Morgunblaðið - 02.03.1989, Síða 45
esei xííam ,s hudauutmmím qiqAjaMUDaoM_
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989
::: 45
skólann og hlaðinn verðlaunum.
Á þessum árum var mikil hús-
næðisekla í Reykjavík og var hver
kytra fullsetin. Þannig var ástatt
hjá okkur Engilbert báðum, að við
bjuggum mjög þröngt. Nutum við
þá gestrisni Sigurðar, en hann bjó
vel í húsi foreldra sinna. Höfðum
; við því góða aðstöðu til að stunda
nám okkar.
Þó Engilbert gæti verið seintek-
inn til náinna kynna, var hann fé-
lagslyndur og naut sín vel meðal
vina og kunningja, og þá átti hann
marga beggja megin hafs. Þó hygg
ég að þeir sem áttu trúnað hans
allan hafí ekki verið margir. Hann
var mjög vinsæll af öllum er honum
kynhtust. Þori ég að fullyrða, að
hann átti sér enga öfundar- eða
óvildarmenn. Sé það rétt, sem haft
er eftir einhveijum spekingum, að
slíkir menn séu lítt áhugaverðir, þá
sannaði hann með breytni sinni, að
sú fullyrðing er alröng.
í daglegu fari var Engilbert
fremur fámáll um eigin hag, jafn-
vel við sína bestu vini, og ekki gef-
inn fyrir að hnýsast í málefni ná-
ungans og vel frómur til munnsins.
Vissi að töluð orð verða ekki aftur
tekin. Hann reyndi aldrei að draga
það fram, sem miður fór, heldur
var reynt að bæta úr því, væri það
á hans valdi, sem vel kemur fram
í atviki því, sem nú skal greint frá:
Morgun nokkum er Engilbert
kom að bíl sínum, sá hann að brot-
ist hafði verið inn í bílinn og reynt
að taka hann ófijálsri hendi, en það
tókst ekki, sem betur fer. Þeim er
þama var að verki varð það á að
missa veski sitt á gólf bílsins, þar
sem Engilbert fann það. í veskinu
voru peningar og skilríki þess er
þama var á ferð. Því var hægur
vandi fyrir Engilbert að hafa sam-
band við næturgestinn og skila
veskinu, sem hann gerði. Víst er
um það, að þessi viðbrögð féllu
báðum betur en ákæra og bára
annan og betri árangur.
Ríkt í fari Engilberts var áreiðan-
leiki hans í öllu er hann tók sér
fyrir hendur í smáu sem stóra og
var orðheldni hans viðbragðið.
Skipti þá engu við hverju hafði ver-
ið gengist.
Þegar hann varð þrítugur héldum
við þrír upp á það. Við það tæki-
færi þótti mér við hæfí að nefna
við hann, að þrítugur maður ætti
að vera búinn að festa sér konu.
Skemmtum við okkur við að ræða
það nánar. Þar kom í umræðunni,
að ég bauð Engilbert veðmál upp á
100 krónur, að hann væri ekki í
hnappheldunni fertugur. Hann tók
því. Áð sjálfsögðu gleymdi ég þessu
fljótt, en tíu áram síðar sendi hann
mér frá Kalifomíu silfurdollar (sem
ég á enn) og minnti mig á veðmál-
ið, sem hann hafði nú tapað. Orð
skulu standa.
Hann kvæntist aldrei og var
bamlaus.
Er Engilbert fór fyrst til Kanada
og síðar Bandaríkjanna, mun það
ekki hafa verið ætlun hans að setj-
ast þar að til frambúðar, en það fór
svo, að hann bjó þar hátt á fjórða
áratug. Réð þar mestu um að hon-
um féll veðurfarið þar vel, en íslensk
vetrarveðrátta átti illa við hann.
Hann hafði samt alltaf hugsað sér
að eyða ævilcvöldinu heima, en helst
hefði hann kosið að geta verið hér
á sumrin en í Los Angeles á vetram.
