Morgunblaðið - 18.02.1989, Síða 48
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Aukin þægindi
ofar skýjum
FLUGLEIÐIR
LAUGARDAGUR 18. FEBRUAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Eyrún ÁR
náðist á
flot lítið
skemmd
Keflavík.
VÉLBÁTURINN Eyrún ÁR
66 sem strandaði við
Keflavíkurslipp á fimmtu-
daginn náðist á flot síðdegis
í gœr. Björgunarskipið Goð-
inn dró Eyrúnu út á síðdegis-
flóðinu og naut til þess að-
stoðar jarðýtu og vélskóflu
sem höfðu rutt mesta stór-
grýtinu frá. Eyrún var strax
tekin upp i slipp þar sem
skemmdir verða kannaðar
og viðgerð fer fram.
Eyrún er 24 tonna eikarbát-
ur og var verið að sjósetja bát-
inn þegar óhappið varð. Að
sögn Erlings Ævars Jónssonar
skipstjóra bar strand bátsins
með þeim hætti að stýri bátsins
fór í skrúfuna við sjósetninguna
með þeim afleiðingum að vélin
stöðvaðist og bátinn rak á land.
Auk Erlings Ævars var Tómas
Gíslason vélstjóri um borð þeg-
ar Eyrún strandaði og sakaði
þá ekki.
Hætt var við að ná bátnum
af standstað í fyrrinótt vegna
veðurs og sagði Erling Ævar
Jónsson skipstóri að hann hefði
næstum verið búinn að gefa
upp vonina um að hægt yrði
að ná bátnum af strandstaðn-
um. Sér virtist sem skemmdim-
ar væru furðu litlar miðað við
þau högg sem báturinn hefði
fengið í fjörunni.
BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Björgunarskipið Goðinn náði Eyrúnu ÁR 66 af strandstað i gær
með hjálp öflugra vinnuvéla. TaJsverður Qöldi fólks fylgdist með
þegar báturinn var dreginn af strandstað og klappaði það fyrir
björgunarmönnunum þegar Eyrún flaut út.
Sigurvík VE tekin með ólögleg veiðarfæri:
7 7% aflans var
undirmálsýsa
VARÐSKIPIÐ Týr stóð í gær-
dag Sigurvík VE-555 að því að
nota veiðarfæri með 135 milli-
metra möskvastærð. Leyfileg
möskvastærð er 155 millimetr-
ar. í ljós kom, að 77% af afla
skipsins var undirmálsýsa.
Fyrir skömmu kom í ljós að
undirmálsýsa var stór hluti þess
fiskjar sem fluttur var í gámum á
Bretlandsmarkað. Urðu ýmsir til
að lýsa áhyggjum sínum vegna
• þesk, og töldu að ekki væri hægt
að veiða smæstu ýsuna nema með
ólöglegum veiðarfærum.
Sigurvík er 66 lesta eikarbátur.
Mál Sigurvíkur hefur verið kært
til bæjarfógetans í Vestmannaeyj-
um. Búist er við að málið verði
tekið þar fyrir í dag. Skipherra á
Tý er Sigurður Ámason.
Hafiiargörður:
Sorpflokkunarstöð-
in í Hellnahraun?
FORMLEG beiðni frá Sorpeyðingu höfuðborgarsvæðisins um land
undir sorpflokkunarstöð hefur enn ekki borist bæjarstjórn Hafnar-
Ijarðar en að sögn Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra, hafa
átt sér stað lauslegar umræður um að stöðin gæti risið í iðnaðar-
hverfinu i Hellnahrauni. Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins hefur
hins vegar fengið leyfi bæjaryfirvalda til jarðvegsrannsókna á hugs-
anlegum urðunarstað við Tröllhóla í Krísuvik.
„Engin formleg beiðni hefur bor-
ist til okkar ennþá um land undir
flokkunar- og böggunarstöð en við
höfum fylgst með hvemig hún hef-
ur hrakist úr einum stað í annan,“
sagði Guðmundur Ámi. „Við sjáum
að hér eru prýðilegir staðir fyrir
hana og við getum komið henni
fyrir ef til þess kæmi en það hefur
Varaflugvöllur í Aðaldal:
Landeigendafélag Lax-
ár og Mývatns mótmælir
STJÓRN FÉLAGS landeigenda við Laxá i Aðaldal og Mývatn
ákvað á fiindi í gær að mótmæla fyrirætlunum um að leggja al-
þjóðlegan varaflugvöll á vegum NÁTO í Aðaldal. Húsavíkurflug-
völlur er í Aðaldal og er við bakka Laxár. Sá staður hefiir verið
■Aalinn einna líklegastur undir alþjóðlegan varaflugvöll. Einnig
hefur verið til umræðu að lengja núverandi flugvöll í Aðaldal.
