Morgunblaðið - 18.02.1989, Blaðsíða 29
.Bt hbíugjlicu.ii íKíM3Hj:}(>v
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
Nefiidarálit Sjálfstæðisflokks og Borgaraflokks:
Lánsflárásókn stjórn-
arinnar ýtir upp vöxtum
V erulegur ríkissj óðs- og viðskipta-
halli samhliða stórauknum sköttum
„Frumvarp til lánsQárlaga ber stefiiu ríkisstjómarinnar glöggt
vitni. Stefiit er að auknum lántökum erlendis og vaxandi umsvifum
opinberra aðila á innlendum iánamarkaði. Á hinn bóginn er ekki
að sjá, að í deiglunni séu neinar þær aðgerðir, sem stöðvi hallarekst-
ur fyrirtækja í útflutnings- og samkeppnisgreinum. Fyrirsjáanlegt
er, að lánsQárþörfin er stórlega vanmetin í lánsQáráætlun. Enginn
vafi leikur á, að efiiahagsstefiia ríkisstjórnarinnar hefúr tilhneig-
ingu til að ýta vöxtum upp á við.“
Þannig hefst sameiginlegt nefnd-
arálit þingmanna Sjálfstæðisflokks
og Borgaraflokks — í fjárhags- og
viðskiptanefnd efri deildar Alþingis
— um stjómarfrumvarp til láns-
flárlaga fyrir árið 1989. Undir álit-
ið rita: Halldór Blöndal (S/Ne),
Júlíus Sólnes (B/Rn) og Sólveig
Pétursdóttir (S/Rvk).
Útflutningsatvinnu-
vegimir ganga fyrir
erlendum lánum
Halldór Blöndal (S/Ne) mælti
fyrir nefndarálitinu $ þingdeildinni
í gær. Hann sagði meira en vafa-
samt að ákvörðun ríkisstjómarinnar
um erlendar lántökur upp á 21.000
milljónir króna standist. Reynslan
sýnir, segir í nefndarálitinu, „að
þrjú síðastliðin ár hafa erlendar lán-
tökur farið fram úr upphaflegum
áætlunum sem nemur 50-130% ...
Þar kemur hvort tveggja til almenn
tilhneiging ríkisstjóma til að fegra
lánsfjáráætlun og þær sérstöku
aðstæður nú, þegar útflutningsat-
vinnuvegimir em látnir ganga fyrir
erlendu lánsfé og gengið er á eigið
fé fyrirtækjanna. Loks er vafalaust
að ríkissjóður verður rekinn með
verulegum halla þrátt fyrir nýju
skattaálögumar og viðskiptahall-
ann, sem Seðlabankinn telur að
verði 11 milljarðar kr. Þetta gerist
á sama tíma og fyrirsjáanlegt er
að lífskjör munu halda áfram að
versna, en atvinnuleysi hefur verið
meira síðastliðna mánuði en um
árabil eða jafnvel áratugi."
Fjármál ríkisins
fóru úr böndunum
í nefndarálitinu segir:
„Ríkisstjómin hefur verið stór-
tæk í lántökum á erlendum mark-
aði og ekki sýnilegt að þar verði
neitt lát á. Rétt er að rifja upp, að
við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið
1988 vom vemlegar skattahækk-
anir samþykktar sem höfðu það
m.a. að markmiði að raunvextir
lækkuðu með því að dregið yrði úr
lánsfjárþörf ríkissjóðs. En allt fór
það á annan og verri veg. Fjármál
ríkisins fóm úr böndunum í höndum
tveggja flármálaráðherra og niður-
staðan varð sú, að ríkissjóður var
rekinn með ríflega 7.000 m.kr. halla
sem ijármagnaður er með erlendum
lántökum. Sé reiknað með 7% raun-
vöxtum verður vaxtakostnaðurinn
um hálfur milljarður króna á ári,
sem er lýsandi fyrir þá bagga, sem
nú er verið að binda þjóðinni, —
lýsandi fyrir afleiðingar þeirrar
óstjómar, sem íslendingar búa nú
við...“
LánsQárhungur ríkisins
og vaxtaþróunin
í álitinu segir og:
„í lánsíjáráætlun er gert ráð fyr-
ir, að 15,5 milljarðar króna verði
teknir að láni innanlands af ríkis-
sjóði og öðmm opinbemm aðilum.
