Morgunblaðið - 15.01.1989, Qupperneq 38
38 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
-4-
ÆSKUMYNDIN. . .
ERAFINDRIÐA G. ÞORSTEINSYNIRITHÖFUNDIOG RITSTJÓRA
ÚR MYNDASAFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Iþróttahetjur
á árum áður
Afreksmenn í íþróttum voni mjög í sviðsLjósinu hér á árum áður,
eins og reyndar enn í dag. í myndasafni Olafs K. Magnússonar
má fínna margar myndir af íþróttamönnum sem teknar eru
ýmist innan vallar sem utan. Myndirnar í þessari syrpu voru
teknar um og eftir 1950 og sýna þrjár íþróttaheijur frá þeim
árum við ólíkar aðstæður.
Mælsku
maðurog
háska
penni?
Mörg sverð sjást á lofti þegar
Indriði G. Þorsteinsson beitir
orðsins brandi. Maðurinn er vel
mælskur og sumir segja jafiivel
að þvílíkur „háskapenni" hafí
ekki skrifað í dagblaðið Tímann
síðan Jónas frá Hriflu var og
hét. Morgunblaðsmanni lék for-
vitni á því að grafast fyrir um
uppvaxtarár Indriða.
Indriði Guðmundur Þorsteinsson
er fæddur 18. apríl 1926 á Gil-
haga í Lýtingsstaðahreppi í Skaga-
firði. Sonur hjónanna Þorsteins
Magnússonar og Önnu Jósepsdótt-
ur. Indriði átti tvo eldri hálfbræður,
Þorberg Þorsteinsson og Amald
Jónsson, einnig eignaðist hann síðar
yngri alsystur, Helgu.
>. A bemsku- og æskuámm Indriða
bjó fjölskyldan á ýmsum jörðum í
Skagafirði en flutti til Akureyrar
þegar Indriði var um fermingarald-
urinn. Þorsteinn var ekki neinn
ríkisbóndi en vel bjargálna og góður
hagyrðingur. Allar heimildir benda
til að á bernskuheimili Indriða hafi
ríkt gott andrúmsloft, gestrisni og
þjóðleg íslensk menning verið í há-
vegum höfð.
Indriði ólst eins og flest sveita-
böm við öll algeng störf en þegar
■0. ftjáls stund gafst var rennt fyrir
silung eða farið á hestbak. Nægar
heimilir em um ást Indriða á hest-
um, eftirlæti hans var hryssan
Hamra-Rauðka. Á vetmm þegar ísa
lagði renndi Indriði sér á skautum.
Heimildir benda ekki til þess að
Indriði hafi verið neinn sérlegur
íþróttagarpur þegar hann var bú-
settur í Skagafirði en hann kvað
síðar hafa spymt knetti með
íþróttafélaginu Þór á Akureyri.
Auk náttúrlegs áhuga Skagfirð-
ingsins á hrossum var Indriði með
„veiðidellu".
Af kennumm Indriða í Skaga-
firði má nefna Felix Jósafatsson og
Jón P. Emils. Skólafélögum hans
ber saman um að hann hafi verið
gamansamur og opinn og „aldrei
hefur skort á að Indriði geti talað“.
Kunningi Indriða frá bemskuár-
unum, Siguijón Jónasson bóndi á
Syðra-Skörðugili, sagði hann hafa
verið „skemmtilegan strák sem
hafði gaman af því að gera grín —
og hann hélt vel við hest“. Siguijón
var inntur eftir hvemig Indriði hefði
verið í viðræðu. „Hann var engu
síður orðheppinn þá heldur en nú,
einbeittur og ákveðinn og lét ekki
hlut sinn.“ Siguijón vildi þó ekki
hafa nein tilsvör Indriða eftir á
prenti í Morgunblaðinu.
Bernskuvinur og leikfélagi Ind-
riða, Valtýr Jónsson frá Glaumbæ,
sagði Indriða hafa verið skemmti-
legan „og alltaf dálítið sérkennileg-
an, hugsaði meira en aðrir. Ágætis
drengur".
Þótt Indriði hafi oft sótt sitt mál
af einbeitni og hörku var honum
einnig lagið að ná sínu fram með
blíðmælgi og lipurð. Þá Indriði var
á níunda ári vistaðist á heimilið
kaupakona, „afskaplega ljúf og in-
dæl manneskja", Indriði mun hafa
komist upp á lag með að láta hana
bera sig á bakinu af engjum heim
á bæ. Hálfbróður Indriða, Arnaldi,
líkaði ekki þessi kvenhylli; bauðst
til að hvfla stúlkuna og bera litla
bróður heim á leið. Arnaldur mun
þó ekki hafa borið þessa byrði lengri
leið en að næsta læk. Þar ofan í
endaði ferðin.
Aeinni þeirra heldur Öm
Clausen, núverandi hæstarétt-
arlögmaður, á syni sínum Hauki
Skúla í lófa sér, en drengurinn var
þá 8 mánaða gamall. Órn sagði
að hugmyndina að þessari uppstill-
ingu hefðu þeir Ólafur K. fengið
úr erlendu blaði, þar sem mynd
birtist af þekktum íþróttamanni
með son sinn sex mánaða í lófan-
um. Haukur Skúli fæddist í ágúst
1952 og myndin hefur því
verið tekin snemma árs
1953.
