Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir Ný stjórn Félags íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfh. Ný stjórn námsmanna Jónshúsi, Kaupmannahöfn. Sigríður Sæmunds dóttir - Minning AÐALFUNDUR Félags íslenzkra námsmanna í Kaupmannahöfn var haldinn í október. Var hann fjölmennur, enda starf félagsins með blóma. Fráfarandi formað- ur, Aðalbjörg Jónsdóttir, lagði fram skýrslu stjórnar og Kristín Hlín Þorsteinsdóttir gjaldkeri gerði góð reikningsskil. Stjóm FÍNK skipa nú Edda Rós Karlsdóttir formaður, Svala Þor- móðsdóttir gjaldkeri, Freygarður Þorsteinsson ritari, Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, Baldur Þorgils- son, Eiríkur G. Eyvindsson og Ellen R. Ingimundardóttir. Nýr fulltrúi félagsins í hússtjóm Jónshúss er Bima Baldursdóttir og í félags- heimilisnefhd eru áfram Vilhjálmur Ásgeirsson og Ólafur Hjálmarsson. í svæðisstjórn SÍDS voru kosin Salvör Aradóttir, Lárus Ágústsson og Freygarður Þorsteinsson og fyr- ir sögusjóð Aðalbjörg Jónsdóttir og Kristín Hlín Þorsteinsdóttir. Fjölbreytt starfsemi verður á vegum félagsins í desember. Það heldur fullveldisdaginn hátíðlegan með dansleik föstudaginn 2. desem- ber í Teatersalen 'nð Bispetorv, þar sem hljómsveitin „Síðan skein sól“ leikur fyrir dansi, og kemur hún að heiman. Laugardaginn 3. desem- ber verður hátíðardagskrá í félags- heimilinu í Jónshúsi og hefst hún kl. 15\ Þá stendur Námsmannafé- lagið fyrir laufabrauðsbakstri og Þorláksblóti skömmu fyrir jól. - G.L.Ásg. Fædd 29. júní 1937 Dáin 21. nóvember 1988 I dag er kvödd hinstu kveðju frænka mín og vinkona, Sigríður Sæmundsdóttir. Foreldrar hennar voru Ólína Sig- urðardóttir (Oddsdóttir) frá Hrísdal og Sæmundur Einarsson úr Keflavík. Samgangur var mikill milli fjöl- skyldna okkar og alltaf var jafn gaman að koma til Ólu og Sæma í Keflavík. Þar virtist fólkið búa við algjört áhyggjuleysi, sama þótt erf- iðleikar eða veikindi steðjuðu að, og þessa eiginleika erfði Sigga í ríkum mæli. Æskuárin liðu með heimsóknum á víxl í Keflavík og Hafnarfirði. Ung hitti Sigga Guðmar Elvar Tyrfingsson og þau giftu sig. Þegar hún var 16 ára eignuðust þau Önnu, Jónína kom tveimur árum síðar og eftir önnur tvö fæddist Kristjana, þtjár stelpur og Sigga rétt tvítug. Á þessum árum héldum við góðu sambandi, ég vann í Keflavík á sumrin og var hálfgerður heimaln- ingur hjá Siggu og Elvari. í eitt ár vorum við nábúar í Hafnarfirði og skelfing var gott að hvfla sig frá skólabókunum og skreppa til Siggu í smá spjall. Ævintýraþráin greip Siggu og fjölskyldu og tóku þau sig upp og fluttu til Ameríku þar sem þau bjuggu í nokkur ár. Ferma átti Önnú hér heima, svo Sigga kom heim með telpumar, Elvar kaus hinsvegar að vera eftir í Ameríku og skildu þau. Sigga var hæglát, glaðlynd og æðrulaus. Mestalla ævi átti hún við heilsuleysi að stríða, lenti oft inni á sjúkrahúsum, en henni fylgdi ótrúleg bjartsýni og trú á líflð. Hjá henni var ekkert mál svo stórt að þyrfti að gera sér rellu út af því. Sunnudagskvöldið áður en hún dó áttum við tal saman á sjúkrahús- inu. Hún sagði mér hvað komið hafði út úr rannsóknum sem hún hafði gengist undir. Hún var yflr- veguð og full rósemi og bjó