Þar munar mest um skuldabréfa-
kaup Byggingarsjóðs ríkisins og
Byggingarsjóðs verkamanna sem
skv. lánsfjáráætlun munu nema
ríflega 8,8 milljörðum kr., en um
sl. áramót vom 10.000 lánsumsókn-
ir hjá sjóðunum en gert ráð fyrir
að afgreiða 3.500-4.000 umsókn-
ir...
Gert er ráð fyrir sölu á spariskír-
teinum ríkissjóðs fyrir allt að 5,3
milljarða króna. Þessi lánsfjáröflun
er háð mikilli óvissu. Aðeins hafa
selzt spariskírteini fyrir ríflega 300
m.kr. frá áramótum á sama tíma
og spariskírteini hafa verið innleyst
fyrir 1.200 m.kr., sbr. frétt í Morg-
unblaðinu ... Þar kemur enn frem-
ur frám, að eftirspum sé dræm hjá
verðbréfasölum eftir spariskírtein-
um ríkissjóðs, en hinsvegar seljist
banka- og sjóðabréf vel. Markaður-
inn virðist ekki taka við verðtryggð-
um bréfum með minna en 8% vöxt-
um, en spariskírteini ríkissjóðs, sem
gefin hafa verið út á þessu ári,
bera 6,8% og 7% vexti.
Nú stendur upp á ríkisstjómina
að skýra fyrir almenningi hvenær
og hvemig hún ætli að efna með
raunhæfum hætti fyrirheitið um
lækkun raunvaxta um 3%, þannig
að vextir af spariskírteinum ríkis-
sjóðs, sem mynda gmndvöll ann-
arra vaxta, verði 5%.“
Framlög til vegagerðar
stórskert
Halldór sagði að ríkisstjómin
stefndi að því að stórskerða framlög
til vegagerðar, en þessi mál heyrðu
undir tvo ráðherra Alþýðubanda-
Halldór Blöndal.
lagsins, samgönguráðherra og fjár-
málaráðherra.
í þessu frumvarpi væri gert ráð
fyrir því skerða framlög til vega-
gerðar frá ákvæðum annarra laga
um 680 m.kr. af tekjum af benzín-
gjaldi og þungaskatti. Þessir fjár-
munir skuli renna í ríkissjóð. Ef
meiri hluti Alþingis samþykkir
þessa skerðingu skatttekna af um-
ferðinni er stigið óheillaspor, sagði
þingmaðurinn, „þar sem samkomu-
lagpð um álagningu benzingjalds og
þungaskatts var á sínum tíma bund-
ið því skilyrði, að það rynni heilt
og óskipt til vegamála. Það var
m.a. rökstutt með því gagnvart
stijálbýlinu að ömggar og greiðar
samgöngur milli héraða og lands-
fjórðunga væri forsenda heilbrigðr-
ar byggðastefnu. Á höfuðborgar-
svæðinu em og ýmsar fjárfrekar
framkvæmdir orðnar mjög aðkall-
■ andi vegna slysahættu og vaxandi
umferðar.
Umþóttun í kjölfer verðstöðvunar
Ríkisstjórnin hefúr lagt fram frumvarp til laga um „umþóttun
í kjölfar verðstöðvunar", í tengslum við efiiahagsaðgerðir sínar.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir að verðlagsyfirvöld geti gripið
inn í ef verðhækkanir reynast vera umfram það sem brýn kostnað-
artilefiii og afkoma fyrirtækjanna gefa tilefiii til. Sólveig Péturs-
dóttir (S/Rvk) sagði í umræðum um frumvarpið i efri deild Al-
þingis í gær, að hér væri á ferðinni veigalítið frumvarp og að
efnahagsaðgerðir stjórnarinnar fælust að mestu í efiiisrýrum
yfirlýsingum, sem lítil áhrif hefðu á þann vanda sem þjóðin býr
nú við.
