Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR MIÐVTKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 vT HANDBOLTI „Islend- ingar skulda okkur leiki“ - segirGunnar Knudsen, formaður danska handknatt- leikssambandsins DANIR eru bjartsýnir á að ís- lendingar komi og taki þátt í Eyrarsundskeppninni, sem þeir og Svíar sjá um. Eins og hefur komið fram þá leituðu Danirtil íslendinga og A-Þjóð- verja, eftir að Spánverjar og Sovétmenn hœttu við þátttöku. m Eg hef trú á að bæði íslendingar og A-Þjóðverjar komi, en þeir gefa okkur svar nú í vikunni. íslend- ** ingar ætla að gefa okkur svar eftir að búið er að ræða við 1. deildarfé- lögin, en leikið er í 1. deild á sama tíma. Þeir þurfa að fá leikjum fre- stað í deildinni, tii að komast," sagði Gunnar Knudsen, formaður danska handknattleikssambandsins í viðtali við Politiken. Gunnar sagðist ekki trúa öðru en íslendingar kæmu til Eyrasund- skeppninnar í janúar. „Við veittum íslendingum aðstoð fyrir ÓL í Seoul - þegar við lékum tvo æfingaleiki ?~*~í Reykjavík. Nú er komið að þeim að hjálpa okkur,“ sagði Knudsen. Þá kom það fram hjá Knudsen að leitað yrði til Tékka, ef íslending- ar eða A-Þjóðverjar koma ekki. Það er mikið í húfí fyrir Dani að Eystrasundskeppnin fari fram. Þeir hafa nú þegar gert samning við danska sjónvarpið að sjónvarpa beint mótinu. KNATTSPYRNA / VALLARMAL Laugardalsvöllurlnn er aðalleikvangur landsins, en bæta þarf aðstöðu fyrir áhorfendur innan fjögurra ára ef landsleikir eiga að fara þar fram í framtíðinni. Undankeppni HM 1992; Ekki keppt á Islandi við óbreyttar aðstæður „MÁLIÐ er ósköp einfalt. Al- þjóða Knattspyrnusamband- ið, FIFA, hefur ákveðið að frá og með undankeppninni, sem hefst árið 1992 fyrir úrslita- keppni heimsmeistaramóts- ins 1994, verður ekki leyfilegt að selja aðgöngumiða í stæði á landsleiki. Mesti hluti áhorf- endasvæðis Laugardalsvallar verður því ólöglegur við óbreyttar aðstæður," sagði Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Morgunblaðið (gær. Að sögn Sigurðar eru forystu- menn íslenskra knattspyrnu- mála þegar famir að hafa miklar áhyggjur vegna þessa máls. Stúk- an við aðalleikvanginn í Laugar- dal tekur um 3.500 áhorfendur og við óbreyttar aðstæður verður ekki hægt að selja fleiri miða á landsleiki eftir fjögur ár. Stúku hringinn Eina lausnin er að byggja stúku umhverfis leikvanginn og var reyndar gert ráð fyrir því fyrir um þremur áratugum, er völlurinn var tekinn { notkun. „Laugardalsvöllurinn er aðal- leikvangur landsins og þar fara helstu landsleikir fram eins og flestum er kunnugt. Knattspym- an verður að öllum líkindum hér eftir sem hingað til vinsælasta íþróttin á íslandi, en í allri upp- byggingunni, sem á sér stað, má ekki gleyma landsliðinu. FIFA hefur lagt spilin á borðið og þær þjóðir, sem ætla að vera með landsleiki í framtíðinni, verða að bjóða upp á löglegar aðstæður. Með öðrum orðum, þá verður að byggja stúku umhverfis leikvang- inn í Laugardal ef við ætlum að fylgja öðrum þjóðum," sagði Sig- urður. Fráhrindandl völlur Ólæti á knattspymuvöllum víðs vegar um heim hafa gert það að verkum að allar öryggiskröfur hafa verið hertar til muna. Því er krafan um sætin komin, en ýmislegt fleira hefur verið gagn- rýnt í Laugardalnum. Margir hafa haft á orði að Laugardalsvöllurinn væri frekar