Morgunblaðið - 04.03.1989, Side 12
n jJíORqyNBkAÐJÐ/LAtJGARDAQUR 4. MARZ ‘ 1989
8*2
12.800 íslendingarmeð
lögheimili erlendis
4.800 erlendir ríkisborgarar hér
Nína Björk
les upp
í Jónshúsi
Jónshúsi.
NÍNA Björk Árnadóttir rithöfund-
ur las upp úr verkum sínum í fé-
lagsheimilinu i Húsi Jóns Sigurðs-
sonar, fimmtudagskvöldið 23.
febrúar.
Nína hefur dvalið hér í Höfn við
ritstörf um nokkurt skeið og vinnur
að skáldsögunni „Þriðja ástin“. Er
það önnur skáldsaga höfundarins,
sem samið hefur 10 leikrit og gefið
út 6 ljóðabækur. Hér las Nína Björk
úr nýjustu ljóðabókinni „Hvíti trúður-
inn“ og einnig úr skáldsögunni, sem
er í smíðum. Skáldkonan er frábær
upplesari og var margt manna saman
komið, til að hlusta á hana.
- G.L.Ásg.
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Nina Björk les upp í Jónshúsi.
Samkvæmt janúarhefti Hag-
tíðinda höfðu 12.822 einstakling-
ar, fæddir á íslandi, lögheimili
eríendis árið 1988,^ 5.773 karlar
og 7.049 konur. Á sama tíma
dvöldu 13.838 íslenzldr ríldsborg-
arar í öðrum ríkjum, 6.319 karlar
og 7.519 konur.
Hcr á landi vóru hinn 1. desem-
ber 1988 9.351 íbúi fæddur erlend-
is og 4.829 með erlent ríkisfang.
Á sl. ári vóru 8.996 íslenzkir
ríkisborgarar búsettir á Norður-
löndum: 3.544 í Svíþjóð, 3.052 í
Danmörku, 2.069 í Noregi, 232 í
Færeyjum, 34 í Grænlandi og 32
í Finnlandi. í öðrum Evrópulönd-
um 1.353, flestir í Bretlandi, V-
Þýzkalandi og Luxemborg. í
Bandaríkjunum vóru 2.582,
Kanada 370, Eyjaálfu 308 og ann-
arsstaðar færri.
Af 12.822 einstaklingum, fædd-
um á íslandi með lögheimili er-
lendis, vóru 8.114 búsettir á Norð-
urlöndum, 1.110 í öðrum Evró-
puríkjum, 3.148 í Ameríku, 38 í
Afríku, 39 í Asíu, 280 í Eyjaálfu
og 93 ótilgreint.
Þeir, sem fara til útlanda til
atvinnudvalar, fyltja að jafnaði
lögheimili sitt til viðkomandi lands,
en námsmenn halda jafnan lög-
heimili á íslandi. Þetta á þó ekki
við þá sem stunda nám á Norðurl-
öndum.
Hér búandi, fæddir erlendis,
vóru 9.351, 4.214 karlar, 5.137
konur. Flestir 4.334 fæddir á
Norðurlöndum, 2.667 í Öðrum
Evrópulöndum, 1.468 í Ameríku,
166 í Afríku, 544 í Asíu, 164 í
Eyjaálfu.
4.819 erlendir ríkisborgarar
dvöldu í landinu, 2.117 karlar og
2.712 konur. Flestir eða 1.785 frá
Norðurlöndum, 1.582 frá öðrum
Evrópulöndum, 965 frá Ameríku,
99 frá Afríku, 240 frá Asíu, 151
frá Eyjaálfu og 7 ótilgreint nánar.
Hafnarfjörður:
Átta tilboð
í gatnagerð
ÁTTA tilboð bárust í gatnagerð
í Setbergslandi í innsta hluta
Lækjarbergs og Hlíðarbergs.
Átti J.V.J. lægsta tilboðið, rúm-
lega 9,1 milljón en kostnaðará-
ætlun er rúmlega 16,4 milljónir.
Hefúr bæjarráð samþykkt að
fela bæjarverkfræðingi að ganga
til samninga við J.V.J.
Aðrir sem buðu í verkið voru:
Borgarvirki, rúmlega 10,6 millj.,
Halldór og Guðmundur, rúmlega
11,7 millj. og Rúnar Smárason,
Gnoðavogi 54, Reykjavík, 12,5
millj. Tilboð Háfells og Loftorku
voru nær samhljóða, rúmar 12,8
millj. og Hagvirki bauð hæst rúm-
lega 13,8 millj.
Símar 35408 og 83033
GAMLI BÆRINN
Hverfisgata 63-115
Óðinsgata o.fl.
JR»riíiU»M«ií>iíþ
MAJORKA • KÍPUR • FLORIDA • LUXEMBOURG • ÞYSKALAND • FRAKKLAND • AUSTURRIKI
FERÐABINGÓ
ÁRSINS
Ferðaskrifstofan JJRVAL og Félag eldri borgara efna til glæsilegs ferðabingós
á HÓTEL ÍSLANDi, laugardaginn 4. mars kl. 14.00, fyrir 55 ára og eldri.
Húsið opnar kl. 13.00.
Spilaðar verða 8 umferðir um stórkostlega ferða-
vinninga frá ferðaskrifstofunni ÚRVAL og FLUG-
LEIÐUM. Aukavinningar eru gefnir af NÓA
SIRÍUS.
HAUKUR MORTHENS syngur við undirleik.
HEILDARVERÐMÆTI
VINNINGA ER
KR. 550.000,-
Aðgangseyrir er 290 kr. —
innifalið er kaffi & kökur
Bingóspjaldið kostar aðeins 350 kr. og
gildir fyrir allar umferðirnar
HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN verður með fríar ferðir
,til og frá félagsmiðstöðvum og elliheimilum
borgarinnar, og einnig frá Seltjarnarnesi, Mos-
fellsbæ, Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.
Bifreiðastöðin HREYFILL ekur frítt fyrir
ellilífeyrisþega innan borgarmarkanna. Síminn er 68 55 22.
VINNINGASKRA
1. umferð Flugfar innanlands með Flugleióum.
2. umferð Flugfar til og frá Luxembourg eða Frankfurt
með Flugleiöum.
3. umferð Flugfar til og frá Kaupmannahöfn, Osló eða
Stokkhólm með Flugleiðum.
4. umferö Ferð með Úrvali í 24 daga 3. maí til Majorku.
5. umferð Ferð meö Úrvali 2. október í 4 vikur til
Majorku.
6. umferð Flugfar með Flugleiðum til og frá Florida.
7. umferð Ferð eldri borgara I 18 daga til Miö-Evrópu
5. september með Úrvali.
8. umferð Ferð fyrir tvo til Majorku með Úrvali
í 24 daga 3. maí
FÉLAG ELDRI BORGARA
FERÐOSKRIFSrOFAN ÚRVOL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
MAJORKA • KÍPUR • FLÓRÍDA • LUXEMBOURG • ÞÝSKALAND • FRAKKLAND • AUSTURRÍKI *