Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 Systkin- um vísað úr strætisvagni „Vagfnstjórinn hefur sýnt mik- ið dómgreindarleysi með því að kanna ekki hvort börnin voru að fara að heiman cða heim o g þetta mál verður rætt við hann,“ sagði Sveinn Björnsson, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur. Tíu ára dreng og Qögurra ára systur hans var visað út úr strætisvagni á Teigunum á þriðjudag, vegna þess að drengurinn var aðeins með fargjald fyrir sig, en ekki systur sína. Drengurinn hefur áður farið með systur sína í strætisvagna og ávallt greitt fargjald fyrir sig einan. Þeg- ar þau systkinin komu upp í vagn á þriðjudag, á leið frá Gullteig heim til sín í Vesturbæ, vísaði vagnstjór- inn þeim út úr vagninum. Drengur- inn hringdi í föður sinn í vinnuna, sem náði í bömin og fór með þau heim. Sveinn Bjömsson sagði, að eins og kæmi fram í gjaldskrá sem höfð væri í öllum vögnum þyrftu böm innan 4 ára aldurs ekki að greiða fargjald, ef þau væm í fylgd með fullorðnum. Ef svo ungt bam væri hins vegar í fylgd með öðm bami ættu bæði að borga. Svartolía hækkar Verðlagsráð hefur heimilað hækkun á verði svartoliu um 3,4% frá og með deginum í dag. Að sögn Georgs Ólafssonar er hækkunin til komin vegna geng- isbreytinga og erlendra kostnað- arhækkana. Tonnið af svartolíu kostar nú 7.600 en kostaði fyrir 7.350 krón- ur. Svartolía hækkaði einnig um síðustu mánaðamót úr 6.700 krón- um í 7.350. Jón Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskmjölsframleið- enda segir að þessi hækkun skipti ekki sköpum fyrir mjölverksmiðj- urnar, sem nota mikla svartolíu. Þó sé hún bagaleg eins og allar kostnaðarhækkanir. Smáýsa veld- ur veiðibanni Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um bann við tog- og dragnótaveiðum frá Þor- lákshöfn til Hrollaugseyja út að fjórum sjómOum frá landi. Reglugerðin gildir frá og með 3. mars í óákveðinn tíma. Ástæðan fyrir banninu er sú að rannsóknaskipið Dröfn fann nýlega mikið af smáýsu á þessu svæði en mest virtist vera af henni á svæðinu frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Isbrjóturinn Otto Schmidt I ísnum norður af Horni. Rússneskur ísbrjótur fastur í hafísnum RÚSSNESKI ísbijóturinn Otto Schmidt er nú fastur í hafísnum um 95 sjómUur norðnorðaustur frá Horni. ísbijóturinn var á leið frá Scoresbysundi til Reykjavík- ur. í gærdag fór flugvél Landhelgis- gæslunnar, TF-SYN, í ískönnunar- flug vestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson skipherra um borð segir að hafísinn sé nú að hopa frá landinu. Hann sagði skilyrði til ískönnunar hafa verið góð. Fyrir utan meginjaðarinn var töluvert um ísrastir og staka jaka á öllum fiski- miðunum út af Vestfjörðum. Á sigl- ingaleiðinni frá Straumnesi að Hornvík voru þunnar og krapa- kenndar ísrastir með stærri jökum í. Landfastur ís nær frá Furufirði til norðurs, um 5 sjómflur austan við Hombjarg og þaðan í vesturátt um 2 sjómflur norður af Homi og inn í Homvík. Gera má ráð fyrir að sigling fyrir Hom verði varasöm lóni þessi ís frá landi. Fiskverðshækkunin; Eykur útgjöld fisk- vinnslu um 1,5% - ýmsum mikilvægnm þáttum náð á móti, segir Bjarni Lúðvíksson hjá SH „EFTIR þessa hækkun fiskverðs um 9,5%, verður tap fiskvinnslunn- ar að meðaltali um 2%, en var um 0,4% áður. Þar sem stjómvöld bæta vinnslunni upp útgjaldaaukninguna sem svarar til 6,5% hækkun- ar fiskverðs, standa eftir um 3%, sem þýðir um 1,5% útgjaldaaukn- ingu. Okkur, fulltrúum kaupenda, fannst veijandi að samþykkja þessa hækkun. Með henni er að auki að miklum hluta verið að stað- festa raunverulegt fiskverð, sérstaklega á vertíðarsvæðinu. Þannig verða allar yfirborganir sem í gangi hafa verið, felldar inn í gild- andi verðlagsráðsverð. Ennfremur töldum við það mikilvægt að Verðlagsráðið riðlaðist ekki,“ sagði Bjami Lúðvíksson, framkvæmda- stjóri hjá SH og annar fulltrúa kaupenda i yfirnefhd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, I