Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MTOVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 53 KNATTSPYRNA Hólmbert Frlðjónsson. Hólmbert meðKefl- víkingum? „Ég eraðhugsa mál- ið," sagði Hólmbert Friðjónsson KEFLVÍKINGAR hafa verið að ræða við Hólmbert Friðjóns- son, þjálfarann gamalkunna, að undanförnu og eru þeir mjög spenntir fyrir að Hólm- berttaki við stjórn Keflavíkur- liðsins. Hólmbert er ekki ókunnugur í Keflavík. Þar er hann fæddur og hann varð íslandsmeistari með Keflavíkurliðinu 1964 og var þjálf- ari Keflvíkinga sem urðu meistarar aftur 1969. Síðan hefur Hólmbert þjálfað Fram, KR og Keflavík með góðum árangri. „Ég hef ekki gefíð ákveðið svar, en er að hugsa málið," sagði Hólm- bert i viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Epn er ekki ljóst hvaða breyting- ar verða á Keflavíkurliðinu. Bræð- umir, Daníel og Grétar Einarssynir eru ' famir í Garðinn. Siguijón Sveinsson og ívar Guðmundsson hafa ákveðið að koma aftur til Keflavíkur - frá Reyni í Sand- gerði. Þá em miklar líkur á að Valþór Sigþórsson, baráttumaður- inn mikli, taki fram skóna á ný og leiki með liðinu. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að Valþór myndi styrkja liðið Keflavík- urliðið mikið. KNATTSPYRNA /ENGLAND Guðni lék í stöðu Stevens „ÞESSUM reynslutíma er nánast lokið. Mér hefur geng- ið sæmilega með varaliðinu og Terry Venables hefur verið mjög jákvæður í minn garð, en ég fæ svar um framhaldið fyrir helgi," sagði Guðni Bergsson við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir 3:1 sigurTott- enham gegn Fulham. Guðni lék ekki sem miðvörður eins og hann hefur átt að venjast með Val og landsliðinu heldur hægra megin á miðjunni. Gary Stevens lék í þeirri stöðu með aðalliði Spurs, en hann verð- ur sennilega frá vegna meiðsla út tímabilið. Guðni komst ágæt- lega frá þessari nýju stöðu og iagði upp annað mark Tottenham um miðjan seinni hálfleik. Hann lék á tvo mótherja og er hann kom upp að endamörkum gaf hann fyrir þar sem einn félagi hans kom aðvífandi og skallaði í markið. „Ég slapp sæmilega frá leikn- um. Reyndar tók tíma að aðlagast stöðunni úti á vængnum, en ráð var fyrir því gert. Eins hafa menn vitneskju um hve langt er liðið síðan timabilinu heima lauk — menn vita að ég er ekki í leikæf- ingu,“ sagði Guðni-v,Þetta hefur aimennt verið mjög jákvætt og skemmtilegt tímabil, en nú er bara að bíða eftir næsta kafla,“ bætti hann við. KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ: Björn Steffansen átti mjög góðan leik með ÍR-liðinu. HANDKNATTLEIKUR / LIÐ VIKUNNAR Gunnar jQflT - * __ ___ UW ÍJJ Mjomunnuij- rum J)\ Hafsteinn Beinteinsson ~JT~ “ 'J&Ji - " \í(£Zá Bragason FH(1) | AM„a nPI Stjörnunni(l) Sigurður Sveinsson Val(2) Morgunblaðslið vikunnar er valið með leiki sjöttu umferðar til hliðsjónar. Valsmenn og KR-ingar héldu áfram á sigurbraut, Valur sigraði Gróttu og KR Víking. Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar og vann KA, en UBK sótti ekki gull í greipar FH í Hafnarfírði. Leik Fram og ÍBV var frestað og verður hann i Laugardalshöll á laugardag. Sigurlið umferðarinnar eiga öll fulltrúa í liði vikunnar og eru fjórir þeirra valdir í fyrsta sinn. ÍR-ingar léku sér að Sauð- krækingum Ágúst Ásgeirsson skrifar BJÖRN Steffensen átti stórleik og var maðurinn á bak við góð- an sigur ÍR-inga á Tindastóli í íslandsmótinu í körfuknattleik í Seljaskólahúsinu í gærkvöldi. Bjöm skoraði grimmt úr nánast hvaða stöðu sem er, stundum úr hálfgerðri klípu, en auk þess hirti hann urmul frákasta í vöm og sókn. ÍR-liðið var heilsteypt, byggði upp sóknir sínar og notaði tímann til að skapa sér skotfæri og vamarleikur þess var lengstaf góður. Hið sama verður ekki sagt um Norðanmenn, eða Val, Eyjólf og hina. Allt snýst um Val og Eyjólf, sem leika aðalhlutverkin og era yfirburðamenn í liðinu. Ef ekki kæmi til mikil harðfylgi og sókn- dirfska Eyjólfs og Vals hefði mun- urinn orðið mikið meiri. ÍR-ingar tóku leikinn í sínar hendur strax; skoraðu 12 stig í röð og hleyptu ekki Tindastólsmönnum að körfu sinni fyrr en eftir rúmar fimm mínútur. Hélzt 10-15 stiga ENGLAND munur en varð mestur 19 stig í fyrri hálfleik og 18 í þeim seinni. Leikurinn var hraður og gekk knötturinn hratt milli manna og af einum knati yfír á annann. Var hann því nokkuð skemmtilegur á að horfa. ÍR-Tindastóll - 82 : 68 fþróttahúsið, Seljaskóla, íslandsmótið í körfúknattleik, þri^judaginn 29. nóv- ember 1988. Gangur leiksins: 12:0, 19:6, 24:9, 33:16, 37:18, 40:23, 42:28, 42:30, 44:30, 44:35, 50:35, 54:38, 58:43, 64:48, 66:51, 72:56, 76:58, 78:61, 82:68. Stig ÍR: Bjöm Steffensen 29, Jón Öm Guðmundsson 18, Ragnar Torfason 10, Jóhannes Sveinsson 8, Sturla Örlygsson 8, Karl Guðlaugsson 5 og Bragi Reynis- son 4. Stig Tindastóls: Eyjólfúr Sverrisson 27, Valur Ingimundarson 20, Bjöm Sig- tryggsson 12, Kári Mariasson 5, Sverrir Sverrisson 3 og Ágúst Kárason 1. Áhorfendur: 50. Dómarar: Bergur Steingrtmsson og Jón Bender dæmdu sæmilega. Fashanu vill fara frá Wimbledon John Fashanu hefur fengið nóg af því að spila með 1. deildarliði Wimbledon og vill róa á önnur mið. Hann sagði af sér sem fyrirliði liðs- ins og segist vilja losna undan samningi sínum sem rennur út eftir 18 mánuði. „Ég vil ekki vera talinn grófur leikmaður og vil losna við það orð sem farið hefur af mér,“.sagði Fas- hanu. „Til þess þarf ég að byrja upp á nýtt og með öðra liði,“ sagði Fas- hanu í gær. Bobby Gould, framkvæmdastjóri Wimbledon, var ekki hrifinn af þessu uppistandi og sagði að Fas- hanu yrði ekki seldur fyrr en samn- ingur hans rennur út. Nokkur félög höfðu áhuga á honum í sumar en þá kostaði hann um eina milljón punda. Bobby Gould sagði að hann hefði að minnsta kosti ekki lækkað í verði síðan þá, þrátt fyrir að hon- um hafi gengið illa í vetur. Þess má geta að Wimbledon keypti Fashánu fyrir þremur árum FráBob Hennessyí Englandi John Fashanu frá Millwall, sem þá lék í 2. deild, fyrir 100.000 pund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.