Morgunblaðið - 02.03.1989, Side 31
08(?I XflAM .S flUOAQUTMMiq QIQAJflMUDflOM 08
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2.' MARZ W........ * 31
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Rauða Ijóninu. Walter Ridel og Sigurður Guðmundsson, matreiðslu-
menn og Róbert Fragapanne, þjónn.
Nýr vínveitinga-
staður á Eiðistorgi
Veitingastaðurinn Rauða ljón-
ið var opnað á Eiðistorgi í gær,
miðvikudag. Rauða ljónið er til
húsa í kjallara verzlunarmið-
stöðvarinnar undir Selbitanum
og er í eigu samnefiids hlutafé-
lags. Rauða Ijónið hefiir vínveit-
ingaleyfi og býður upp á fjöl-
breyttan matseðil að sögn eig-
enda.
Eigendur Rauða ljónsins hófu
framkvæmdir við húsnæðið fyrir
mánuði síðan og var allt til reiðu í
gær, þegar leyfilegt var að selja
áfengan bjór á Islandi að nýju. Stað-
urinn verður opinn á milli klukkan
Skýrslutæknifélag íslands boð-
ar í dag til fúndar um ólöglega
afritun hugbúnaðar. Verður reynt
að svara þeirri spurningu hvort
ólögleg afritun og dreifing á hug-
búnaði sé alvarlegt vandamál hér
á landi. Fundurinn er haldinn í
Norræna húsinu og hefst klukkan
16.00.
í leiðara nýjasta heftis Tölvumáia,
sem Skýrslutæknifélag íslands gefur
út, er vitnað í grein í bandarísku
timariti, þar sem þeirri fullyrðingu
er varpað fram, að fyrir hvert og
eitt selt forrit séu níu ólögleg afrit
í notkun. í Tölvumálum segir: „Einn
hugbúnaðarinnflytjandi fullyrðir að
hann viti um ólögleg afrit af þeim
hugbúnaði sem hann flytur inn að
verðmæti um 100 m.kr. Annar seg-
ist hafa selt 80 eintök af hugbúnaði
12.00 og 15.00 á daginn og frá
18.00 á kvöldin til 1.00 á nóttunni
nema föstudaga og laugardaga, en
þá verður opið til 3.00. Þegar opnað
var í fyrsta sinn skemmti eftir-
herman Jóhannes Kristjánsson
gestum, en ætlunin er að flutningur
tónlistar og uppákomur af ýmsu
tagi verði reglulega í Rauða ljóninu.
Rauða ljónið tekur rúmlega 100
manns í sæti og býður upp á rétti
af matseðli auk léttmetis í hádeginu
svo sem salatbar og súpu og smá-
réttir verða fáanlegir fram eftir
nóttu. Rauða ljónið er eini vínveit-
ingastaðurinn á Seltjarnamesi.
sem sé í notkun hjá nær öllum þeim
sem eiga ákveðna tölvutegund. Hann
telur verðmæti ólöglega afritaðra
eintaka af þessu eina forriti vera
nálægt þtjátíu milljónum. Jafnframt
segir hann ástandið síst betra varð-
andi aðra titla sem hann selur, en
þeir fylla á þriðja tugipn.
Þó að þetta sé erfitt að staðfesta
fer ekki hjá því að spurningar vakni
við fyllyrðingar þessara manna. Get-
ur það verið að verðmæti ólöglegra
afritaðra forrita hér á landi megi
telja í hundruðum milljóna króna?"
Framsögumenn á fundinum í dag
eru Hjörtur Hjartar, varformaður
Skýrslutæknifélags íslands, Lúðvík
Friðriksson, verkfræðingur, og
Haukur Nikulásson, sölustjóri. Fund-
arstjóri er Halldór Kristjánsson,
formaður SÍ.
