Morgunblaðið - 02.03.1989, Page 56
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
SAGA CLASS
í heimi hraða og athafna
FLUGLEIÐIR £*
FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Álftafellið
nær sokkið
«»MIKILL leki kom að skuttogar-
anum Álftafelli SU 100 frá
Stöðvarfirði í gærkvöldi, þegar
skipið var á leið frá Fáskrúðs-
firði til Norðfjarðar. Um mið-
nætti var skipið komið fyrir
Norðfjarðarhorn og á sléttan sjó.
Loðnuskipið Pétur Jónsson var
þá komið að skipinu með loðnu-
dælu og sömuleiðis Gullfaxi frá
Neskaupsstað, með björgunar-
sveitarmenn og aukadælur inn-
anborðs.
Álftafellið strandaði í mynni
Fáskrúðsfjarðar á mánudagskvöld
og skemmdist þá mikið, en um
klukkan 18 í gær lagði það af stað
til Norðfjarðar í fylgd Kambarast-
“Arinnar að lokinni bráðabirgðavið-
gerð. Um klukkan 22 kom mikill
leki að því, en það var þá statt við
Norðfjarðarhom. Álftafellið var þá
farið að hallast mikið og mikill sjór
kominn í lestar skipsins. Áhöfn tog-
arans var ekki talin í neinni hættu.
Söluskattur
af snjónum
Sveitarstjómarmenn víða um
land hafa af því áhyggjur að í
fjárlögum þessa árs er ekki
heimild til að endurgreiða sölu-
skatt vegna snjómoksturs. Slík
heimild hefur verið fyrir hendi
undanfarin ár.
Sveitarfélög þurfa að greiða sölu-
skatt vegna vinnu snjóruðnings-
tækja og gildir þá einu hvort tækin
eru í þeirra eigu eða verktaka. Nú
skortir heimild í fjárlögum til endur-
greiðslu þess söluskatts, sem
greiddur var á síðasta ári.
- Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga, sagði að sveitar-
stjómarmenn hefðu vakið athygli á
því síðasta haust að þessi heimild
til endurgreiðslu hefði verið felld
niður. „Undanfarin ár hefur endur-
greiðslan verið bundin við 12 millj-
ónir og þær hafa dugað, vegna
þess hversu snjólétt var þá,“ sagði
hann. „Frá síðustu áramótum hefur
hins vegar snjóað mikið um allt
land og sveitarfélög þurft að leggja
háar upphæðir í snjómokstur. Það
kæmi sér því vel fýrir þau ef þau
fengju söluskatt síðasta árs endur-
greiddan."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Það var þröngt setinn bekkurinn á bjórkram í miðborg
Reykjavikur í gærkvöldi og unga fólkið í miklum meirihluta,
eins og sjá jná á stærri myndinni. Á minni myndinni má sjá
fúlltrúa innlendra og erlendra fjölmiðla fylgjast með sölu
fyrstu bjórglasanna á hádegi í gær.
Morgunblaðið/RAX
Ein og hálf dós á mann
UM 340.000 dósir af bjór seldust í verslunum ÁTVR í gær eða
tæplega ein og hálf dós á hvern landsmann. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar ríkti víða helgarstemning í bæjum og einhverj-
ir brugðu sér bæjarleið til að ná sér í veigamar.
Fjöldi erlendra fréttamanna fylgdist með fyrsta degi bjórsins og
m.a. sendu bandarísku sjónvarpsstöðvamar ABC og NBC út beint
héðan í gærkvöldi. Frétt ABC um bjórinn var stjómað af Peter Lauren-
ce, fréttastjóra ABC í Evrópu, og send út á besta tíma í einum vinsæl-
asta fréttaþætti Bandaríkjanna. Fréttin var mjög jákvæð í garð lands
og þjóðar og sagði Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri, sem hefur
aðstoðað ABC-menn hér á landi, að ef litið væri á þessar þijár mínút-
ur, sem fréttin tæki, sem auglýsingu, hefði verð slíkrar auglýsingar
verið 3.286.000 dollarar á þessum tíma eða um 170 milljónir.
Sjá nánar á miðopnu.
Miklar aunir vegna fyr-
irspuma um hækkanir
Framfærsluvísitala hækkar um 1,8% vegna fram kominna hækkana
MIKIÐ hefúr verið um fyrir-
spumir frá fyrirtækjum og
stofnunum til Verðlagsstofúunar
um hvemig beri að standa að
verðhækkunum og hvemig eftir-
liti með þeim sé háttað. Fargjöld
Strætisvagna Reykjavíkur hækk-
uðu í gær um 25,9% að jafiiaði.