fráhrindandi og að- kallandi væri að gera viðhlítandi breytingar. „Mikil uppbygging á sér stað í Laugardalnum og ýmis mannvirki fyrir ýmsar greinar eru á dagskrá, en aðalleikvangurinn hefur setið á hakanum. Aðkoman er ekki nógu góð, stúkan er köld og áhorfendur eru of langt frá vellinum. I vaxandi samkeppni er biýnt að búa vel að áhorfendum og því fyrir löngu orðið nauðsyn- legt að fara að huga að aðkall- andi málum. Stúka hringinn er auðvitað mikilvægasta verkefnið, en það þarf einnig að skipta henni niður og númera sæti eins og alls staðar er gert. Áhorfendur eiga að geta keypt miða á ákveðnum stað og gengið að sætum sínum vísum. Landsleikir bera sig ekki án áhorfenda," sagði Sigurður. KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 25% áhorf- endafækkun í l.deild Mesta fækkunin var hjá Valsmönn- um. 6.058 áhoríendursáu leiki liðs- insá móti 12.823 ífyrra ÁHORFENDUM fækkaði veru- lega á leikjum í 1. deildar- keppninni í knattspyrnu sl. sumar. 62.222 áhorfendur mættu á leikina 90 í deildinni, sem er 24.9 % fækkun frá árinu 1987, en þá sáu 82.941 áhorf- endur leikina í 1. deild. Það er margt sem spilar þarna inn í. Mikið var um íþróttir í sjónvarpi í sumar. Fyrst var sýnt beint frá Jeikjum í Evrópukeppni Iandsliða, sem fór fram í Vestur- Þýskalandi og síðan voru beinar útsendingar frá Ólympíuleikunum í Seoul," sagði Páll Júlíusson, skrif- stofustjóri Knattspymusambands íslands, f viðtali við Morgunblaðið í gær. Fækkunln mest hjá Val Áhorfendafækkun var á heima- leikjum allra 1. deildarliðanna. Mest var fækkunin hjá bikarmeisturum Vals, eða 52.8%. 6.068 áhorfendur komu á níu heimaleiki Vals, sem er að meðaltali 773 áhorfendur á leik. Aftur á móti sáu 12.823 áhorf- endur leiki Valsmanna 1987, eða 1.425 áhorfendur að meðaltali á leik. Fækkun á heimaleiki Völsunga var einnig mikil, eða 52.6%. 2.896 áhorfendur sáu leikina á móti 6.101 í fyrra. 31.5% fækkun var hjá Þór. 6.414 áhorfendur sáu heimaleiki liðsins, en 9.355 í fyrra. Fækkunin var 24.6% hjá KR, þar sem áhorfendur voru 8.257 á móti 10.943 í fyrra. Keflvíkingar fengu 6.109 áhorf- endur á heimaleiki sína á móti 7.629 í fyrra, sem er 20% fækkun. Það vekur athygli að 3.372 áhorfendur sáu þijá fyrstu leiki liðsins, sem eru fleiri heldur en sáu sex síðustu leiki Morgunblaöiö/Einar Falur Slgurjón Krlstjánsson og Jósteinn Einarsson eigast við í leik Reykjavíkur- liðanna Vals og KR. Á þessum stórleik voru þó aðeins 235 áhorfendur. liðsins. Aðeins 91 áhorfendi mætti á síðasta heimaleik Keflvíkinga - gegn Víkingi. Hjá KA varfækkunin 11%. 7.225 áhorfendur sáu leiki liðsins miðað við 8.109 í fyrra. Minnst var fækkunin hjá íslands- meisturum Fram, eða 10%. 9.899 áhorfendur sáu heimaleiki liðsins - á móti 10.989 í fyrra. Nokkra at- hygli vakti að aðeins 392 áhorfend- ur sáu síðasta leik Fram - gegn Akranesi, en þá fengu Framarar íslandsbikarinn. Aðeins 952 áhorf- endur sáu leikina fímm í síðustu umferð deildarinnar. Leikimirsem flestir sáu Valur- Fram 2.109 Fram - Valur 2.031 KR-Víkingur 1.676 Fram - KR 1.655 KA-Þór 1.601 KR-Valur 1.422 Fram - Víkingur 1.390 Þór-KA 1.307 Keflavík - Fram 1.279 KR - Völsungur 1.241 Það voru aðeins yfir þúsund áhorfendur á sautján leikjum af 90 í deildinni. nHOHHMH tmmmmummmiiiAiit'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.