Ráðist á íslendinga
í París:
Sendiherr-
ann krefst
skaðabóta
TVEIR íslendingar urðu fyrir
árás öryggisvarða í íþróttahöll-
inni, þar sem úrslitaleikurinn í
B-keppninni í handknattleik
fór fram. Flytja varð annan
manninn á sjúkrahús. Haraldur
Kröyer sendiherra íslands í
París hefúr borið fi-am mót-
mæli við Handknattleikssam-
band Frakka, framkvæmda-
stjóra íþróttahallarinnar þar
sem úrslitaleikurinn fór fram
og við franska utanríkisráðu-
neytið vegna árásarinnar.
Sendiherrann mótmælir harð-
lega framkomu öryggisvarð-
anna og krefst skaðabóta og
að árásarmönnunum verði refs-
að. Frönsk blöð hafa skrifað
um málið og lýst hneykslan
sinni á framkomu varðanna, að
sögn Haraldar.
„Forsvarsmaður franska hand-
knattleikssambandsins hringdi á
mánudag og baðst afsökunar á
þessum atburðum. Hann hefur
mótmælt við framkvæmdastjóra
íþróttahallarinnar," sagði Harald-
ur í samtali við Morgunbiaðið.
„Sendiráðið hefur sent bréf til
framkvæmdastjóra þessarar
íþróttahallar og mótmælt fram-
komu öryggisvarðanna, farið
fram á bætur til handa íslending-
unum sem fyrir árásunum urðu
og krafíst þess að þeim sekaverði
refsað. “
Annar íslendinganna sem ráð-
ist var á var fluttur á sjúkrahús.
„Það var sparkað svo illilega í
hann að hann hlaut opin sár og
lá meðvitundarlaus í blóði sínu,“
sagði Haraldur. Hinn slapp
nokkru betur og fór heim með
hópnum sem hann kom með til
Parísar, þó hlaut hann slæmt mar
eftir spörk í kvið og síðu.
RKÍ er meðal annars með nám-
skeið fyrir foreldra ungra
barna.
StarfFræðslu-
miðstöðvar
Rauða krossins
NÝVERIÐ var komið á fót
Fræðslumiðstöð Rauða kross ís-
lands. Komin er út námsskrá
vorannar 1989. Boðið er upp á
margs konar námskeið, sum æt-
luð almenningi og sjálfboðalið-
um Rauða krossins, en önnur
eingöngu ætluð sjálfboðaliðum
RKI. Fræðslumiðstöðvar sem
þessi eru starfandi víða um lönd
á vegum Rauða krossins.
Fyrir almenning eru í boði fjögur
mismunandi námskeið. Margar
RKÍ deildir halda skyndihjálp-
arnámskeið. Námskeið í umönnun
bama eða svokölluð barnfóstru-
námskeið verða haldin víða um land
og eru þau einkum ætluð börnum
og unglingum 11 ára og eldri. For-
eldranámskeið verða haldin í
Reykjavík. Fræðslumiðstöðin
skipuleggur einnig námskeið í að-
hlynningu aldraðra.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Með ferða-
mannahópa í
vélsleðaferðir
Selfossi.
„VIÐ FÖRUM í lengri og styttri
ferðir með fólk allt eftir því
hvað það vill,“ sagði Sigurður
Sigurðsson eigandi Ásvéla sf. á
Laugarvatni sem leigir út vél-
sleða og fer með ferðamanna-
hópa í vélsleðaferðir.
Vinsælustu hópferðimar á vél-
sleðunum eru til Þingvalla og inn
á Skjaldbreið. Einnig er vinsælt
að fara inn á Langjökul en það
eru lengstu ferðimar sem famar
erU' c- I'
- Sig. Jons.
Kvikmynda-
klúbburinn
sýnir „Karbnenn“
Kvikmyndaklúbbur íslands
sýnir fimmtudag og laugardag,
vestur-þýsku myndina „Karl-
menn“, (Mánner), frá árinu
1986, eftir þýska leikstjórann
Doris Dörrie.
Myndin er sýnd í kvikmynda-
húsinu Regnboganum við Hverfis-
götu klukkan 21.00 og 23.00 á
fímmtudag og á laugardag klukk-
an 15.00. Miðaverð krónur 200
fyrir klúbbsmeðlimi.
