Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 18
^ •• ^ MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 10. MARZ 1989 18 Tékkóslóvakía: Andófemenn hljóta feng- elsisdóma fyrir áróður Jihlava í Tékkóslóvakíu, Moskvu. Reuter. TVEIR tékkneskir andófsmenn voru dæmdir í fangelsi í gær af undirrétti, sakaðir um áróður gegn ríkinu. Fyrir skömmu voru leikritaskáldið Vaclav Havel og tveir aðrir andófsmenn hnepptir í varðhald vegna mótmælaaðgerða er þeir stóðu fyrir i janúar og bendir allt til þess að yfirvöld hyggist nú herða róðurinn gegn andófsöflum í landinu. Jegor Lígatsjov, sem talinn er helsti andstæðingur Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og umbóta- stefnu hans, kom á miðvikudag til Tékkóslóvakíu. Andófsmennirnir Ivan Jirous, rokktónlistarmaður og sagnfræð- ingur, og Jiry Tichy, hlutu 16 og 6 mánaða fangelsi. Þeir dreifðu á síðasta ári flugriti þar sem sem krafist var lausnar pólitískra fanga úr haldi og rannsóknar á dauða andófsmanns sem lést í fangelsi. Enn fremur sagði að kommúnistar hefðu drepið 8000 manns síðan þeirtóku völdin í landinu 1948. Jiro- us og Tichy áfrýjuðu báðir dómun- um. Áður en Havel var hnepptur í varðhald tók hann þátt í að stofna nefnd til vamar Jirous og sagði tónlistarmanninn einn af bestu skapandi listamönnum landsins. Taldi hann málsóknina gegn Jirous hafa það markmið að hræða aðra listamenn frá sjálfstæðum vinnu- brögðum. Valdhafar í Prag hafa reynst tregir til að taka upp umbótastefnu enda voru þeir og fyrirrennarar þeirra á sínum tíma settir til valda til að kveða niður umbótastefnu Dubceks. Stjómmálaskýrendur telja að koma Lígatsjovs, sem nú er hæstráðandi landbúnaðarmála í Sovétríkjunum, geti verið þáttur í samráði afturhaldsafla í Austur- Evrópu. Lígatsjov var til skamms tíma talinn næstvoldugasti maður Sovétrílq'anna og hefur nýlega and- mælt skoðunum Gorbatsjovs á land- búnaðarmálum. Tékkneska flokks- málgagnið Rude Pravo gagnrýndi nýlega af mikilli hörku grein er sovéska fréttastofan Novostí sendi frá sér. Novostí sagði að að innrás Varsjárbandalagsríkja í Tékkósló- Reuter Rokktónlistarmaðurinn Ivan Jirous stofhaði á áttunda ára- tugnum hljómsveitina „Plastfólk alheimsins" en hún var bönnuð af yfirvöldum sem sögðu hana valda óspektum og ekki hlíta settum menningarreglum ríkis- ins. vakíu 1968 hefði í fyrstu valdið „áfalli en síðar miklum vonbrigð- um.“ Tékkneska blaðið fordæmdi greinina og sagði að líta mætti á hana sem „afskipti af innanlands- málum Tékkóslóvakíu.“ Viðræður um fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu: Hröpum ekki að samkomulagi þrátt fyrir umbótaáformin - segir helsti samningamaður Sovétsljórnarinnar Vínarborg. Reuter, The Daily Telegraph. VIÐRÆÐUR 23 aðildarrflga Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Varsjárbandalagsins um niðurskurð hefðbundins herafla í Evrópu hófúst I gær í Vínarborg. Fulltrúar bandalaganna tveggja kváð- ust almennt líta til fúndanna með bjartsýni en búist er við að þeim ljúki tæpast næstu árin þar eð ágreiningsefhin eru fjölmörg og viðræðurnar viðamiklar og flóknar. Helsti samningamaður Sovét- stjómarinnar, Oleg Grínevskíj, gaf hins vegar í skyn að ráðamenn þar myndu ekki slaka á kröfum sínum þótt umbótaáætlanir stjómvalda gerðu ráð fyrir minnkandi útgjöld- um til vamarmála. Grínevskíj