Morgunblaðið - 15.01.1989, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 15.01.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 C 5 greiðslukort húsbón(íans. Við vettvangsrannsókn komast rannsóknarlögreglumenn að raun um að farið hafði verið inn um glugga á neðri hæð hússins og vísbending er um að fleiri en einn hafi verið að verki. Við gluggann finnast skóför og ennfremur fíngra- för á uppbrotnu skrifborðinu og víðar. Af verksummerkjum er ljóst að þjófamir hafa farið í ísskápinn og fengið sér að borða og sígarettu- stubbar finnast í öskubakka í stof- unni. Að lokinni vettvangsrannsókn setja rannsóknárlögreglumennimir sig í samband við nábúa og spyrj- ast fyrir um hvort nokkur hafi orð- ið var mannaferða við húsið. Starf lögreglu byggist að vemlegu leyti á góðri samvinnu við hinn almenna borgara og þó ekki sé kæruskylda hér á landi almennt, þá er æskilegt að fólk komi á framfæri upplýsing- um um gmndsemdir sem vaknað hafa. í þessu tilfelli hafði kona í húsi andspænis innbrotsstað tekið eftir því að bifreið, ákveðinnar teg- undar og lit, hafði þrívegis komið í götuna umrædda helgi og verið að snuðra, að henni fannst, þegar hún er spurð um það sérstaklega. Næsta skref er að vinna úr þeim upplýsingum sem aflað hefur verið. Bera þarf upplýsingar saman við önnur innbrot, til dæmis önnur inn- brot í sama hverfí, ef um slíkt er að ræða. Rannsóknarlögreglumenn bera sig ennfremur saman við kol- lega sína í málum sem þessum. Kannast einhverjir til dæmis við lýsingar á þeim bíl sem vitnið gaf upplýsingar um? Hafa einhveijir kunnir afbrotamenn sést á slíkum bíl? Fingraför sem fundust eru bor- in saman við það safn sem til er hjá RLR og ennfremur er rannsak- að hvort sambærilegt skófar hefur áður fundist á innbrotsstað. Leitað er upplýsinga í verslunum til að finna út hverrar tegundar skómir eru og með aðstoð bifreiðaskrár em fundnir bílar sömu gerðar og lit sem sást í götunni. Ennfremur er haft samband við alla sem selja notuð heimilistæki. í þessu máli var mikilvægt að safna sem mestum upplýsingum. Það gerðist ekki með þvi að sitja við skrifborð á vinnustað -heldur þurftu rannsóknarlögreglumenn- imir að vera úti á meðal fólks. Fljót- lega fóm brotin að falla saman og meðal annars fannst sjónvarpstæk- ið á sölu og falsaður tékki var kom- inn í umferð. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fyrir lágu beindist gmnur að ákveðnum mönnum, sem síðar vom handteknir og færðir til yfírheyrslu þar sem þeir játuðu inn- brotið. Tæknideild Þáttur tæknideildar RLR í máli af þessu tagi hefst strax við upphaf rannsóknarinnar. Starfsmaður deildarinnar fer á staðinn og gerir vettvangsrannsókn, sem felst meðal annars í því að leita að fíngrafömm og kanna verksummerki. Tækni- deild er undir stjóm Ragnars Vign- ir, aðstoðaryfirlögregluþjóns, sem á lengstan starfsaldur að baki í Rann- sóknarlögreglunni, 36 ár. Hann hóf störf hjá rannsóknarlögreglunni í Reykjavík árið 1952, þegar hún var til húsa á Fríkirkjuvegi 11, og hef- ur hann starfað við rannsóknir brotamála allar götur síðan. Upphaf tæknideildar má hins vegar rekja nokkur ár lengra aftur í tímann, er Axel Helgason kom heim frá námi í Bandaríkjunum árið 1945, þar sem hann hafði kynnt sér tæknirannsóknir brotamála. Tækni- tæknideildar- að flokka og skrá fingraför og ljósmyndir afbrota- manna. Fingrafaraskrá RLR geym- ir nú fingraför um 5.000 afbrota- manna af höfuðborgarsvæðinu, auk um 2.000 fingrafara af unglingum, sem hafa komið við sögu lögregl- unnar á starfssvæði RLR. Þar að auki em í skránni um 1.200 fíngra- för af afbrotamönnum utan af landi. Ljósmyndasafnið hefur að geyma myndir af sömu afbrotamönnum og fingraför hafa verið tekin af nema RLR geymir ekki ljósmyndir af unglingum undir 15 ára aldri. „Staðreyndin er sú að fæstir þess- ara unglinga koma við sögu lögregl- unnar síðar á ævinni. Athugun sem við höfum gert á þessu síðastliðin 25 ár bendir til að aðeins um þrír af hveijum tíu, sem lenda í afbrot- um á unglingsámm, koma aftur við sögu lögreglunnar síðar á ævinni," sagði Ragnar. 