Morgunblaðið - 18.02.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
Ozonlagið yfir norður-
skautssvæðinu þynnist
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÓZONLAGIÐ hefiir þynnzt veru- höfiim. Fyrir
lega á nokkrum svæðum yfir
norðurskautssvæðinu, en þó er
hvergi gat á því. Er það niður-
staða nýlokinna rannsókna 80
vísindamanna frá mörgum lönd-
um á ózonlaginu yfir Norður-
skömmu fundu
kanadískir visindamenn lítið gat
á laginu vestur af Grænlandi.
Við rannsóknimar var notuð há-
fleyg flugvél, sem fór 28 könnunar-
ferðir til svæða norður af og í ná-
grenni Svalbarða. Prófessor Ivar Is-
Atlantshafsbandalagið:
Þrjátíu ár frá upp-
hafi vísindasamstarfe
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, firéttaritara Morgunblaðsins.
VÍSINDAMENN frá öllum aðild-
arríkjum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) komu saman f höfuð-
stöðvum bandalagsins í gær til
að minnast þess að á síðasta ári
voru þijátíu ár liðin frá því að
ákveðið var að efla skipulega
tifverðir Willie Mandela:
Bendlaðir við
hvarf tveggja
blökkumanna
Jóhannesarborg. Reuter.
Lögregluyfir-
völd í Suður-
Afríku skýrðu
frá því í gær að
verið væri að
rannsaka hvort
lífverðir Winnie
Mandela, eigin-
konu blökku-
mannaleiðtog-
ans Nelsons
Mandela, væru viðriðnir hvarf
tveggja ungra blökkumanna.
Aður höfðu lífverðimir verið sak-
aðir um að hafa myrt ungling eftir
að hafa rænt honum af heimili prests
í Soweto.
Stærsta dagblað blökkumanna í
Suður-Afríku, The Sowetan, lýsti því
yfír í gær að stjómmálaferli Winnie
Mandela væri lokið. Óstaðfestar
fregnir herma að Mandela, sem suð-
ur-afrískir blökkumenn hafa veg-
samað sem „móður þjóðarinnar",
myndi bráðlega reyna að flýja land.
samstarf aðildarrikjanna á sviði
vísinda og menningar. Vísindaráð
NATO hefiir yfirumsjón með
þessu umfangsmikla samstarfi
sem óformlega er stærsti háskóli
í veröldinni.
Fulltrúi íslands í ráðinu er dr.
Sturla Friðriksson. Fréttaritari
Morgunblaðsins ræddi við hann í
höfuðstöðvum Atlantshafsbanda-
lagsins í gær. Sturla sagði að til
vísindasamstarfsins hefði verið
stofnað til að styrkja framgang
vísinda meðal aðildarríkja banda-
lagsins. Vísindaráðið fengi fjárveit-
ingar frá aðildarríkjunum og þetta
fé væri síðan notað til að stuðla að
vísindalegri samvinnu á milli vest-
rænna ríkja. „Þessi þáttur hefur
verið sérstaklega þýðingarmikill fyr-
ir okkur íslendinga", sagði Sturla,
„við höfum ekki haft aðgang að
neinum öðrum alþjóðastyrkjum til
framhaldsnáms í vísindum. _ Þetta
hefur verið vísindaþekkingu íslend-
inga mikil lyftistöng og orðið til
þess að veita aukinni þekkingu inn
í landið." Sturla Friðriksson sagði
að jafnframt námsstyrkjum veitti
vísindasjóðurinn styrki til vísinda-
legra verkefna sem unnin væru í
samvinnu rannsóknaraðila í hinum
ýmsu aðildarríkjum. Með þessum
hætti hefðu íslenskir vísindamenn
fengið tækifæri til að starfa með
erlendum rannsóknarstofum, m.a.
við íslensk verkefni. „Vísindasam-
starfíð hefur haft mikla þýðingu í
þróun vísinda á Vesturlöndum og
heiminum öllum," sagði Sturla,
„þessi starfsemi skiptir miklu máli
í samstarfí aðildarþjóða bandalags-
ins og er tvímælalaust einn áf hom-
steinum þess."
aksen, sem tók þátt í þeim, sagði í
gær að á sumum stöðum hefði_ ózon-
lagið þynnzt um helming. Ástand
lofthjúpsins hefði víða reynzt svipað
og yfir suðurskautslandinu, en talið
hefur verið að gat væri komið á
ózonlagið þar um slóðir.
Að sögn Isaksens fannst klórgas
í svipuðum mæli í heiðhvolfinu yfír
norðurskautssvæðunum og yfir suð-
urskautslandinu. Efnasamsetning
lofthjúpsins hefði tekið breytingum,
sem ekki væri séð fyrir endann á.