Sólveig sagði að á meðan heim-
ili og launþegar landsins byggju
við launafrystingu og rýrnandi
kaupmátt og fyrirtækin við verð-
stöðvun, þá hefði ríkisstjómin
sjálf þverbrotið eigin verðstöðvun;
skattar á einstaklinga og fýrir-
tæki hefðu verið stórauknir og
ýmis opinber fyrirtæki hefðu
fengið heimild til verðhækkana.
Þetta væri í takt við þá lítilsvirð-
ingu, sem sumum forystumönnum
stjómarflokkanna þóknaðist að
sýna almenningi.
Sólveig lýsti efasemdum sínum
um ýmis atriði frumvarpsins.
Vitnaði hún meðal annars í orð
verðlagsstjóra, þar sem hann seg-
ir, að það mat á verðhækkunum,
sem gert er ráð fyrir í frumvarp-
inu, muni reynast mjög erfitt.
Taldi Sólveig að með þessu móti
væri nánast verið að koma á mið-
stýringu á því, hver hagur fyrir-
tækjanna verður. Einnig sagði
hún, að með öllu væri óljóst hvem-
ig myndi takast til með þetta verð-
lagseftirlit; greinilega væri ætlast
til þess að starfsemi Verðlags-
stoftiunar yrði stóraukin, en stofn-
unin ætti nú þegar við mikla fjár-
hagsörðugleika að stríða.
Sólveig vitnaði til umsagna frá
landssamböndum hitaveitna og
rafveitna, þar sem fram kemur
andstaða við frumvarpið. Að lok-
um sagði hún að með því að koma
í veg fyrir að þessi fyrirtæki
hækkuðu gjaldskrár sínar væri
verið að safna upp skuldum, svo
að verðhækkanir gætu orðið
gífurlega miklar þegar umþóttun-
artímabilinu lyki.
ÞINGFRÉTTIR
STUTTAR
Þróunarsjóður
Norðurlanda
Skýrsla um fram-
kvæmd þingsályktana
Fundir vóru í báðum þingdeild-
um í gær, föstudag.
Helztu mál í neðri deild vóm
stjómarfrumvarp um norræní**'
þróunarsjóð, þ.e. fullgilding á
Norðurlandasamningi um þróun-
arsjóð fyrir fátækustu ríki heims,
— og stjómarfrumvarp um efna-
hagsaðgerðir, sem komið er frá
efri deild og hefur áður fengið ítar-
lega fréttafrásögn.
í efri deild vóru á dagskrá frum-
varp til lánsfjárlaga 1989 og ríkis-
reikningar fyrir árin 1981-1986,
sem og gamall óafgreiddur ríkis- i
reikningur frá 1979.
Þingmenn úr öllum flokkum
hafa fært forsætisráðherra beiðni
um skýrslu um framkvæmd þin^T
sályktana árin 1984-1988. Skýrsl-
an flytji „glögga greinargerð um
framkvæmd viðkomandi ráðuneyt-
is“ á hverri tillögu fyrir sig.
Þingmenn Kvennalista hafa
lagt fram nokkrar tillögur til
þingsályktunan
1) tillögu þess eftiis „að
menntamálaráðherra komi á
aðfaramámi í 9. bekk grunn-
skóla" til ökuprófs.
2) tillögu um stefnumörkun
í notkun eldsneytis og orku,
með tilliti til umhverfis,
mengunarvama og hóflegrar
nýtingar auðlinda.
3) tillögu um að samgöngu-
ráðherra sjái til þess að þjóð-
brautir verði mokaðar ekki
sjaldnar en vikulega.
4) tillögu um að snjómokst-
urs í stijálbýli verði skipu-
lagður með hliðsjón af akstri
skólabama.
5) tillögu um nefndarskipan
til að gera tillögur að sam-
vinnu og samþættingu tón-
menntakennslu í grunnskól-
um og tónlistarskólum lands-
ins.