sagði í gær að stjómvöld þar eystra myndu ekki fallast á ósanngjamar kröfur þrátt fyrir þær „stórbrotnu" breytingar sem nú ættu sér stað í heimalandi hans. Sagði hann end- umýjunaráform NATO verulegt áhyggjuefiii og minnti á að Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefði einhliða ákveðið að skera niður her- afla Sovétmanna í Austur-Evrópu. „Það er mikilvægt að menn geri sér Ijóst að góður ásetningur hefur sínar takmarkanir," sagði hann. Viðræðumar munu taka til hefð- Tíbet: Dalai Lama er uggandi Nýju Delhí, Dharamasala, Peking. Reuter. DALAI Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem er í útlegð á Indlandi, sagði f gær að hann óttaðist að Kínverjar gengju fram af mikilli hörku við Tíbeta í kjölfar herlaga sem sett voru á í landinu á þriðju- dag. Hann sagði að sú ákvörðun Kínveija að vísa öllum útlending- um frá landinu fæli f sér að þeir myndu beita öllum ráðum til að beija niður uppreisnina. „Ég hræðist mjög að Lhasa verði eins og sláturhús," sagði Dalai Lama í viðtali við fréttamann Reuters. Leiðtoginn varaði Tíbeta við því að grípa til vopna þar sem Kínveijar myndu nota það sem tylliástæðu til að neyta aflsmunar. Samkvæmt opinberum tölum hafa 16 manns týnt lífi í óeirðunum frá því á sunnudag en tíbetskir læknar telja nærri lagi að 60 manns hafi fallið áður en herlög voru sett. ! dag, föstudag, eru 30 ár liðin frá því að Kínveijar bældu niður vopnaða uppreisn tíbetskra aðskilnaðarsinna og Dalai Lama flúði land. bundins herafla þátttökuríkjanna allt frá Atlantshafi til Úralfjalla en „Konungdæmið hefur ákveðið að viðurkenna lögmæti ríkisstjómar mujahideen-skæruliða," sagði í yfir- lýsingu saudi-arabíska utanríkis- ráðuneytisins. Yfirlýsing þeirra kem- efnavopn, kjamorkuvopn og flota- umsvif verða undanskilin. Ríki Atl- antshafsbandalagsins munu eink- um leggja áherslu á að ná fram fækkun skriðdreka, stórskotaliðs- vopna og brynvarinna liðsflutninga- vagna en á þessu sviði njóta ríki Varsjárbandalagsins mikilla yfir- burða. Sovétrfkin og bandamenn ur aðeins einum degi eftir að Gul- buddin Hekmatyar, utanríkisráð- herra útlagastjómarinnar, kom f op- inbera heimsókn til Saudi-Arabíu. Þar ætlar Hekmatyar að fara þess þeirra í Austur-Evrópu vilja hins vegar að samningamenn beini eink- um sjónum sínum að fækkun flug- véla og hermanna í Evrópu. í gær hófst einnig í Vínarborg ráðstefna 35 ríkja um öryggi og traustvekjandi aðgerðir á hemaðar- sviðinu í Evrópu. Fulltrúi íslenskra stjómvalda í þeim viðræðum sem og í .viðræðum um niðurskurð hins hefðbundna herafla er Hjálmar W. Hannesson sendiherra. á leit við Samtök íslamskra þjóða, ICO, að fulltrúum útlagastjómarinn- ar verði veitt aðild að samtökunum, en utanríkisráðherrar aðildarríkj- anna funda þar á mánudag. Fjórir manns týndu lífi, þar á meðal ungt bam, þegar skæmliðar skutu 16 eldflaugum að flugvellinum í Kabúl á miðvikudag, að sögn Tass- fréttastofunnar sové3ku. Þetta var fyrsta árás skæruliða á Kabúl frá því að bráðabirgðastjóm þeirra var komið á laggimar. Eastern fær greiðslustöðvun Eastem-flugfélagið bandariska fékk í gær greiðslustöðvun en verkfall flugvirkja og hlaðmanna, sem hófst um síðustu helgi, hefúr lamað starfsemi þess. Greiðslu- stöðvun er oftast undanfari gjald- þrots, en yfirmenn Eastera sögð- ust í gær ætla að endurskipu- leggja