Leitiö til okkar:
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Hann kom oft í heimsókn til ís-
lands. Fyrst í stað reyndi hann að
koma a.m.k. á fimm ára fresti, en
á seinni áram urðu heimsóknimar
tíðari, enda fór efnahagur hans
batnandi þegar líða tók á ævina;
Sumarið 1987 kom hann til ís-
lands að heimsækja skyldulið sitt,
vini og kunningja, og öðram þræði
til að undirbúa komu sína alkom-
inn, enda hélt hann alla tíð íslensk-
um ríkisborgararétti.
Þá kenndi hann sjúkdóms, er við
greiningu reyndist krabbamein,
komið á það stig að allar tilraunir
til lækninga vora árangurslausar.
Er ég ræddi við hann eitt sinn á
sjúkrabeði, vakti hann máls á því,
hvað hann hefði verið lánsamur, að
sjúkdómurinn skyldi greinast hér,
því sambærilega læknismeðferð og
hjúkran alla hefði hann ekki fengið
í Los Angeles, nema géta lagt fram
þær greiðslur, sem fjárhagsgeta
hans leyfði ekki.
Meðan hann barðist við sjúkdóm
sinn, bjó hann á heimili systur
sinnar Unnar og manns hennar
milli þess er hann dvaldi á sjúkra-
húsi. Reyndust þau honum vel og
gerðu hvað þau gátu til að létta
honum baráttuna. Var það Engil-
bert ómetanlegur styrkur að fá að
vera meðal systkina sinna og vina
síðustu missirin sem hann lifði.
I dag kveðjum við vel gerðan
mann og góðan dreng, sem mann-
bætandi var að eiga að vini.
Við hjónin sendurn venslafólki
hans okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Grétar Eiríksson
byrjendanámskeió
Fjölbreytt, vanda'ð og skemmtilegt byrj-
endanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Tilva-
lið námskeið til að losna við alla vanmáttar-
kennd gagnvart tölvum.
Dagskrá:
★ Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
★ Stýrikerfið MS-DOS.
★ Ritvinnslukerfið WordPerfect.
★ Töflureiknirinn Multiplan.
★ Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 7., 9.f 14. og 16. mars kl. 20-23.
Innritun í símuni 687S90 o§ 686790.
VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku í námskeiðinu.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
Lansn
fyrir
breytta
tætnr
Ertu þreytt(ur) í fótunum eftir
langan vinnudag? Mættu í vinn-
una á morgun í Romika inniskóm
og athugaðu hvort þér líði ekki
betur eftir daginn.
Romika skórnir eru mjúkir og
ilegir. Eftir að þú hefur
gengið í þeim í smástund
hafa þeir aðlagast fótunum
og eftir það vinna þeir
með þér.
Gerðu fótunum þínum greiða
- gangtu í Romika skóm.
________________________________ROM.kA
ROMIKA SKÓR FÁST MEÐAL ANNARS ( EFTIRFARANDI VERSLUNUM:
Reykjavík: RR Skór, Kringlunni, S. Waage, Kringlunni, Skóverslunin, Laugavegi 97, Hvannbergsbræður, Laugavegi 71,
Skósel, Laugavegi 44, Axel Ó., Laugavegi 11, Gísli Ferdinandsson, Lækjargötu, Skóbúð Kópavogs, Kópavogi, Skóhöllin,
Hafnarfirði, Skóstofan, Eiðistorgi.
Landið: Skóbúðin Keflavík hf., Keflavík, Axel Ó. Lárusson, Vestmannaeyjum, Skóbúð Selfoss, Selfossi, Krummafótur,
Egilsstöðum, Skóbúð Húsavíkur, Húsavík, Skótískan, Akureyri, Staðarfell, Akranesi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KASK,
Höfn í Hornafirði.
Dreifing: Portó, Langholtsvegi 109, Simi 68 73 65