Efni sem ynnu á ózonlaginu hefðu
fundizt í neðri hluta heiðhvolfsins,
sem er á milli veðrahvolfsins og
miðhvolfsins, í mun meiri mæli en
búist hefði verið við. Ástæða væri
til að ætla að magn þeirra ætti frek-
ar eftir að aukast. Gat hafí þó ekki
fundizt á ózonlaginu og hafí það í
sjálfu sér ekki verið tilgangur rann-
sóknanna að leiða í ljós hvort svo
væri, en í fyrradag sögðust kanadí-
skir vísindamenn hafa fundið gat á
ózonlaginu yfir Baffínslandi, vestur
af Grænlandi.
í niðurstöðum sínum segja
vísindamennimir að full ástæða sé
til að hafa áhyggjur af breytingum
á ózonlaginu yfír norðurskautssvæð-
inu þar sem meirihluti jarðarbúa búi
norðan miðbaugs. Efnum, sem ynnu
á laginu, væri sleppt út í andrúms-
loftið í mun meira magni þar.
Karl Gústaf Svíakonungur sést hér sýna hrifiium þegnum sinum
árangurinn af veiðiferð í Svíþjóð.
Norðmenn lítt hrifiiir af Karli Gústaf XVI:
Svíakonungrir sak-
aður um kjánaskap
Deilan talin verða helsta málið á væntanlegnm fundi N orðurlandaráðs
Ósló, Stokkhóbni. Frá NJ. Bruun og Erik Liden, fréttariturum Morgunblaðsins. NTB.
HEIFTARLEGAR deilur Norðmanna og Svía vegna selveiða hinna fyrr-
nefhdu eru nú taldar verða helsta málið á fiindi Norðurlandaráðs sem
verður í Stokkhólmi í lok mánaðarins. Vitað er að danskir, grænlensk-
ir og sænskir þingmenn munu taka málið upp á þeim vettvangi. Það
eru einkum ummæli Karls Gústafs Svíakonungs sem fara fyrir bijóstið
á Norðmönnum, en konungur gaf í skyn að Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, væri slakur stjórnmálamaður ef hún stöðv-
aði ekki veiðarnar.
Danska blaðið Jyllands-Posten
hefur eftir Sten Andersson, utanrík-
isráðherra Svíþjóðar, að konungur
Fjöldamorðin í Katyn-skógi:
Pólskt vikurit bendlar
Sovétmenn við glæpinn
Varsjá. Reuter.
'OPINBERIR fiölmiðlar í Póllandi hafa í fyrsta sinn gefið i skyn
að Sovétmenn hafi verið ábyrgir fyrir morðum á meira en 4.000
foringjum í pólska hemum á striðsárunum. Þjóðveijar fimdu fjölda-
gröf í Katyn-skógi i Sovétríkjunum 1943 en Sovétmenn og pólskir
valdhafar hafa ávallt kennt Þjóðveijum sjálfiim glæpinn. Nefiid
pólskra Rauðakrossmanna, er Þjóðveijar kölluðu á vettvang, kann-
aði málið 1943 og komst að þeirri niðurstöðu að mennimir hefðu
verið drepnir árið 1940, áður en herir Hitlers tóku landsvæðið af
Sovétmönnum. Haustið 1939 skiptu Þjóðveijar og Sovétmenn Pól-
landi á milli sín og þá náðu herir Sovétmanna 15.000 pólskum her-
foringjum á sitt vald. Ekkert er vitað um afdrif 11.000 pólskra
herforingja.
Vikuritið Odrozenie, sem gefið
er út af opinberum, kommúnískum
„ regnhlífarsamtökum“, birtir ítar-
lega skýrslu um málið, þ.á m. kafla
úr dagbók eins herforingjanna,
Solskis majórs. Bókina fundu
Rauðakrossmennimir 1943.
Skýrsla þeirra um málið lá hins
vegar óhreyfð í hirslum breska ut-
anríkisráðuneytisins ásamt öðrum
afar leynilegum skjölum. Að sögn
pólsks sagnfræðings, Wlodzimierz
Kowalskis, sem fann skýrsluna í
Bretlandi héldu Bretar þessum
upplýsingum leyndum á stríðsárun-
um fyrir pólsku útlagastjóminni,
þar sem borgaraleg öfl voru í meiri-
hluta, og telur hann að breska
stjómin hafí álitið skýrsluna geta
skaðað „tengsl ríkisins við önnur
lönd." Sagnfræðingurinn krefst
þess nú að skjalasafn sovésku
leyniþjónustunnar verði opnað til
að sannleikurinn komi í ljós. Opin-
ber nefnd sovéskra og pólskra
sagnfræðinga kannar nú Katyn-
morðin og er starf hennar liður í
yfirlýstri tilraun ríkjanna beggja
til að fylla „auðar síður“ í sam-
skiptasögu þeirra. Blaðamenn
Odrozenie segja að ritskoðunar-
menn yfírvalda hafi verið sex mán-
uði að ákveða hvort þeir ættu að
leyfa birtingu skýrslunnar f ritinu.
