Morgunblaðið - 09.03.1989, Blaðsíða 24
24
MORGÖNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9.' MARZ 1989
Grikkland:
Skora á Papandreou
að segja strax af sér
Bankahneykslið verður stöðugt alvarlegra
Aþenu. Reuter.
Stjórnarandstaðan í Grikklandi og tveir þingmenn Sósíalista-
flokksins skoruðu í gær á Andreas Papandreou forsætisráðherra
að segja af sér vegna bankahneykslisins þar í landi og efiia til
kosninga. Papandreou vísaði því á bug og tilkynnti, að hann ætl-
aði í meiðyrðamál við bandaríska tímaritið Time vegna viðtals,
sem það átti við bankastjórann, sem hneykslinu olli.
Tveir kunnir þingmenn Sósíal-
istaflokksins og flokksbræður Pap-
andreous, Roula Kaklamanaki og
Antonis Tritis, fyrrum menntamála-
ráðherra, tóku í gær undir með
stjómarandstöðunni og hvöttu
stjómina til að segja af sér. Sögðu
þeir, að hún væri orðin svo blinduð
af valdahroka, að hún sæi ekki hve
aivarlegt ástandið væri. Talsmenn
Nýja lýðræðisflokksins, stærsta
stjómarandstöðuflokksins, sögðu,
að það væri „óheyrilegt" að Pap-
andreou héldi áfram sem forsætis-
ráðherra og ný samtök vinstri-
manna sögðu, að það öll töf á af-
sögn hans væri stórhættuleg.
Papandreou hefur þó ekki í
hyggju að fara frá og segir áskoran-
ir andstæðinganna eingöngu stafa
af ótta þeirra við að tapa í kosning-
unum, sem eiga að verða 18. júní
næstkomandi.
Talsmaður grísku stjómarinnar
tilkynnti í gær, að Papandreou ætl-
aði að höfða mál á hendur banda-
ríska vikuritinu Time vegna viðtals
þess við George Koskotas, fyrrum
bankastjóra, sem flýði frá Grikk-
landi en var síðan handtekinn í
Bandaríkjunum. í Evrópuútgáfu
Time er forsíðan helguð þessu máli
með mynd af Koskotas og fyrir-
sögninni „Rænt og ruplað f Grikk-
landi". Segir Koskotas þar, að Pap-
andreou hafí sjálfur lagt blessun
sína yfír áætlanir um að svíkja út
milljónir dollara af opinberu fé.
Koskotas, sem er 34 ára að aldri,
var aðeins óbreyttur bankastarfs-
maður fyrir nokkrum árum en þeg-
ar ár var liðið frá valdatöku Sósíal-
istaflokksins var hann orðinn
æðstráðandi í mikilli fjármála- og
útgáfusamsteypu. Átti hann meðal
annars helsta bankann á Krít og
þegar hann flýði í nóvember sl. var
talið, að hann hefði stolið frá honum
meira en 200 milljónum dollara.
Koskotas situr nú í bandarísku
fangelsi og hefur verið farið fram
á, að hann verði framseldur.
í síðasta mánuði voru 14 ríkis-
fyrirtæki ákærð fyrir að hafa tekið
Reuter
Andreas Papandreou, forsætis-
ráðherra Grikklands, ásamt Dim-
itra Liani, 34 ára gamalli vinkonu
sinni. Myndin var tekin í desem-
ber sl.
við stolnu fé af Koskotas og einnig
kaupsýslumaðurinn George Louvar-
is, náinn vinur Papandreous. í þess-
ari viku var svo Panayiotis Voum-
as, yfírmaður grísku póstþjón-
ustunnar, handtekinn og ákærður
fyrir misferli.
Hálfmilljón mexíkanskra kennara efndu til verkfalls í fyrradag
til þess að leggja áherzlu á kröfur sínar um 100% hækkun launa
og umbætur í kennslumálum. Þúsundir þeirra gengu fylktu liði
um götur Mexikó af sama tilefiú og var þá meðfylgjandi mynd
tekin.
Kvennadagurinn í ísrael:
Palestínukonur
efna til mótmæla
Jerúaalem, Tel Aviv. Reuter.