samtali við Morgunblaðið. „Hækkunin er mismunandi eftir tegundum með tilliti til markaðsað- stæðna og kemur þannig svolítið til móts við hagsmuni frystingarinn- ar,“ sagði Bjami. „Beinar aðgerðir stjómvalda, gengissig og hækkun endurgreiðslu uppsafnaðs sölu- skatts, færa okkur tekjuaukningu sem svarar til hækkunar fiskverðs um 6,5%. Þá em að meðaltali um 3% eftir af þessari hækkun. Af- komuútreikningar atvinnugreina í sjávarútvegi sýndu fyrir þessa ákvörðun 6% tap á útgerð og 0,4% Landbúnaðarvörur: Mjólk og mjólkurvör- ur hækkuðu um 5-11% NÝTT verð á mjólk og mjólkurvörum tók gildi í gær, og hækkaði það um 5-11% frá því 1. desember. Ákvörðun um nýtt verð á kinda- kjöti og nautakjöti mun væntanlega liggja fyrir í dag, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun hækkun á smásöluverði verða á bilinu 5-6%. Sexmannanefiid hefur ákveðið verðlagningu búvöru til bænda, nema hvað hún á eftir að fjalla um verðlagsgrundvöll kart- öfluframleiðslu. Þá hefur verðlagsgrundvöllur í kjúklingarækt og eggjaframleiðslu nú verið gefinn út í fyrsta sinn. Hámarkssmásöluverð á mjólk- urlítra er nú 60,10 kr., og hækkar hann um 7,3%. Rjómalítrinn kostar 433,50 kr. og hækkar um 4,6% og undanrennulítrinn kostar 40,20 kr. og hækkar um 7,8%. Skyrið kostar 100,80 kr. kílóið og hækkar um 5,7% og smjörkílóið kostar 418 kr. og hækkar um 10,6%. 45% ostur kostar 577,60 kr. kílóið og hækkar um 4,9%. Mjólkurlítrinn er niðurgreiddur um 21,87 kr., undanrennulítrinn um 13,02 kr., skyrkflóið um 33,54 kr, smjörkílóið um 309,80 kr., íjóma- lítrinn um 36,52 kr. og 45% ostur um 107,18 kr. kílóið. Verðlagsgrundvöllur í sauðfjár- rækt hækkar um 2,91%, en um 2,55% í nautgriparækt. Verð fyrir nautgripa- og sauðfjárafurðir eru framreiknuð til bænda samkvæmt verðframreikningi Hagstofu íslands um verðbreytingar á kostnaðarlið- unum, en að sögn Guðmundar Sig- þórssonar ritara sexmannanefndar eru niðurgreiðslur óbreyttar innan ramma ijárlaganna. Ekki hefur náðst samstaða í sexmannanefnd varðandi launalið bænda í hefð- bundnum búgreinum, en ekki var heimilt að taka þann lið til með- ferðar fyrr en að lokinni verðstöðv- un. Gert er ráð fyrir að nýtt smá- söluverð á kjöti liggi fyrir í dag. Verðlagsgrundvöllur í kjúklinga- rækt og eggjaframleiðslu hefur nú verið gefinn út í fyrsta sinn, og er þar um að ræða 5,1% hækkun frá verðlagi sem reiknað var út í nóv- ember síðastliðnum, en kom ekki til framkvæmda vegna verðstöðv- unarinnar. Samkvæmt verðlags- grundvellinum er verð á kjúklingum til bænda 241,05 kr. kflóið og verð á eggjum 219,43 kr. kflóið. Verð á hrossakjöti hækkaði í gær að meðaltali um 2,5% til bænda. á vinnslu svo augljóst er að þessi mynd hefur breytzt mikið. Þessi 3%, sem eftir standa, þýða um 1,5% kostnaðarauka vinnslunnar og því verður tapið að meðaltali 2%. Þessi ákvörðun eykur því tapið, en að baki hennar stendur að aðilar að verðlagsráðinu hafa ákveðið, með fulltingi sjávarútvegs- og ut- anríkisráðherra, að komið verði skipulagi á aflamiðlun innanlands. Verði hún að veruleika, leiðir það til þess að innlend vinnsla fær tæki- færi til að kaupa þann afla, sem nú fer í miklum mæli óunninn úr landi. Komi aukinn afli til vinnslu með þeim hætti, eykst nýting á fastakostnaði, sem er alltaf til stað- ar. Þennan möguleika meta menn mikils. Það var líka viðhorf beggja full- trúa kaupenda, að rétt væri að reyna til þrautar að halda ráðinu saman með samkomulagi nú, því við sáum ekki fram á að vinnslan nyti lægra fiskverðs, riðlaðist ráðið. Við töldum verulega hættu á því’ og þá væri ekkert vitað hvað ætti síðan að taka við. Það þyrfti einfald- lega lengri undirbúning til að ná landi í þeim efnum. Við höfðum líka talið að með þessari hækkun væri verið að færa verðlagsráðsverðið nær því fískverði, sem almennt hafí verið greitt, að minnsta kosti hér á vertíðarsvæðinu og þar með ætti að vera auðveldara að standa á móti