í ályktun fundarins er mótmælt
„harðlega þeim hugmyndum sem
fram hafa komið varðandi bygg-
ingu flugvallar á vegum NATO í
Aðaldal". Síðan segir: „Við minn-
um á að þessi flugvöllur yrði mjög
nærri bökkum Laxár og ógnar því
tvímælalaust lífríki árinnar og
umhverfí hennar, til dæmis Skjálf-
andaflóa. Olíubirgðastöð er ein sér
nægileg ástæða auk slysahættu
og margvíslegra náttúruspjalla.
Laxá og bakkar hennar er
vemdað svæði samkvæmt lögum
frá 1974. Landeigendafélag Laxár
og Mývatns mun hér eftir sem
hingað til standa vörð um þetta
svæði. Því skorum við á ráðamenn
þjóðarinnar að taka þegar af allan
vafa um að hér verði flugvöllur
^m þessi ekki byggður."
Fundinn sátu Vigfús B. Jónsson
formaður, Eysteinn Sigurðsson,
Amarvatni, Mývatnssveit, Jón
Jónasson, Þverá Laxárdal, Ámi
Halldórsson, Garði, Mývatnssveit,
og Þorgrímur Starri Björgvinsson,
Garði, Mývatnssveit. Þorgrímur
er varamaðyr fyrir Völund Her-
móðsson í Ámesi í Aðaldal.
Ríkisstjómin hefur nú til af-
greiðslu flugmálaáætlun sem gerir
ráð fyrir að varaflugvellir fyrir
millilandaflug innlendra flugfé-
laga verði á Egilsstöðum og á
Akureyri. Ennfremur er til um-
ræðu í ríkisstjóminni gerð alþjóð-
legs varaflugvallar sem kostaður
yrði af Mannvirkjasjóði Atlants-
hafsbandalagsins. Sá flugvöllur
yrði 3.000 metra langur og er
áætlað að framkvæmdimar í heild
kosti um 11 milljarða króna. End-
urbætur á Egilsstaðaflugvelli
munu kosta nálægt 300 milljónum
króna og verða kostaðar af íslend-
ingum.
Sjá innlendan vettvang á bls.
20-21.
ekki reynt á það ennþá. Ég veit þó
að stjóm félagsins hefur verið að
líta í kring um sig hér hjá okkur.
Það má segja að staðsetning
slíkrar stöðvar hér á suðursvæðinu
sé ekki óheppileg þegar og ef af
því verður að urða sorpið fyrir sunn-
an Krísuvík, þó það hangi ekki endi-
lega saman. Þá má benda á að þó
svo að stöðin rísi í Reykjavík er
nauðsynleg að hafa aðra minni
móttökustöð á suðursvæðinu. Það
væri heimskulegt fyrir okkur Hafn-
fírðinga að aka öllu sorpi til
Reykjavíkur til að fá það baggað
og aka því síðan sömu leið til baka
að Krísuvíkurbergi.
Mönnum hefur komið í hug að
stöðin gæti hugsanlega verið á lóð
nálægt Stálfélaginu hf. á skipu-
lögðu iðnaðarsvæði ofan Reykja-
nesbrautar í Hellnahrauni. Þetta er
stóriðnaðarsvæði og ekki langt frá
Álverinu. Ef við sjáum fram á að
öllum mengunarvömum verði fram-
fylgt þá viljum við takast á hendur
þá ábyrgð og skyldur að hafa stöð-
ina því einhverstaðar verða vondir
að vera,“ sagði Guðmundur Ámi.
Lífeyrissjóður verslunarmanna:
Vextir lána hafa ver-
ið lækkaðir úr 8 í 7%
STJÓRN Lífeyrissjóðs verslunar-
manna hefiir ákveðið að lækka
vexti af lánum til sjóðfélaga úr
8% í 7% eða um 1%. Ákvörðunin
tekur gildi 20. febrúar. Auk þess
hefiir stjórnin ákveðið að hækka
lán til sjóðfélaga úr 500 þúsund
í 800 þúsund og lengja lánstím-
ann, þannig að hann verði allt
að 15 árum.
„Tilgangurinn er að reyna að
stuðla að breytingum á vöxtum til
lækkunar almennt og minnka þar
með greiðslubyrði sjóðfélaga okkar
vegna eldri lána,“ sagði Guðmundur
H. Garðarsson, varaformaður
stjómar Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, í samtali við Morgunblaðið.
„Vonandi getur þetta verið upphaf-
ið að frekari þróun til lækkunar
raunvaxta, en það veltur á svo
mörgum öðmm þáttum."
Hann sagði aðspurður að vissu-
lega vænti stjómin þess að aðrir
lífeyrissjóðir fylgdu í kjölfarið. „Við
emm þeirrar skoðunar að það sé
mjög þýðingarmikið að koma vöxt-
um eins mikið niður og unnt er, en
auðvitað með eðlilegum hætti.“
Til Lífeyrissjóðs verslunarmanna
greiða tæplega 23 þúsund manns
og er hann stærsti lífeyrissjóður á
landinu.