Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 14
14____________ MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGPR 1D: -MARZ 1989_ Málpípa meinbægninnar eftir Gunnlaug Þórðarson Ammundur Backman hæstarétt- arlögmaður, sem var aðstoðarmað- ur Svavars Gestssonar félags- og heilbrigðismálaráðherra 1980- 1981, hefur haldið áfram í sínu gamla hlutverki og verið att út á ritvöllinn af fyrrum húsbónda og flokksformanni. Greinilegt er að vegsemdin verður seint fullþökkuð. Tilefnið er að sögn Ammundar, að í leiðara Morgunblaðsins 26. janúar sl. var vikið að því fáheyrða tiltæki ráðherranna tveggja, Ólafs R. Grímssonar og Svavars Gestssonar, að taka Sturlumálið svokallaða úr embættislegri meðferð og koma í veg fyrir, að endanlegur dómur fengist í málinu í Hæstarétti. Lævís fyrirmæli Mun það vera algjört einsdæmi að mál, þar sem ríkissjóði er stefnt til að greiða skaðabætur, og hefur verið áfrýjað til þess að fá sýknu- dóm, sé dregið til baka úr Hæsta- rétti af áfrýjanda (flármálaráðherra Ólafí Grímssyni) með samkomulagi. Stefíianda málsins, Sturlu Krist- jánssyni, voru með því greiddar bætur langt umfram það, sem hon- um hafði verið dæmt í héraði. í samkomulaginu og einhliða ákveðið: „skal Sturla (stefnandi málsins) í engu gjalda hennar (málsins) í framtíðinni gagnvart ráðuneytinu". Hins vegar voru ekki nein ákvæði um að áhrif hér- aðsdómari skyldu eftirleiðis engin vera, sem hefði verið jafn sjálfsagt að taka fram. Slíkt kom handlöng- urum ráðherranna tveggja, Svavars og Ólafs, ekki til hugar enda voru þeir alls ekki að gæta hagsmuna ráðuneytisins og því síður fv. menntamálaráðerra, Sverris Her- mannssonar, svo komið hefur á daginn. Nú þegar Ammundur Backman tekur sér penna í hönd, kemur enn betur í ljós að samkomulagið var fyrst og fremst gert Sverri til háð- ungar og smánar. Verður vikið að því nánar síðar, en þetta gefur vísbendingu um hve lævís fyrirmæl- in hafa verið, sem ráðherramir, Svavar og Ólafur, hafa gefíð hand- löngurunum. Slæmur málstaður Ammundur Backman fer í grein- inni líkt og köttur í kringum heitan graut, enda málstaðurinn slæmur frá lögfræðilegu sjónarmiði. Megin- tilefni skrifanna, segir hann vera það óskapar álag, sem fjölskylda fræðslustjórans og fræðslustjórinn sjálfur hafí mátt þola út af málinu í Qölmiðlum. Við þvf er aðeins eitt svar. Fræðslustjórinn má sjálfum sér um kenna, af því að hann fór sjálfur með mál sitt í fjölmiðla og tókst að fá Þjóðviljann með sér í að gera þetta ómerkilega mál hans að pólitísku moldviðri. Eins og það hafi aldrei hent áður, að manni hafí verið vikið úr embætti. Sérstak- lega var ósmekklegt framlag frétta- mannsnefnu ríkissjónvarpsins norð- an fjalla í málinu, er hann lét böm í yngsta bekk einhvers bamaskóla norður þar, vitna í Sturlumálinu. Var augljóst hver stóð að baki því hneyksli. Ekki hafa fyrr verið jafn skýlausar ástæður fyrir brottrekstri og í þessu máli. Aðstoðarmenn ráðherranna Eitt hið furðulegasta, sem gripið hefur ýmsa ráðherrana, var þegar þeir fengu sér aðstoðarmenn líkt og þeir gætu ekki leyst störf sín af hendi án þeirra. I okkar litla þjóðfélagi þar sem allt er í svo smáum sniðum, eru störf ráðherra ekki erfíðari en svo að helmingur þeirra gæti leyst þau. Virðast störf f ríkisstjóm hafa orðið gagnminni og seinvirkari eftir því sem ráð- herramir hafa'orði fleiri. Sannast hér hið fomkveðna að því verr gef- ast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman, sbr. orð Ólafs pá. Hitt er jafn víst, að ekki munu að- stoðarmennimir hafa verið ráðnir vegna of mikils álags, heldur hins að gott hefur þótt að fleygja í þá afgreiðslu óvinsælla mála og um leið að geta umbunað taglhnýting- um með slíkri vegtyllu. Svo virðist sem oftast hafí verið ráðnir í starf aðstoðarmanns ráðherra framagos- ar sem ættu litla von um