PALESTÍNSKAR konur á hinum hernumda vesturbakka Jórdan-
ár efiidu víða til mótmælasetu og í Gaza-borg fóru þær í kröfii-
göngu á alþjóðlega kvenneadeginum i gær. Konumar mótmæltu
því m.a. að ísraelsk yfírvöld héldu kynsystrum þeirra í fangelsi.
Herlið réðst á konumar í Gaza með kylfum og sundraði göngunni;
margar kvennanna vora eltar uppi er þær reyndu að flýja inn í
nærliggjandi hús. Enginn mun hafa slasast alvarlega.
Leiðtogar uppreisnar Palestínu- amir hófu tveggja sólarhringa alls-
manna, intifada, sem nú hefur stað-
ið í 15 mánuði, hrósa palestfnskum
konum mjög í nýjustu flugritum
sínum en þær hafa verið afar virk-
ar í uppreisninni. Talsmenn Pa-
lestínumanna og sjúkrahúsyfírvöld
sögðu að hermenn hefðu sært 11
andófsmenn á Vesturbakkanum og
Gaza með skotvopnum þegar íbú-
herjarverkfall til að mótmæla
hemámi ísraela. Palestínskir tals-
menn segja að fyrirmælum leiðtoga
uppreisnarinnar hafi verið hlýtt,
verslunum hafí verið lokað og al-
menningsfarartæki hafí verið í
lamasessi. í Jerúsalem lýsti lög-
regla yfír útgöngubanni í borgar-
hverfí Palestínumanna í austur-
Deilan um „Söngva Satans“:
Irönum vísað úr
landi af Bretum
Lundúnum. Reuter.
GEOFFREY Howe, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að
ótilteknum Qölda írana í Bretlandi yrði vísað úr landi af öryggisá-
stæðum og að ræðismannsskrifstofii írana í Hong Kong yrði lok-
að. Vestur-þýsk stjóravöld sögðust vilja viðhalda góðum samskipt-
um við írana þrátt fyrir dauðadóm Khomeinis, trúarleiðtoga Ir-
ana, yfir Salman Rushdie, höfúndi bókarinnar „Söngvar Satans“.
Þau vildu hins vegar ekki tjá sig um árás íranska dagblaðsins
Kayhan á Vestur-Þjóðveija, en blaðið hvatti írönsk stjóravöld til
þess að slíta stjórnmálasambandi við þá.
Geoffrey Howe sagði á breska
þinginu að starfsmenn írönsku
ræðismannsskrifstofunnar í Hong
Kong fengju hálfs mánaðar frest
til að yfírgefa nýlenduna. Hann
sagði að íranar hefðu ekki dregið
dauðahótanimar gegn Rushdie til
baka og því yrði hópi írana í Bret-
landi vísað úr landi. Embættis-
menn breska utanríkisráðuneytis-
ins sögðu að nú væru um 100.000
íranar í Bretlandi og töldu að inn-
an við hundrað þeirra yrði skipað
að yfírgefa landið.
Félagar í skæruliðahreyfingu
múslima, sem heldur tveimur
Bandarílgamönnum í gíslingu í
Líbanon, sögðust í gær ætla að
taka Rushdie af lífí. Þeir sögðust
hafa verið „neyddir til þess að ráð-
ast á breskar lögreglustöðvar sem
vemda eiga Rushdie til að ná hon-
um og taka hann af lífi“. Rithöf-
undurinn hefur verið í lejmum und-
ir lögregluvemd síðan Khomeini
kvað upp dauðadóminn 14. febrú-
ar.
Talsmaður vestur-þýsku stjóm-
arinnar sagði að Vestur-Þjóðveijar
vildu viðhalda góðum samskiptum
við írana þrátt fyrir aðforina að
Rushdie. Hann sagði þó að Vest-
ur-Þjóðveijar myndu ávallt ieitast
við að veija tjáningarfrelsið og
önnur mannréttindi. Iranska dag-
blaðið Kayhan hafði hvatt írönsk
stjómvöld til þess að slíta stjóm-
málasambandi við Vestur-Þjóð-
veija vegna „viðbjóðslegra móðg-
ana þeirra gagnvart múhameðstr-
únni og islömsku byltingarforyst-
unni“.
