Morgunblaðið - 18.02.1989, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
13
Islandssýning á ítalíu í stærsta fjallasafni í heimi:
Almennur áhugí og forvitni
Yfirmaður mennta- og menningarmála Piemonte-héraðs væntanlegur til tslands
Morgunblaðið/Bryi\ja Tomer
Þeir hafa undirbúið íslandssýningnna í Tóríno. Frá vinstri: Alberto Vanelli skrifstofustjóri, Enrico
Nerviani yfirmaður mennta- og menningarmála Piemonte-héraðs, sem kemur til landsins um helg-
ina, og Aldo Audisio framkvæmdastjóri Qallasafnsins.
íslandssýning verður opnuð í
Tórino á Ítalíu 18. april nk., en
undirbúningsstarf hefur staðið
yfir í nærri þijú ár. Safiiið er
hið stærsta sinnar tegundar i
heimi, og er eitt mest sótta og
virtasta safii Tóríno-borgar.
Það hefiir spurst út i Tóríno að
innan skamms verði opnuð ís-
landssýning og er almennur
áhugi á sýningunni. Þvi má gera
ráð fyrir að hún veki mikla at-
hygli og þó ekki sé lögð áhersla
á Island sem ferðamannaland,
er lfldegt að ítölskum ferða-
mönnum fjölgi i kjölfarið.
Enrico Nerviani er yfirmaður
mennta- og menningarmála i Pie-
monte-héraði. Hann er væntanleg-
ur til íslands um helgina til að
ræða við Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra og íslenska sam-
starfsaðila. Nerviani tók við starf-
inu fyrr í vetur og var íslandssýn-
ingin eitt af fyrstu verkefnum
hans. Þess má geta að í Piemonte-
héraði búa um sex milljón manns
og er það eitt ríkasta hérað Ítalíu.
„Það liggur mikil vinna að baki
sýningar sem þessarar," segir
Enrico Nerviani. „íslendingar hafa
átt gott samstarf við fjallasafnið
og ég er stoltur að taka á móti
þeim dýrmætu og merku munum
sem sendir verða á sýninguna. Það
segir mikið um þjóðina sjálfa að
hún skuli lána þýðingarmikla muni
á sýningu erlendis, og ég vona að
með þessu móti verði sýningin tii
þess að kynna sem best þetta land,
sem virðist svo fjarlægt. Á undan-
fömum árum hefur áhugi ítala
vaknað á íslandi, þó almenn þekk-
ing sé takmörkuð.
Menningarsaga Ítalíu og íslands
er frábrugðin, en tvær ólíkar þjóð-
ir nálgast sennilega mest þegar
menningartengsl þeirra aukast og
að því viljum við stuðla."
Álberto Vanelli er aðstoðarmað-
ur Nervianis og hefur frá upphafi
unnið að undirbúningi íslandssýn-
ingarinnar. „Við eigum ýmislegt
sameiginlegt með Islendingum,"
segir hann. „Ég þekki íslenskar
bókmenntir litillega og þær hafa
alla tíð heillað mig. Sýning sem
þessi getur kynnt vel áður lítt
þekkta þjóð. Hér eru það íbúamir
sjálfir sem koma sögu sinni til
skila. í íslenskum bókmenntum og
þjóðháttum kemur hið dularfulla
og yfimáttúrulega mikið við sögu.
Tóríno er einmitt í hinum svokall-
aða yfimáttúmlega þríhymingi og
margir halda því fram að hún sé
undir dulrænum og yfimáttúmleg-
um áhrifum."
Aldo Audisio er framkvæmda-
stjóri fjallasafnsins í Tóríno. „Und-
irbúningsstarfið hefur verið af-
skaplega líflegt," segir hann. „Það
hefur gengið á ýmsu á þessum
tíma og oft hefur útlit verið fyrir
að hlutimir myndu ekki ganga
upp. Á endanum hefur hins vegar
allt gengið eins og í sögu og ég
hlakka mikið til að sjá árangurinn,
Safnið skipuleggur eina stóra sýn-
ing^u á ári, þar sem tiltölulega
óþekkt lönd em tekin til umfjöllun-
ar. 1989 verður tileinkað íslandi,
en að auki skipuleggjum við nokkr-
ar minni sýningar á hveriu ári.
Ég kem nú í þriðja sinn til Islands
vegna undirbúningsstarfsins og
mér finnst ég orðið eiga svolítið í
þessu fallega og óspillta landi."
Sýningin verður haldin í níu
sölum þar sem hver salur verður
tileinkaður ákveðnu þema. Þá
verða myndbönd í gangi allan dag-
inn í sérstökum sal, en Ríkissjón-
varpið hefur lánað 10 klukku-
stunda sjónvarpsefni um land og
þjóð.
Þess má geta að fjallasafnið
opnar innan skamms „litla" sýn-
ingu um auglýsingar, þar sem fjöll
era notuð í auglýsingaskyni, og
var auglýsingaspjald islensku ilm-
vatnanna Mont Bleus valið frá ís-
landi á sýninguna.
Fjallasafnið í Tóríno er í hæðum
borgarinnar, þar sem áður var
aðsetur Cappucini-munka. Kirkja
munkanna er við hlið safnsins, og
í sölunum þar sem íslandssýningin
verður, voru áður svefnherbergi
munkanna. ítalski Alpaklúbburinn
stofnaði safnið árið 1874, en nú
annast Piemonte-hérað rekstur
þess.
Texti: Bryqja Tomer
7
Einstakttilboð!
Seljum næstu daga útlitsgallaða
skápa og húsgögn á stórlækkuðu
verði. Komið á Smiðjuveg 9 í Kópa-
vogi og gerið hagstæð kauo