Rau nvaxtalækkun dregur
úr spennu eftir verðstöðvun
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að lækkun raunvaxta
muni hjálpa til að draga úr þeirri spennu sem ríki þegar afiétt
er verðstöðvun og launastöðvun. Hann telur best að ná fram lækk-
un raunvaxta i samningum, sem nú eru við lífeyrissjóðina um kaup
á skuldabréfiim Hússnæðisstofiiunar. Hann segir einnig að forystu-
menn sveitarfélaga vilji stilla gjaldskrárhækkunum i hóf.
í grein sem viðskiptaráðherra
skrifaði í Morgunblaðið sl. fímmtu-
dag, sagði hann að eftir vaxta-
lækkun á síðasta ári, hefði verið
óhjákvæmilegt að nafnvextir
hækkuðu að nýju um áramótin
þegar verðbólgan jókst vegna
skattahækkana og gengislækkun-
ar. Nú væri mikilvægt að lækkun
vaxta geti haldið áfram.
Viðskiptaráðherra var spurður
hvemig ná ætti fram því mark-
miði, í ljósi fyrirsjáanlegra verð-
hækkana og þar með verðbólgu,
um næstu mánaðamót þegar verð-
stöðvun líkur. Hann sagði að hvað
styddi annað, verðlagsþróun og
vaxtaákvarðanir. „Það er nauðsyn-
legt að horfast í augu við það, að
í þessari stöðu bíða allir eftir öll-
um. Ég held að það verði að eyða
þessari spennu á einhvern hátt, og
það má auðvitað ekki gerast núna,
þegar aflétt er launastöðvun og
verðstöðvun, að hver sprengi-
krafan komi á fætur annarar.
Ef tekst að lægja þessar vænt-
ingar, og lækkun á raunvöxtum
næst fram á skuldabréfamarkaðn-
um þar sem reynir á samninga fjár-
málaráðherra við lífeyrissjóði, þá
vænti ég þess að það geti hjálpað
til að skapa þetta andrúmsloft sem
ég tel nauðsynlegt.
Það er hvergi auðvelt á að taka,
og ég held að best væri að ná fram
lækkun á raunvöxtum í samning-
um við lífeyrissjóði og aðra sem
versla við skuldabréf. í öðmm
löndum sætta menn sig við lægri
raunávöxtun en hér er verið að
tala um. Það er auðvitað rétt að
hér hefur verið þensluástand, við-
skiptahalli og verðbólga og allt
kyndir þetta undir vaxtakröfum,
en nú er þetta að breytast. Það
hefur verulega hægt á innflutning-
um og viðskiptahalli síðasta árs
virðist hafa orðið um 10 milljarð-
ar, en í byijun ársins töldu ýmsir
fyrirsjáanlegt að viðskiptahallinn
yrði 15-20 milljarðar," sagði Jón.
Alþingi hefur heimilað Ríkisút-
varpinu að hækka gjaldskrá um
28% um næstu mánaðamót, og
gjaldskrá Strætisvagna Reykjavík- -
ur hækkar um 20% á sama tíma.
Þegar viðskiptaráðherra var spurð-
ur hvort þetta benti ekki til þess,
að verulegar verðhækkanir yrðu
1. mars, fyrst opinberar stofnanir
gengu svona fram fyrir skjöldu,
sagði hann að að þetta veikti vissu-
lega málstaðinn, en þá væri bara
að herða sig meira.
„Mér eru það vonbrigði ef menn
hafa hugmyndir um svona miklar
gj aldskrárhækkanir sveitarfélaga.
Eg, ásamt fjármálaráðherra
félagsmálaráðherra hittum stjóm- ?
armenn Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, til að ræða þessi gjald-
skrármál, og ég heyrði það á þeim,
að þeir vilja stilla þessum hlutum
í hóf. Ég held að þeir átti sig á,
að þeir eiga hlut í því máli, að
skapa rólegra andrúmsloft í kring-
um verð- og tekjuákvarðanir,^
sagði Jón Sigurðsson.