GrundarQörður:
Ungrnennafé-
lagið skipulegg-
ur skíðakennslu
Grundarfirði.
MIKLUM snjó hefúr kyngt niður
á Grundarfirði á síðustu vikum.
Færð hefúr verið slæm innan
bæjar og enn erfiðara hefur
verið að komast suður yfir fjöll-
in. Fólk hefúr lent í miklum erf-
iðleikum á Kerlingarskarði og
jafiivel orðið að yfirgefa vel út-
búna bíla.
En ýmsir em þó ánægðir með
snjóinn því á Grundarfirði er góð
skíðalyfta rétt ofan við bæinn.
Ungmennafélag Gmndarfjarðar á
og rekur skíðalyftuna og hefur nú
skipulagt skíðakennslu sem er
mjög vinsæl af bömunum.
- Ragnheiður
Fatasala og bæk-
ur kristni-
boðsfélaga
SAMBAND íslenskra kristni-
boðsfélaga, Kristniboðsfélag
kvenna og Kristniboðsfélag
karla í Reykjavík standa að
sölu á margskonar fatnaði,
skóm og fleiru, sem kristniboð-
inu hefúr verið gefið, laugar-
daginn 4. mars. nk. klukkan
14.00 á Háaleitisbraut 58—60,
3. hæð. Ágóðinn rennur í hús-
sjóð félaganna.
Þá verður Kristniboðsfélag
kvenna með kökubazar á staðnum
til styrktar kristniboðsstarfinu.
Allir sem koma, eiga líka kost á
því að kaupa sér kaffi og með-
læti á lágu verði.
Erindi um endur-
skoðun laga-
ákvæða um
farmsamninga
HIÐ íslenska sjóréttarfélag efii-
ir til fræðafúndar laugardaginn
4. mars. nk. Verður fúndurinn
haldinn í stofú 103 í Lögbergi
og hefst klukkan 14.00.
Fundarefni: Dr. Kurt Grönfors,
prófessor við háskólann í Gauta-
borg, flytur erindi er hann nefnir:
„The Scandinavian Law Reform
Concerning Carriage of Goods by
Sea“. Að erindinu loknu verða
kaffiveitingar og síðan verða fyrir-
spurnir og umræður.
I erindi sínu, sem verður flutt á
ensku, mun dr. Kurt Grönfors fjalla
um norræna samvinnu við endur-
skoðun núgildandi ákvæða hinna
norrænu siglingalaga um farm-
flutninga á sjó, en mikið hefur ver-
ið unnið að því verkefni hin síðustu
árin og mun því endurskoðunar-
starfi brátt verða lokið.
Flokkur mannsins:
Fundur Lands-
ráðs1989
Landsráðsfúndur Flokks
mannsins verður haldinn,
sunnudaginn 12. mars nk;
klukkan 13.00 á Hótel Sögu. í
Landsráði silja 80 manns og eru
fiindir í þvi haldnir annað hvert
ár.
Á þessum tímaótum verður
meðal annars fjallað um hvort
aðild að EB, framboð til alþingis-
kosninga, samflot með öðrum
flokkum og nýjar lausnir á at-
vinnuleysi.
Sérlegir gestir fundarins verða
fulltrúar annarra stjórnmála-
flokka, verkalýðshreyfinga og er-
lendra þjóða. T.d. mun sovéski
sendiherrann á íslandi flytja
ávarp um „perestroika" og Óg-
mundur Jónasson formaður BSRB
mun tala um stöðuna í kjarabarát-
tunni. Einnig munu fulltrúar frá
Þjóðarfiokknum og Samtökum
um jafnrétti og félagshyggju
halda tölu. Formaður flokksins,
Pétur Guðjónsson, mun flytja
ávarp.
Rangfeðrun
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær
var verkstjóri hjá Stálvík, sem
rætt var við, rangfeðraður.