Verðlagsráð gerir ekki athuga-
semdir við þá hækkun vegna
þess hve mikið niðurgreidd þjón-
usta SVR er, að sögn Georgs
Ólafssonar verðlagsstjóra. Hann
segir miklar annir hafa verið hjá
Verðlagsstofiiun, einkum við að
meta umsóknir um verðhækkan-
ir frá opinbemm fyrirtækjum og
á landbúnaðarafúrðum. Verð-
hækkanir opinberra fyrirtækja
miðast almennt við 8%. Fram-
færsluvísitalan hækkar um 1,8%
vegna verðhækkana sem þegar
em komnar fram.
„Við erum ekki famir að átta
Ríkissjóður eykur endurgreiðslu söluskatts um 100 milljónir:
Vonii’ um hækkun fiskaflirða
EITT hundrað milljóna króna aukning á endurgreiðslum á uppsöfn-
uðum söluskatti til fískvinnslunnar, til þess að bæta henni fiskverðs-
hækkun þá sem ákveðin var í fyrradag, verður greidd úr ríkis-
sjóði, samkvæmt upplýsingum Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegs-
ráðherra. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að það hefði komið berlega fram í sam-
tölum hans við sjávarútvegsráðherra Noregs og Paul Schluter,
forsætisráðherra Danmerkur, á Norðurlandaráðsþinginu að almennt
gerðu menn sér vonir um vemlega hækkun á fiskafúrðum á næst-
unni, þar sem nú myndi draga úr framboði.
„Það eru mjög margir sem spá
hækkunum á sjávarafurðum erlend-
is, þeirra á meðal sjávarútvegsráð-
herra Noregs og forsætisráðherra
Danmerkur," sagði Steingrímur.
Hann sagðist hafa rætt þessi mál
við þessa menn á Norðurlandaráðs-
þinginu og þeir væru sammála um
að á næstunni yrði skortur á fiskaf-
urðum. Því hlyti verð að hækka.
„Það er gert ráð fyrir því að verð
hækki nægilega mikið til þess að
vega upp á móti því að greiðslur
úr verðjöfnunarsjóði hætta í lok
maímánaðar," sagði forsætisráð-
herra.
„Uppsafnaði söluskatturinn er
ekki endurgreiddur að fullu. Þessar
100 milljónir verða endurgreiddar
úr ríkissjóði, og eru umfram það
sem stendur á fjárlögum,“ sagði
sjávarútvegsráðherra.
Halldór var spurður hvað yrði í
maílok, þegar þessum endurgreiðsl-
um og verðbótagreiðslum lyki: „Það
sem gerist í maílok verður ekki ljóst
fyrr en þá,“ sagði Halldór og bætti
síðan við: „Það er ekki stefnt að
því að halda áfram þessum greiðsl-
um út árið. Menn eru meðal annars
að vonast eftir verðhækkunum á
okkar afurðum erlendis, en það er
nægur tími til að huga betur að því
þegar kemur fram í maí.“
Ráðherra var loks spurður hvað
hann teldi að þyrfti að fella gengið
um marga hundraðshluta ef verð-
hækkun á erlendum mörkuðum á
íslenskum fiskafurðum næðist ekki
á þessu tímabili: „Við skulum ekk-
ert segja um það að svo stöddu.
Það er ekki tímabært að vera með
vangaveltur um slíkt nú,“ sagði
Halldór Ásgrímsson.
Sjá bls.22.
okkur á heildarmyndinni ennþá,
fyrirtæki tilkynna hækkanir núna
til okkar eftir að verðstöðvun lýkur
og við skoðum hvort ástæða er til
athugasemda við þær hækkanir.
Það hefur verið mjög mikið að gera
hér, einkum við að fjalla um um-
sóknir opinberra fyrirtækja og land-
búnaðarins. Verðstöðvunin er fram-
lengd um sex mánuði hvað varðar
orkuveitur samkvæmt lagabreyt-
ingu sem gerð var, í síðustu viku,“
sagði Georg Ólafsson verðlags-
stjóri.
Verðlagsstofnun heimilar 8%
hækkanir á taxta orkuveitna og
skoðar hvert tilvik fyrir sig þegar
sótt er um meiri hækkun. Á meðal
fyrirtækja sem hafa sótt um hækk-
un er Semer.tsverksmiðjan sem
sækir um 9,5% hækkun.
Þær heimildir sem veittar hafa
verið, þar á meðal til verðhækkana
á bensíni, tryggingagjöldum, land-
búnaðarvörum og orku, munu fyrir-
sjáanlega hækka framfærsluvísi-
tölu um 1,7%-1,8%, að sögn
Hallgríms Snorrasonar Hagstofu-
stjóra. Hann segir að á næstu viku
muni þó eiga eftir að koma í ljós
hver hækkunin verður. „Niðurstað-
an verður vafalítið hærri," segir
hann.
Sjá einnig bls. 2