Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 44
SJOVÁ-ALMENNAR Nýtt félíifí með sterkar rætur EINKAREIKNINGUR ÞINN í IANDSBANKANUM m ___________________I / FOSTUDAGUR 10. MARZ 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Frumvarp um verðbréfasjóði: Breytíngu neðri deildar hnekkt FJÁRHAGS- og viðskiptanefiid efri deildar ákvað á fundi sfnum í gær að fella út ákvæði, í stjórnarfirumvarpi um verðbréfasjóði og verðbréfamarkaði, sem neðri deild hafði bætt inn, þess efiiis, að Seðlabankinn setji hámark á vexti á þessum markaði. Einnig var í breytingu neðri deildar á frumvarpinu, sem felld var út, kveðið á um að sjóðimir skyldu búa við bindiskyidu líkt og aðrar innlánsstofnanir. Eiður Guðnason, formaður neftidarinnar, segir að við athugun málsins hafí verið talið að þessi ákvæði ættu fremur heima í Seðla- bankalögunum og myndu stjómar- liðar í nefndinni flytja breytingartil- lögu við þau þess efnis. Eyjólfur Konráð Jónsson, sem sæti á í nefndinni, segist fagna því að þessu ákvæði hafí verið kippt út, en það myndi að mati sjálfstæð- ismanna kollvarpa þeim vísi að verðbréfamarkaði sem væri að þró- ast á íslandi. Verkalýðsfélag Vestmannaeyja: V erkfallsboðun dæmd ólögmæt Félagið dæmt til greiðslu sektar í Félagsdómi ~ ‘Félagsdómur dæmdi í gær verkfallsboðun Verkalýðsfélags Vestmannaeyja á starfsemi ÍSNÓ í Eyjum ólöglega. Ennfremur var verkalýðsfélagið dæmt til greiðslu sektar að upphæð 25.000 krónur og til greiðslu málskostnaðar að upphæð 30.000 krónur. Verkalýðsfélag Vestmannaeyja boðaði til vinnustöðvunar á starf- semi ÍSNÓ sfðastliðinn fímmtudag og skyldi hún koma til framkvæmda í dag, föstudag. ÍSNO er aðili að Vinnuveitendafélagi Vestmanna- eyja, sem er aðili að VSÍ. VSÍ fór —með málið fyrir félagsdóm síðastlið- inn mánudag og var það flutt í gærkvöldi. Krafa VSÍ var sú, að verkfallið yrði dæmt ólöglegt, þar sem í gildi væru kjarasamningar milli verkalýðsfélagsins og vinnu- veitenda til 10. apríl næstkomandi. Verkalýðsfélagið taldi hins vegar að þeir samningar næðu ekki yfír starfsemi ÍSNÓ. Lögmaður VSÍ í málinu var Jón Rúnar Pálsson, en lögmaður Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja Am- mundur Bachmann. Heilir úr sjávarháska Morgunblaðið/Þorkell Skipveijamir, sem björguðust þegar Sæborg SH 377 sökk á Breiðafirði, sjást hér við gúmbjörgun- arbátinn, sem þeim var bjargað úr. Þeir heita Sigurður Hafsteinsson, matsveinn, Vagn Ingólfsson, 2. vélstjóri, Eymundur Gunnarsson, stýrimaður, Haukur Barkarson, háseti, Ingvar Hafbergsson, háseti, Erik Juslin, háseti og Grímur Th. Stefánsson, háseti. Lengst til vinstri á myndinni er Guð- mundur Þorgrimsson, yfirvélstjóri, en hann fór ekki í síðasta róður Sæborgar vegna meiðsla. Sjá samtöl við skipbrotsmenn á miðopnu. * Agreiningur um húsnæðisbréfakerfíð: Jóhanna hafnar málamiðl- un Framsóknarflokksins ÁGREININGUR Alþýðuflokks og Framsóknarflokks um skipan hús- næðislánakerfisins kom enn greinilegar upp á yfirborðið í gær eftir að þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti með semingi mála- miðlunartiUögu um það, hvernig skipan húsnæðislánakerfísins verði næstu tvö árin. Þingflokkurinn féllst á að næstu tvö árin yrði gerð tilraun með húsnæðisbréfakerfíð, sem Jóhanna Sigurðardóttir beitir sér fyrir að taki við af núgildandi húsnæðislánakerfí, en jafnfiramt yrði núgildandi húsnæðiskerfí áfram við lýði. „Nei, ég mun ekki sætta mig við þessa tillögu Framsóknar," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála- ráðherra. Hún sagði að það kæmi bráðlega í ljós hvað hún gerði, ef Framsóknarflokkurinn kæmi ekki Sjávarútvegsráðherra: Fríðindi ekki keypt með veiðiheimildum — en semja ber um nýtíngu sameiginlegra stofitia Ekki verður samið við EB um veiðiheimildir hér við land gegn tollfríðindum fyrir íslenzkar sjávarvörur. Þetta kom firam f máli sjávarútvegaráðherra á Alþingi í gær. Hann telur hins- vegar að semja beri um nýtingu sameiginlegra stofiua, loðnu, karfa, rækju og kolmunna, til að