Morgunblaðið - 04.03.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.03.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ' LAUGARDA'GUR 4V MARZ Íð89 Kosningar til embætt- is biskups eruhafnar KJÖRGÖGN vegna biskupskosn- inga voru send út á mánudag og eru biskupskosningar því hafinar. Allir guðfræðikandídatar eru f raun kjörgengir, svo framarlega sem þeir fúllyrða skilyrðum um að vera skipaðir prestar í þjóð- kirkjunni, en flórir hafa „gefið leyfi til að nafii þeirra sé nefnt“, þeir sr. Ólafúr Skúlason, vfgslu- biskup og dómsprófastur, sr. Heimir Steinsson, prestur og þjóð- garðsvörður á Þingvöllum, sr. Sig- urður Sigurðsson, sóknarprestur á Selfossi, og sr. Jón Bjarman, sjúkrahúsprestur á Landspítalan- um. 161 er á kjörskrá að þessu sinni en kosningarétt hafa allir þjónandi prestar og prófastar í þjóðkirkj- unni, þjónandi vígslubiskupar og biskup Islands. Einnig kennarar við guðfræðideild Háskóla íslands (prófessorar, dósentar, lektorar) enda séu þeir guðfræðikandídatar. Það sama á við um biskupsritara og prestvígða menn sem ráðnir eru til sérstakra starfa hjá þjóðkirkj- unni á vegum kirkjuráðs og taka full árslaun úr kirkjusjóði. Þá hafa kosningarétt leikmenn sem sæti eiga á kirkjuþingi þegar biskups- kosning fer fram, leikmenn sem sitja í kirkjuráði en eru ekki kjömir kirkjuþingsmenn og auk þess 16 leikmenn sem eru fulltrúar pró- fastsdæma. Skilafrestur á kjörgögnum renn- ur út kl. 17 miðvikudaginn 22. mars og hefst talning viku síðar þegar kærufrestur er runninn út. Til að ná kjöri verður að ná meiri- hluta greiddra atkvæða. Ef enginn fær þann atkvæðafjölda verður kos- ið á ný milli þeirra þriggja er flest atkvæði hlutu. Sá er réttkjörinn sem þá fær flest atkvæði. Lögreglan getur ekki bætt á sig skýrslum HALLDÓR Ásgrímsson dóms- málaráðherra segir lögregluna f Reykjavík ekki f stakk búna til þess að taka að sér aukin verk- efiii. Þetta sagði hann í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður hvernig hann hygðist taka í samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur, þess efnis að þvf væri beint til dómsmálaráðuneyt- isins að skýrslutaka vegna um- ferðaróhappa yrði aftur færð f fyrra horf, þannig að lögreglan sinnti allri skýrslugerð. „Lögreglan er ekki í stakk búin til þess að taka að sér aukin verk- efni. Þar hefur þurft að spara og ég hélt að borgarstjóm Reykjavíkur skildi það,“ sagði Halldór. Hann sagðist ekki íhuga að beita sér fyr- ir því að fyrra fyrirkomulag hvað varðar skýrslugerð vegna umferð- aróhappa yrði tekið upp á nýjan leik. Reykjavíkurhöfn: Þj ónustugj öldin hækka um 21,6% HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur hefiir samþykkt tillögu hafiiar- stjóra um 21,6% hækkun á þjón- ustugjaldskrá Reykjavíkurhafii- ar firá 1. mars. Hækkunin er í samræmi við þækkun á almennri hafnargjald- skrá. 1 5 ÞÚ SPARAR KR. 34.400 MEÐ ÞVIAD FARA í MAÍ OG JÚNÍ MEÐ VERÖLD Tll COSTA DEL SOL etA^1 Við vildum bara benda þér á hversu hagstæðara það er að ferðast með Veröld meðfjölskyld- una í maí og júní heldur en í ágúst til Costa del Sol og nota fjölskyldu- afsláttinn okkar á Benal Beach. Á þessum tíma er veðrið eins og það getur best orðið á Spáni, allur gróður í blóma, mannlífið fjöl- skrúðugt og endalausir möguleik- artil að krydda sumarleyfið. Verð kr. pr. mann Vigiu - Nýja Santa Clara. Lúxus fyrir lægra verð. veðk 41 600 -* pr. mann íhl^khU ÍMdAMzhfl J jJiLuíii Við fengum nokkur aukastúdíó á frábæru verði á Benal Beach í páskaferðina til Costa del Sol, 21. mars Verð aðeins kr. pr. mann m.v. 2 í stúdíóíbúð Við fengum aukagistingu á Timor Sol, því á fimmtu- dag og föstudag bókuðu sig yfir 50 manns. Brottför 2. apríl, 30 nætur. Verð aðeins kr.« n Q A A . pr. mann Uí/*t/v v j m.v. 2 ístúdíóíbúð Sérstokur fororstjóri Ásdis Skúladóttir, leikstjóri Hjúkrunarfræðingur, Guðný Guímundsdóttir AUSTURSTRÆTI 17.SIMI 91-622200 Verð miðað við hjón m. 2 börn. HJA VEROLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PENINGANA •<s- Æ . t j;, Sí IT <4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.