Morgunblaðið - 02.03.1989, Síða 20

Morgunblaðið - 02.03.1989, Síða 20
20 Dé Longhi Momento Combi er hvort tveggja í senn _______MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2, MARZ 1989_ Fj ármál sjúkrahúsa örbylgjuofn og grillofn Loksins er kominn á markaöinn ofn, sem er hvort tveggja í senn, örbylgjuofn og grillofn. Þetta er nýjung sem lengi hefur verið beöiö eftir. Ofnlnn sameinar kosti beggja aðferða, örbylgjanna sem varöveita best næringargildi matarins - og grillsteik- ingarinnar, sem gefur hina eftirsóttu stökku skorpu. 7 mismunandi matreiöslumöguleykar: 1 örbylgjur 30% atl 2 örbylgjur 70% all 3 örbylgjur 100% all örbylgjur 30% all 4 + grill 1100 w örbylgjur 70% all 5 + grlll 1100 u örbylgjur 100% all 6 + grill 1100 w 7 grill eingöngu 1100M/ Dé Longhi Momento Combi er enginn venjulegur örbylgjuofn, heldur gjörsam- tega nýtt tceki sem býöur upp á mismunandi aöferöir viö nútíma matreiöslu. iFOnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 eftir Sigiirð Björnsson Lífskjör á íslandi hafa á undan- fömum áratugum tekið miklum breytingum til batnaðar og era nú óvíða betri. Þessu til stuðnings má nefna ýmis efnaleg þægindi svo sem stærð húsnæðis, sem er meiri fyrir hvem íbúa en annars staðar á Norð- urlöndum, bílaeign, sem er næst- mest í heimi miðað við höfðatölu og að að fullur helmingur lands- manna bregður sér til útlanda ár hvert. Þessi árangur hefur náðst með miklum dugnaði fólksins í landinu, skynsamlegri nýtingu auð- linda lands og sjávar, bættri mennt- un þjóðarinnar og hæfni til að til- einka sér nýjungar á sviði vísinda og tækni, hvaðanæva að. Ein meginforsenda fyrir farsælu lífi í landinu er virkt heilbrigðis- kerfi, aðgengilegt öllum lands- mönnum. Nú er meira en hálf öld liðin síðan stofnuð voru sjúkrasam- lög, sem landsmenn greiddu iðgjöld eftir efnum og ætlað var að tryggja öllum jafnan aðgang að læknishjálp þegar á þurfti að halda. Raunar var síðar kveðið á um það í lögum að sérhver landsmaður skuli eiga kost á beztu læknisþjónustu, sem völ er á hveiju sinni. Fyrir nokkrum árum varð sú breyting á að iðgjöld til sjúkrasam- laga voru lögð niður en skattar lagðir á landsmenn í staðinn og renna þeir í ríkissjóð. Við það náðu stjómmálamenn og embættismenn ríkisins meiri tökum á ráðstöfun þess sameiginlega sjóðs, sem sjúkratryggingar eru. Til skamms tíma voru greiðslur til sjúkrahúsa í formi dagpeninga. Þau fengu þannig greidda ákveðna upphæð fyrir hvém dag, sem sjúklingur dvaldi á sjúkrahúsinu og var þá tekið tillit til hins beina kostnaðar við meðferð, viðhald og endumýjun tækja, húsnæðis o.s.frv. Daggjaldið breyttist sfðan í samræmi við vísi- tölu og var auk þess í stöðugri end- urskoðun hjá daggjaldanefnd. Þegar aðeinsþað besta er nógu goll /panix HÁ7ÚNI 6A SÍMI (91)24420 ðYUNM &ABIN rnt Mí HVORTSEM VSUN 2S. Srensku Cylinda þvottavélamar hafa fengidfrábœradóma í neytendaprófum á kröfuhördustu mörkuöum Evróþu. Þú getur valið umframhlaðnareða topphlaðnarCylinda vélar. Þœrtopp- hlöðnu spara gólfpláss ogekki þarf áð bogra znð þvottin Cylinda nafnið er tryggingfyrir fyrstaflokks vöru ogsannkallaðri maraþonendingu. TOPPHLAÐIN ÞVOTTaVEIAR - UPPÞVOTTAVÉLAR TAUÞURRKARAR Kæmi í ljós eftir á að þau nægðu ekki til rekstursins var mismunur- inn greiddur í lok ársins, svonefnt halladaggjald. Þótt ýmsir vankant- ar væm á þessu fyrirkomulagi þá tókst með því að tryggja rekstur sjúkrahúsanna með fullum afköst- um. Nú hafa sjúkrahúsin eitt af öðra verið sett á föst fjárlög, sem era ákveðin fyrirfram. Stjómendur spítalanna leggja fram áætlun um rekstur næsta árs og áætla fjárþörf til að standa undir rekstrinum, við- haldi og endumýjun tækja og hús- næðis og samningsbundnum laun- um starfsfólks. Síðan fara embætt- ismenn heilbrigðis- og fjármála- ráðuneytis yfir þessar áætlanir og senda þær loks til Alþingis, sem endanlega ákveður upphæð fjár- veitinga til sjúkrahúsanna með Qár- lögum. Upphæðin, sem þar er kveð- ið á um, er jafnan 10-15% lægri en sjúkrahúsin áætluðu að þyrfti til að halda fullri starfsemi. Með þetta veganesti og fyrirmæli um óbreytta þjónustu leggja sjúkrahús- in út í starfið á nýja árinu. í árslok kemur í ljós að spá sjúkrahúsanna um kostnað var rétt en stjómsýslunnar röng. Erfiðast er að kljúfa launagreiðslumar. Þau sjúkrahús, sem fengið hafa fé tii endumýjunar tækja og húsnæðis eða geta skapað sér sértekjur, reyna að færa fé frá þessum Iiðum yfir á launagreiðslur og geta þannig minnkað rekstrarhallann en hin, sem hafa lítið eða ekkert þánnig fé, koma út með halla í árslok eða neyðast til að loka deilum og draga saman rekstur. í þessu sambandi má benda á að embættismönnum stjómsýslunn- ar skeikar víðar en við fjárlagagerð fyrir sjúkrahús. Þær era ekki marg- ar opinbera byggingamar, sem reistar háfa verið hin síðari ár, þar sem áætlanagerð hins opinbera hef- ur staðizt. Og hvað með rekstur stjómsýsl- unnar sjálfrar? Samkvæmt nýlegum upplýsing- um fara æðstu valdastofnanir þjóð- arinnar hlutfallslega mun meira út fyrir ramma ijárlaga en sjúkrahús- in. Rekstur Alþingis mun árið 1987 hafa farið rúmlega 30% fram yfir fjárlög. Hvemig hyggjast þirjgmenn bregðast við því? Neyðast þeir til að fækka sjálfum sér um 30%, lækka dagpeninga ráðherra í utan- landsferðum eða senda færri full- trúa á fund Norðurlandaráðs? Ekki dreg ég í efa að nauðsyn sé á auknu aðhaldi á flestum sviðum þjóðlífsins. En það er ekki við heil- brigðiskerfíð að sakast, hvemig nú er komið efnahagsmálum íslend- inga. Ég bið stjómmálamenn að líta sér nær. Þeir benda iðulega á að mestu útgjöldin séu í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, um 40% af útgjöldum flárlaga. Hér er þyrlað upp nokkra ryki þar sem þrír ijórðu hlutar þess fara til almannatrygg- Sigurður Björnsson „Samkvæmt nýlegum upplýsingnm fara æðstu valdastofnanir þjóðarinnar hlutfalls- lega mun meira út fyrir ramma ijárlaga en sjúkrahúsin. Rekstur Alþingis mun árið 1987 hafa farið rúmlega 30% fram yfir fjárlög. Hvernig hyggjast þing- menn bregðast við því? Neyðast þeir til að fækka sjálfum sér um 30%; lækka dagpeninga ráðherra í utanlands- ferðum eða senda færri fulltrúa á fund Norður- landaráðs?“ inga svo sem ellilífeyris, örorku- bóta, mæðralauna, sjúkradagpen- inga o.