Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 56
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
I ;Sail f
MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Torkennileg ljós
sáust víða á lofti
rTORKENNILEG ljós sáust víða á lofti yfir landinu í gærkvöldi. Náði
þetta yfir svæðið frá Snæfellsnesi austur í Þingeyjarsýslur. Lýsingar
fólks á fyrirbrigðinu eru mjög misrnunandi eftir iandshlutum en helst
er taiið að um loftsteinaregn hafi verið að ræða.
Ljós þessi sáust öll um kvöldmat-
arleytið. Lögreglumaður í Stykkis-
hólmi segir að hann hafi séð ljós á
lofti sem verið hafi eins og skært
blys, hvítt á lit. Hafi það verið mjög
nálægt bænum, svo nálægt að lög-
reglunni barst skömmu síðar tilkynn-
ing frá vegfarenda sem taldi að ljós-
Notar 150 ára
tónsprota við
kórstjómina
„ÞESSI gripur er eiginlega
meira í ætt við lögreglukylfu
en nútíma tónsprota," sagði
Jón Stefánsson, kórstjóri, um
tónsprotann sem hann ætlar
að stjórna Bruckner-tónleik-
um kórs Langholtskirkju með
í næsta mánuði. Sprotinn var
í eigu Bruckners sjálfs og er
vart yngri en 150 ára gamall.
Tónsprotinn er úr íbenholti og
fílabeini og skreyttur með perlu-
móður. íslandsvinurinn, Helmut
Neumann, gaf Jóni sprotann í
fyrra. Afí Neumanns var arftaki
Bruckners sem kórstjóri og org-
anleikari og tók við sprotanum
frá tónskáldinu.
„Hvort Bruckner sjálfur er
nálægur sprotanum veit ég ekki,
en það gefur að minnsta kosti
sérstaka tilfínningu að halda á
hlut með svo merkilega sögu,"
sagði Jón.
Morgunblaðið/Bjami
ið hefði komið niður milli kirkjunnar
og hótelsins í bænum.
Lögreglumaður á ísafírði segir að
hann hafí séð ljós á leið inn Djúpið
og hafí það verið eins og grænt blys
á himninum. Skömmu síðar barst
lögreglunni tilkynning frá Súðavík
þar sem vegfarandi lýsti sama fyrir-
bærinu, taldi að um flugeld hefði
verið að ræða.
Ljósin sáust víða í Skagafírði.
Rjúpnaskyttur í Vatnsskarði til-
kynntu um þau svo og fólk á leið
um Sauðárkróksbraut. Þar voru ljós-
in talin blá eða bláleit á lit. Lögregl-
unni á Akureyri barst tilkynning um
ljós á himni frá manni er staddur var
í Öngulstaðahreppi. Hann lýsti ljós-
inu sem bláleitu og taldi að um neyð-
arblys væri að ræða.
Lögreglumaður á Húsavík er var
staddur skammt fyrir utan bæinn
lýsir þessu svo að allt í einu hafí
allt orðið glansbjart í kringum hann
og hafi birtan verið bláleit. Ljósið
dofnaði hinsvegar skyndilega og hon-
um sýndist fyrirbrigðið stefna í norð-
ur, á haf út.
Tilkynningarskyldunni bárust til-
kynningar um þessi ljós frá bátum
víða af þessu svæði en þó aðallega
bátum á Breiðafírði og út af Vest-
fjörðum.
Veðurstofunni barst fjöldi tilkynn-
inga um ljósin í gærkvöldi af öllu
landinu. Að sögn Eyjólfs Þorbjörns-
sonar veðurfræðings hefur hér að
öllum líkindum verið um loftsteina
að ræða.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurbjörn Einarsson, biskup, virðir fyrir sér nýprentaðar arkir Nýja testamentisins ásamt starfs-
mönnum prentsmiðjunnar Odda, þeim Ómari Kristjánssyni og Guðmundi Jóhannssyni.
Nýja testamentið:
Þýðing Odds prentuð
í fyrsta skipti á Islandi
ELZTA bók sem prentuð hefúr
verið á islensku og varðveist
hefúr, Nýja testamentið í þýð-
ingu Odds Gottskálkssonar,
verður gefin út með nútíma-
stafsetningu innan fárra daga.
Þýðing Odds hefúr ekki áður
verið prentuð á íslandi.
Oddur Gottskálksson þýddi
Nýja testamentið fyrstur manna
á íslenska tungu-og var þýðing
hans fyrst prentuð í Hróarskeldu
árið 1540.
Bókaútgáfan Lögberg annast
nýju útgáfuna í samvinnu við
Biblíufélagið, Kirkjuráð og Orða-
bók Háskólans. Undirbúningur
Lögbergs hófst árið 1981 og verð-
ur útgáfan aðgengileg almenn-
ingi. Vinna við ritið er langt kom-
in í Prentsmiðjunni Odda.
Bankar og sparisjóðir fá leiðréttingu:
Seðlabankími greiðir 2% vexti
á bindiskylduna frá 1. mars
SEÐLABANKINN tilkynnti við-
skiptabönkum og sparisjóðum á
mánudag, að 2% vextir verði
greiddir umfram verðtryggingu
á bindiskyldu bankanna í Seðla-
banka. Verða vextirnir greiddir
frá og með 1. mars sl. til áramóta
en óráðið er hvað verður eftir
áramót. Þetta gerir bönkum og
sparisjóðum m.a. kleift að lækka
raunvexti um allt að 1% um mán-
aðamótin.