sig undir þá meðferð sem læknavísind- in bjóða upp á, en á þeirri meðferð þurfti hún ekki að halda. Er við kvöddumst sagðist ég koma aftur á þriðjudag. Það er fínt, sagði hún, þá get ég sagt þér meira því ég fer í lokarannsókn á morg- un. En rannsókn lauk aldrei því hún lést næsta dag. Minningamar hrannast upp bæði eldri og yngri. Eg man t.d. eftir ættarmótinu í fyrra, sem af varð mikið til fyrir tilstilli Siggu, sem notaði hvert tækifæri sem gafst til að hvetja skyldmennin til að mæta. Elsku Anna, Nína, Jana, Einar og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Elsa Hannesar Friðrik Kjartansson Akureyri — Minning Ég vil skrifa nokkur þakkarorð tii afa nafna, eins og ég kallaði hann alltaf. Við vorum mjög nánir vinir. Ég var ekki nema fímm ára gamall er ég fór fyrst að heim- sækja afa til Reykjavíkur. Ég fór alltaf á hveiju ári og stundum oftar að heimsækja afa til Reykjavíkur á meðan hann bjó þar. Á þeim tíma er afí bjó í Reykjavík kom hann alltaf heim til fjölskylcju minnar á Akureyri Um jólin og átt- um við þá okkar góðu samveru- stundir sem aldrei gleymast. Snemma vors árið 1982 flutti afí til Akureyrar og vorum við þá mjög mikið saman, við eyddum flestum okkar frístundum saman. Við fórum á hverju sumri til Siglufjarðar, þá í Fljótin og í Sléttuhlíðina, en þess- ir staðir voru afa mjög kærir. Þeg- ar við fórum í þessar ferðir þá rifj- aði afí alltaf upp gamlar minningar af þessum slóðum sem hann hafði svo gaman af að segja mér frá. Fyrir um hálfum mánuði síðan flutt- ist ég til Reykjavíkur og ekki lét ég mér detta í hug að þá yrði í síðasta sinn er ég sæi afa minn. En eftir að ég flyt suður höfðum við stöðugt samband í síma og er ég spurði hvemig hann hefði það þá leið honum alltaf vel og var allt- af jafn hress og kátur. Elsku afa þakka ég fyrir allar, þær góðu stundir sem við áttum saman og ég veit að Guð tekur vel á móti honum. Guð geymi góðan mann. Friðrik Þorbergsson Afi var fæddur á Siglufirði 21. maí 1924. Hann var sonur hjónannat Kjartans Stefánssonar skipstjóra^ frá Móskógum í Fljótum og Rósu Halldórsdóttur frá Bjamagili í Fljót- um. Hann dvaldist sem bam hjá, Guðrúnu Halldórsdóttur móðursyst- ur sinni og Guðleifí Valgeiri Jóns- syni á Syðstahóli f Sléttuhlíð. Afí átti tvö systkini, Kjartan Kjartansson og Stellu Klöru Bohns- hak. Afi fór aftur ungur til Siglufjarð- ar þar sem hann hóf akstur og önnur störf. Afí hafði taugar til æskustöðva sinna, og fór um þær slóðir á hveiju sumri. Afí átti þijú böm; þau eru Bryndís, Robert og Kjartan, og sex bamaböm; þau eru Friðrik Þorbergsson, Þorbergur Þórður, Inga Þórlaug, Gunnhildur Helga, Friðrik Kjartansson og Sveinn Ingi. Síðar flytur afí til Akureyrar þar sem hann vann við ýmis störf, svo sem ökukennslu. Nemendur afa urðu allm^gir víða um landið. t HALLDÓR ÞORSTEINSSON frá Grýtubakka, Höfðahverfi, siðast til heimillsá Norðurbrún 1, Reykjavfk, andaðist 27. nóvember síðastliðinn í Landspítalanum. Vandamenn. t Eiginkona mín, móðir okkar, systir og dóttir, ÞÓRDÍS RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR hjúkrunarfraeðingur, Klapparbergi 4, Reykjavfk, sem lést í Landspítalanum föstudaginn 25. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. desember kl. 15.00. Pótur Ágústsson, Rannveig L. Pótursdóttir, Magnús Pótursson, Guðfinna G. Guðmundsdóttir, Guðmundur Magnússon. Gunnhildur Sigurðar- dóttir - Minning 1971 fluttist afí til Reykjavíkur þar sem hann bjó í um áratug og þar hélt hann ökukennslu áfram í nokkur ár, en gerðist síðan leigubíl- stjóri hjá Bæjarleiðum í Reykjavík. Snemma vors 1982' flutti afi aftur til Akureyrar þar sem hann hélt áfram leigubflaakstri á Bifreiðastöð Oddeyrar. Voru viðskiptavinir hans orðnir allmargir uns yfír lauk. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Br.) Barnabörnin Ég vil með nokkrum orðum minn- ast mágkonu minnar Gunnhildar Sigurðardóttur, sem lést á sjúkra- húsi í Reykjavík, hinn 21. nóvember síðastliðinn. Gunnhildur var fædd hinn 3. júlí 1923 á Þingeyri við Dýraflörð, dótt- ir hjónanna Bigurðar FY. Éinarsson- ar kennara og Þórdísar Jónsdóttur, og var hún næstyngst ellefu systk- ina. Ég minnist ungrar stúlku vestur á Þingeyri fyrir rúmum §órum ára- tugum. Hún geislaði af lífsorku og gleði, var síbrosandi og syngjandi og heillaði alla sem á hlýddu. Þann- ig kynntist ég Gunnhildi mágkonu minni og þannig mun ég minnast hennar um alla framtíð. Við trúum því að lífíð hafi tilgang og eftir að hafa fylgst með lífshlaupi þéssarar vinkonu minnar hef ég sannfærst æ betur um það stóra hlutverk, sem henni var úthlutað í þessu lífi, að kenna okkur, samferðafólkinu, að meta þann mun sem er á því að lifa við heilbrigði, eða vera sviptur því í blóma lífsins. Árið 1952 giftist hún Gunnari Einarssyni, sem reyndist henni skilningsríkur og góður eiginmaður. Þau eignuðust þijá syni, Sigurþór, Ólaf og Ragnar, sem allir eru efnis- menn. Eftir fæðingu yngsta drengsins t Móðir okkar, ÞÓRA V. JÓNSDÓTTIR, Brávallagötu 46, lést þriðjudaginn 29. nóvember í Sjúkrahúsi Suöurlands. Guðfinna Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson, Jón Þ. Einarsson, Valgerður Elnarsdóttir. t Jarðarför oiginmanns míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa, HAFSTEINS BALDVINSSONAR hæstaréttarlögmanns, Fjölnisvegi 16, fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 2. desember kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélag íslands. Sigríður Ásgeirsdóttir, Ásgeir Hannes Eirfksson, Valgerður Hjartardóttir, Baldvin Hafsteinsson, Björg Viggósdóttir, ElfnJ.G. Hafsteinsdóttir, Haukur G. Gunnarsson og barnabörn. . fór Gunnhildur að kenna þess sjúk- dóms, sem haldið hefur henni í hel- greipum hálfa ævina og nú að lok- um náð að stöðva brosið hennar blíða. Nú þegar leiðir skilja, þakka ég mágkonu minni öll þau bros og all- an þann lífsskilning, sem hún gaf mér og við hjónin kveðjum hana með þessari bæn eftir systur henn- ar og vottum öllum aðstandendum hennar, okkar dýpstu samúð. í himnanna hásal hamingjan býr, þar alfaðir, friður og fögnuður gnýr. Stjömumar lýsa og leiftra til þín, leiða þig þar sem að guðsljósið skín. (H.S. Hinumegin götunnar.) Kjartan og Hrefha Kransar, lcrossar ogkistuskreytingar. W Sendum um allt land. ^ GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfheimum 74. sími 84200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.