Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1989 Ást er ... sameiginlegt nammi- namm. TM Reg. ll.S. Pat Otf —all rights reserved ® 1989 Los Angeles Times Syndicate Ekki blása. — Sjúga ... HÖGNI HREKKVÍSI (V 'tr Hundubnn 1ALAHPI þETTA ER ÓPOtdCIMM SEM HEI/VITAE>/ „ÓKESPIS AÐGAHG, t'ÐA é<S -" Þessir hringdu . . Sundbolur tapaðist Blágrænn sundbolur tapaðist í laugunum í Laugardal sunnudaginn 5. eða 12. febrúar. Ef einhver kannast við að hafa tekið bolinn í misgripum, þá er hann vinsamlegast beðinn að skila honum aftur í laugamar. Um lífeyrissjóði og réttindi sjóðfélaga Hrafii Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands al- mennra lífeyrissjóða, hringdi: Sem svar við vangaveltum um réttindi úr lífeyrissjóðum, sem birtist í Velvakanda sl. þriðjudag, er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram ef það mætti verða til þess að leiðrétta útbreiddan mis- skilning um tilgang lífeyrissjóð- anna. Bæði hér á landi og erlendis gildir sú meginregla að ellilífeyris- greiðslur eru hærri en makalífeyr- ir. Ef hækka ætti makalífeyri til samræmis við ellilífeyri þyrfti í bráð og lengd annaðhvort að lækka ellilífeyri samsvarandi eða hækka iðgjöldin. Tekið skal fram að ellilíeyri og lífeyrissjóðir skerð- ast ekki þrátt fyrir að viðkomandi sjóðfélagi njóti einnig makalífeyr- is. Allt tal um slíkt byggist á misskilningi. Eins og kunnugt er fer ellilí- feyrir úr lífeyrissjóðum eftir áunn- um réttindum, sem miðast við innborguð iðgjöld á starfsævinni. Hins vegar greiða lífeyrissjóðimir einnig svokallaðan áhættulífeyri, sem er auk makalífeyris örorkulí- feyrir 'og bamalífeyrir. í slíkum tilvikum verða lífeyrisgreiðslumar undantekningalítið langtum hærri en þau iðgjöld sem inn í viðkom- andi lífeyrissjóð hafa borist vegna sjóðfélagans. Ljóst er að ef lífeyr- isgreiðslur úr sjóðunum ættu ein- göngu að fara eftir innborguðum iðgjöldum myndu ekkjur, öryrkjar og böm njóta mun minni lífeyris. Því miður vill það oft gleymast að lífeyrissjóðimir veita mjög mikla tryggingavemd, þegar eitt- hvað bjátar á, til dæmis langvar- andi veikindi sjóðfélaga. Hvað varðar réttindi úr lífeyris- sjóðum, væri eðlilegast að sjóð- félagar sneru sér til starfsfólks viðkomandi lífeyrissjóðs, sem fús- lega mun gefa allar nánari upplýs- ingar. Að minnsta kosti ætti fólk að kynna sér vel málefni lífeyris- sjóðanna, svo hægt sé að forðast ýmsan misskilning um hlutverk þeirra, sem veður uppi m.a. vegna þess að ekki er leitað upplýsinga hjá réttum aðilum í tíma. Ljóslausir bílar 454 hríngdi: Það em ansi margir bílar sem aka ljóslausir um hábjartan dag- inn. Það er engu líkara, en hér séu skattsvikarar á ferð, þar sem þeir fara ekki að lögum. Það er ekki nema einn og einn sem tekur mark á því þegar maður gefur merki og setur ljósin á. Og við þessu geta gangandi vegfarendur ekki gert neitt. Gullarmband fannst Guðrún Sigfúsdóttir hríngdi: Dóttir mín fann tvöfalt hring- laga gullarmband á Sólvallagötu 27. febrúar. Upplýsingar í síma 28372. Köttur í óskilum Grár og hvítur högni með end- urskinsól og litla bjöllu, en ómerktur, hefur verið í óskilum síðan á sunnudag. Nánari upplýs- ingar fást í síma 84051 eða á Dýraspítalanum. Gutti er týndur Gutti er kolsvartur köttur sem hvarf af bílaplaninu fyrir aftan Hótel Lind á þriðjudag. Gutti er vel merktur, en hann á heima á Vífílsgötu 15. Þeir sem gætu gef- ið upplýsingar um ferðir Gutta vinsamlegast hafið samband í síma 611560. Leyndardómar guðsríkis Jón Arnar Ingólfsson hringdi: Ég hringdi í Velvakanda fyrir stuttu og talaði um trúmál. Ég var þá að tala um að leiða fólk inn í leyndardóma guðsríkis. Leyndardómamir eru aðeins tveir. Fyrsta boðorðið er að þú skalt eiska drottin guð þinn af öllu hjarta þínu, af öllum mætti þínum og af allri sálu þinni. Annað boð- orðið er að þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ef þú gerir þetta ertu sanntrúaður hvort sem þú veist af því eða ekki. Öll dýrð hér er dýrð guðs. Öll önnur dýrð er stolin eða eftirlíking. Köttur fæst gefins Eitthvert gott fólk getur fengið ársgamlan kött gefins. Þeir sem hafa áhuga á kisu geta hringt í síma 31116 eftir kl. 17. Seðlaveski tapaðist Stórt brúnt seðlaveski með öku- skírteini og ýmsum öðrum skírteinum tapaðist fyrir helgi. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 672563. Víkverji skrifar rátt fyrir stóraukið öryggi fiskiskipa og bætta íjarskipta- tækni gerist það því miður endrum og eins að skipsskaðar verða hér við lánd. Nú í vikunni gerðist það að tveir bátar sukku í slæmu veðri. Þetta gerðist aðeins með nokkura mínútna millibili sl. þriðjudags- kvöld. Hér á Morgunblaðinu var auðvit- að allt sett af stað til að afla sem gleggstra frétta af atburðunum svo að lesendur gætu fengið sanna mynd af þeim morguninn eftir. í störfum sínum höfðu blaðamenn Morgunblaðsins það að leiðarljósi sem endranær að fara varfæmum höndum um málið svo enginn yrði fyrir sárindum vegna frétta blaðs- ins. Ríkisútvarpið sagði frá þessum atburðum í fréttum klukkan 22, aðeins hálfri annarri klukkustund eftir að atburðimir höfðu gerst. Víkveiji hrökk við, því að frásögnin var þannig að fjöldi fólks hlaut að fyllast ótta um ættingja sína. Ríkis- sjónvarpið kom með nær samhljóða fréttir klukkan 23. Fólk hringdi á Morgunblaðið strax um kvöldið til að lýsa yfir óánægju með frétta- flutninginn og Víkveija skilst að enn fleiri hafí hringt til ríkisfjölmiðl- anna í sömu erindagjörðum. í há- degisfréttum á miðvikudag baðst fréttastofa útvarpsins afsökunar á fréttinni og eru fréttamenn þar menn að meiri. Ekki ætlar Vikveiji að setjast í dómarasæti yfír kollegum sínum á ríkisfjölmiðlum heldur vill hann nota tækifærið til að brýna fyrir blaðamönnum að fara varlega í við- kvæmum slysamálum. Fréttamenn ljósvakamiðlanna þurfa að sýna sérstaka gát því þeir geta komið fréttum á framfæri svo að segja samstundis. Vikveiji veit nokkur dæmi þess að óvarlegar fréttir hafa valdið sárum sem seint hafa gróið. Okkar litla þjóð verður vonandi aldrei svo „stór“ að hún hætti að hugsa um tilfinningar fólks. xxx Mikil er gæfa Sigurjóns Óskars- sonar skipstjóra á Þórunni Sveinsdóttur VE. Ár eftir ár hefur hann orðið aflahæstur yfir landið á vetrarvertíð. En hitt metur Siguijón eflaust meira, að honum hefur hlotnast sú gæfa að hafa íjórum sinnum bjargað skipshöfnum úr sjávarháska. Víkveiji hringdi til Hannesar Þ. Hafstein, forstjóra Slysavamafé- lags íslands, á þriðjudagskvöldið, skömmu eftir að bátamir höfðu sokkið. Þá var ekki vitað um afdrif skipveijanna á Nönnu VE. En Hannes sagði þá: „Ég hef von, því hann Siguijón á Þórunni Sveins- dóttur er í grenndinni. Hann er happamaður og fiskinn bæði á fisk og menn.“ Þetta voru orð reyndasta björgunarmanns okkar íslendinga. Fleiri orð eru óþörf. XXX Blaðið Fréttir, sem gefið er út í Vestmannaeyjum, gerði fyrir skömmu að umtalsefni pistil sem ungur rithöfundur hafði skrifað í Þjóðviljann. Þar var rithöfundurinn að agnúast út í veðurfregnir út- varps og sagði m.a: „Fólkið sem les þessi ósköp er nær undantekningar- laust ólæst og það ætlar aldrei að ljúka sér af, er í rólegheitum að tína út úr sér þessar einskisverðu fréttir fram yfir klukkan sjö jafn- vel.“ „Þetta staðfestir kannski það sem oft er haldið fram að tvær þjóð- ir búi orðið í landinu," er haft eftir Óskari Þórarinssyni, skipstjóra á Frá VE, í Fréttum vegna pistils hins unga rithöfundar. Óskar bend- ir réttilega á að sjómenn eigi af- komu sína undir veðrinu og verði að geta treyst á veðurfregnir. Þeg- ar bátar og skip séu á sjó í slæmum veðrum fylgist ijölskyldur sjómanna grannt með veðurfregnum og lýs- ingu af veðri. „Þetta allt saman virðist hafa farið fram hjá rithöf- undinum unga, sem á það vanda- mál eitt við að stríða að komast í og úr vinnu á Lödunni sinni gömlu," segir blaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.