Morgunblaðið - 09.03.1989, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 09.03.1989, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989 Minning: Leifiir Jónsson Fæddur 6. september 1919 Dáinn 28. febrúar 1989 Þriðjudaginn 28. febrúar síðast- íiðinn gekk Leifur Jónsson föður- bróðir minn á fund feðra sinna. Hann kvaddi þennan heim á sama hátt og sjö bræður hans sem á undan eru gengnir, varð bráðkvadd- ur, sá áttundi lést í æsku. Leifur var fæddur í Reykjavík og bjó allan sinn aldur þar og setti svip á bæ- inn. Hann skar sig úr fjöldanum vegna vanheilsu sinnar, hann náði aldrei fullum þroska. Leifur var þriðji yngstur 12 bama, hjónanna Ingibjargar Gilsdóttur og Jóns Odds Jónssonar, af þeim er nú á lífi tvær systur og einn bróðir. Frænda minn hef ég þekkt alla mína tíð og ógleymanlegt er það litlum drengstaula, þegar við röltum um bæinn á góðviðrisdögum og ævinlega var amma, klædd peysu- fotum, í för með okkur. Var ferð- inni oftast heitið til ættingja, því það var í þá daga að fólk heimsótti hvort annað. Á þessum gönguferð- um var ákveðin hefð, amma leiddi mig en frændi gekk á hæla okkar og bar þar ekki út af. Hann hafði sína ákveðnu sérvisku, sem sést vel á lítilli sögu af honum. Það var á hemámsárunum að amma hafði bannað honum að tala við hvem sem væri á götu úti. Svo var það kvöld eitt að foreldrar mínir höfðu farið í bíó og á heimleið mættu þau honum, pabbi kastaði á hann kveðju en hann tók ekki undir, það var bannað. Eitt var það sem frænda mínum var gefið og það var gott tímaskyn, allar hans gjörðir í lífinu miðuðust við klukkuna, t.d. það að hann fór í gönguferð á hverju kvöldi alltaf á sama tíma og gekk svo til allt fram til hins síðasta. Leifur átti því láni að fagna að eiga góða að, fyrst foreldra sína og að þeim látnum þá systkini, sem hann bjó með og hugsuðu þau um hann. Nú hin síðustu ár bjó hann með systur sinni Elísabetu og á hún þakkir skilið fyrir hversu vel hún hugsaði um hann. Veri kært kvaddur, frændi minn, hvíli hann í friði, friður guðs hann blessi. Jón Oddur Sveinn Magnús- son - Kveðjuorð Fæddur 15. nóvember 1919 Dáinn 1. febrúar 1989 Lofíð þreyttum að sofa. Þetta kom upp í huga mér þegar mér var tilkynnt lát föður míns Sveins Magnússonar. Hann sem hafði svo ómælt æðruleysi til að bera, öll þessi ár sem hann var svo til sam- bandslaus við umheiminn vegna veikinda sinna. Það veit víst enginn sem hefur öll líffæri sín i lagi hve þungt það er að sýkjast af ólækn- andi sjúkdómi, og bera hann í ára- raðir, geta ekki gengið tröppur eða varla nokkur spor nú síðustu ár án verulegra átaka og erfíðis. Það má nærri geta hvort það hafí ekki ver- ið þung spor hjá mömmu og pabba að verða að selja og sjá á eftir ein- býlishúsi sínu á Víghólastíg 12 í Kópavogi, vegna þess að pabbi gat ekki gengið þær tröppur sem þar voru. En ekki heyrði ég hann kvarta. Þau fluttu svo í fallega íbúð sem þau keyptu í Hrafnhólum 6 í Breiðholti. Og þar sem að ég er mjög trúuð veit ég að honum líður betur þar sem hann er nú. Nú get- ur hann fylgst með okkur úr ijar- lægð, ekkert móður, nei, ekkert sjúkur. Við bömin hans, bamaböm- in og bamabamabamið, söknum hans mikið, en þar sem við vitum að honum líður svo mikið betur nú, þá ætlum við að hugsa okkur um. Jú, hve yndislegt hefði það verið ef elsku pabbi hefði verið frískur, hann sem var svo mikill náttúm- unnandi og hafði yndi af útiveru. Það kom smá ljós í huga minn, þegar þau höfðu fengið sér hjólhýsi og komið því vel fyrir á fallegum stað í Þjórsárdal, því allt varð að vera vel gert, eða þá bara ógert. Ekki veit ég með vissu hvað marg- ar ferðir hann komst þangað, en þær vom fáar. Þá var súrefniskút- urinn á milli mömmu og pabba í ÍLOMi> HAFIMARSTRÆT115, SÍMI21330 Kransor, krossar og k isti/sk i 'c ylin <>ar. o Sendum um allt land. Opið kl. 9-19 virka daga og til 21 um helgar. framsætinu og mamma keyrði með sumarfugla í maganum af ánægju yfir því að geta lyft honum upp. Ég er nú ekki beint þekkt fýrir að vera alveg orðlaus, en þegar mér verður hugsað til mömmu minnar og alls þess er hún hefur á sig lagt öll þessi ár, þá á ég fá orð. Pabbi var alltaf heima, utan nokkurra daga í einu á Vífílsstöð- um, þar sem hann lést 1. febrúar síðastliðinn. Það hlýtur að hafa verið mikið æðmleysi á því fallega heimili foreldra minna. Enginn heyrði móður mína kvarta yfír hlut- skipti sínu enda var hjónabandið alla tíð einstaklega gott. Ég efast ekki um að það hafí verið vel tekið á móti pabba á nýja staðnum. Móðuramma mín, Guðrún Erlendsdóttir, látin 1966 hefur eflaust verið ein af þeim og þá finnst