pólitíska velgengni. Ráðherramir Svavar og Ólafur, hafa gengið lengra í aðstoðar- mannabmðli en dæmi em til áður. Þeir hafa fundið upp ný nöfn á þessu fyrirbæri. Hjá Svavari heitir það „ráðgjafí", en hjá ólafí „efna- hagsráðgjafí". Þeir hafa sömu laun og þannig hafa þeir, Svavar og Ólafur, í raun réttri tvo aðstoðar- menn hvor, þeir em brautryðjendur á þessu sviði. Var einhver að tala um spamað? Það vom nýi aðstoðarmaðurinn, Guðrún Ágústsdóttir, og sá gamli, Ammundur Backman, sem gerðu hið dæmalausa samkomulag um að sneiða fram hjá Hæstarétti til þess að koma í veg fyrir að dómur í Sturlumálinu yrði endanlegur. Það kátbroslega við þetta allt saman er, að aðstoðarmaður þessi, Guðrún Ágústsdóttir, skuli nú eiga í mála- ferlum við þann sama Svavar Gests- son ráðherra, yfírboðara sinn, vegna eigin stöðuveitingar og krafna um biðlaun. Trúlega gerir Guðrún sér von um bætur, hvort sem hún vinnur málið eða ekki með samkomulagi að gefnu fordæmi. Góður dómur en óbrúklegur í grein sinni hælir Ammundur dómendum í Sturlumálinu. Manni gæti dottið í hug, að hann hafí viss- ar hugmyndir um lífsskoðanir þeirra. Þótt Ammundur hæli dóm- inum, þá forðast hann eins og heit- an eldinn að nefna, að hann hafí breytt honum, líkt og hann sjálfur, Ammundur Backman, væri Hæsti- réttur. Gunnlaugur Þórðarson „ Aðalatriðið í sam- komulagsgerð ráðher- rannatveggja, Svavars og Ólafs, var að koma í veg fyrir að Hæstirétt- ur fjallaði um málið. Miklu hefur verið til kostað af almanna fé.“ Hindrað skyldi að Hæstiréttur breytti dóminum Ammundur heldur því fram, að meðferð hans á þessu máli: „meið- ir hvorki ríkissjóð né ráðherra. SORPEYÐING Urðunarstaður sorpsins. eftír Björn Árnason Mikið hefur verið rætt og ritað um Sorpeyðingu höfuðborgarsvæð- isins undanfarið. Margir hafa látið ljós sitt skína, með og móti, einkum þó á móti. Fleiri en skyldi gleyma því, að hér er verið að leysa vandamál sam- félagsins alls. Ruslið kemur frá okkur sjálfum, sem aftur þýðir, að enginn einn getur með reisn sett sjálfan sig á stall og sagt „ekki hjá mér“. Viðfangsefnið er að fínna lausn, sem flestir geta sætt sig við. Hver er þá sú lausn? Þeir, sem unnið hafa að málinu á vegum sveitafélaganna, em að leita bestu lausnar, miðað við tak- mörkuð flárráð. Um þetta eru þeg- ar til margar lærðar ritgerðir. Telj- um við okkur, með ærinni fyrirhöfn og kostnaði, vera komin að þeirri lausn, sem best samræmist nútíma- legum gæðakröfum og takmörkuð- um íjárráðum. Skal nú lýst f höfuðdráttum því er við hyggjumst gera. 1. Söfnun sorps frá heimilum er ekki ætlunin að breyta að sinni. Affall frá atvinnurekstri mun ekki fara beint á sorphauga, en reikna má með verulegri hagræðingu í söfnun þess og flutningi. Gáma- þjónusta er nú veitt á vegum sveita- félaganna og víða starfrækt á vinnustöðum. Er augljóst að sú þjónusta hefur sannað gildi sitt. Flokkun sorps og affalls vegna end- umýtingar þarf að gerast sem mest hjá notendum þjónustunnar og sennilega einnig við móttöku f gám- ana. Er það mikið mál, en augljóst er að skilningur fer vaxandi á þeirri hlið málsins. 2. Móttökustöð mun verða mikil- vægasti hluti rekstrar Sorpeyðingar og á þar að taka við nánast öllu sorpi og affalli svæðisins. Flutn- ingskostnaður að stöðinni er veru- lega þýðingarmikill liður. Flutn- ingskostnaður frá stöðinni er einnig íþyngjandi, einkum ef akstursleið er löng. Nánar um það síðar. Stöð- ina á að reka að mestu í einu stóru, Björn Áraason „Nú er kominn tími til að hætta að skemmta skrattanum með upp- hlaupum og- bægfsla- gangi. í staðinn verður nú að vega og meta með köldum rökum þá kosti sem bjóðast, ef leysa á málið yfírleitt.