reksturinn og endurreisa félagið. Ákvörðun um framtíð fyr- irtækisins færist nú í hendur skipt- aráðanda i New York. Helztu val- kostimir, sem hann stendur frammi fyrir, er að se(ja félagið, FrÉhk' Lorenzoj sem er þyrnir i augum starfsmanna, eða fækka starfsmönnum þess stórum. Þeir eru 31 þúsund. Meðfylgjandi mynd var tekin af mótmælum tveggja flugfreyja Eastern en milli þeirra og með flugmannshúfú á höfði stendur klerkurinn og stjómmála- maðurinn Jesse Jackson, sem lýsti stuðningi við verkfallsmenn í gær. Afganistan: Saudi-Arabar viðurkenna útlagaslj órn skæruliða Kabúl, Islamabad, Moskva, Nikúsfa. Keuter. SAUDI-ARABÁR viðurkenndu fyrstir þjóða í gær útlagastjórn afgan- skra skæruliða sem mynduð var í Pakistan i síðasta mánuði. Tals- menn utanríkisráðuneytisins i Saudi-Arabíu sögðu að ríkisstjórnin hefði verið kosin af shura, þingi mujahideen-skæruliða, sem væri sú stofiiun sem færi með málefhi afgönsku þjóðarinnar. Talsmaður Kabúlstjóraarinnar sagði í gær að stjómarherinn hefði hrundið árás- um skæruliða við borgina Jalalabad. Kóreuríkin: Sameiginlegt lið á Asíu- leikana Panmunjom. Reuter. YFIRMENN íþróttamála í Norður- og Suður-Kóreu hafa ákveðið að heija und- irbúning að því að senda sameiginlegt lið á Asíuleik- ana sem fram fara í Peking á næsta ári. Samkomulag hef- ur náðst um þjóðsöng, frum- drög að sameiginlegum þjóð- fána (sjá mynd) og aðeins á eftir að útkljá deilur um það undir hvaða nafni liðið eigi að ganga inn á leikvanginn. Náist samningar verður það í fyrsta sinn sem ríkin senda sameigin- Iegt lið á íþróttaleika en þau háðu blóðuga styijöld árin 1950 - 1953. V-Þýskaland: Ákærð fyrir njósnir Karlsruhe. Reuter. ELKE Falk, 44 ára gamall ráðuneytisritari í Bonn, hefur verið ákærð fyrir njósnir í þágu sovésku leyniþjón- ustunnar, KGB. Saksóknari segir að konan hafi sent inn auglýsingu í dálka þar sem einmana fólk æskir eftir félagsskap. KGB- foringi, undir fölsku nafni, svaraði auglýsingunni og nokkrum sinnum á ári fóru þau saman í ferðalag sem Falk notaði til að fóðra elskhuga sinn á leynilegum upplýsing- um. Rúmenía: Neita SÞ um að kynna sér mann- réttindamál Genf. Reuter. RÚMENSKIR fulltrúar í mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna buðu síðastliðinn þriðjudag fulltrúum SÞ að koma til landsins og kynna sér ástand mannréttindamála. Tæpum sólarhring síðar drógu fulltrúamir boð sitt til baka, að sögn talsmanna SÞ í Genf. Rúmenskur fulltrúi sagði fréttamanni Reuíere-frétta- stofunnar að þetta hefði verið ákveðið eftir samráð við stjómvöld í Búkarest. Ekki hefði verið hægt að samþykkja skilyrði SÞ fyrir heimsókninni. Vestrænir heimildarmenn segja að þess hafi verið krafist að sendinefndin fengi að heim- sækja öll héruð og ræða við fjölda fólks. Ungverjaland: Ráðherra vill horfa til Vesturlanda Búdapest. Reuter. MIKLOS Nemeth, forsætis- ráðherra Ungveijalands, sagði í gær að einstrengingslegur ríkissósfalismi ætti sér enga framtíð; Ungveijar ættu að horfa til Vesturlanda er þeir tækju ákvörðun um umbætur. Jafnframt vísaði Nemeth á bug þeirri gömlu kreddu marx- ista að verkalýðurinn væri í fararbroddi allra stétta sam- félagsins; allar stéttir yrðu að vinna saman og það væri framsækið fólk úr öllum stétt- um sem væri fremst í fylkingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.