
éska utanríkisráðuneytið leituðu
leiða til að auka samskipti Eistlend-
inga og Finna.
Eistneski utanríkisráðherrann
mun ekki hitta finnska stjórnmála-
menn að máli í heimsókninni sem
lýkur í dag.
Hef meiri áhyggjur af heittrú-
uðum í Egyptalandi en í Israel
- segir Menachem Meir, sonur Goldu Meir, fyrrum forsætisráðherra ísraels
„NÝSTOFNAÐ ríki Palestínumanna er ekki til nema á pappímum,“
segir sellóleikarinn Menachem Meir, sonur Goldu Meir heitinnar, leið-
toga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra ísraels árin 1969-74.
Meir spjallaði við blaðamenn um málefni Ísraelsríkis þegar hann var
staddur hér á landi í boði Bókrúnar, forlagsins sem gefúr út íslenska
þýðingu sjálfsævisögu Goldu Meir.
„Ég hef enga hugmynd um hvað
Þjóðarráðið ætlast fyrir," heldur
Meir áfram. „í yfirlýsingu þess er
minnst á grundvallarályktanir Sam-
einuðu þjóðanna um Palestínumálið
en það þýðir ekki að á þær sé fall-
ist. Til að skýra afstöðu ísraels er
rétt að rifja upp nokkur atriði. Bret-
ar yfirgáfu Palestínu árið 1947. Sam-
einuðu þjóðimar ákváðu að Palestínu
skyldi skipt í tvö ríki. Gyðingar féll-
ust á þessa skiptingu en ekki arab-
ar. Árið 1948 stofnuðu gyðingar sitt
ríki en arabaríki hófu stríð gegn ein-
angmðu ísraelsríki. Síðan þá hefur
ekki verið um frið að ræða. Það er
erfítt að gera sér í hugarlund hvað
það merkir. Það er líkt og Banda-
ríkjamenn mættu vænta innrásar
hiyðjuverkamanna á hverri nóttu frá
Mexíkó og Kanada. Hryðjuverka-
mennimir skeyta engu um líf bama
og kvenna. Arabar héldu að þeir
gætu þurrkað út ísrael svo við erum
tortryggnir á meðan við heymm ekki
bemm orðum frá Yasser Arafat eða
Georg Habash að þeir viðurkenni
ísrael og vilji semja um frið. Fyrstur
kemur viljinn til að lifa í sátt og
samlyndi og síðan koma tæknileg
atriði eins og hvort um sjálfstætt
ríki verði að ræða, hvort Vesturbakk-
inn gangi í ríkjasamband við Jórd-
aníu, hvar landamærin eigi að liggja
o.s.frv.
í sexdagastríðinu réðust arabar til
atlögu við Vestur-Jerúsalem. Herinn
okkar var öflugri og hrakti óvinina
yfír ána Jórdan en í því felst að við
ráðum síðan þá yfír Vesturbakkan-
um. Þetta var ekki útþenslustefna
enda höfðum við um nóg annað að
hugsa við að rækta eyðimörkina.“
Verður að halda
uppreisninni í skeljum
— Hvemig stendur þá á land-
námsbyggðum gyðinga á Vestur-
bakkanum?
„Við höfum ijölmarga araba innan
okkar landamæra sem njóta fullra
réttinda. Ég sé ekki hvers vegna
gyðingar ættu ekki að geta lifað í
arabísku ríki eins og arabar í ríki
gyðinga. Við höfum beðið allan
tímann eftir skynsömum samnings-
aðilum af hálfu araba. Þegar þeir
hafa komið fram hafa þeir verið
myrtir eins og til dæmis Anwar Sad-
at. Sömu örlög bíða Palestínumanna
á Vesturbakkanum sem eru reiðu-
búnir að starfa með gyðingum.
Varðandi uppreisn Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu þá geri ég mér fulla grein
fyrir þjáningum fólksins. Það er
hræðilegt að böm og unglingar skuli
send á _móti ísraelska hemum. Ekki
sendu íslendingar böm út í þorsk-
astríðið gegn Bretum. Ung böm
ættu ekki að þurfa að upplifa slíkt,
einkum þar sem við emm reiðubúnir
til viðræðna. ísraelar verða hins veg-
ar að halda uppreisninni í skefjum,
annars yrði hver einasti vegfarandi
grýttur.Ég minni á að strax eftir
sexdagastríðið sagði Leví Eskhol,
forsætisráðherra ísraels: „Við viljum
frið, við höfum ekki áhuga á Vestur-
bakkanum.“ Sama gerðist þegar
móðir mín varð forsætisráðherra, það
Morgunblaðið/Þorkell
Menachem Meir.
fyrsta sem hún gerði var að bjóða
friðarviðræður. “
— Stjómmálaskýrendur segja
margir hveijir að Arafat sé hófsemd-
armaður innan PLO og ekki sé hægt
að búast við að þjóðarráðið kæmi
lengra til móts við lsraela en raunin
varð. Hver er þín skoðun á þessu?
— „Það fer náttúrlega eftir því
hvað átt er við með orðinu „hófsemd-
armaður". Ef í því felst að drepa á
nætumar, myrða böm og taka gísla