mögulegum kröfum um yfir- borganir. Að þessu öllu athuguðu fannst okkur rétt að standa að þessu samkomulagi,“ sagði Bjami Lúðvíksson. Yiðskiptaráðherra um vaxtahækkanir: „Bankarnir fara ógætilega fram“ Keflavíkurbær: Hyg-gst kaupa alla bíla Steindórs sérleyfíshafa Keflavik. KEFLAVÍKURBÆR mun að öllum líkindum kaupa allar fólks- flutningabifreiðir Steindórs Steindórssonar sérleyfishafa í Njarðvík og sameina fyrirtækið Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur, sem bærinn rekur. Guðfinnur Sigurvinsson bæjarstjóri í Keflavík sagði að þegar væri búið að gera Steindóri Sigurðssyni tilboð sem hann hefði gengið að og nú væri aðeins beðið efltir samþykki bæjarstjórnar. Guðfinnur sagði að ef bæjarstjórnin féllist á þau samningsdrög sem nú lægju fyrir yrði rekstur fyrirtækjanna sameinaður frá og með 1. apríl. Steindór rekur 10 fólksflutn- starfa nú 5 menn við akstur. ingabfla sem taka 433 farþega og hefur hann sérleyfi á leiðinni Keflavík — Njarðvík — Grindavík og Keflavík - Njarðvík. Einnig hefur hann séð um skólaakstur í Njarðvík, Sandgerði, Garði og fyrir Fjöíbrautaskóla Suðumesja. Steindór hefur stundað fólksflutn- inga síðan 1970 og hjá honum Steindór sagði að ef af sölu fyrir- tækisins yrði eins og flest benti til myndu hann og bflstjóramir halda áfram að vinna hjá nýja vinnuveitandanum fyrst um sinn. Sérleyfísbifreiðir Keflavíkur eiga 8 bíla sem taka um 400 manns og mun fyrirtækið því geta flutt helmingi fleiri farþega ef Morgunblaðið/Björn Blöndal Þessir bílar Steindórs Sigurðs- sonar sérleyfishafa í Njarðvík verða væntanlega merktir og málaðir í litum SBK efltir 1. apríl. kaupin ganga í gegn. Steindór Sigurðsson rekur einnig Hótel Kristínu í Njarðvík og sagði hann að hótelið væri einnig til sölu ásamt aðstöðu til viðgerða á stór- um bflum sem væri við hótelið. Steindór sagði að hann væri orð- inn þreyttur á þeirri miklu vinnu sem væri samfara því að reka fyrirtækin og vildu nú aðeins hægja á ferðinni. gg „MÉR FINNST sem bankarnir fari þarna nokkuð ógætilega fram í vaxtahækkunum, og hafi átt að fara hægar í sakirnar," sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. Hann sagði það vera nákvæmlega þróun af þessu tagi sem nauðsynlegt væri að snúast gegn, nú um þessar mundir. „Með því er ég ekki að segja að ekki beri að líta á þær ástæður sem Iiggja að baki hjá bönkunum. Þeir eiga að sjálfsögðu að gæta afkomu- sjónarmiða í rekstri bankanna. Samkvæmt lögum eru þeir skyldug- ir til þess að halda ákveðnum hlut- föllum í efnahagsreikningnum og mér er það ljóst að þeir hafa lent í svolítilli klemmu, einkum vegna skiptikjarareikninganna,“ sagði Jón Sigurðsson. Ráðherra kvaðst ætlast til þess að Seðlabankinn tæki sérstaklega á þessu máli og létti þar með af þeirri klemmu sem viðskiptabank- amir væru í, þar sem þeir þyrftu að tryggja verðtryggingargreiðslur á sex mánaða fresti á kjörbókar- reikningunum. Hann kvaðst telja að verðtryggingarviðmiðanirnar ættu að vera til lengri tíma en sex mánaða, án þess þó að hægt væri að setja slíkt fyrirvaralaust á. Aðspurður hvort ríkisstjórninni hefði ekki mistekist það markmið sitt, að lækka vexti, nú þegar vext- ir hafa hvað eftir annað hækkað, frá því að efnahagsaðgerðir stjóm- arinnar voru ákveðnar í byijun febr- úarmánaðar, sagði viðskiptaráð- herra: „Nei, nei. Mín yfirlýsing var sú að veita þessum ákvörðunum strangt aðhald, en i því felst ekki að ríkisstjórnin ætli að ákveða vext- ina í stóm og smáu. Það er spum- ing um það hvemig menn meta raunvextina á hveijum tíma. Það er vandasamt og þar mega menn ekki líta of skammt til. Ég hef alls ekki gefið upp þau áform að ná betri tökum á þessari vaxtamyndun með almennum aðferðum, en það þýðir ekkert að beija höfði við stein, þegar við höfum lent inni í þessari verðbreytingakeðju núna, þá er auðvitað óeðlilegt að peningamir rýrni í bönkunum," sagði Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.