Morgunblaðið - 30.11.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
51
Vísvitandi heilsuspilling?
Hjartanlegt þakklœti til allra þeirra, sem heiÖr-
uöu okkur hjónin meÖ nœrveru sinni, blómum,
gjöfum og heillaóskum eÖa á annan hátt
21.nóvember sl. á 90 ára afmœli mínu ' '
Gœfa og gengi fylgi ykkur öllum.
Gísli Ólafsson.
Kæri Velvakandi.
Fyrir skömmu var gamall kunn-
ingi okkar- hjónanna, enskur lækn-
ir, á ferð hér á landi og staldraði
þá við hjá okkur í eina þrjá daga.
Hann er maður ræðinn og skemmti-
legur viðtals, enda bar margt á
góma. Yngsta bamið okkar, sjö ára
drengur, kom einn daginn heim úr
skólanum og sagðist hafa verið í
árlegri skoðun hjá skólatannlækn-
inum. Sagði hann okkur frá því,
að tannlæknirinn hefði orðið að
taka nokkrar röntgenmyndir af
tönnunum og hefði myndað efri og
neðri kjálka báðum megin, áður en
hann boraði í einn jaxlinn og setti
örlitla fyllingu í. Vinur okkar fyrr-
nefndur heyrði þetta, og honum brá
sýnilega í brún. Sagðist hann alls
ekki geta trúað því, að íslenskum
tannlæknum leyfðist að ganga
þannig til verks: Töku röntgen-
mynda af mjólkurtönnum skóla-
barna, og það án sérstaks samráðs
við foreldra bamsins, taldi hann
fáheyrðar aðfarir og hinn mesta
ábyrgðarhlut. „Til hvers, til hvers
í ósköpunum," spurði þessi erlendi
læknir. „Og þið leyfið þetta virki-
lega?"
Dökkt útlit
Kæri Velvakandi.
Að undanförnu hafa forystu-
menn þjóðarinnar skifst á harðorð-
um yfirlýsingum vegna efnahags-
ástands. Meira að segja orðtak eins
og þjóðargjaldþrot og efnahagshrun
hefur verið í gangi. Að mínu mati
er þetta verulegur möguleiki. En
gemm við okkur grein fyrir afleið-
ingum ef allt færi norður og niður?
Það gæti þýtt einræði eða erlenda
íhlutun. Ég býst við því að íslenska
þjóðin myndi ekki sætta sig við
svoleiðis. En hitt er víst, þriðja leið-
in verður alveg ófær þar sem for-
ystumenn þjóðrinnar halda uppi
innbyrðis deilum. Einu sinni sagði
Winston Churchill við bresku þjóð-
ina: Ég get aðeins lpfað ykkur
blóði, svita og tárum.
Ég hef þá óþægilegu tilfinningu
að íslenska þjóðin fái svoleiðis boð-
skap á næstunni.
Vilhjálmur Alfreðsson
Hvert mannsbarn
sinn skammt
Við urðum að játa, að öll okkar
eldri börn, þijú talsins, hefðu líka
— eins og allir jafnaldrar þeirra í
skólanum — fengið árlega þessa
meðferð á 7—13 ára aldrinum, al-
veg sjálfkrafa. „Nei, þetta er ekki
heilsugæsla — þetta er vísvitandi
heilsuspilling!" hrópaði þá vinur
okkar. Kvaðst hann aldrei hafa
heyrt um þvílíkt glapræði framið í
nafni heilsugæslu bama. Útmálaði
hann fyrir okkur, hvaða afleiðingar
slíkir geislaskammtar kynnu vel að
geta haft fyrir heilsufar barnanna
í framtíðinni. Hefur okkur foreldr-
unum ekki verið alls kostar rótt
eftir þessar umræður um alla þá
geislaskammta, sem bömin hafa
fengið hjá skólatannlæknum í ár-
anna rás. Vil ég því beina þeirri
spumingu til yfirstjórnar íslenskra
heilbrigðismála, hvort víðtækar og
tíðar röntgenmyndatökur af mjólk-
urtönnum skólabarna fari fram með
fullri vitund heilbrigðisyfirvalda —
og sé svo, hvort þær teljist þá í
öllum tilvikum hluti af eðlilegri
meðferð skólatannlækna, af því að
geislunin sé með öllu meinlaus eða
sé jafnvel einkar heilsusamleg? Sér-
staklega ungum börnum?
Sé á hinn bóginn skaðsemi slíkrar
röntgengeislunar á heilsu bamanna
eitthvað í líkingu við það sem enski
læknirinn sagði, þá er mér enn
spum: Hvers vegna er þetta látið
óátalið hérlendis og fólki jafnvel
talið trú um, að þetta sé heilsu-
gæsla? Liggur þama ef til vill fisk-
ur undir steini?
Hafliði B.
Hvalveiðimálið;
Geftim ekkert eftir
Til Velvakanda.