Reuter
Hægrisinnar á Qöldafundi i Tel Aviv þar sem þess var krafíst að
stofiiaðar yrðu fleiri landnemabyggðir gyðinga á hemumdu svæðun-
um. ísraelsstjórn segist munu hindra að byggðir verði stofiiaðar án
leyfís stjórnvalda.
hlutanum og sagðist hafa tekið
höndum fjölda eftirlýstra manna.
Hópur sérfræðinga við hermála-
stofnun Tel Aviv-háskóla hefur Iagt
til að gerð verði 10-15 ára áætlun
um frið milli ísraela og Palestínu-
manna ísraelsstjóm he§i viðræður
við Frelsishreyfíngu Palestínu-
manna, PLO, og Palestínumenn fái
sjálfstjóm er með tímanum geti leitt
til sérstaks ríkis þeirra. Fram-
kvæmdastjóri stofnunarinnar,
Aharon Yariv, var áður ráðherra
ogyfírmaðurleyniþjónustu hersins.
Sovéskar haftiir:
Kjarnorku-
knúnu skipi
vísað burt
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKU gámaskipi hefur
verið neitað að leggjast að
bryggju í ijórum höfnum á
Kyrrahafsströnd Sovétríkj-
anna vegna þess að skipið er
kjamorkuknúið, að sögn sov-
éska dagblaðsins Sovétskaja
Rossíja á þriðjudag. Blaðið
sagði yfírvöld hafa vanrækt
að veita fullnægjandi upplýs-
ingar um skipið og búnað þess.
Tugir þúsunda manna í borg-
unum Vladívostok, Nakhodka,
Magadan og Vostotsní hafa
ritað útvarpsstöðvum til að
mótmæla komu skipsins og
tilraunir til að lægja öidumar
með því að leyfa fólki að skoða
skipið hafa mistekist. í síðustu
viku skýrði sovéskur embætt-
ismaður frá þvi að neyðar-
ástand hefði ríkt í kjam-
orkuknúnum ísbrjóti í fjórar
mínútur vegna mistaka en
áhöfninni hefði tekist að leysa
málið á síðustu stundu.
Bandaríkin:
Palestínufull-
trúi fær vega-
bréfsáritun
Washington. Reuter.
FEISAL al-Husseini, Pa-
lestínumaður frá Vesturbakk-
anum, er nýlega var látinn
laus úr ísraelsku fangelsi, hef-
ur fengið vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna. Þar hyggst
hann sækja ráðstefnu um
málefni Miðausturlanda, að
sögn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins. Talsmaður
ráðuneytisins sagði að ekki
hefði enn verið tekin ákvörðun
varðandi áritun fyrir tvo full-
trúa Frelsishreyfíngar Pa-
lestínumanna PLO. Ráðstefii-
an er kostuð af Columbíu-
háskólanum og fjórum sam-
tökum gyðinga og araba. Talið
er að ráðstefnan hefði farið
út um þúfur ef Palestínumann-
inum hefði verið neitað um
áritun.
Frakkland:
Atta farast
í eldsvoða
Mulhouse. Reuter.
ÁTTA manns fómst og a.m.k.
10 slösuðust er eldur braust
út í íbúðarblokk í frönsku
borginni Belfort í gær. Um
eitt hundrað slökkviliðsmönn-
um tóks loks að ráða niðurlög-
um eldsins en íbúamir biðu
skelfíngu lostnir í gluggunum
er þeir komu á vettvang. Þrír
hinna látnu vom slökkviliðs-
menn. Blokkin var uppmna-
lega hótel en hafði verið breytt
í íbúðarhús.
Andófsganga
í Nicaragua
Managua. Reuter.
Stjómarandstöðuflokkar í
Nicaragua hafa ákveðið að
efna til mikillar göngu um
borgina Leon á sunnudag, að
sögn andstöðublaðsins La
Prensa. Markmiðið er að
treysta samstöðu hinna mörgu
flokka og fylkinga sem beijast
gegn sandinistastjóminni svo
að hægt verði að hrínda stjóm-
inni úr sessi í fyrirhuguðum
kosningum á næsta ári. 14
flokkar og nokkur einkafyrir-
tæki standa að göngunni en
sótt hefur verið um leyfí fyrir
henni hjá lögreglu.