Morgunblaðið - 02.03.1989, Page 26

Morgunblaðið - 02.03.1989, Page 26
26 - __________________ Royal Jardin del Mar í Santa Ponsa íbúðahótelið Royal Jardin del Mar í Santa Ponsa laðar sömu gestina til sín ár eftir ár. I rúmgóðum íbúðunum er öllu haganlega fyrir komið, sam- eiginlegar vistarverur gestanna þægilegar og veitingarnar Ijúffengar jafnt inni sem úti í fallegum hótelgarðinum. Örstutt er í alla þjónustu frá Royal Jardin del Mar. (ITi(KVTH( HALLVEIGARSTlG 1, SÍMI 28388 r Vandað nómskeið fyrir byrjendur í nofkun Macintosh töivunnor. Dagskrá: ★ Grundvallaratriði við notkun Macintosh. ★ Stýrikerfið. ★ Ritvinnsla. ★ Töflureiknir. ★ Gagnagrunnur. I Tími: 6., 8., 13. og 15. mars kl. 20-23. Innritun í símum 687590 og 686790. _© Tölvufræðslan Borgartúni 28. ÚTSALA Allt að 40% afsláttur pílu gluggatjöld Suðurlandsbraut 6, Sími: 91 - 8 32 15. 1 Itorjpim Áskriftarsíminn er 83033 l Reuter Óþefiir íAþenu Sorphirðing er nú í lamasessi í höfúðborg Grikklands, Aþenu, vegna verkfalls starfsmanna. Á myndinni sést ónafiigreindur Aþeningur halda um nefið er hann gengur fram þjá illa þeQandi sorphaug á gangstéttinni. Japan: Neyðist Takeshita til að efna tilkosning-a í apríl? Tókíó. Reuter. Stjórnarflokkurinn í Japan, Frjálslyndi demókrataflokkurinn, gæti neyðst til að boða til þingkosninga í apríl í stað júlí, sögðu stjómmálaskýrendur og japanskir þingmenn í gær. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun hefúr fylgi við ríkisstjóm Noborus Takeshita hrun- ið niður í 19%. Fijálslyndi demókrataflokkurinn, sem hefúr verið við völd í Japan frá 1955, býst við að tapa fjölda þingsæta í kosning- um til efri deildar þingsins sem fara fram í júlí næstkomandi. Ástæð- una má einkum rebja til hneykslis sem tengist útgáfú- og fjarskipta- fyrirtækinu Recruit, en forsvarsmenn fyrirtækisins buðu a.m.k. þremur ráðherrum í rikissfjóra Japans hlutabréf til sölu áður en þau fóru á almennan markað og hækkuðu þar margfalt í verði. Ráðherrarnir neyddust til að segja af sér þegar uppvíst varð um þeirra hlut. Stjómmálaskýrendur telja að flokkurinn muni tapa umtalsverðum Qölda þingsæta verði boðað til kosn- inga á fyrra fallinu en hins vegar sé afar ólíklegt að hann missi tök á stjóm landsins. Þeir telja einnig að verði kosningum frestað gætu hneykslismál hrannast upp og vald- ið flokknum óbætanlegum skaða, einkum ef stjómmálamenn viðriðnir þau verða handteknir. „Nú er ekki rétta stundin til að stinga höfðinu í sandinn og hlaup- ast undan gagnrýni kjósenda," sagði Kunio Hatoyama, þingmaður frjálslyndra demókrata. „Styrkur okkar felst í raunsærri efnahags- stefnu og Japan kemst ekki af án hennar." Þingmaður sósíalista, Tomio Sakagami, sagðist halda að Takes- hita myndi leysa upp þing um miðj- Skrifstofutækninám Betra verö - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Á níu ára starfsferli HRAÐLESTRARSKÓLANS hafa nemendur að meðaltali þrefaldað lestrarhraða sinn og lesið með betri eftirtekt en þeir hafa áður vanist. Næsta hraðlestrarnámskeið hefst 15. mars nk. Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn í hvers kyns les- efni skaltu skrá þig tímanlega á námskeiðiö. Skráning öll kvöld kl. 20.00 - 22.00 í síma 641091. S HRADLESTRARSKOUNN jl E an apríl þegar hann hefði komið fjárlagafrumvarpinu í gegn. „Þetta er auðvitað hrein ágiskun, en hugs- anlegt er að þingkosningar fari fram 28. apríl," sagði Sakagami. Stjómarandstaðan hefur oftsinn- is krafist þess að Takeshita leysi upp þing og boði til kosninga svo að kjósendur geti látið í ljós sína skoðun á hlutabréfahneykslinu. Takashita hefur hingað til hafnað þeirri kröfu á þeim forsendum að stjóminni beri skylda til að sitja út kjörtímabilið sem er fjögur ár. Nicaragua: Sjötta geng- isfellingin á tveimur T • mánuðum Managua. Reuter. STJÓRNVÖLD í Nicaragua til- kynntu á þriðjudag, að gengi gjaldmiðils Iandsins, cordobans, hefði verið lækkað um 9,5%. Gengisfellingin, sem tók gildi í gær og er hin sjötta i röðinni á tveggja mánaða tímabili, er liður í hörðum aðhaldsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar. Við gengisfellinguna hækkaði verð á Bandaríkjadollar úr 3800 cordobum í 4200. Gengi cordobans var síðast fellt 23. febrúar síðastlið- inn og nam lækkun hans þá 18,75%. Sandinista-stjómin hyggst nú grípa til harðra aðhaldsaðgerða í efnahagsmálum landsins til að örva útflutning og vinna gegn óðaverð- bólgunni, sem var 31.000% á síðasta ári, að sögn Luis Carrions efnahagsráðherra. Stjómin kennir innanlandsátök- unum um verðbólgubálið. Ætlunin er meðal annars að fækka opin- bemm starfsmönnum um 35.000 á þessu ári og draga stórlega úr ríkisútgjöldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.