Morgunblaðið - 18.02.1989, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
Oskjuhlíð - perla Reykjavíkur
eftirPál Gíslason
Fyrir tæplega 50 árum, þegar
Hitaveita Reykjavíkur varð til, var
ákveðið að hún fengi. lóð á toppi
Öskjuhlíðar hér við Reykjavík.
Skilyrði voru þar hin heppilegustu
til að reisa vatnsgeyma til geymslu
og miðlunar fyrir heita vatnið, sem
þá kom allt frá Reylqum í Mosfells-
sveit.
Ekki voru þessir vatnsgeymar
beinlínis augnayndi en ég held að
flestum hafi fundist þeir „hlýlegir"
og skilið nauðsyn þess að þeir væru
staðsettir þama.
Síðan liðu árin og hitaveitugeymar
og varakyndistöðvar voru byggðir
annars staðar, en eftir 40 ár kom
að því að þurfti að endumýja geym-
ana. Það hefur nú verið gert á síðustu
ámm á myndarlegan hátt.
Það hefur lengi verið á huga for-
ráðamanna Hitaveitu Reykjavíkur að
gera skal við Öskjuhlíðina, sem svo
vel hefur reynst og skapað stöðug-
leika í rekstri og öryggi á erfiðari
tímum.
Á liðnum ámm hefur Hitaveitan
veitt fé til skógræktar og aukins
gróðurs í Öskjuhlíðinni. Oft hafa
komið fram hugmyndir um að byggja
veglegt hús ofan á vatnsgeymana —
útsýnishús á Öskjuhlíð. Liggja fyrir
nokkrar teikningar af slíkum húsum,
en ekkert varð úr þessu.
Þegar svo ljóst varð að byggja
þyrfti nýja geyma með traustari
gmnni og veggjum, þótti rétt að reisa
í framhaldi og samhengi við vatns-
geymana byggingu ofan á þá sem
væri myndarlegt útsýnishús með
veitinga-aðstöðu.
Var Ingimundi Sveinssyni arkitekt
Nú kynnum við nýja Magnamín
belgi sem eru minni en áður
en innihalda sömu bætiefni.
Nýju belgirnir hafa þann kost að það er
mjög auðvelt að kyngja þeim og þar við
bætist að fleiri belgir eru í hverju glasi.
Magnamín, íslensku bætiefnabelgirnir, eru
sérstaklega saman settir með þarfir íslend-
inga í huga. í þeim er að finna flest þau
bætiefni sem nauðsynleg eru til að halda
heilsu í nútímaþjóðfélagi.
Magnamín inniheldur 24 nauðsynleg víta-
mín og steinefni sem íslendingar á öllum
aldri þarfnast.
Betri kaup! Hvert glas inniheldur nú 100
belgi í stað 70.
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík.
o
„Hitaveitan hefur haft
þennan fallega útsýnisstað,
sem er mest áberandi stað-
ur í borginni til notkunar
I upp undir 50 ár. Henni
ber skylda til að láta hann
til sin taka og gera hann
svo úr garði að hann sé
bæði henni og borginni til
sóma.“
falið ásamt sínum mönnum að teikna
slíkt hús. Er ekki að orðlengja það
að ölium, sem séð hafa, lýst vel á
hvemig til hefur tekist. Eru menn
sammála um að þetta hús muni,
þegar upp er komið, verða prýði
Óskjuhlíðar — ef til vill mætti segja
— „Perla Reykjavíkur" —, sem mun
verða eitt af þvi, sem allir verða að
sjá og njóta. Bæði verður húsið
augnayndi að horfa á víðast hvar
úr Reykjavík og nágrenni og þar
verður hægt að njóta útsýnis hins
besta yfir sömu hverfi borgarinnar
og nágrannabyggða auk hinnar
'glæsilegustu flallasýnar, sem býðst
hér um slóðir.
í húsinu verður myndarlegt gróð-
urhús — Vetrargarður — þar sem
sýnt er hvað hægt er að rækta við
heita vatnið okkar. Þar verður gott
rými fyrir listsýningar, sérstaklega
höggmyndir, en líka fyrir hljómleika,
samkomur o.fl. f kjallara verða salir
til ráðstefnuhalds.
Ofan á geymunum kemur stór
opinn útsýnispallur, en líka pallur í
slq'óli. Þar er tækifæri til að kynna
Reykjavík og þá sérstaklega Hita-
veitu Reykjavíkur, en ekki síður
ferðamál í höfuðborginni. Undir
glæsilegum glerhjálmi verður svo
veitingastofa, þar sem menn geta
líka notið útsýnis á meðan þeir njóta
veitinga.
En nú spyija menn: „Af hveiju á
Hitaveitan að gera þetta?"
Það er nokkuð augljóst. Hitaveitan
hefur haft þennan fallega útsýnis-
stað, sem er mest áberandi staður í
borginni, til notkunar í upp undir 50
ár. Henni ber skylda til að láta hann
til sín taka og gera hann svo úr
garði að hann sé bæði henni og borg-
inni til sóma. Því var ákveðið að fara
út í þessa framkvæmd um leið og
vatnsgeymamir væru endumýjaðir.
Nú em þessar framkvæmdir
komnar vel á veg og allir samningar
um að gera húsið fokhelt gerðir fyr-
ir all-löngu, enda sérstæð bygging
og mikla forsjálni þarf þar til.
„En hefur Hitaveitan ráð á þessu?"
Hitaveitan er nú í miklum fram-
kvæmdum á Nesjavöllum, sem kosta
um 3 milljarða króna. Unnið hefur
verið að þessum virkjunarfram-
kvæmdum í mörg ár en svo vel hef-
ur verið haldið á þeim málum undir
ömggri stjóm Jóhannesar Zoega
hitaveitustjóra og hans manna, að
Hitaveitan hefur getað unnið þetta
allt af eigin fé og það eina sem á
að taka að láni em 270 milljónir
króna í ár, sem greiðist væntanlega
aftur að ári. Hér er allur munur að
flármagnskostnaður hefur ekki hlað-
ist upp gegnum árin.
Það er augljóst að Hitaveita
Reylq'avíkur mun áfram geta veitt
ömggan og ódýran hita í hús Reyk-
víkinga og nágranna þeirra, en jafn-
framt séð um að mannvirki hennar
séu öllum til sóma.
Við getum séð fyrir í næstu
framtíð að borgarbúar og gestir
þeirra geti fyrst gengið um miðbæinn
okkar í Kvosinni. Farið síðan og
skoðað hið nýja Ráðhús Reykjavíkur
og notið listaverka sem þar em sýnd
við Tjömina að bakgrunni. Síðan
liggur leiðin upp á Öskjuhlíð, þar sem
þeir skoða hvemig list og gróður, í
skjóli Vetrargarðsins, nýtur sín, en
ofar í húsinu er hægt að sjá vítt um
borgina, nágrennið og skoða fjalla-
hringinn. Eftir að hafa notið máls-
verðar í yndislegu umhverfi, er farið
niður að Sundahöfn og siglt út í
Viðey þar sem hægt er að njóta út-
ilífsins og skoða virðuleg mannvirki
til kvölds.
Við skulum ekki láta úrtölumenn,
sem alltaf em til þegar eitthvað
myndarlegt á að gera, telja úr okkur
lq'ark og dug til að halda áfram með
mannvirki, sem verða okkur til sóma
og enginn vill vera án síðar.
Minnumst þess að Öskjuhlíðin á
að verða perla Reykjavíkur.
Höfíwdur er einn borgarfíilltrúa
SjálfstseðiaOokksins ÍRevkwvik.