Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 27

Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 27 Gro Harlem Brundtland ítrekar afstöðu Norðmanna til EB Kohl leggur áherslu á samvinnu EB og EFTA Niðuránefið Reuter Nefhjól gaf sig á Airbus A-300 þotu indverska flugfélagsins Indi- an Airlines er hún renndi í hlað á flugvellinum i Nýju Dehlí að afloknu flugi frá Bombay í gær. Aðeins þrír farþega af 279, sem um borð voru, slösuðust. Hlutu þeir lítilsháttar meiðsl. Castro opnar fyrstu vopnaverksmiðju Kúbu Sovétmenn lofsamaðir fyrir aðstoðina Havana. Reuter. FIDEL Castro, forseti Kúbu, opnaði á mánudag fyrstu vopna- verksmiðju landsins. Lofaði hann Sovétmenn fyrir framlag þeirra til framkvæmdanna en Mikhaíl S. Gorbatsjov Sovétleið- togi er væntanlegur í opinbera heimsókn til Kúbu eftir tíu daga. í verksmiðjunni verða fram- leiddir sjálfvirkir rifflar og önnur létt vopn. Castro sagði að fram- leiðsla vopnanna færi öll fram í Kúbu en vélabúnaðurinn og tækni- þekkingin væru árangur „örlætis Sovétmanna." Hann sagði að stefna Bandaríkjastómar gagnvart Kúbu hefði neytt Kúbveija til að byggja upp vamir sínar og skipu- leggja milljón manna þjóðvarðlið. Castro sagði ennfremur að þótt Sovétmenn hefðu aukið vopna- flutninga sína til Kúbu væri þörf fyrir fleiri vopn. „Og það var nauð- synlegt að hefja okkar eigin vopna- framleiðslu,“ bætti hann við. Hann lofaði „ósérplægni Sovét- manna,“ nefndi sem dæmi nýju verksmiðjuna og fyrsta kjamorku- Nátturulegvöm gegn hárlosi og flestum kvillum íhári oghársverði. Fæstá allflestum rakara- og hárgreiðslu- stofum um land allt. Heiidsölubirgðir: Ambrósía hf.y sími 91-680630. ver Kúbveija sem nú er verið að byggja. Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, sagði á mánudag i boði sem haldið var til heiðurs Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, að hann vildi „í eitt skipti fyrir öll eyða þeirri bábilju" að Evrópubandalagið hygðist hætta að eiga samskipti við þjóðir sem standa fyrir utan bandalagið þegar sameiginlegur markaður þess kæmist á lagg- Gro Harlem Brundtland sem var í tveggja daga opinberri heimsókn í Vestur-Þýskalandi, ræddi við Ric- hard von Weizsácker, forseta Vest- ur-Þýskalands, og aðra helstu leið- toga landsins. „Við höfum það ávallt hugfast að aðeins hluti Evrópuþjóð- anna er í bandalaginu. Endimörk Evrópu eru ekki í Kaupmannahöfn," sagði kanslarinn í ávarpi sínu. Brundtland sagði í samtali við dagblaðið Die Welt að Norðmenn hefðu ekki í hyggju að ganga í Evr- ópubandalagið. Hún minnti á niður- stöður þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1972 þegar meirihluti norsku þjóðar- innar lýsti. sig andvígan aðild að bandalaginu. Sagði hún stjómvöld enn bundin af þeirri ákvörðun þjóðar- innar. Kohl sagði að áframhald náinnar samvinnu Evrópubandalagsins og EFTA, sem Noregur, ísland, Aust- um'ki, Sviss, Finnland og Svíþjóð eiga aðild að, væri mikilvægt fyrir traustan efnahag ríkja Evrópu. Míkill og góður lax í hafínu við Færeyjar LAXVEIÐAR í sjó eru nú hafnar Dagblaðinu frá 21. þessa mánaðar, um. Enn sem komið er eru aðeins og manneklu um kennt. Turid eða Þuríður úr Klakksvík hóf veiðamar og var fyrst á leigu hjá Fiskirannsóknarstofunni í Fær- eyjum. 14. nóvember lagði hún upp 9.1 tonn en hefur síðan fiskað fyrir eigin reikning. Er báturinn á línu og er aflinn um 200-250 laxar í lögn- ina. Þá er laxinn stærri nú en í fyrra, 3,4 kíló að meðaltali á móti 3.1 kílói. í síðasta túr voru 68% af- lans yfir þremur kílóum en fyrir hvert við Færeyjar og segir í færeyska að mikill og góður lax sé á miðun- sex eða sjö bátar á þessum veiðum kíló fást um 410 kr. ísl. Dagblaðið segir, að laxinn gangi ekki norður með eyjunum fyrr en um miðjan febrúar og því muni aðal- veiðtíminn ekki hefjast fyrr en þá. Færeysku bátamir hafa leyfi til að stunda laxveiðamar út apríl en á móti kemur, að Alþjóðalaxveiðiráðið hefur bannað þær frá miðjum desem- ber fram til miðs janúar. UR ELDINUM TIL ÍSLANDS EINAR SANDEN ÚR Eldinum ,T1L ÍSLANDS Endurminningar Eðvalds Hinrikssonar skráðar af Einari Sanden. Óvenjuleg og ótrúleg bók um ævi Eðvalds Hinrikssonar, föður þeirra Atla og Jóhannesar. Eðvald er Eistlendingur og sem foringi í verndarlögreglu föðurlands síns lenti hann á stríðsárunum í úti- stöðum, bæði við Rússa og Þjóðverja. Það kom í hans hlut að yfirheyra skæðan Rússneskan njósnara. Vegna mikilvægrar vitneskju sem Eðvald komst þá yfir var hann hundeltur af Rússum. Flótta hans lauk á íslandi en þar með var ekki öll sagan sögð. Hér var hann ofsóttur í blöðum. Úr eldinum til íslands er viðburðaríkari ÆVISAGA EÐVALDS HINRIKSSONAR en margar spennusogur ^ ^VV eymondsso*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.