mér sem hún standi eins og í gamla daga á fallegu, grænu túni og syngi sinn uppáhalds söng. „Stóð ég úti í tunglsljósi." Ég held að enginn þurfí að kvíða þessu ferða- lagi, sem víst er að við fömm öll í, fyrr eða síðar. Við emm jú öll jöfn fyrir frelsara vomm. Þessi orð em skrifuð í innilegu þakklæti til föður míns. Að lokum vil ég þakka þeim hjónum Jónu og Gísla, Þorláki og Gróu og öllum þeim sem héldu tryggð við foreldra mína og styttu þeim stundir. Elsku mamma mín, ég votta þér og öllum sem þótti vænt um pabba samúð mína. Guð gaf og Guð tók, bara á örlítið misjafnan hátt. Rúna t Bróðir okkar, ÁSGEIR NORÐDAHL, Ekru, Mosfellsbæ, lést á Reykjalundi aðfaranótt 7. mars. Systkin. t Eiginmaður minn, PÁLL DANÍELSSON, Efstalandi 6, Reykjavík, lést miðvikudaginn 8. mars. Ebba Þorgeirsdóttir. t Útför systur minnar, BJARGAR ÓLAFSDÓTTUR, hjúkrunarkonu, Brávallagötu 50, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 10. mars kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra. Minningarkort fást í bókabúðinni VEDU í Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, Ingunn Ólafsdóttir. Minning Elín B. Nielsen Útför elskulegrar móðursystur minnar var gerð frá Vors Frelses Kirke, Amager, Kaupmannahöfn, föstudaginn 3. marz sl. Hún hét Elín Björg Sigurðardótt- ir Nielsen, fædd í Njarðvík, N-Múiasýslu, 6. júní, 1910. Hún var fímmta bam foreldra sinna, Sigurð- ar Þorkelssonar, bónda í Njarðvík og konu hans, Guðnýjar Sigurðar- dóttur, í röð átta systkina. Hún lézt á hjúkrunarheimili í Kaupmannahöfn þann 26. febrúar sl. eftir erfíð veikindi, en í Dan- mörku hafði hún verið búsett síðan árið 1934, er hún fór utan til náms og atvinnu. Þar kynntist hún eigin- manni sínum Kurt Nielsen verk- fræðingi, en þau stofnuðu heimili í Kaupmannahöfn og þar fæddust bömin þeirra tvö, Sigurður Bjöm, fæddur 27. marz, 1944 og Elín Guðný Pála, fædd 4. júní 1946, sem lifa móður sína og búa og starfa þar í borg. Kurt lézt árið 1977. Þær voru ófáar íslenzku konum- ar, sem fóru yfír hafíð til Dan- merkur á þessum tíma, ungar að ámm, í leit að atvinnu, fyrst og fremst, en gerðu sér sjálfsagt vænt- ingar um bættan hag og lífsham- ingju. Margvísleg kjör biðu þeirra og margar hafa vísast snúið von- sviknar heim aftur. Hlutskipti Ellu frænku minnar varð að læra og síðan starfa á saumastofu í Kaup- mannahöfn, en fatasaum og sér- staklega kjólasaum, stundaði hún fram eftir ævi, annáluð fyrir fagurt og vandað handbragð. Sjálf var hún glæsileg kona svo af bar, en ekki síður einstaklega viðmóts- og hjartahlý og vildi hvers manns vanda leysa sem mest og bezt hún mátti. Þeir eru margir, íslending- amir, skyldmenni, vinir og einnig ókunnugir, sem nutu gestrisni, hjálpsemi og örlæti þessarar mann- kostakonu á þeim mörgu árum, sem hún bjó í Kaupmannahöfn og var við góða heilsu. Göfug kona er gengin, sem lifði margan erfiðan dag á erlendri gmnd, ekki sízt striðsárin og árin þar á eftir. En hún bazt Danmörku tryggðarböndum og tókst á við mótlæti af hugrekki og með þeirri reisn og ljúfmennsku, sem alltaf einkenndi hana. Enginn var glaðari á góðri stund. Minningin um hana er hlý og vermandi. Ég kveð frænku mína og skila sérstökum kveðjum móður minnar svo og fjölskyldunnar allrar með þakklæti fyrir samfylgdina. Elínu og Bimi sendi ég mínar innilegustu ' kveðjur og samúð. Veri þau öll Guði falin. Elin Jónsdóttir t Móðursystir okkar, ALMAD. LEIFSSON, fædd ANDERSEN, verðurjarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 10. marskl. 10.30. Hallfríöur Bjarnadóttir, Ellen Bjarnadóttir. t Ástkær eiginkona mín, VILBORG JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 21, lést í sjúkrahúsinu, Egilsstöðum, aðfararótt 4. mars. Friðsteinn Helgason. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS INDRIÐA HALLDÓRSSONAR, Efstasundi 29, Reykjavik, fer fram frá Áskirkju föstudaginn 10. mars kl. 15.00 Geirný Tómasdóttir, Magnea Jónsdóttir, Sveinn Óskarsson, Elfnborg Jónsdóttir, Siguröur H. Jónsson, Ásthildur Jónsdóttir, Gunnar Likafrónsson, Hafdis Jónsdóttir, Karl R. Guðfinnsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Þórhallur P. Halldórsson, Hafþór Jónsson, Lilja H. Halldórsdóttir, Jóna G. Jónsdóttir, Már Halldórsson, Dagfríður Jónsdóttir, Árni Jóhannsson, Halldóra Jónsdóttir, Halldór Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts föður okk- ar, tengdaföður, afa og langafa, STEINDÓRS I. STEINDÓRSSONAR, Strandaseli 9, Reykjavfk. Steindór Steindórsson, Sólveig Sigurjónsdóttir, Ellert K. Steindórsson, Rannveig Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.