Verkstjórinn heitir Ámi Mar-
kússon, ekki Marteinsson eins og
sagt var. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Enskt and-
rúmsloft
í Krmglukránni
KRINGLUKRÁIN, heitir nýr
veitingastaður sem opnaður
var í Kringlunni 4 í gær. Að
sögn Guðbjörns Gunnarssonar,
sem hannaði staðinn, hefúr þar
verið reynt að koma á enskri
stemmningu. Kringlukráin tek-
ur 125 manns í sæti.
í Kringlukránni er ætlunin að
bjóða upp á einfaldan og ódýran
mat í hádeginu og á kvöldin. Bjór-
inn sem boðið verður upp á er
Egils og Tuborg.
Það er smíðastofan Beyki hf.
sem hefur séð um að koma þess-
um stað á laggirnar og var
ákvörðun um það tekin í desem-
ber þegar fyrirsjáanlegur var
skortur á vinnu fram undan.
Ætlunin er að koma rekstrinum
af stað en síðan er í deiglunni að
selja staðinn.
Eigcndur Kringlukránnar eru
Hannes Tómasson, Guðbjöm
Gunnarsson, Reynir Sigurðsson,
Haukur Örn Björnsson og Gísli
Jónsson.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1. mars.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 50,00 39,00 44,27 20,712 916.995
Þorskur(ósl.) 47,00 38,00 44,83 15,207 681.744
Smáþorskur 26,00 26,00 26,00 0,342 8.892
Þorskur(dbl.) 30,00 30,00 30,00 0,654 19.635
Ýsa 60,00 40,00 46,90 12,474 585.039
Ýsa(ósl.) 84,00 47,00 60,36 9,185 554.411
Smáýsa(ósl) 15,00 15,00 15,00 0,101 1.515
Ufsi 21,00 15,00 20,16 6,305 127.136
Steinbítur 40,00 15,00 26,74 1,204 32.217
Steinbítur(óst) 34,00 19,00 19,76 4,536 89.643
Samtals 42,04 75,502 3.173.911
Selt var aðall. úr Náttfara HF, Stakkavík ÁR, Oddeyrinni EA og
Gullfara HF. í dag verða m.a. seld 18 tonn af karfa og 18 tonn
af ufsa úr Margréti EA, 50 tonn af þorski úr Núpi ÞH og óákv.
magn af bl. afla úr Jóa á Nesi, frá Nesveri og Tanga hf.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 55,00 55,00 55,00 9,039 497.145
Þorsk(ósl.l.bl.) 44,00 44,00 44,00 3,542 155.848
Þorskur(dbl-) 49,00 29,00 47,46 1,776 84.297
Þorsk(ósl1-3n) 39,00 28,00 38,06 5.558 212.662
Ýsa 61,00 28,00 46,61 1,252 58.354
Ýsa(ósl.) 64,00 35,00 55,88 0,199 11.120
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,116 2.900
Lúða 190,00 180,00 188,00 0,055 10.340
Rauðmagi 120,00 100,00 108,30 0,742 80.355
Hrogn 120,00 120,00 120,00 0,183 21.960
Samtals 52,02 22,557 1.136.930
Selt var úr Farsæli SH og netab. í dag verða m.a. seld 25 tonn
af þorski og fl. teg. úr Jóni Vídalín ÁR og óákveðið magn úr netaþ.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 60,50 42,00 45,86 9,729 446.210
Ýsa 63,00 56,00 60,58 1,554 94.139
Ufsi 23,00 15,00 22,09 9,894 218.555
Karfi 23,50 21,50 22,56 5,436 122.630
Steinbítur 24,00 15,00 15,15 2,077 31.464
Skata 81,00 81,00 81,00 0,124 10.044
Skötuselur 120,00 120,00 120,00 0,019 2.340
Lifur 25,00 25,00 25,00 0,014 350
Hrogn 120,00 120,00 120,00 0,093 ' 11.160
Samtals 32,95 29,207 962.479
Selt var aðallega úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK og Hraunsvík
GK. í dag verða m.a. seld 40 tonn af þorski og 2 tonn af steinbít
úr Eldeyjar-Hjalta GK og óákveðið magn úr Eldeyjar-Boða GK.
Fundur um ólöglega
aftítun hugbúnaðar