þ.h. Til heilbrigðismála fara um 10% af útgjöldum fjárlaga en nálægt 6,9% af vergri þjóðarfram- leiðslu. Þetta er mun lægra hlutfall BÆJARSTJÓRN Hafiiarflarðar hefiir samþykkt eftirfarandi reglur við álagningu fasteigna- skatts ellilífeyrisþega fyrir árið 1988.: Einstaklingar með brúttótekjur allt að kr. 570 þús. á ári, greiða ekki fasteignaskatt, einstaklingar með allt að kr. 678 þús., greiða 30% en hjá Svíum og Bandaríkjamönn- um, svipað og hjá Finnum. Margt mætti betur fara í íslenzka heilbrigðiskerfinu, einkum er varð- ar aðstöðu aldraðra, en í heild er kerfið skilvirkt og aðgengilegt öll- um landsmönnum. Menntun og hæfni heilbrigðisstétta er sambæri- leg við það, sem bezt gerist erlend- is. Ýtrasta aðhalds hefur verið gætt í rekstri sjúkrahúsanna og raunar hefur nauðsynleg endumýj- un tækjabúnaðar setið á hakanum svo víða horfir til vandræða. Tillögur hafa komið fram um sameiningu tveggja sjúkrahúsa í Reykjavík. Slíkt þyrfti gaumgæfí- legan undirbúning, kostar mikla fjármuni ef vel á að takast til og mundi ekki leiða til teljandi spam- aðar í rekstri. Við þriðju umræðu á Alþingi um fjárlög ársins 1989 vora framlög til sjúkrahúsanna lækkuð um 1,5% frá því, sem lagt hafði verið til. Nýverið komu síðan boð frá stjóm- völdum um viðbótar 2,5% niður- skurð á launaliðum og tilmæli um að skera niður ýmis samnings- bundin réttindi starfsfólks sjúkra- húsa. Eina leiðin til að verða við þessum fyrirmælum er að loka fleiri deildum og draga enn frekar saman rekstur. Er nú fyrirsjáanlegt algert neyðarástand á komandi mánuðum. Ríkisstjóm, sem kennir sig við fé- lagshyggju, virðist reiðubúin að axla þá ábyrgð að sjúklingum sé neitað um þjónustu á sjúkrahúsum meðan rúmin standa auð. Á undanförnum áram höfum við í vaxandi mæli fært inn.í landið ýmsar sérhæfðar rannsóknir og aðgerðir, sem áður þurfti að vísa sjúklingum í erlendis. Kostnaður við slíkt var að jafnaði greiddur af Tryggingastofnun ríkisins án þess að þrátta Um upphæðina. Ef til vill mætti hugsa sér að auka slíkan útflutning aftur og gera sjúkrahús- unum þannig kleift að halda sig innan þeirra fjárveitinga, sem stjómmálamenn og embættismenn ráðuneyta úthluta þeim. Höfundur er sjúkrahúslæknir i Reykjavík. af fasteignaskatti og einstaklingar með allt að kr. 815 þús., greiða 70% af fasteignaskatti. Hjón með brúttótekjur allt að kr. 890 þús. á ári, greiða ekki fast- eignaskatt, hjón með allt að 1,066 millj. greiða 30% af fasteignaskatti og hjón með allt að 1,2 millj. greiða 70% af fasteignaskatti. Hafriargörður: Afsláttur af fasteignaskatti i/ Vidtalstími borgarfulltrúa ^ J f Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík '% Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laug- ardögum íveturfrá kl. 10-12. .... Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum Wf ^ jN og ábendingum. 1 Allir borgarbúareruvelkomnir. ^ A ÆgT Laugardaginn 4. mars verða til viðtals Vilhálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar, varaformaður stjórnar sjúkrastofna í hafnarstjórn, og Ingólfur Sveinsson, í stjórn heilbrigðisráðs og S Reykjavíkur. •''' .ap-' ' íborgarráði, na í Reykjavík c Jjúkrasamlags >9 K.d'* %.,jP (\.d # Jk JfN gN % •' w w w

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.