Mikið hefur verið skrifað og
spjallað um hvalamálið og er vart
á bætandi en hins vegar hefur ver-
ið átakanlegt að sjá og heyra hve
íslenska þjóðinn stendur illa saman
í þessu máli og ekki síst forráða-
menn þjóðarinnar, sem svo eiga að
heita. Þá á ég við alla þingmennina
en margir af þeim tala eins og þeir
séu á mála hjá samtökum Grænfrið-
unga. Hvernig má það vera að þjóð-
areiningin sé svo lítil að við getum
ekki sagt t.d. við Bandaríkjamenn
að vera þeirra hér sé ekki æskileg
og þeir verði að hverfa með allt
sitt héðan ef þeir þaggi ekki niður
þennan óhróður um ísland sem við-
gengst í Bandaríkjunum. Einnig við
aðrar þjóðir að við getum ekki hald-
ið áfram að kaupa af þeim alls
konar vömr eins og við geram (oft
óþarfa) nema þær hætti að styðja
þennan óhróður um ísland.
Við eigum að standa saman og
halda áfram með okkar stefnu,
hopa hvergi og gefa ekkert eftir.
Nýta auðlindir okkar og borða að-
eins íslenska framleiðslu því hún
er best. Halda menn virkilega að
Grænfíðungar hætti bara og fari
að vinna fyrir sér á eðlilegan hátt
ef þeir koma hvalamálinu í höfn?
Nei og aftur nei. Þá kemur að fæðu
hvalanna t.d. loðnunni. Stöndum
saman og afneitum öllu erlendu sem
ekki er nauðsynlegt. Veljum aðeins
íslenskar vörar. Allan matvælainn-
flutning til landsins ætti að banna
og ætti það bann einnig að ná til
vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
ísfirðingur
LYGILEGA
ÓDÝ
MASTER
Enn ný sending!
Ekta leður frá K o i n o
Góö greiöslukjör
Opið til kl. 19 á föstudag
Opið kl. 10-16 á laugardag
r
Uthlutun úr Vilborgarsjóði
Sóknarfélagar - Sóknarfélagar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði stendur yfir
frá þriðjudeginum 6. des. til 17. des.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins í Skip-
holti 50a, eða hafi samband í símum 681150 og
681876.
____ Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar.
Var Jesús Kristur
ekki mannlegur?
Til Velvakanda.
Er hægt að segja að maturinn
sé góður áður en hann er smakkað-
ur? Getur gagnrýnandi myndað sér
skoðun á bíómynd áður en hann sér
hana?
Já, auðvitað, ég er að tala um
hina umtöluðu og stórgóðu mynd
„Síðasta freisting Krists". Fjölmiðl-
ar hafa undanfama daga biit viðtöl
við heittrúarmenn þar sem þeir
keppast við að úthúða þessari mynd
og hrópa í kór: „Guðlast", sennilega
af því að þeir lásu það í einhveiju
tímariti, því þeir viðurkenna fúslega
að þeir hafi ekki séð myndina. Þeir
klykkja svo út með einhveiju í þess-
um dúr: „Klám, ofbeldi, viðbjóður,"
o.s.frv. Þessir menn hafa líklega
tekið skoðanir annarra heittrúar-
manna og gleypt í heilu lagi og
ælt því svo í fjölmiðlana.
Það er ekkert klám í þessari
mynd. Það er enginn viðbjóður í
þessari mynd. Þaðan af síður er
guðlast í þesari mynd. Þessi stór-
kostlega vel gerða kvikmynd tekur
einvörðungu á þessari spumingu:
Hvað ef Jesús Kristur var mannleg-
ur með tilfinningar eins og aðrar
manneskjur. Var Jesús Kristur ekki
mannlegur?
í upphafi myndarinnar er það
skýrt tekið fram að þetta listaverk
sé ekki byggt á hinum heilögu ritn-
ingum. Éinungis er verið að velta
fyrir sér þessari eilífu baráttu hug-
ans og holdsins, hvað ef.
Ég var skírður, ég var fermdur
og ég fór í sunnudagaskóla á yngri
áram. Það sem ég sá í þessari
mynd var ekki guðlast. Það er al-
veg á hreinu. Hann læknar holds-
veika, hann gefur blindum sýn,
breytir vatni í vin og hann reisir
Lasaras upp frá dauðum og, um-
fram allt, hann dó á krossinum fyr-
ir mannkynið. Þetta er allt í þess-
ari mynd og ekki skrumskælt á
nokkurn hátt. Því skora ég á þá
heittrúarmenn sem blása sig upp i
fjölmiðlum að fara og sjá þessa
mynd.
Jesús var mannlegur.
Runólfur Þórhallsson
Kuldablússur
Kuldaúlpur
Margar nýjar gerðir,
m.a. yfirstærðir.
Verð frá kr.
3.950,-
Póstsendum
GEíSiB?