8 7 6 5 Ljósmynd úr safni RLR Fingurfar sem tæknideild RLR hafði til athugunar vegna rannsóknar á ákveðnu brotamáli. Á myndina em merkt inn 16 sérein- kenni, en reglan hér á landi er sú að ef 12 samsvarandi ein- kenni finnast á þeim fingrafömm sem rannsökuð em, er það talin fullnægj- andi sönnun. deild RLR rekur því upphaf sitt til bandarískrar fyrirmyndar, en hefur þó lengst af tekið mið af starfsað- ferðum rannsóknarlögreglumanna á Norðurlöndum og hafa starfs- menn deildarinnar m.a. notið þjálf- unar þar og iðulega notið aðstoðar við sérfræðirannsóknir. Að sögn Ragnars em tæknirannsóknir í stærri löndum, eins og t.d. í Banda- ríkjunum, Vestur-Þýskalandi og Bretlandi, orðnar mjög háþróaðar, sérfræðingar margir og þar hafi peningar ekki verið sparaðir til þess að lögreglan næði sem bestum ár- angri, sérstaklega í baráttunni við skipulögð glæpasamtök og hryðju- verkamenn. Ragnar sagði að auk vettvangs- rannsókna væri helsta verksvið Hann sagði að aðstaða tækni- deildar hefði breyst mjög til hins betra eftir að RLR var sett á lagg- imar og starfsemin flutt í núver- andi húsakynni í Auðbrekku í Kópa- vogi árið 1978. Auk þess sem rýmra hefði orðið um starfsemina hefði tækjakostur batnað og meðal ann- ars hefði tæknideild þá fengið sam- anburðarsmásjá, sem hefði reynst hið mesta þarfaþing. Hún kostaði 6 milljónir gamlar krónur, sem þótti mikið fé, en hefði nú margborgað sig, að sögn Ragnars. „Meðal þess sem er á óskalistanum hjá okkur nú er nýtt laser-tæki til fingrafara- leitar, en það kostar um 6 milljónir króna að núvirði. Ég er þó sann- færður um að því fé yrði vel varið.“ Yfírheyrslan lögreglufulltrúar og sjö rannsókn- arlögreglumenn. III deild rannsakar aðallega þjófnaðarbrot, gripdeildir og rán, þegar líkams- meiðingar eru ekki afgerandi þáttur í brotinu. Ennfremur mál bama og ungmenna, fölsun tékka og úttektarmiða í greiðslukorta- viðskiptum, bmna og almanna- hættubrot. Deildarstjóri er Jón H. Snorrason og auk hans starfa í deildinni tveir lögreglufulltrúar og sjö rannsóknarlögreglumenn. IV delld vinnur einkum að skatta- og efna- hagsbrotum svo og öðmm skyld- um brotum eftir ákvörðun rann- sóknarlögreglustjóra. Deildar- stjóri er Amar Guðmundsson og með honum vinna tveir lögreglu- fulltrúar, tveir rannsóknarlög- reglumenn og löggiltur endur- skoðandi. Jaftiframt starfa þrjár aðrar sérdeildir: Boðunardeild annast stjómun fjarskipta, umsjón með bifreiðum RLR, móttöku og boðun þeirra sem óskað er eftir í yfirheyrslur og eftirgrennslan ef menn skila sér ekki á tilteknum tíma. Deildin starfar undir stjóm Helga Daní- elssonar yfírlögregluþjóns og und- ir hann heyra einnig skráninga- deild, sem annast skráningu mála, flokkun og vörslu málaskráa og svo kæramóttaka, sem tekur við fólki, sem kemur gagngert til að kæra mál. í boðunardeild starfa einn lögreglufulltrúi og þrír rann- sóknarlögreglumenn, í skráningu einn rannsóknarlögreglumaður og einn spjaldskrárritari og á kæra- vakt einn rannsóknarlögreglu- maður. Loks má nefna tæknideild, sem annast vettvangsrannsóknir, gerð uppdrátta, sýnatökur, mat á sönnunargögnum og vörsla þeirra og flokkun. Tæknideild er undir stjóm Ragnars Vignis, aðstoðar- jrfirlögregluþjóns og með honum starfa einn lögreglufulltrúi og þrír rannsóknarlögreglumenn. Á skrifstofu starfa tveir menn, við næturvörslu tveir, einn afleys- ingamaður allt árið og með starfs- fólki í mötuneyti era stöðugildin hjá RLR samtals 51. „Yfírheyrslan er oft einn vanda- samasti þáttur rannsóknarferils- ins,“ sagði Arnar Guðmundsson deildarstjóri, er hann var spurður um þennan þátt starfsins. „Það sem við höfum að leiðarljósi er að upp- lýsa málavöxtu í hveiju máli, finna þá seku og ekki síður sanna sak- leysi þeirra, sem hugsanlega hafa verið teknir í yfírheyrslu en reynast saklausir. Við dæmum ekki menn, það er þýðingarmikið að fólk átti sig á því. Yfirheyrslan þjónar aðeins þeim tilgangi að leiða í ljós hið sanna í hveiju máli. Ábyrgð yfirheyranda er því mikil og gera verður þær kröfur að hann sé vel heima í því máli sem um ræðir. Yfírleitt era yfirheyrandi og hinn granaði aðeins