Dagbók Solskis lýkur 9. apríl
1940. Hann skrifar að snemma
morguns hafí hann, ásamt hóp
annarra foringja, verið fluttur til
borgarinnar Smolensk. „Rétt fyrir
fímm um morguninn vöktu þeir
okkur, ráku okkur um borð í vöru-
bfla sem voru hlutaðir niður í klefa
er var vandlega gætt. Við komum
í dálítinn skóg þar sem allt minnti
á sumarleyfisbúðir. Þar tóku þeir
af okkur úr, hringa,...mittisólar og
hnífa. Hvað verður gert við okk-
ur?“ Þetta eru síðustu orðin í dag-
bókinni.
Rauðakrossnefndin pólska lét
grafa upp rúmlega 4.200 lík áður
en Þjóðvetjar sögðu þeim að hætta
og er mögulegt að nokkur hundruð
í viðbót hafi verið í gröfinni. Her-
foringjarnir höfðu allir verið skotn-
ir í hnakkann.
hljóti að hafa verið „mjög æstur" er
hann sagði þetta. Sænskur almenn-
ingur fylkir sér hins vegar að baki
konungi og kom það skýrt fram í
símatíma sænska blaðsins KvÁlls-
posten á fímmtudagskvöld.
Grænlenski þingmaðurinn Otto
Steenholdt hefur lýst andstyggð sinni
á veiðum Norðmanna. Segist hann
ætla að hefja undirskriftasöfnun
meðal Grænlendinga þar sem „illri
meðferð" Norðmanna á selum verði
mótmælt.
Blöð stjómarflokks jafnaðar-
manna í Svíþjóð telja að vísu óheppi-
legt að konungur skyldi hnjóða í
Brundtland forsætisráðherra, sem
hefur haft sig mjög í ffammi í um-
hverfísvemdarmálum á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna. Á hinn bóginn
segja blöðin að konungur hafi rétt
til þess sem mannvera og formaður
Svíþjóðardeildar Alþjóðanáttúm-
vemdarráðsins að gagnrýna slæma
meðferð á dýmm og ólöglegar veið-
iaðferðir á sel.
Afskipti konungs hafa fengið væg-
ast sagt slæmar móttökur í Noregi.
Dagbladet segir að það sé einróma
álit í norska Stórþinginu að Svíakon-
ungur hafi hagað sér eins og lq'áni.
Hann hafi tekið þátt í viðkvæmu,
pólitísku innanlandsmáli í Noregi
með álíka yndisþokka og naut í
postulínsverslun. Þingmenn viti ekki
fyllilega hvort þeir eigi að velta vöng-
um yfir afskiptum hans, sem ekki
eigi sér fordæmi hjá nútímakonung-
um, eða einfaldlega hlæja að þessu.
Konungur hafi sýnt lélega dómgreind
og málið sé fyrst og fremst vand-
ræðalegt fyrir sænsku þjóðina. Það
bæti ekki úr skák áð sagðar séu
frægðarsögur af elgdýraveiðum
sænsku konungsflölskyldunnar og
sænsku umhverfísvemdarstofnun-
inni hafí auk þess borist kæra vegna
framferðis konungs í sænska skeija-
garðinum. Hann hafi siglt hraðbát
sínum á 110 km hraða - rétt fram
hjá selalátri. „Það fáránlega er að
hann tekur undir áróðurinn gegn
Norðmönnum án þess að hafa séð
myndina [mynd Odds Lindbergs um
selveiðar Norðmanna sem valdið hef-
ur deilunum]...En Karl Gústaf er
enginn raunvemlegur konungur og
óþarfí fyrir norsk yfirvöld að bregð-
ast við ummælum hans,“ segir norski
þingmaðurinn Hanna Kvanmo, sem
hefur annars gagnrýnt selveiðamar.
Loks má geta þess að Dagbladet-
birti í gær tvær síður sem helgaðar
vom kímnisögum af Svíum og aula-
skap þeirra.
Leiðrétting
Á forsíðu Morgunblaðsins mið-
vikudaginn 15. febrúar birtist
frétt frá fréttaritara breska dag-
blaðsins The Daily Telegraph í
Moskvu þar sem sagði að um-
bótasinnaðir menntamenn hefðu
komið saman þar í borg til að
minnast þess að 25 ár væm lið-
in frá því sovéski nóbelsverð-
launahöfundurinn Alexander
Solzhenítsyn var sendur í útlegð.
Frétt þessi birtist einnig með
þessum hætti í The Daily Te-
legraph en Morgunblaðið er
áskrifandi að fréttaþjónustu
blaðsins. ,
Áraijöldinn í fréttinni er rang-
ur átti að vera 15 í stað 25.
Solzhenítsyn var sendur í útlegð
í febrúar árið 1974 og hefur því
dvalist í 15 ár utan Sovétríkj-
anna.
Morgunblaðið biður lesendur
sína velvirðingar á þessum mis-
tökum.