Bindiskylda bankanna hjá Seðla-
banka er nú 13% af innlánum og
hefur Seðlabankinn hingað til greitt
verðtryggingu á þessa upphæð en
ekki vexti. Samtals eru um 10 millj-
arðar króna bundnir í Seðlabankan-
Ráðizt á Kristján Jóhannsson í Nice í Frakklandi:
„Horfði beint í bj/ssuhlaupið en
tókst að forða mér á hlaupum44
KRISTJÁN Jóhannsson, óperusöngvari, varð fyrir líkamsáras
Nice í Frakklandi í lok síðustu viku. Skammbyssu var miðað á
hann, en Kristján slapp að mestu óskaddaður. „Ég sá fyrir mér
endalokin er ég horfði í byssuhlaupið, en tókst að forða mér á
hlaupum," sagði Kristján í samtali við Morgunblaðið. Hann fer nú
með annað aðalhlutverkið í La Fanciulla Del West eftir Puccini í
Óperunni í Nice.
„Ég var með fjölskylduna í
bílnum á leið á æfingu í óper-
unni," sagði Kristján. „Þarna er
löng gata meðfram sjávarsíðunni,
þröng og bílastæði meðfram henni.
Ég ók rólega eftir götunni til að
svipast um eftir stæði og sá að
einn var að fara. Ég beið eftir því
og ætlaði svo að bakka lítillega til
að komast í stæðið. Þá kom í ljós
að á eftir mér var maður á bíl og
sá var aldeilis ekki á þeim buxun-
um að færa sig. Ég fór því út úr
bílnum til að biðja hann að færa
sig og beitti á hann ítölsku því
franskan er ekki mín sterkasta
hlið. Hann hellir sér þá yfir mig
með óbóta skömmum og svívirð-
ingum og segir að ítalir geti bara
lagt bílunum sínum heima. Það
fauk í mig og sagði að þjóðerni
skipti engu máli, ég myndi ekki
gefa mig. Þá fór að fara um kauða,
því hann sá að ég var tilbúinn til
að rétta honum einn og hefði farið
létt með það. Hann drap þá á
bílnum og hljóp á brott.
Ég nennti þessu þá ekki lengur
og bað Sigurjónu að finna stæði
annars staðar og gekk að óper-
unni. Þegar ég átti eftir svona 200
metra heyrði ég fótatak á eftir
mér og þar var maðurinn kominn
aftur með múrara af stærri gerð-
inni og kvensu með sér. Dóninn
hafði skyndilega öðlast hugrekki
og sveif í mig. Ég slengdi honum
í götuna og hélt honum þar, en
þá sparkaði múrarinn í bringuna
og hausinn á mér svo ég varð að
snúa mér að honum. Þá sá ég að
kvensan þreif skammbyssu úr
pússi sínu og ég glápti beint í kol-
svart hlaupið. Eg tók á sprett og
komst lítt skemmdur inn í Óper-
una.
Það var ekki fyrr en það fór að
líða á kvöldið að ég kenndi til í
brjóstinu, en annars staðar sakaði
mig ekki. Mér tókst að ljúka æfing-
unni og er nú orðinn nánast jafn
góður. Það vill svo einkennilega
til, að verkið sem ég er að syngja
í fjallar um byssubófa og fleira
fólk. Ég syng þar hlutverk bófa,
sem ætlar að ræna banka, en ást-
in umbreytir honum í annálað
prúðmenni," sagði Kristján.
um með þessum hætti, og mun
Seðlabankinn greiða bönkum og
sparisjóðum í kringum 180 milljónir
í vexti af þessu fé.
Vaxtagreiðsla þessi á m.a. að
auðvelda bankakerfinu að lækka
raunvexti um mánaðamótin, og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins munu raunvextir lækka að jafn-
aði um 1% á verðtryggðum skulda-
bréfum, en þeir vextir eru 8,75% hjá
flestum bönkum. Þá munu nafn-
vextir af óverðtryggðum skuldabréf-
um lækka að jafnaði úr 17,9% í um
12%. Ef miðað er við að verðbólga
sé tæplega 4% á þriggja mánaða
tímabili samsvara þessir nafnvextir
um 8% raunvöxtum.
Innlánsvextir lækka hins vegar
aðeins minna en útlánsvextir, eða
um 2-3%. Vextir af almennum spari-
sjóðsbókum eru nú 4,4% að jafnaði,
en vextir af tékkareikningum eru
1%.
Raunvextir af spariskírteinum
ríkissjóðs eru nú 7,3% af þriggja og
fímm ára bréfum, en 7% af átta ára
bréfum. Bankar og sparisjóðir hafa
gert samning við ríkissjóð þar sem
þeir tryggja sölu fyrir ákveðna upp-
hæð. Mjög lítið mun hafa selst af
þessum bréfum undanfarið á al-
mennum markaði, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, og þykir
ljóst að bankar og sparisjóðir muni
sitja uppi með stóran hluta þeirra
sjálfir.
4