tveir við yfir- heyrslu, en sakbomingur getur ósk- að eftir að réttargæslumaður hans sé viðstaddur yfírheyrsluna. Um leið og granaðir era komnir í yfír- heyrslu þarf að hafa hraðar hendur um framvindu mála, því tími sá sem lögregla getur haft menn í haldi við framrannsókn er afskaplega naumur. Ef til vill þarf að kalla til vitni og yfírheyra, það kann eftir atvikum að þurfa að samprófa granaða menn um ýmis atriði sem í milli ber og eftir atvikum að leita til Sakadóms með kröfu um húsleit á fleiri en einum stað, þar sem leit- að er sakargagna vegna þess að ástæða er til að ætla að þar kunni þau að fínnast. Ef menn era í haldi þarf fljótlega að ákveða hvort gera þurfi kröfu um gæsluvarðhald. Slíka kröfu þarf að rökstyðja fyrir dómi. Ef það verður ofan á hefst raunar mjög erfíður þáttur í mál- inu, því stöðugt verður að vinna að málum þeirra manna sem era í haldi. í þessu sambandi er ástæða til að minna á, að þó dómari hafí úr- skurðað mann í gæsluvarðhald, granaðan um afbrot, þá er ekki verið að dæma í máli mannsins og losa skal um gæsluvarðhald um leið og forsendur era komnar fram, til að mynda um leið og ekki er lengur hætta á að granaður maður spilli rannsókn. Rannsókninni sem slíkri þarf þar með ekki að vera lokið. Eftir að mál er upplýst þarf að gera það upp, eins og kallað er. Það þarf að ganga frá því til send- ingar til hins opinbera ákæranda, ríkissaksóknara, sem ákveður um framhald þess og hvort einhver eða einhveijir verði ákærðir." Nauðgunarmál erfið í yfírheyrslu Eins og áður er getið era efna- hagsbrot tímafrekust í rannsókn hjá RLR og flest era þau mál sem tengjast þjófnaðarbrotum. Á hinn bóginn era ofbeldisbrotin oftast al- varlegust og hafa forgang. Má þar nefna nauðganir, sifjaspell og kyn- ferðisafbrot gagnvart bömum svo og líkamsárásir, sem raunar tengj- ast oft þjófnaði, ráni og innbrotum. Kynferðisbrot era að því leyti frá- brugðin öðram brotum að þau geta reynst afar viðkvæm í rannsókn, einkum með tilliti til fómarlamb- anna sjálfra. Þess era mörg dæmi, að konur, sem orðið hafa fyrir nauðgun, gefíst upp í miðri yfír- heyrslu og dragi kærar til baka, þar sem þær treysta sér ekki til að riija atburðina upp eða finnst spurningar yfírheyranda of nær- göngular og niðurlægjandi. Að- spurður um þetta atriði sagði Amar að vissulega væri hér um mjög við- kvæm mál að ræða, þar sem yfír- heyranda væri ærinn vandi á hönd- um. Rannsóknarlögreglumenn lægju stundum undir ámæli fyrir tillitsleysi í þessum efnum, kannski fyrir það eitt að spyijast fyrir um fyrri samskipti kæranda við kærða, ef fyrir liggur að þau þekkjast, sem oft er. Að sögn Árnars koma mál sem þessi ósjaldan upp þar sem áfengi er haft um hönd og aðdrag- andi og aðstæður allar oft harla óljósar. „Við geram okkur fulla grein fyrir viðkvæmni þessara mála, enda era þau oft mjög alvar- legs eðlis, þótt einnig séu dæmi um hitt, að nauðgunarkærar séu byggðar á vafasömum forsendum," sagði hann. Hér getum við staldrað við og horfið aftur að upphafí þessarar greinar varðandi upplýsingatregðu RLR. Menn geta til dæmis spurt sjálfa sig hvaða tilgangi það þjón- aði að gefa nákvæmar upplýsingar um gang rannsóknar í nauðgunar- máli og í hverra þágu slík umfjöllun væri. Rannsóknarlögreglan hlýtur því, eðli málsins samkvæmt, að vera lokuð stofnun og ef til vill er það helsti styrkur hennar að var- kámi gagnvart hvers konar yfírlýs- ingum í fjölmiðlum er þar í heiðri höfð. Vissulega er það hlutverk fjöl- miðla að skýra frá staðreyndum, í sakamálum sem öðram málum. Á sama hátt hlýtur það að vera skylda Rannsóknarlögreglunnar að gefa ekki upplýsingar fyrr en staðreynd- ir liggja fyrir og það getur tæpast orðið fyrr en rannsókn máls er lokið. rakvöld Vals ^r-5- föstudaeinn 20. janúar v \ Dagskra hefst i ;ÍplfelagsKeimili Vals kl. 18.00. \ / Yfirskrift kvöldsins: „Vfö lcikum allir saman“ Miðasala í Hlíðarenda. Verð kr. 3.500,- X ÚTSALAN Kuldastigvél kr.1990- kvenna 2490 ECCO kr. Karlmannaskór 1990 mmm i Laugavegi 95, s.21932 (ÁÖUf SkÓV. ÞÓlÚar R&tUfSs)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.