Önnur er af Vilhjálmi
Einarssyni, sem nú er rektor
Menntaskólans á Egilsstöð-
um, en myndin var tekin við
heimkomuna frá Ólympíu-
leikunum í Melboume í
Ástralíu 1956, þar sem Vil-
hjálmur hreppti silfurverð-
laun í þrístökki. Með Vil-
hjálmi á myndinni em for-
eldrar hans, Sigríður Vil-
hjálmsdóttir og Einar Stef-
ánsson.
Þriðja myndin er svo af
knattspymustjömunni Al-
bert Guðmundssyni
skömmu eftir að hann flutti
heim til íslands eftir fræki-
legan feril sem atvinnu-
knattspymumaður í Frakk-
landi. Albert hefur sem kunnugt
er látið mikið að sér kveða í íslensk-
um stjórnmálum á undanfömum
ámm, en er nú aftur á föram til
Frakklands þar sem hann tekur
við embætti sendiherra íslands.
Að sögn Ólafs K. var myndin tek-
in á skrifstofu heildverslunar Al-
berts Guðmundssonar daginn sem
hann hóf rekstur hennar, um
sumarið 1955.
Knattspyrnukappinn
Albert Guðmundsson skömmu eftir
heimkomuna frá Frakklandi um
miðjan sjötta áratuginn.
STARFIÐ
GÍTARVIÐGERÐIR SIGURÐAR DAGBJARTSSONAR
BÓKIN
ÁNÁTTBORÐINU
PLATAN
Á FÓNINUM
MYNDIN
í TÆKINU
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Dagbjartsson
að störfum.
Ekki hægt að
taka stóifé
Sigurður vinnur í hljóðfæraversl-
uninni Rfn. Auk þess að sinna
viðskiptavinum gerir hann við
gítara sem þangað em sendir til
meðferðar. Hann kvaðst aðallega
gera við rafmagnsgítara en þar að
auki „einstaka kassagítar".
Algengustu viðgerðir em í sam-
bandi við strengina, innbyrðis still-
ingar og festingar. — En einnig fær
Sigurður á sitt borð gítara sem
hafa brotnað.
Það tíðkast að menn vilja fegra
hljóminn í rafmagnsgítumm t.d.
með nýjum tónskynjara (pick-up),
lagfæra tíðnisviðið, skipta um raf-
kerfið o.fl.
Þetta starf reynir skilningarvitin;
augun, eymn og síðast en ekki síst
fingrafimi og „puttatilfmningu".
Sigurður kvaðst hafa leiðst út í
þetta starf á æskuámnum. Þá
leyfðu efnin ekki kaup á nýjum
gítar; varð því að ráði að gera við
bilaðan gítar. Viðgerðin tókst og
nú á Sigurður fjóra. Viðgerðirnar
em „hliðarbúgrein“, „Ekki hægt að
taka stórfé af þessum strákum."
PETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ. . .
Dr. Gunn-
laugur
Þórðarson
hæstarrétt-
arlögmaður.
Traitors and heroes", sjálfsævi-
saga lögfræðingins Martins
Garbus. Ég er rétt byijaður.
Síðasta plata? Ég hlusta töluvert
á plötur. Það var níunda sinfón-
ia Beethovens sem ég hlustaði á.
Það var breska sinfóníuhljómsveitin
sem leik en ég man ekki hver stjórn-
aði flutningnum."
Guðmundur
Magnússon,
fyrrum aðstoðar-
maður Birgjs
ísieifs Gunnars-
sonar mennta-
málaráðherra.
Guðmundur endurskipuleggur nú
flokksstarf Sjálfstæðisflokksins.
Fjandflokkur
launamanna
„Á milli Vöku og Sjálfstæðis-
flokksins, aðal fjandflokks Iauna-
manna á f siandi, eru augljós tengsl...
... hver íhaldsmaðurinn á fætur
öðrum notað félagið sem stökkpall
til metorða í Sjálfstæðisflokknum.
. . .Kjartan Gunnarsson, Vökufor-
ingi, er nýorðinn formaður einhvers
afturhaldssamasta félags norðan
Alpafjalla, Heimdallar...
Guðmundur Magnússon í Stúdenta-
blaðinu 7.tbl.53.árg. 1977.
Þuríður J.
Jónsdóttir
rithöfundur.
Er að risa upp til lífsins. Les
bókina um veginn eftir Lao-Tsé
og sú bók er mér mjög handkær.
Jóhanna
Thor-
steinsson
fóstra.
Einmitt núna var ég að hugsa
um að setja Vetrarferðina eftir
Schubert á fóninn.
Já, Vetrarferðin, einmitt árstím-
inn til að spila þá plötu."
Friðrik
Haralds-
son
leiðsögu-
maður
Hefnd busanna hét myndin.
Þetta var bandarísk mynd.
Satt besta að segja ákaflega mikið
léttmeti. Þráðurinn fór svona inn
um annað og út um hitt.“
Kristinn
Björnsson
afgreiðslu-
maður
Konan valdi stórmerkileg mynd
um kvenlögfræðing, Suspect
heitir hún, mjög góð mynd.“
Og hvað vill hún fá næst?
Núna vill konan fá Nuts með
Barböm Streisand.“
I