Morgunblaðið - 18.02.1989, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
nnnnnnn
HWHHr3
Industrial
HJOLAGROFUR
Þetta eru án efa bestu bílakaup
ársins.
TRYGGIÐ YKKUR ÞVÍ BÍL STRAX !!
Opið laugardaga frá kl. 1—5
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1. S. 68 12 99
Höfundur er íslenskufræðingur
ogstarfará Auglýsingastofunni
Yddu.
Norræna húsið:
2 stk. 323 GTi 105 hö. 3d. vökvast./álfJvindsk.
1 stk. 323 GTi 105 hö. 4d. vökvastJálfJvindsk
1 stk. 626 LX 4d. 5 gíraJvökvastýri..........
3 stk. 626 LX 5d. sjálfskJvökvastýri.........
3 stk. 626 GLX 4d. sjáifskJvökvastýri........
3 stk. 626 GTi 148 hö. 2d. vökvastJálfJvindsk.
2 stk. 929 GLXi 4d. sjálfskJvökvastJsóllúga .
Verð nú Veró áður Þú sparar
729.000 909.000 180.000
745.000 934.000 189.000
769.000 954.000 185.000
848.000 1.043.000 195.000
895.000 1.103.000 208.000
1.045.000 1.270.000 225.000
1.149.000 1.380.000 231.000
BANDARÍSKI píanóleikarinn Al-
an Mandel leikur bandaríska
píanótónlist á næst siðustu tón-
leikum Myrkra músíkdag'a en þeir
verða haldnirí Norræna húsinu á
morgun sunnudag og hefjast
klukkan 16.00.
Alan Mandel hefur undanfarin ár
haldið tónleika í Bandaríkjunum,
Evrópu, Asíu, Astralíu, Sovétríkjun-
um, Austurlöndum nær og Afríku.
Mandel er forstöðumaður og
kennari við píanódeild American
University í Washington D.C. og er
listrænn stjómandi Washington
Music Ensemble.
Verkin sem flutt verða á tónleik-
unum hafa fæst verið spiluð hér á
landi áður en þau eru, Airplane Son-
ata eftir George Antheil, Abandoned
Bells eftir William Mayer, Fourth
Sonata op. 50 eftir Edward McDow-
ell og Sonata No 2 for piano, eftir
Charles Ives. Auk Alans Mandels
píanóleikara kemur fram á tónleik-
unum Kolbeinn Bjamason flautu-
leikari.
Vió vorum að fá örfáa MAZDA bíla af árgerð 1988,
sem verða seldir í dag og næstu daga með STÓR-
AFSLÆTTI!
Hvort er betra,
Kýpur eða Kípur?
Myrkir
músíkdagar
11.-23. febrúar
eftir Ragnhildi
Richter
í nýútkomnum ferðabæklingi
Ferðaskrifstofunnar Úrvals hefur
stafsetning landaheitanna Kípur og
Egiptaland vakið nokkra athygli og
jafnvel undrun. Þar sem ég samdi
texta bæklingsins og ber nokkra
ábyrgð á stafsetningu þessari þykir
mér rétt að eftirfarandi komi fram.
í Málfregnum, tímariti íslenskrar
málnefndar, 2. árg. 1. tbl. maí 1988,
birtist grein eftir Baldur Jónsson
prófessor í íslenskri málfræði og
forstöðumann íslenskrar málstöðv-
ar. í greininni, sem heitir einfaldlea
„Egiptaland og Kípur“, veltir Baldur
fyrir sér stafsetningu þessara landa-
heita og leitar niðurstöðu „í sam-
ræmi við meginreglur sem farið er
eftir í íslenskri réttritun".
Niðurstaða Baldurs er sú að rétt
sé að rita Egiptaland og Kípur,
hvorki séu málsöguleg né hljóð-
fræðileg rök fyrir því að rita y og ý
í þessum landaheitum. Þeim sem
áhuga hafa á að kynna sér rannsókn
Baldurs á sögu þessara landaheita
í íslensku ráðlegg ég að les_a grein-
ina. Málfregnir fást hjá íslenskri
málstöð, Aragötu 9, Reykjavík, sími
91-28530.
Allir sem starfa að ferðamálum
og láta sig íslenskt mál einhverju
varða hljóta að taka undir upphafs-
orð Baldurs í greininni:
Eitt af þeim vandamálum, sem nú
er við að glíma í íslenskri stafsetn-
ingu, er ritun landa- og ríkjaheita.
Mörg ríki hafa komið til sögunnar
á síðustu árum eða áratugum og
eiga sér nöfn sem íslendingum eru
enn ótöm. Þá getur verið erfítt að
átta sig á stafsetningu þeirra.
Um Egiptaland og Kípur segir
Baldur að gegni öðru máli, þau „eru
ævagömul, hafa verið nefnd á
íslenskum bókum allt frá elstu ritum
til vorra daga og eru íslensk nöfn
þótt stofninn kunni að vera útlend-
ur“.
Ragnhildur Richter
„Þess er þó að vænta
að menn venjist þessari
stafsetningu fljótlega
o g að áður en langt um
líður detti engum í hug
að rita y í Egiptaland
ogýí Kípur. Því þótt
við liöfum látið önnur
tungumál rugla okkur
í ríminu um tíma að
þessu leyti viljum við
þrátt fyrir allt ennþá
hafa það sem sannara
reynist.“
Nú kemur það ekki á óvart að
mönnum bregði fýrst þegar þeir sjá
orð stafsett á annan hátt en þeir eru
vanir. Um það er ekki nema gott
eitt að segja því það sýnir að mönn-
um er annt um móðurmálið.
Þess er þó að vænta að menn
venjist þessari stafsetningu fljótlega
og að áður en langt um líður detti
engum í hug að rita y í Egiptaland
og ý í Kípur. Því þótt við höfum
látið önnur tungumál rugla okkur í
ríminu um tíma að þessu leyti viljum
við þrátt fyrir allt ennþá hafa það
sem sannara reynist.
FJOLBREYTT URVAL...
Massey-Ferguson hjólagröfurnar eru mest seldu
vinnuvélar hér á landi. í þeim fer saman
hæsta ncta- og endursölugildi. Athugið að gera pöntun ykkar
tímanlega og samninga um frágang á sérbúnaði.
Við vekjum athygli á hagkvæmum kjörum til greiðslu á 5 árum.... 5 ARUM.
Vinnuvélaeigendur — Verktakar!
Gerið ráðstafanir í tæka tíð!
Kaupfélögin og
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SÍMI 38900