fyrirbyggja rányrkju þeirra. Ekkert sem felur í sér viiyrðí skrárumræðu á Alþingi í gær. um afsal fullveldisréttinda verður að fínna í texta væntanlegrar yfir- lýsingar forsætisráðherra EFTA- ríkjanna, sem funda í Osló 13. og 14. marz nk. Og ekkert um „yfir- þjóðlegar stofnanir". Þetta kom fram í máli Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra í utandag- Sjávarútvegsráðherra sagði í sömu umræðu, að ekki stæði til að kaupa tollfríðindi hjá EB-rfkj- um með veiðiheimildum. Hinsveg- ar væri nauðsynlegt að semja um nýtingu sameiginlegra stofna, loðnu, karfa, rækju og kolmunna, til að fyrirbyggja rányrkju þeirra. Kristín Einarsdóttir (Kvl/Rvk) hóf umræðuna. Hún taldi nauð- synlegt að þing og þjóð fengju vitneskju um, hver væri stefna ríkisstjómarinnar til þeirra mála, sem ræða ætti á toppfundi EFTA í Osló, ekki sízt hver væri afstaða hennar til EB og framvindu mála í Evrópubandalaginu og sam- skiptum EFTA-ríkja við það. Miklar umræður urðu um mál- ið. Sjá firásögn á bls. 27 og um- mæli á miðopnu. lengra ti! móts við hennar markmið. Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, kvaðst í samtali við Morgunblaðið telja, að þetta væri mál sem hlyti að vera hægt að semja um, en þing- flokkur Alþýðuflokksins mun fjalla um þetta mál og tillögu Framsóknar á þingflokksfundi sínum í dag. Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti þessa tillögu Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra, eftir talsverð átök. Níu þingmenn samþykktu, en flórir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, þeirra á meðal Alexander Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri andvígur þessu og Framsóknar- flokkurinn myndi ekki teygja sig eitt skref í viðbót í átt til samkomulags við félagsmálaráðherra. „Ráðherrar okkar hafa ekkert umboð til þess að ganga lengra í samkomulagsátt, en þessi samþykkt gengur út á, enda verður ekki farið lengra," sagði Alex- ander. Tillagan gerir ráð fyrir að 500 milljónum verði varið á ári til hús- næðisbréfanna í tvö ár. Alexander sagði að samþykktin væri skilyrt, m.a. þannig að 55% kaupskylda lífeyrissjóðanna á skuldabréfum Byggingarsjóðs ríkisins verði áfram við lýði, og að engin sérstök stofnun yrði sett á laggimar fyrir bréfakerf- ið, heldur yrði það bara hluti af Húsnæðisstoftiun. „Það er náttúr- lega ekki líðandi að einn ráðherra skuli ætla sér að stilla öðrum ráð- herrum upp við vegg og segja, ef ég fæ ekki þetta, þá er ég hætt,“ sagði Alexander. Forsætisráðherra sagði: „Einstak- ir ráðherrar verða auðvitað að sætta sig við að ná ekki öllum sínum málum í gegn og það sama á við um Jó- hönnu Sigurðardóttur. Ég beitti mér fyrir málamiðlun, sem ég tel að Jó- hanna megi vel við una." Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að þingflokkur Alþýðubandalags- ins muni fremur hallast að því að fara beri rólega í þessu máli og því séu þeir þingmenn ekki fráhverfir því að rétt væri að byija með hús- næðisbréfakerfíð á þann hátt sem Framsóknarflokkurinn leggur til. Neita að aka raeð íslensk- ar afurðir ÍSLENDINGAR á sjávarútvegs- sýningunni i Boston hafa tvívegis síðustu daga lent í því að leigubfl- stjórar neituðu að flytja kassa merkta sem íslenska framleiðslu og báru við hvalveiðum íslendinga. Úr þessu rættist þó f bæði skiptin. „Þegar við mættum á flugvöllinn í Boston og ætluðum að flytja fiskinn á hótelið, alls fjóra kassa af laxi og silungi, neitaði leigubílstjórinn að flytja þá þegar hann sá að þeir voru merktir sem íslensk framleiðsla," sagði Friðrik Sigurðsson, hjá Lands- sambandi fiskeldis- og hafbeitar- stöðva, í samtali við Morgunblaðið. Hann er nú staddur á sjávarútvegs- sýningunni í Boston, Boston Seafood Show, ásamt nokkrum öðrum íslend- ingum, en það er stærsta sjávarút- vegssýningin sem haldin er í Banda- ríkjunum. Friðrik sagði að bflstjórinn hefði gefíð eftir að lokum og fallist á flutn- inginn með semingi. Sjá frétt um sýninguna í Boston á bls. 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.