“ tvískiptu húsi. í öðrum endanum verður tekið við húsasorpi, þ.e. því sorpi sem sorpbílar safna úr sorp- ílátum í heimahúsum og fyrirtækj- um. Sorpið verður þjappað og vír- bundið í bagga, sem hver verður allt að tonn að þyngd. Að þessari meðferð lokinni verða baggamir meðfærilegir og hagkvæmir í flutn- ingi, enda unnið með til þess gerð- um tækjum. í hinum enda hússins verður tekið við öðru affalli og þar fer fram takmörkuð flokkun. Timb- ur verður kurlað í hæfílega stærð og á að seljast þannig til Jám- blendiverksmiðjunnar. Málmar verða og skildir frá og fara til end- urvinnslu hjá Stálfélaginu. Það af rusli, sem til þess hentar, verður blandað húsasorpinu og baggað með því. Annað msl verður fíokkað í gáma og ráðstafað til endur- vinnslu ef unnt reynist. Öll starfsemi stöðvarinnar verður innanhúss og frá henni fara einung- is sorpbaggar og annað affall í gámum eða öðmm lokuðum ílátum. Fullyrða má, að stöð þessi verði til fyrirmyndar um allan frágang og vinnubrögð. Staðsetning hennar, sem hugsuð er í Hellnahrauni, fellur vel að staðfestu skipulagi, þar sem viðkomandi svæði er beinlínis ætlað fyrir grófan iðnað og er fjarri íbúða- byggð. 3. Urðunarstað verður að ákveða og starfrækja hann til að taka við affallinu, sem að lang- mestu leyti verður í böggum. Með áformuðum vinnuaðferðum ætti orðið „sorphaugur" að geta talist úrelt, svo ólíkur verður þessi staður því sem við nú þekkjum. Böggunum verður raðað með hentugum tækj- um í stæður og þær huldar með jarðvegi daglega. Áætlað er að fylla í nálægt tvo hektara á ári (20.000 m2). Yrði fyllingin þá um 5 m á þykkt. Auðvelt er að fylla í fleiri lögum ef landslag er hentugt til þess og minnkar þá flatarmálið samsvarandi. Áformað er að girða svæðið og að inn á það fari ekki aðrir en starfsmenn Sorpeyðingar. Rétt er að geta þess, að fok á rusli hefur reynst hvað hvimleiðast í rekstri sorphauga. Framleiðendur böggunarvélanna hafa undirgengist ábyrgð á því að úr böggunum losni að hámarki 0,2% af þyngd þeirra. Auk þess verður svæðið girt eins og áður sagði með hárri girðingu og plantað gróðri frá byijun, sem bæta mun umhverfið. Standa því vonir til, að fokmengun og önnur umhverfísspjöll verði í lágmarki. Nú hefur væntanlegri starfsemi Sorpeyðingar verið lýst all ýtarlega. Leitað hefur verið hagkvæmustu lausna og reynist flutningskostnað- urinn vega þungt í dæminu. Sú niðurstaða, sem nú er í aug- sýn, þ.e. móttökustöð í Hellna- hrauni og urðun á Krýsuvíkursvæð- inu, mun kosta íbúa höfuðborgar- svæðisins nokkra tugi milljóna á ári umfram það sem vera þyrfti. Flutningskostnaður að stöð er tal- inn vera um fimmfalt hærri, reikn- aður á tonn og kílómetra, en flutn- ingskostnaður frá henni. Staðarval skiptir því miklu máli. Bestu stað- imir fyrir móttökustöð og urðun hafa ekki reynst fáanlegir og hefur verið hafnað með hæpnum rökum. Nú er kominn tími til að hætta að skemmta skrattanum með upp- hlaupum og bægslagangi. í staðinn verður nú að vega og meta með köldum rökum þá kosti sem bjóð- ast, ef leysa á málið yfírleitt. Meta þarf bæði kosti og galla og koma sér niður á boðlegar lausnir. Hagur Hafnarfjarðar er að sjálfsögðu að gera sitt til að leysa á viðunandi hátt vandamálin sem fyrir liggja. Má þar nefna, að bygging og starf- semi móttökustöðvarinnar í Hellna- hrauni flýtir uppbyggingu hverfís- ins og mun einnig ýta á eftir sam- göngubótum. Starfræksla urðunar- staðar á Krýsuvíkursvæði mun meðal annars þýða áreiðanlegar samgöngur, sem er lykilatriði fyrir aðra nýtingu svæðisins. Er kunnara en frá þurfí að segja, hve mikilli bölvun samgönguleysið hefur valdið á þeim stað. Enginn vafí er, að þegar upp verður staðið og öldumar hefíir lægt, verður sómi þeirra sveitafé- laga mestur, sem axla ábyrgðina og gera það sem þarf til að málin Ieysist á skynsamlegan og hag- kvæman hátt. Höfundur er bæjarverkiræðingur í HafnarGrði og stjómarmaður i nefnd um sorpeyðingu höfíið- borgarsvæðisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.